Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 54

Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ 54 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 FOLK I FRETTUM Af Nýdanskri og voðakvendum STUTT mynd í léttum dúr með alvarlegu ofbeldisívafi," stendur á máðu vinnuplaggi sem hefur augljóslega lent í rign- ingu. Söguþráðurinn fléttast utan um „súrrealískt ferðalag grá- klædds skrifstofumanns" og flíkur - A á fáförnum vegi. Tveir árrisulir menn dreypa á rótsterku kaffi. Voru tveir dagar alveg nóg til þess að afgreiða myndbandið? j „Það gekk nú á ýmsu,“ svarar Daníel Agúst Haraldsson. Hann átti hugmyndina að söguþræði , NÝSPARPERA sem kveikir og slekkur Söluaðilar um land allt Nýdönsk gefur út tvö- falda geislaplötu í lok október og heldur stóra tónleika í Háskólabíói. Pétur Blöndal ræddi við Daníel Agúst um nokkuð allt annað: fangbrögð við voða- kvendi á fáförnum vegi nýjasta myndbands Nýdanskrar við lagið „Klæddu þig“. „Við lentum í rigningu fyrri daginn og glampandi sólskini seinni daginn. Þar sem atriðin voni ekki tekin í réttri röð var erfitt að halda eðlilegri framvindu. Við náðum hins vegar að láta líta út fyrir að sólin hefði birst um leið og voðakvendið skýtur upp kollin- um.“ Hvar var þetta á landinu? „Tökur fóru fram á Bláfjalla- veginum sem er malbikaður og að- allega ekinn af trukkum sem eru að sækja mölina sína.“ A meðan samræðurnar fara fram flettir Daníel Ágúst útkrot- uðum blöðum sem augljóslega hafa þjónað sínum tilgangi. Hann réttir blaðamanni tökulista með upptalningu á leikmunum. Þar eru m.a. glæsibifreið, fimm grámanns- föt (jakkaföt, skyrtur og bindi, há- ir sokkar og blankskór), fimm skjalatöskur (stressarar), skamm- byssa og axlarbelti úr Veðmálinu, par af háum kvenmannsleðurstíg- vélum og loks einn banani. Við bananann stendur skrifað „Bjössi“. Atti Björn Jörundur að útvega bananann? „Já,“ segir Daníel og brosir. „Svo kom hann með handónýtan banana. Við þurftum að fara í 10-11 og ræna nokkrum banön- um.“ Chuck Norris er reiður út í Bill Cavenaugh fyrir að herma eftir sér. NS°P X' Einnig tekur blaðamaður eftii- því að það stendur „nærfatasett á Svölu“. Hann rámar ekki í að það sé nein Svala í hljómsveitinni. Hver er Svala? „Við náðum í hina fullkomnu stúlku sem heitir Birta Björns- dóttir og vinnur í tískuversluninni Smash á Laugaveginum. Hún er sem sköpuð bæði í hlutverk einka- ritarans og voðakvendisins," segir Daníel Ágúst. Eftir stundarum- hugsun bætir hann við: „Kannski eru einkaritarar bara voða- kvendi.“ Á hlutverkalistanum er Björn Jörundur skrifaður sem Hólm- steinn Hannesson. Stefán Hjör- NÝJA útgáfan með Nýdanskri er með gömlu efni í bland við tón- leika útsetningar, lag úr Gauragangi og margt fleira. ÞAÐ VANTAR aðeins gaddavírinn á upphand- DANÍEL Ágúst í miður þægilegri stellingu. legg Birtu Björnsdóttur sem leikur voðakvendið. Chuck Norris er harður nagli ► CHUCK Norris er ekki eingöngu harður nagli í kvikmyndum og sjónvarpsþáttunum „Walker: Texas Ranger“. Hann fékk lög- fræðinga sína til þess að koma böndum á mann að nafni Bill Cavenaugh þegar honum fannst Bill ganga of langt í því að herma eft- ir sér. Cavenaugh er nefnilega mjög líkur Chuck og leyfði Norris honum að apa eftir sér svo lengi sem hann fengi ekki borgað fyr- ir. Cavenaugh stóðst samt ekki freistinguna og klæddi sig upp í búning „Walker“ og aug- lýsti bfla fyrir bflasölu í Wisconsin. Að sögn tók hann hlutverkið í auglýsingunni að sér til þess að geta borgað að hluta fyrir læknis- fræðinám dóttur sinnar. Norris var ekki skemmt og taldi að aðdá- endur sínir gætu haldið að hann sjálfur væri virkilega að aug- lýsa fyrir bílaseluna. Hann fékk því lögbann á Cavenaugh. Sá síðarnefndi er ekki ánægður með bannið og hefur sett upp risa- stórt skilti í miðborg Dallas með mynd af sér í „Walker“-múnd- eringunni undir yfirskriftinni: „Ég get þakkað Chuck Norris fyrir að vera atvinnulaus auglýsingaleikari". Norris er að vonum ekki ánægður með skiltið. Lögfræðingur hans, Mike Forshey, lét hafa eftir sér að ef Cavenaugh vildi vera leikari þá ætti hann að reyna að komast áfram á eigin hæfileikum og hætta að koma sér áfram á nafni Norris. leifsson leikur hins vegar sjálfan sig. „Hann er orðinn svona skrif- stofukarl," segir Daníel Ágúst og hlær. „Hann er framkvæmdastjóri hljóðsetningarfyrirtækis." Stefán virðist þó ekki alveg mosagróinn við skrifstofuna. í einu atriði mynd- bandsins mæta nefnilega allir Nýdanskir í sparifötum, fara svo úr hverri spjör og hlaupa berrassaðir út í hraun. Var það ekki óþægilegt í kuld- anum? „Bara hressandi," segir Daníel Ágúst og brosii- að íhaldssemi blaðamanns. Hann hristir svo höfuðið og segir: „Satt best að segja er þetta mjög kjánaleg saga og hún er sögð með sem minnstum tilkostnaði. Við nenntum ekki að standa enn einu sinni úti í hrauni á úlp- unum og þykjast syngja. Myndmiðillinn hefur upp á allt of margt að bjóða til þess.“ Stephan Stephensen tók mynd- bandið á stafræna myndavél og Stefán Árni sá um að klippa það með Daníel Ágústi. Allir eru þeir félagar í gusgus. Hefurðu tíma fyrir bæði Nýdanskaog gusgus? „Nánast allur minn tími fer í gusgus," segir Daníel Ágúst. „Núna ætti ég að vera í morgun- mat, en í staðinn fór ég í þetta við- tal. Ég borða þá bara minna.“ '4* ítals/qjr undirfatnaður með atþjóðfega fiógœða viður/fnningu \}qjolet 20% tynningararfsCáttiir íLyfju föstud. 26. septi, Cauyard. 27. sept. frá ff. 13-18. Sérfrceðityur á staðnum. IDömu-, fierra- og bamafatnaður. 96% 6ómuCC4% Cyfra FÆST Í APÓTEKUM OG BETRI VERSLUNUM UM LAND ALLT. ‘Pvagíefa- ogfjrenningar6u?(ur AXÍOM' LYFJA Lágmúta 5. ___J LÍJV AeiCdversCun sitni588 6111 '/0^554123S. Hjami, íslensfcf súpermódel

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.