Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 36

Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Nýfrjálshyggja með mannúð- legt andlit FYRIR nokkru barst mér í hendur áhugavert umræðurit eftir Þór Sigfússon, Örríki á umbrotatímum. Bókin ■£&r lifandi lesning og ætti að vera umræðu- hvetjandi. Það er orðið fremur sjaldgæft að skrifaðar séu bækur um hvert stefnir, ef frá eru taiin ötul skrif Þor- kels Sigurlaugssonar og þegar sýnt var að bókin færi á hillumar án umræðu fór ég að leggja drög að pistli um bókina. I Morgunblaðinu 18. september birtist síðan ritdómur sem gerir fyrirætlun höfundar að engu. Róbert H. Haraldsson ritrýnir bókina og fínnur reyndar í skrifum ^Pórs nokkra áhugaverða punkta, en sannast sagna flautar hana útaf ef svo mætti að orði komast. Aðferð Róberts er einföld og sú sem ritrýn- um er tömust þegar þeir telja sig vera að vinna fyrir kaupinu sínu, að rýna í smátriði og ónákvæmni í framsetningu. Einhverntíma í skóla var mér kennt að lesa ætti umræðurit með öðrum hætti en vísindarit. í um- ræðuritum er það meginhugsunin sem telur og lesandinn á að taka - íifstöðu til hennar, en hvað vísinda- rit varðar á að gefa gaum að veik- ustu hlekkjunum. Það truflaði mig ekki við lestur bókarinnar að Þór misstigi sig í landfræðilegri legu Boston, en Róbert gerir það að aðal- atriði. Einnig gaf ég mér að höfund- ur væri talsmaður viðskiptafrelsis en ritrýnirinn gagnrýnir Þór fyrir að leggja ofuráherslu á það viðhorf. Mig langar til að minnast á þijú atriði sem fram koma í riti Þórs sem ættu að vera umræðuhvetjandi vegna þess að þau skipta aldamóta- kynslóðina sem Þór fjallar um veru- legu máli. Jafnvel þó bókin sé að- eins 120 síður þá eru mun fleiri atriði sem verð eru umhugsunar. Bókin er rík af hug- myndum þó hún sé ekki gallalaus. Fyrsta atriðið kemur fram í titlinum Örríki á umbrotatímum. Póli- tísk umræða á íslandi hefur allt frá aldamót- um einkennst af því að ísland sé miðpunktur heimsins. Slíkt er eðli- legt þegar þjóðríki er að berjast fýrir tilveru- rétti sínum eða að koma sér á landakortið. Sú heimsýn er þó orðin úrelt fyrir löngu og hefur verið nefnd þúfnapatríótismi og fengið á sig ýktari mynd í því sem Jón Bald- vin hefur kallað, að ég held, þjóð- Bók Þórs Sigfússonar Örríki á umbrotatímum, er lifandi lesning segir Örn D. Jónsson, og ætti að vera umræðu- hvetjandi. garðasósíalisma. Auðvitað er ísland miðpunktur heimsins séð frá heima- högunum, en það sama hlýtur að gilda fyrir öll önnur svæði heimsins. Þór færir aftur á móti sannfærandi rök fyrir því að aukið frelsi í við- skiptum og aðgengilegri leikreglur á heimsmarkaði opni áður óþekkt tækifæri, að því gefnu að íslending- ar taki þátt í leiknum. Hafísment- alítetið, einhverskonar nútíma sjálf- þurftarbúskapur sem gengur út á að við verðum að vera fær um að gera allt sjálf vegna þess að við vitum ekki hvenær hafísinn umlykur landið og lokar siglingarleiðum er Örn D. Jónsson ■-----------■ SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur* Uéuntu tískuverslun _ V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 mt Nærfatnaður af bestu gerð Laugavcgi 4, sími 551 4473 Blómarækt á Islandi hróplega úrelt. Aukin tengsl þýða aukið sjálfstæði. Framtíð okkar byggist á því að þjóðinni takist að vera virk á alþjóðavísu. Annað atriðið snýr að því hvernig aukið viðskiptafrelsi kallar á aukið samstarf eða samvinnu. Aldamóta- kynslóð Þórs er hedónísk. Lífsgæðin varða veginn, en hann er ekki tals- maður óhefts markaðsbúskapar. Hong Kong og Singapúr eru ekki fyrirmyndarríki vegna þess eins að hagvöxtur þar hefur verið óvenju mikill. Þór er sannfærður um að aukið viðskiptafrelsi og bylting í samskiptatækni opni áður óþekkta möguleika til velsældar fyrir þá sem eru í aðstöðu til að nýta tækifærin. íslendingar, sem þjóð, standa við dyr slíkra tækifæra. Auðssöfnunin er ekki markmið í sjálfu sér, heldur mannauður sem verður til í gegnum þátttöku í nýrri heimsskipan. Þann- ig ber að skilja emmin þijú sem Þór er tíðrætt um; menntun, markað og mannúð. Verkefnið er að byggja tengsl, byggð á trausti, við þá sem við eigum samleið með í því skyni að auka lífsgæðin í víðasta skilningi. Þriðja atriðið sem mig langar til að minnast á er veruiegt áhyggju- efni. Ekki vegna þess að Þór sam- sinni þeirri þróun, heldur er hún að eiga sér stað fyrir augum okkar. Flutningur fólks af landsbyggðinni virðist verða óstöðvandi: „Miðað við þróunina má ætla að allt að 85-90% búi á svæðinu frá Stykkishólmi að Hvolsvelli árið 2020. Nú búa á þessu svæði um 78% landsmanna.“ (s. 78) Það er því umhugsunarvert þegar höfundur bendir á þekkingarsamfé- lag sem byggir á fyrirtækjanetum og tekur Mið-Norðurland sem dæmi. Þar bendir hann á möguleika í sam- bandi við hestamennsku, sútun fisk- roða og hálandaferðir. Allt láglauna framsleiðslu- og þjónustustörf ætlað að laða að utanaðkomandi. Hér eins og víða annars staðar í bókinni vek- ur Þór til umhugsunar og tekst vel upp, jafnvel þó lausnir séu ekki framreiddar á síðum bókarinnar. Því hefur oft verið haldið fram að einkenni á fyrirmyndaríkjum eða útópíum sé að þar skíni alltaf sól. Framtíðarsýn Þórs er land tækifær- anna, en tækifæra þeirra sem ná að nýta þau. Ritrýninum tekst að horfa framhjá slíkum hugvekjum með því að skírskota til yfirburða- þekkingar sinnar í landafræði og er það miður. Höfundur er atvinnuskipulagsfræðingur. FRAMLEIÐENDUR blóma hér- lendis eru rúmlega 50 og framleiða í um 81.000 fm gróðurhúsa en alls er ræktað í um 187.000 fm. Tæplega helmingur blómanna er framleiddur í Hveragerði en rækt- un er líka í Reykholti og Laugarási í Bisk- upstungum, á Flúðum, í Mosfellsdal og Skagafirði. Ræktun blóma, bæði pottaplantna og afskorinna blóma, hef- ur tekið miklum stakkaskiptum með tilkomu gróðurlýsing- ar. Nú eru flestar teg- undir afskorinna blóma framleiddar árið um kring og nokkrar tegundir full- nægja innlendri eftir- spurn. Einnig kemur til notkun kolsýru (CÖ2) sem notuð er til að auka vöxt og ná gæðameiri uppskeru. Kolsýra er unnin úr jarðgufu að Hæðarenda í Grímsnesi, þannig að hráefnið getur vart verið náttúru- legra. Það blóm sem framleitt er í mestu magni er rós, en rósir eru ræktaðar til afskurðar í um 32.000 fm. Alls má reikna með að fram- leiddar séu um 4,5 milljónir rósa eða um 17 rósir á hvert manns- barn. Ræktun rósa hefur aukist mikið síðustu 10 ár á kostnað ann- arra tegunda og hefur því fjöl- breytnin minnkað nokkuð. Astæð- urnar eru vafalaust margar en lík- legasta ástæðan er að rósir eru ofarlega í huga flestra og gengur svo langt að margir kalla öll blóm rósir, jafnvel jólastjarnan er kölluð jólarós. Einnig er rós auðveld í skreytingarvinnu þannig að fljót- legt er að búa til vönd eða aðra skreytingu með rósum. Afbrigði rósa í ræktun eru yfir 60 og eru rauð afbrigði með meira en helm- ing framleiðslunnar. Það afbrigði sem nú er stærst í framleiðslu er First Red. Aðrar tegundir afskor- inna blóma eru t.d. krysi, sóllilja, fresía, gerbera, liljur og statika. Laukblóm sem áður voru uppistað- an í vetrarræktuninni hafa nú látið undan síga þannig að nú eru fram- leiddir innan við 200.000 túlípanar en voru áður um 800.000. Pottaplöntur eru ræktaðar í um 12.000 fm en voru ræktaðar í um 19.000 fm árið 1991. Samdrátturinn stafar af auknum inn- flutningi. í pottaplönt- um er jólastjarnan sú tegund sem mest er framleitt af, en reikna má með að þær séu um 70.000 í ár. Jóla- stjörnuafbrigðin sem ræktuð eru í dag eru ólík þeim sem voru í ræktun fyrir 10 árum. Þá voru ræktuð af- brigði sem hætti til að verða nokk- uð í hærra lagi og þurfti því að nota úðun með vaxtartregðuefnum til að hemja lengdarvöxt þeirra. Framtíð blómaræktun- ar, segir Magnús Ag- ústsson, er háð þróun raforkumarkaðar á næstu árum. Þau afbrigði sem ræktað er mest af í dag, Lilo og Sonora, eru mun lágvaxnari. Litur þeirra er einnig mun dekkri en gömlu afbrigðanna. Um 90% af jólastjörnunum eru rauðar en aðrir litir eru hvítur, bleikur og bleik/hvít skræpótt. Aðrar stórar tegundir pottaplantna sem framleiddar eru hér eru sverð- burknar, páskaliljur, begóníur, pál- ur, hawaii-rósir, krysi og pottarós- ir auk sumarpottablóma eins og hengilóbelíu, dalíu og tóbakshorns. Einnig má nefna ýmsar hengi- plöntur s.s. hengitóbakshorn sem er að sækja á um þessar mundir. Segja má að allar stórar plöntur (hærri en metri) séu innfluttar. Framleiðsla til útflutnings er hafin á pottaplöntum og er vonandi að- eins vísir að meiru. Þar má segja að horfið hafi verið inn á þá braut að nýta okkar séríslensku aðstæð- ur í stað þess að reyna að fram- leiða eitthvað sem aðrir gátu gert betur og ódýrar við betri aðstæður. Framtíð blómaræktunar á ís- landi er háð því hvernig raforku- markaður þróast á næstu árum. Garðyrkjubændur hafa samning um umframorkukaup frá Lands- virkjun en sá samningur rennur út um næstu áramót. Höfundur er ylræktarráðunautur hjá Bændasamtökum ísiands. SNYRTISTOFAN GUERLAIN REYKJAVÍK Óðinsgata 1 • 101 Reykjavík Sími 562 3220 • Fax 552 2320 / A á netinu... Hefur þú kynnt þér kosti ISDN? ISDN mótald og grunntenging hjá Pósti og Síma frá kr. 13.373 'Kr^'iSI ISDN mótöld Meiri hraði á Internetinu Tvær símalínur - Aldrei á talii Hagkvæmt Gott verð Kíktu á þessa MORE Pentium 166 ASUS P55-SP4AV móðurborð 166 MHz MMX Intel örgjörvi 512K flýtiminni 32MB vinnsluminni 2100MB harður diskur 15" ViewSonic 100 riða skjár Soundblaster hljóðkort Windows 95 lyklaborð Microsoft samhæfð mús Windows 95 á geisladisk MPEG2 spilari og fleira og fleira... kr. 109.900 stgr. Móðurborð Eins/tvsggja örgjðrva BOÐEIND TÖLVUVERSLUN - ÞJÓNUSTA Mórkln A - 108 Rrykjavik - timl 588 20A1 - f«* 588 20A2 wwvv.bod«4n<l.it Magnús Agústsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.