Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 43

Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 43 I : l ð : i i i 4 i i i i MINNINGAR FRÉTTIR GUÐNÝALDA SNORRADÓTTIR + Guðný Alda Snorradóttir fæddist í Reykjavík 8. júní 1970. Hún lést á Borgarspítal- anum 13. september síðastlið- inn. Utför hennar fer fram frá Hvalsneskirkju föstudaginn 19. september. Ég vaknaði við símann snemma á laugardagsmorgun og fékk fregnir um að önnur af mínum bestu vinkonum væri látin. Það var sem reiðarslag að Guðný í blóma lífsins væri tekin á brott. Minning- arnar um æðislega vinkonu sem alltaf var til staðar hrönnuðust upp og þó sérstaklega hve Arnór sonur minn sótti fast að fá að gista hjá þér og Berta. Þegar ég sagði hon- um að hann mætti sofa hjá ykkur helgina á undan, hoppaði hann af kæti alla leiðina út í bíl. Afa þínum vartu svo kær. Þegar við fórum í okkar síðustu ferð til Reykjavíkur saman, byijaðir þú á því að heimsækja hann, þú hugsað- ir allaf fyrst og fremst um hvernig honum liði. Ég mun alltaf geyma minninguna um þig í hjarta mínu, elsku besta Guðný mín. Elsku Berti og fjölskyldur, megi góði Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Aníta Inga. Fréttin sem ég fékk hinn 13. september líður mér örugglega aldrei úr minni. Guðný Alda vin- kona og vinnufélagi var farin úr þessu lífi. Ég átti erfitt með að skilja að þessi hressa og káta manneskja væri farin. Stundirnar sem við Guðný áttum saman í vinnunni jafnt sem utan hennar gleymast aldrei. Guðný var alltaf til í að hjálpa ef eitthvað bjátaði á. Alltaf kom hún manni til að hlæja aftur og gátum við oft séð sjjaugilegar hliðar á málunum. Ég gleymi aldrei ferð okkar Guðnýjar út í Garð í vörutaln- ingu, skemmtum við okkur vel þar og gerðum líka óspart grín að þeirri ferð. Um miðjan júlimánuð hætti ég svo í búðinni vegna barneignar, Guðný, sem sannur barnavinur, fylgdist með allri meðgöngunni, loks kom svo lítil prinsessa í byijun ágúst, og auðvitað var Guðný mætt manna fyrst til okkar mæðgna á sjúkrahúsið hress og kát. Það má með sanni segja að það sé komið stórt skarð í okkar vinnu- félagahóp og missirinn er mikill fyrir alla í búðinni. Það verður sannarlega erfitt að koma til vinnu á ný og engin Guðný til staðar. Elsku Berti, Palli, foreldrar, systkini og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og vona að guð blessi ykkur öll í þessari miklu sorg. Anna Elín Björnsdóttir. SIGURBERGUR E. GUÐMUNDSSON + Sigurbergnr E. Guðmunds- son, Mansi, var fæddur í Reykjavík 29. nóvember 1923. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- nesja 2. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Njarðvíkurkirkju 9. september. Hinsta kveðja frá Báru systur Með heitri þökk og trega nú lít ég liðnu árin er leiðir okkar greinast við hinstu þátta skil. Og minningamar björtu, þær brosa gegnum . tárin um bróður elskulegan, er flutti ljós og yl. Á björtu lífsins vori, og ævidaga alla ég átti þína sönnu og traustu bróður ást. Slíkar kærleiks gjafir úr gildi aldrei falla sem gafstu af hógværð þinni og tryggð er ekki brást. Konu þinni er studdi þig, í þjáningu og þrautum þakkir vil ég færa, og börnum hennar nú. Megi gæfan blómgast, og brosa á þeirra brautum þess bið ég Ijóssins föður, i kærleik, von og trú. Þínar kæru dætur, sem komu um vegferð langa kærleiksn'kar vöktu við sjúkrabeðinn þinn. Þegar drottinn vemdi og blessi, hvar liggur lífsins ganga hann leiði þær og styrki, við fóður arminn sinn. Lof sé góðum guði, er gaf þig bróðir kæri, ég geymi minning þína, sem ljós i hjarta mér. Fyrir öll þín gæði, ég ástarþakkir færi það allt þér drottinn launi, mín hinsta kveðja er. (Í.S.) Ríó og vinir á Hótel Sögu ÞAÐ er orðið nokkuð síðan Ríó- tríóið hefur stigið á svið en þeir skemmta gestum Hótel Sögu laugardagana 27. september og 4. október, aðeins þessi tvö kvöld. Ríó tríóið sem oft er nefnt stærsta tríó í heimi verður nú skipað átta mönnum. Fyrir utan þá félaga Agúst Atlason, Helga Pétursson og Ólaf Þórðarson verða í tríóinu þeir Gunnar Þórðarson, Björn Thoroddsen, Szymon Kuran, Magnús R. Ein- arsson, Grettir Björnsson og Gunnlaugur Briem. Þeir félagar Bubbi Morthens og KK (Kristján Krisljánsson) koma líka fram. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Ríó, KK og Bubbi koma saman á sömu skemmtuninni. KK og Bubbi syngja hvor í sínu lagi og svo með vinum sínum í Ríó og vinum þeirra. Loks verða Tamlasveit- in, Egill Ólafsson og Sigrún Eva Ármannsdóttir einnig á sviðinu á Sögu þessi kvöld. Skemmtunin hefst kl. 22. Þriggja rétta kvöld- verður er í boði og hægt er að kaupa sig inn sérstaklega á skemmtunina sem hefst stund- víslega kl. 22. AUÐUR Kristinsdóttir og Hrönn Marinósdóttir frá Pijónaskóla Tinnu. Prjónadag- urinn 1997 LEIÐRÉTT Óaðgengileg tafla í grein Finns Birgissonar, „Jaðar- skattnefnd - in Memoriam", í blað- inu í gær, birtist tafla þar sem born- ar voru saman barnabætur í nokkr- um löndum. Tölur í töflunni voru réttar, en uppsetningunni var ábótavant. Lesendum til glöggvun- ar birtist hún því aftur. Upphæðir í milljörðum: Barnabætur ’96, heild ísl. Danskar Þýs.’97 Einst. for. 1,66 1,67 1,33 Hjón 3,08 4,69 7,44 Samt. 4,74 6,36 8,77 Hlutf., % 100 134 185 HALDINN verður Pijónadagurinn 1997 hjá Pijónaskóla Tinnu laugar- daginn 27. september nk. Það eru þær Hanna Marinósdóttir og Auður Kristinsdóttir sem standa að degin- um en þær munu jafnframt veita allar almennar leiðbeiningar varð- andi pijón. Jafnframt því verða þar til sýnis nýjustu peysurnar úr Pijónablaðinu Ýr ásamt verðlaunapeysunum úr hönnunarsamkeppni Tinnu frá því í vor. Skólinn er til húsa að Hjalla- hrauni 4 í Hafnarfirði og eru allir velkomnir. Heitt kaffi verður á könnunni og eru foreldrar sérstak- lega hvattir til að koma með börnin og fá aðstoð við að kenna þeim að pijóna, segir í fréttatilkynningu. Rósadag- aríRáð- . húsinu HALDIN verður viðamikil rósasýning í Ráðhúsi Reykja- víkur dagana 27. og 28. sept- ember. Sýningin stendur frá kl. 12-18 bæði laugardag og sunnudag. Skreytingafólk sýnir milli kl. 14 og 16 báða dagana. Þessa dagana standa yfir íslenskir blómadagar en þeir hófust fimmtudaginn 18. sept- ember sl. með tilboði á risa- vendi í öllum blómaverslunum. Blómadagarnir eru samvinnu- verkefni framleiðenda, heild- sala og blómakaupmanna. Til- gangurinn er að kynna ís- lenska blómaframleiðslu og það sem henni tengist. Risavandatilboðið stendur yfir til loka blómadaga, fram á sunnudag 28. september eða meðan birgðir endast. Vöndur- inn er á 990 kr. stykkið. Einn- ig er í þessari viku boðið upp á pottaplöntur á tilboðsverði í öllum blómaverslunum. Málþing* um óhefðbundn- ar krabba- meinsiækn- ingar MÁLÞING um nýjar leiðir við lækningu og meðhöndlun krabbameins verður haldið á Hótel Loftleiðum laugardag- - inn 27. september frá kl. 13-17. „Einnig verður íjallað um störf og rannsóknir nokkurra brautryðjenda á þessu sviði þar sem náðst hefur ótrúlega góður árangur við meðferð á flestum gerðum krabbameins. Allar þessar aðferðir eiga það sammerkt að byggja upp ónæmiskerfi sjúklingsins, bæta andlega og líkamlega líð- an hans og skila honum heil- brigðari einstaklingi út í lífið að meðferð lokinni," segir í fréttatilkynningu. Frummælendur verða Þor- steinn Barðason, Einar Þor- steinn Ásgeirsson, Sigrún Ól- sen, Jóhanna L. Viggósdóttir, Ævar Jóhannesson, Guðrún Óladóttir, Þorsteinn Njálsson, Hallgrímur Þ. Magnússon og Selma Júlíusdóttir. Gert er ráð fyrir opnum umræðum í lokin. Málþingið er öllum opið. i i i i i R A Ð A U GLÝSI IM G A FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Flugmenn —flugáhugamenn Fundur um flugöryggismál, verður haldin í kvöld á Hótel Loftleiðum og hefst hann kl. 20.00 Fundarefni: • Atburdir sumarsins skoðaðir— Skúli Jón Sigurðsson • Að klæða sig á öruggan hátt— EinarTorfi Finnsson • Rekstur flugvéla að vetri til — Sigurjón Valsson • Kvikmyndasýning Allir velkomnir Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík, Flugmálafé- lag íslands, Flugmálstjórn,Öryggisnefnd FÍA. Grænland — Kanada í Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30 flytur Níels Einarsson, mannfræðingur og lekt- or við Fláskólann á Akureyri erindi um sjávar- spendýraveiðar, sjálfbæra þróun og siðvæð- ingu náttúrunnar. Veitingabúð opin í kaffihléi. Allir velkomnir. Grænlensk-íslenska félagið KALAK og Vináttufélag íslands og Kanada. Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Rangæings verður haldinn í Verkalýðshúsinu á Hellu, fimmtudaginn 16. október nk. kl. 21.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Lífeyrissjóðurinn Hlíf heldur aðalfund laugardaginn 27. september kl. 15.00 í sal-A á Hótel Sögu. Fundarefni: Reglugerðarbreytingar. Ársreikningar sjóðsins. Önnur mál. Stjórnin. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.