Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 52

Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM “1 1- KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir bresku myndina Career Girls sem gerð er af leikstjóranum Mike Leigh, en síðasta mynd hans, Leyndarmál og lygar, hlaut fádæma góðar viðtökur á síðasta ári Konurá framabraut Frumsýning TÖKUM á Career Girls lauk aðeins nokkrum dögum áður en leikstjórinn Mike Leigh hélt til Cannes í maí í fyrra til að frumsýna þar mynd sína Leyndarmál og lygar, en hún hlaut svo gullpálmann á kvikmyndahá- tíðinni og aðalleikkonan í mynd- inni, Brenda Blethyn, var valin besta ieikkonan í aðalhlutverki. Síðan hefur Leyndarmál og lygar verið sýnd við mikla aðsókn um allan heim og hefur myndin skilað rúmlega 50 milljónum dollara í aðgangseyri. Myndin hlaut fjölda annarra verðlauna og var hún til- nefnd til fimm óskarsverðlauna. í Career Girls er sjónum beint að tveimur framakonum um þrí- tugt sem hittast á ný eftir að hafa verið aðskildar um langa hríð. Rifja þær svo upp fyrra samband þeirra þegar þær deildu saman íbúð nokkrum árum áður. Á einni helgi hitta konurnar fjölda fólks sem þær kynntust á námsárum sínum í London á miðjum níunda áratugnum og með uppriljun á háttalagi persónanna á þeim árum gerir áhorfandinn sér grein fyrir hvernig þær hafa breyst í tímans rás. Með aðalhlutverk í myndinni fara Katrin Cartlidge og Lynda Steadman. Þetta er í annað skipti sem Katrin Cartlidge vinnur með Mike Leigh, en hún lék í mynd hans Naked árið 1992. Þá hefur hún vakið athygli í myndunum Breaking the Waves og Before the Rain. Hlutverkið í Career Girls er hins vegar fyrsta kvikmyndahlut- verk Lyndu Steadman, en hún er þekkt úr bresku sjónvarpi og lék m.a. á móti Christopher Eccleston í sjónvarpsþáttaröðinni Hearts and Minds. Mike Leigh er fæddur 1943 í Salford í Lancashire og hefur hann gert rúmlega tuttugu kvikmyndir en fyrstu myndina gerði hann árið 1971. Hún heitir Bleak Moments og vann hún til verðlauna á kvik- myndahátíðum í Chicago og Lue- arno. Allar síðustu myndir hans hafa hlotið mikið lof og ágæta aðsókn, en þær eru High Hopes (1988), Life is Sweet (1990), Naked (1992) og Secrets and Lies (1995) Stutt Varkyn- lífsþræll ►DÓMARI í Los Angeles úr- skurðaði á dögunum að bróðir Súltansins af Brunei skyldi ekki njóta friðhelgi sem verndaði hann frá lögsókn fyrverandi ungfrú Bandaríkjanna. Fegurðardrottn- ingin heldur því fram að bróðir ríkasta manns heims hafi haldið henni nauðugri sem kynlífsþræl. Úrskurðurinn kom viku eftir að sami dómari hafði úrskurðað að Súltaninn sjálfur skyldi njóta friðhelgi sem þjóðarleiðtogi gagnvart 5,5 milljarða króna skaðabótakröfu fegurðardrottn- ingarinnar, Shannon LaRhea Marketic. Prinsinum var neitað um friðhelgi á þeirri forsendu að yfirvöld hefðu ekki óskað þess. Marketic er 27 ára og var kos- in ungfrú Kalifornía áður en hún varð ungfrú Bandaríkin árið 1992. Að hennar sögn var henni sagt að í Brunei biði hennar fyrir- sætu- og kynningarverkefni en í ljós hefði komið að tilgangur prinsins hefði verið sá að nota hana sem kynlífsleikfang. Sonur Danielle Steele látinn ►NÍTJÁN ára sonur rithöfundar- ins Danielle Steele lést eftir neyslu á of stórum skammti eitur- lyfja, að því er talsmaður Steele greindi frá um helgina. Sonur hennar hét John Steel Traina og hafði átt í „langri baráttu við ævilangan sjúkdóm". Skemmtanir ■ CAFÉ AMSTERDAM Á fimmtudags- kvöld verður haldið Hooch-kvöld_. Þrír á 990 kr. Hljómsveitin Greip leikur. Á föstudags og laugardagskvöld leikur hljómsveitin Hunang. ■ MAUS heldur upp á 100. tónleika sína í Norðurlqallara MH. Hljómsveitin heldur upp á sína þriðju Jbreiðskífu en hún kemur út í lok október. Ásamt Maus leikur á tón- leikunum hljómsveitin Andhéri en væntan- leg er frá henni geisladiskurinn Fallegir ósigrar í lok september. Einnig leika 2oo.o- oo Naglbitar og Emmett en þær verða báðar á safnplötunni Spíra sem Sproti gef- ^ ur út í lok október. Tónleikarnir hefjast kl. — 21.30. Húsið opnar kl. 21 og er aðgangseyr- ir 400 kr. ■ RÓSENBERGKJALLARINN Hljóm- sveitimar Stuna og Stjörnukisi halda tón- leika I kvöld og hefjast þeir stundvíslega kl. 22. Miðaverð er 450 kr. ■ HALLI MELLÓ leikur á Kaffi Akur- eyri fimmtudagskvöld, Pizza 67 Dalvík föstudagskvöld og á Kaffi Krók laugar- dagskvöld. Væntanlegur er geisladiskur frá tónlistarmanninum 2. október. ■ BUBBI MORTHENS hefur hafið tón- leikaferðalag sitt í kringum landið og mun hann halda 48 tónleika í stórum og smáum byggðarkjömum auk 16 tónleika í fram- haldsskólum. Á fimmtudagskvöld leikur Bubbi í Hvoii, Hvoisvelli, föstudagskvöld í Hellubíói, sunnudagskvöld í Duggunni, Þorlákshöfn og mánudagskvöld i Kvennó, „ S Grindavík. Tónleikarnir hefjast allir kl. 21. ■ 8-VILLT leikur föstudagskvöld á ungl- ingadansleik í Félagsmiðstöðinni í Borg- arnesi og laugardagskvöld í Gjánni, Sei- fossi. ■ NAUSTKJALLARINN er opinn föstu- dags og laugardagskvöld til kl. 3. Lifandi tónlist verður bæði kvöldin. ■ ÍRLAND Á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld leika Jim McCann fyrrum meðlimur The Dubliners og Dennis Murray. Frá kl. 18 leikur Ken Hennigan fyrir matargesti. Jim McCann söng með Dubliner i nær 10 ár. Hann hefur stjórnað mörgum sjónvarpsþáttum og er best þekkt- ur fyrir lagið Grace sem var á írska listan- um í 36 vikur. ■ HÖRÐUR TORFA hefur hafið tónleika- ferð sína um landið og leikur hann fimmtu- ðagskvöld á Hótel Öskju, Eskifirði, föstu- dagskvöld í Valaskjálf, Egilsstöðum og laugardagskvöld í Egilsbúð, Neskaupstað. Tónleikarnir hefjast allir kl. 21 en á þeim mun hann slá á létta strengi í bland við tregaþrungnar ballöður. ■ GAUKUR Á STÖNG Á föstudags- og laugardagskvöld leikur popp-rokk hljóm- sveitin Buttercup og á sunnudags- og mánudagskvöld leikur órafmagnaða hljóm- sveitin Lekkert ásamt góðum gesti frá Danaveldi rokktríóinu Biind, Deaf and Dumb. Á þriðjudagskvöld leikur hljómsveiti Riff Redd Hedd og á miðvikudagskvöld og fimmtudaginn 2. október verða stórtón- leikar með hljómsveitinni Unun. Þeim til fulltingis verður hljómsveitin PPpönk. ■ KURAN SWING leikur fimmtudags- kvöld á Kaffi Puccini, Vitastíg lOa. Hljóm- sveitina skipa Szymon Kuran, Bjarni Sveinbjömsson, Björn Thoroddsen og Ólafur Þórðarson. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Aðgangur er ókeypis. ■ HAFRÓT leikur föstudags- og laugar- dagskvöld í Lundanum, Vestmannaeyj- um. ■ BÍÓBARINN Dægurlaga pönkhljóm- sveitin Húfa heldur tónleika fimmtudags- kvöld kl. 23. Hljómsveitin leikur fyrst og fremst þekkt barnalög, ýmist í hráum eða háifsoðnum útsetningum. Aðgangur er ókeypis. ■ KAFFI AKUREYRI Á fimmtudags- kvöld leikur trúbadorinn Halii Melló og á föstudags- og laugardagskvöld sjá þau Sigga Beinteins og Grétar Örvars um danstónlist við allra hæfi. ■ DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆR Á föstu- dags- og laugardagskvöld leikur Hljóm- Maharishi Mahesh Yogi INNHVERF ÍHUGUN Kynningarfyrirlestur um Innhverfa íhugun (TM-hugleiðslu) verður haldinn í kvöld, fimmtudag, kl. 20:30 í fundarsal Hótels Lindar, Rauðarárstíg 18 (í kjallara). Aðgangur ókeypis. íslenska íhugunarfélagið s. 551 6662 BUBBIMorthenshefurhafiðsínaárleguyfirreiðumlandið. MAUS leikur á tónleikum í Norðurkjailara MH fimmtudags- kvöld ásamt Andhéra, 200.000 Naglbítum og Emmet. sveit Birgis Gunnlaugssonar. Hljómsveit- ina skipa: Birgir Gunnlaugsson, söngur, gítar, Finnbogi Kjartans, bassi, Baldur Þórir Guðmundsson, hljómborð og Gunn- ar Jónsson, trommur. ■ BÖLL FYRIR FATLAÐA Félagsmið- stöðin Ársel heldur dansleiki fyrir fatlaða laugardaginn 27. september, 25. október og 29. nóvember en þá verður hljómsveit. Húsið opnar kl. 20 og stendur ballið til kl. 23. Allir 13 ára og eldri velkomnir. Að- gangseyrir er 400 kr. Húsið er hannað þannig að hjólastólar eiga greiða leið um það. ■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Á fimmtu- dags-, föstudags- og laugardagskvöld leikur Gunnar Páll fyrir matargesti frá kl. 19-23. ■ KRINGLUKRÁIN Hljómsveitin í hvít- um sokkum leikur fimmtudagskvöld, föstu: dags-, laugardags- og sunnudagskvöld í Leikstofunni verður trúbadorinn Rúnar Þór. ■ FJÖRUGARÐURINN er opinn um helgina. Veislur haldnar að hætti Víkinga. Magnús Kjartansson leikur fyrir dansi. Veitingahúsið Fjaran er opið öll kvöld og í hádeginu fimmtudag til sunnudags. Jón Möller leikur ljúfa píanótónlist föstudags- og laugardagskvöld. ■ KÚREKINN, Hamraborg 1 -3, verður með dansæfingu föstudagskvöld frá kl. 21. Þess má geta að Kúrekinn er með sýningar- hóp. ■ NÆTURGALINN, Smiðjuvegi 14, Kóp. Á föstudags-, laugardags-__og sunnu- dagskvöld leikur Hljómsveit Önnu Vil- hjálms. ■ HÓTEL SAGA Fimmtudags- og sunnu- dagskvöld er Mímisbar opinn frá kl. 19-1. Föstudags- og laugardagskvöld opið frá kl. 19-3. Hilmar Sverrisson leikur fyrir gesti. í Súlnasal laugardagskvöld skemmta Ríó og vinir en þeir eru Bubbi, KK o.fl. Hljóm- sveit Agga Slæ ásamt söngkonunni Sig- rúnu Evu leikur svo fyrir dansi til kl. 3. Miðaverð ásamt kvöldverði er 3.500 kr. HÖRÐUR Torfason er nú að hefja tón- leikaferð sína um landið og leikur m.a. á Eskifirði, Egilsstöðum og Neskaupstað. Aðgöngumiðar á sýningu og dansleik 1.800 kr., aðgangseyrir á dansleik að lokinin sýn- ingu 850 kr. ■ CAFÉ ROMANCE Danski söngvarinn og píanóleikarinn Joe Gorman er staddur á íslandi og skemmtir út september mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22. ■ GULLÖLDIN Á föstudags- og laugar- dagskvöld leika stuðhattarnir þeir Svensen og Halifunkel. ■ FEITI DVERGURINN Á föstudags- og laugardagskvöld skemmtir Rúnar Júl- íusson. ■ HÓTEL ÍSLAND Á laugardagskvöld verður gleðisöngleikurinn Prinsessan sýnd- ur og að sýningu lokinni verður stórdans- leikur með SSSóI til kl. 3. ■ ÓPERUKJALLARINN Á föstudags- kvöld leikur hljómsveitin Skítamórall. Á laugardagskvöld tekur svo Óperubandið við ásamt Björgvini Halidórssyni. D.J. Klara verður í búrinu bæði kvöldin. ■ THE DUBLINER Fimmtudagskvöld verður lifandi tónlist með Blues Express og byija þeir að spila um kl. 22.30. Föstu- dagskvöld verður lifandi tónlist með Hálf Klökkir og þeir byija að spila um kl. 22. Laugardagskvöld munu bæði Blues Ex- press og Hálf Klökkir spila. Blues Ex- press byijar kl. 22.30 og Hálf Klökkir biija kl. 24. ■ ASTRÓ Hljómsveitin Land og synir leikur fimmtudagskvöld. Eins. og flestum er kunnugt þá eiga þeir um þessar mundir lag á vinsældalistanum, Vöðvastæltur. Hljómsveitin mun leika nýtt lag sem kemur út á næstunni. ■ KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin Karma leikur fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Sigrún Eva og hljóm- sveit leika sunnudagskvöld og með Sigrúnu á mánudagskvöldið leikur Stefán Jökuls. ■ HITT HÚSIÐ Hljómsveitin Soma leikur á síðdegstónleikum föstudag kl. 17. Tónleik- arnir eru haldnir á Geysi kakóbar sem er nýopnað kaffihús 2. hæð. ■ CAFÉ MENNING DALVÍK Á föstu- dagskvöld leikur hljómsveitin Annar með gel og hinn með hárlos og á laugardags- kvöld verður írskt kvöld með PKK. Frítt inn til kl. 24.30. ■ SKÍTAMÓRALL leikur föstudagskvöld í Óperukjaliaranum. Hljómsveitin skipa: Gunnar Ólason, söngur og gítar, Arngrím- ur Haraldsson, gítar, Herbert Viðarsson, bassi, Jóhann Bachmann, trommur og nýjasti meðlimurinn Einar Ágúst Víðisson, slagverksleikari. ■ RÁIN KEFLAVÍK Hljómsveitin Vestan- hafs leikur föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa Björgvin Gislason, Jón Björgvinsson og Jón Kjartansson. ■ SIR OLIVER Hljómsveitin Vinir Dóra leika föstudagskvöld. Opið til kl. 3 föstu- dags- og laugardagskvöld. Aðra daga til ki. 1. ■ BLÚSBARINN Hljómsveitin Blues- Express leikur laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.