Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 39 Við biðjum Guð að styrkja Ingu systur okkar og börnin þeirra í sorg- inni. Við munum ætíð minnast Valtýs þá er við heyrum góðs manns getið. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guð blessi minningu Valtýs Há- konarsonar. Tengdasystkinin. Valtýr Hákonarson vann hjá Eimskipaféjagi íslands alla sína starfsævi. í viðtali við hann í bók- inni Milli sterkra stafna frá árinu 1993 segir hann: „Þegar maður starfar í fjörutíu og fimm ár hjá sama fyrirtækinu, lengst af í stjórnunarstörfum, er hugur manns bundinn við viðfangs- efni þess og vandamál seint og snemma, hvar sem maður er stadd- ur. Þegar ég hugsa um áfanga á ævi minni sem standa upp úr eða erfiðleika sem barist var við og sigra sem unnust, þá tengist flest það sem hugurinn staldrar við starfi mínu hjá Eimskipafélagi íslands." Þessi orð Valtýs endurspegla við- horf hans til starfs síns og Eim- skipafélagsins, sem hann vann alla tíð af mikilli trúmennsku og elju. Hann kom til starfa hjá félaginu lýðveldissumarið 1944, þá 21 árs gamall, og lét að eigin ósk af störf- um 66 ára árið 1989. Hann byijaði í bókhaldinu, eins og gjarnan tíðk- aðist þá, en vann sig upp til æðstu metorða hjá fyrirtækinu. Hann tók þátt í breytingum í rekstri fyrirtæk- isins að heimstyijöldinni lokinni, veitti farþegadeild forstöðu við komu nýs Gullfoss, var forstöðu- maður skrifstofunnar í Kaup- mannahöfn, sem þá var eina skrif- stofa félagins erlendis, og varð skrifstofustjóri hér heima í fram- haldi af því. Skrifstofustjórastarfið var þá einstök virðingarstaða og var önnur af tveimur stöðum í fyrir- tækinu, sem stjórn félagsins réð til samkvæmt upphaflegum sam- þykktum þess. Hann vann fyrir þijá af forstjórum félagsins og var staðgengill og hægri hönd tveggja þeirra síðari. Síðustu tíu árin gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra og tók virkan þátt í margvíslegum breytingum á fyrirtækinu á þeim tíma. Valtýr var hægur í allri fram- göngu, en fylginn sér og fastur fyrir. Hann átti mikil og margvísleg samskipti við viðskiptamenn og samstarfsaðila heima og erlendis. Allir, sem áttu samskipti við hann, bera honum gott orð. Hann tók þátt í og stýrði mörgum þýðingar- miklum samningaviðræðum. Það var einkenni hans að koma ávallt vel undirbúinn til slíkra viðræðna sem annarra verka. Hann lét sér ekki bregða þótt viðhorf hans fengju ekki undirtektir, en tók sér góðan tíma til að leiða fram lausn- ir. Erlendir aðilar minnast enn samningaviðræðna við hann með mikilli virðingu. Hann sat um ellefu ára skeið í framkvæmdastjórn Vinnuveitenda- sambands íslands á tímabili mikilla átaka og tók þar þátt í mörgum erfiðum snerrum. Hann var virkur mótandi og þátttakandi í nýjum samningum um hafnarvinnu í Reykjavík, sem gerbreyttu stöðu og hlut starfsmannanna en voru einnig farsælir fyrir Eimskipafélagið. Árangri sínum náði Valtýr Há- konarson þrátt fyrir takmarkaða formlega skólagöngu. Hún var nokkrir mánuðir í farskóla í heima- sveitinni og þriggja ára nám í fram- haldsskólum. Endurspeglast í starfsferli hans góð greind, metnað- ur og þolgæði. Með nýjum stjórnendum geta oft skapast vandamál. Þegar ég kom til starfa hjá félaginu tók Valtýr Hákonarson mér afar vel. Hann varð lærifaðir minn og nýrrar kyn- slóðar stjórnenda. Ég gat alltaf reitt mig á heilindi hans og góð ráð. Ég vissi, að ég gat vísað vandasömum verkefnum til hans, og treyst því að þau væru í góðum höndum. Fyrir allt okkar samstarf þakka ég nú. Fyrir hönd stjórnar Eimskipafé- lags íslands færi ég Valtý Hákonar- syni þakkir fyrir mikils metið starf á langri starfsævi. Eiginkonu hans, Ingunni Eyjólfsdóttur, og fjölskyldu hans allri flyt ég einlægar samúðar- kveðjur. Hörður Sigurgestsson. Heiðursmaður og góður dreng- ur er í dag kvaddur hinstu kveðju með fáeinum orðum. Valtýr Hákonarson ólst upp á íslensku bændaheimili undir hand- leiðslu góðra foreldra. Það uppeldi átti eftir að reynast honum hald- gott á lífsleiðinni. Að lokinni undir- búningsmenntun, fýrst í Flensborg- arskólanum og síðan í Samvinnu- skólanum, starfaði hann hjá Kaup- félagi Austfjarða á Seyðisfírði í eitt ár, en hóf síðan störf hjá Eimskipa- félaginu í ágúst árið 1944. Fyrst vann hann í bókhaldi við endurskoðun uppgjöra frá erlendum umboðsmönnum. Fylgdu starfinu talsverðar erlendar bréfaskriftir og vakti það yfirmönnum fyrirtækisins sérstaka athygli hve greinargott mál og stíl hann skrifaði. Þessi hæfileiki, auk annarra góðra, leiddi til þess að honum var falin stjórnun farþegadeildar félagsins þegar Gullfoss hóf siglingar árið 1950. Að lokinni síðari heimsstyrjöld- inni voru efnilegir starfsmenn á skrifstofu félagsins í Reykjavík sendir í læri hjá Jóni Guðbrands- syni stjórnanda skrifstofu Eimskips í Kaupmannahöfn. Reynslan af þessu varð mjög góð og margir þeirra sem nutu gegndu síðar æðstu trúnaðarstörfum hjá félaginu. Einn þeirra var Valtýr Hákonarson. Við starfslok Jóns Guðbrands- sonar árið 1954 tók Valtýr við stjórn skrifstofu félagsins í Kaup- mannahöfn. Því veigamikla starfi fylgdi margs konar erindrekstur fyrir félagið víða erlendis. Þegar ég var ráðinn í starf for- stjóra Eimskipafélagsins árið 1962 var mér falið að tilnefna mann í stöðu skrifstofustjóra sem stjóm félagsins réði í og stóð næst for- stjórastöðunni. Kaiis ég að velja Valtý í þá stöðu. Ég fór til Kaup- mannahafnar til að ræða málið við hann. Hann var þá farinn að festa þar rætur, hafði eignast lítið og notalegt hús til búsetu ásamt Ing- unni konu sinni og ungum dætmm. Þau hjónin höfðu eignast góða vini og dæturnar farnar að ganga í skóla í Kaupmannahöfn. Valið var stór og áhrifarík ákvörðun. Eftir skamma umhugsun valdi hann þann kostinn að verða við ósk félagsins og taka við skrifstofustjórastarfinu. Það reyndist félaginu farsælt að Valtýr brást við með þessum hætti. Mörg ábyrgðarmikil störf biðu hans hér heima og mér var það afar mikilvægt að vita að málum var vel borgið í umsjá hans þegar ég starfs míns vegna var fjarvistum erlendis. Og þau voru fleiri störfin en hér eru talin sem hann vann fyrir félag- ið. Meðal þeirra voru samningagerð við ýmsa stærstu viðskiptavini fé- lagsins og seta í framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands íslands, svo fátt eitt sé nefnt. Það má telja samnefnara fyrir öll hans störf, að þau voru unnin af einstakri trúmennsku og holl- ustu. Það er ekki ofmælt að segja að alla tíð hafi hann verið húsbónda- hollur og borið hag Eimskipafélags- ins fyrir bijósti. Að leiðarlokum færi ég Valtý Hákonarsyni bestu þakkir mínar fyrir langt og ánægjulegt samstarf. Blessuð sé minning hans. Við hjónin vottum Ingunni konu Valtýs, dætrum þeirra og öðrum ástvinum innilega samúð okkar. Óttarr Möller. Óvænt andlátsfregn Valtýs Há- konarsonar setti mig hljóðan og vakti með mér minningar frá liðinni tíð. í þeirri svipan bar fyrir mynd langrar samfylgdar okkar í lífi og starfí. Fyrstu kynni okkar Valtýs eru frá því að hann réðst aðstoðarbók- ari á skrifstofu Eimskipafélagsins árið 1944. Fljótlega varð með okkur ánægjulegt samstarf og síðar sam- fylgd út fýrir vettvang skrifstofu- starfsins. Og þegar fram liðu stund- ir bundust þau vináttubönd sem upp frá því hafa verið að eflast með hveiju ári sem liðið hefur. Ég mun ætíð minnast hans sem hins trausta félaga og góða vinar. Vinátta hans er mér nú efst í huga. Henni vil ég með einlægu þakklæti helga þau orð sem hér eru rituð. Starfsferill Valtýs hjá Eimskipa- félaginu varð langur og farsæll. Eftir fimm ára starf við bókhald var honum boðin deildarstjórastaða í farþegadeild félagsins þegar nýr Gullfoss bættist í flotann. Síðar tók hann við forstöðu á skrifstofu fé- lagsins í Kaupmannahöfn og fluttist hann þangað ásamt fjölskyldu sinni. Þegar Óttarr Möller varð for- stjóri Eimskipafélagsins árið 1962 tók Valtýr við skrifstofustjórastöðu félagsins í Reykjavík, sem næst stóð stöðu forstjórans. Eftir að end- urskoðað var innra skipulag félags- ins árið 1979 tók Valtýr við fram- kvæmdastjórastöðu flutningasviðs og árið 1986 við framkvæmda- stjórastöðu rekstrarsviðs í fram- haldi af nýjum skipulagsbreyting- um. Hann var í öllum þessum stöð- um staðgengill forstjóra félagsins. Hann lét af störfum eftir fjörutíu og fimm ára starf hjá félaginu hinn 30. nóvember 1989. Á hinum langa og farsæla starfs- ferli öðlaðist Valtýr víðtæka þekk- ingu á skiparekstri og siglingamál- um og mikla reynslu í öllu því er þetta varðar. Á þeirri reynslu og á framsýni grundvallaði hann vanda- söm ábyrgðarstörf sín sem hann vann fyrir Eimskipafélagið. Hann hafði velferð félagsins alltaf að leið- arljósi og var seint og snemma með hugann við að vinna félaginu af trúmennsku. En hann var einnig sjálfum sér trúr og sýndi aldrei annað en drenglyndi og skilning í öllum samskiptum. Hjá honum fóru bæði saman miklir mannkostir og góð greind. I hugum okkar starfsfélaga hans fyrr og síðar á hann sitt öndvegi virðingar. Við leiðarlok Valtýs Hákonarson- ar þakka ég fyrir ánægjulegt sam- starf við hann á löngum og við- burðaríkum starfsdegi. Einnig þakka ég einlæga vináttu hans og hans ágætu konu, Ingunnar. Henni og dætrum þeirra og öðrum að- standendum votta ég innilega sam- úð mína. Megi minningin um tryggan lífs- förunaut og góðan föður vera þeim huggun í harmi. Sigurlaugur Þorkelsson. í dag er kvaddur hinstu kveðju Valtýr Hákonarson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Eimskip. Með honum er genginn mikill heið- ursmaður, góður félagi og sam- starfsmaður. Hugur minn leitar til- baka um rúman hálfan annan ára- tug, er ég réð mig til starfa hjá Eimskip og vann með honum sem fulltrúi framkvæmdastjóra. Við átt- um því frá fyrstu kynnum mikið og náið samstarf, og fékk ég að taka þátt með honum í að stýra og þróa áfram umfangsmikinn rekstur i flutningastarfsemi félagsins á tím- um mikilla breytinga. Valtýr bjó yfir mikilli yfírsýn og reynslu um H H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H ^ Sími 562 0200 ^ [IIIIIIIIIIIJ flutningastarfsemi, og hafði átt langt og farsælt starf á þeim vett- vangi bæði innanlands og utan. Á þessum tíma komu til starfa hjá Eimskip margir ungir menn sem voru að heíja sinn starfsferil undir stjóm Valtýs. Það var mikils virði fyrir okkur yngri mennina að fá tækifæri til að starfa með honum á þessum árum, kynnast honum og njóta félagsskapar hans. Hann miðlaði ríkulega af þekkingu sinni og reynslu, og veitti okkur góða innsýn inn í starfsheim þar sem við vorum að hasla okkur völl. Hann hafði sérstakt lag á að hvetja okkur til nýrra og góðra verka, en jafn- framt halda þannig um taumana að sérhver hélt einbeitni sinni og skilaði verkum vel. Valtýr var mikill mannkostamað- ur, búinn heilsteyptum persónu- leika. Yfir fasi hans var ró og festa. Hann var mjög greindur og glöggur að skynja aðalatriði í hveiju máli. Ósjaldan lagði ég fyrir hann grein- argerðir um viðfangsefni sem lögð hafði verið vinna í að skoða til hlít- ar. Eftir skjóta yfirferð þeirra sá hann ætíð kjarna málsins og var fljótur að taka afstöðu til aðgerða sem ráðast þurfti í. Hann var vinnu- samur, kappsmikill og vandvirkur og vænti þess sama af okkur starfs- mönnum sínum. Við ferðuðumst stundum saman erlendis og er mér sérstaklega minnistæð ferð mín með honum til Kaupmannahafnar. Kaupmanna- höfn var honum einkar kær, þar hafði hann búið og starfað í átta ár og veitt skrifstofu Eimskips for- stöðu. Hann sagði frá þeim tíma, og dró upp Ijóslifandi og skemmti- lega mynd af starfsemi sem hann stýrði í Danmörku á þessum árum. Ekki síðri voru sögur hans af dag- legu lífi í Kaupmannahöfn sem tengdist siglingum Gullfoss. En tímarnir breyttust, og Valtýr tók nokkrum sinnum þátt í að stýra miklum breytingum í flutninga- tækni og starfsháttum hjá Eimskip og þróaði jafnframt sínar starfsað- ferðir og stjórnunarhætti í takt við þann stíl sem var á hvetjum tíma. Þegar uppbygging hófst á ný á starfsemi Eimskips erlendis árið 1983 var Valtýr á réttum stað, þekkti verkefnið vel, og var ráða- góður við hvern áfanga sem þar var hrint var í framkvæmd. Ég minnist Valtýs sem hins trausta vinar og félaga. Hann var réttsýnn, rökfastur og sanngjarn. Að kynnast og starfa með manni búnum slíkum mannkostum eru verðmæti sem ekki glatast. Að leiðarlokum þakka ég af ein- lægni fyrir ánægjulega samfylgd. Ég flyt Ingunni Eyjólfsdóttur eigin- konu hans, dætrum þeirra og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu Valtýs Há- konarsonar. Þórður Sverrisson. Eftir andlát Valtýs Hákonarson- ar sakna ég vinar í stað. Ég hef búið í nágrenni við þau hjón Valtý Hákonarson og Ingunni Eyjólfs- dóttur um tíma. Ekkert vandalaust fólk reyndist mér betur, þegar mér lá á. Valtýr var ekki fyrirferðarmikill í daglegri umgengni, en hann átti gull í sál og gimstein í hjarta og verður þeim mun fyrirferðarmeiri í minningunni. Ég vil þakka þessum nágranna mínum fyrir samfylgdina og óska honum góðrar ferðar og heimkomu yfír móðuna miklu og bið þann sem öllu ræður að styrkja fjölskyldu hans í sorginni. Björn. Það er ótrúlegt lán að verða þess aðnjótandi að fá að þekkja menn eins og Valtý Hákonarson og að vera tengdur slíkum mönnum sterk- um fjölskylduböndum. Hann var sannkallaður heiðursmaður, hrein- lyndur, hógvær og hlýr. Valtýr var greindur og ákaflega fjölhæfur maður, vinnusamur og ósérhlífinn. Strax sem ungum manni voru hon- um falin mikilvæg _ trúnaðarstörf fyrir Eimskipafélag íslands og því fyrirtæki helgaði hann starfskrafta sína allt þar til hann hætti störfum, þá framkvæmdastjóri, 45 árum seinna. Valtýr var kvæntur móðursystur minni, Ingunni Eyjólfsdóttur. Varla er hægt að hugsa sér glæsilegri og samstilltari hjón en þau tvö. Þau voru saman sannkallaðir heims- borgarar og mótuð af langri dvöl á erlendri grund, en þau fóru sem ung hjón úr landi vegna starfa Valtýs fyrir Eimskipafélag íslands í Kaupmannahöfn. Þar var hann . forstöðumaður skrifstofu félagsins í nær áratug. Þau bjuggu sér fal- legt heimili í Kaupmannahöfn og ræktuðu garðinn sinn vel í orðsins fyllstu merkingu. Þar ræktuðu þau fagurt mannlíf með dætrum sínum, sem allar bera foreldrum sínum fagurt vitni og þangað fannst ætt- ingjum og vinum gott að koma, enda voru þau höfðingjar heim að sækja. Eftir að þau voru kölluð heim, að lokinni margra ára farsælli bú- setu, leitaði, að því að ég held hug- ur þeirra, oft á fyrri slóðir. Valtýr og Inga ræktuðu fjölskyldutengsl á íslandi af sérstakri alúð, jafnframt því sem þau héldu góðum tengslum við vini sína í Danmörku og það líf sem þau höfðu átt þar. Ég mun ævinlega standa í þakkarskuld við Valtý og Ingu fyrir það að hafa gefið mér, þá ungri fermingarstúlku, tækifæri til þess að dveljast sumar- langt á heimili þeirra í Danmörku, þar sem ég, með þeirra hjálp, kynnt- ist nýrri menningu ogtungu, nokkuð sem ég mun alla tíð búa að. Þó svo að ég væri komin í þeim tilgangi að gæta dætra þeirra þetta sumar, er nokkuð ljóst að hagurinn af þess- ari dvöl var allur minn. Seinna sýndi Valtýr mér það traust að ráða mig til starfa á skrif- stofu Eimskipafélags íslands í Reykjavík. Þar kynntist ég hinni hliðinni á Valtý, athafnamanninum og skynjaði hversu mikla trú- mennsku hann sýndi fyrirtækinu og hversu mikið traust starfsfólk og viðskiptavinir báru til hans. Systkinin frá Smyrilsvegi 28, makar þeirra og börn eru fátækari við fráfall Valtýs, hann reyndist okkur öllum svo vel. Missir Ingu frænku, Elísabetar, Kristínar, Margrétar, Önnu Maríu og fjölskyldna þeirra er mikill. Við Ástráður og böm okkar vottum þeim innilega samúð. Blessuð sé minning Valtýs Hákonarsonar. Asta B. Þorsteinsdóttir. SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.