Morgunblaðið - 08.10.1997, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
228. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Italska stjórnin völt vegna krafna vinstriflokks
Prodi á fund Scalfaros
Friðarviðræður
fara vel af stað
Atkvæðagreiðsla
um fjárlagafrum-
varpið á morgun
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Italíu, reyndi áfram í gær að afstýra
stjórnarkreppu með samningum við
þingmenn „kommúnískrar endur-
reisnar," sem fram að þessu hafa
stutt ríkisstjórn Prodis. Þessi fá-
menni vinstriflokkur neitar að
styðja fjárlagafrumfarp stjórnar-
innar fyrir næsta ár verði ekki
gengið að kröfum hans. um vissar
breytingar á því sem myndu auka
ríkisútgjöld og stefna í hættu
áformum stjórnarinnar um að upp-
íylla skilyrðin fyrir stofnaðild að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU, sem forsætisráðherrann
leggur mikla áherzlu á.
Prodi greindi frá því í gærkvöldi,
þegar löngum þingfundi lauk, að
hann myndi í dag ganga á fund
Oscars Luigis Scalfaros til þess að
ræða hina erfiðu stöðu sem upp er
komin í stjórnmálum landsins. Með
því frestast afgreiðsla fjárlagafrum-
varpsins um einn dag og Prodi gefst
ráðrúm til að leita nýrra lausna fyr-
ir lokaáfanga umræðna á þinginu
um frumvarpið áður en atkvæða-
greiðsla fer fram.
Prodi flutti neðri deild þingsins
stutta yfirlýsingu eftir að þar hafði
farið fram hörð umræða um framtíð
stjórnarinnar, þar sem þingmenn
„kommúnískrar endurreisnar" ítr-
ekuðu að þeir myndu ekki greiða at-
kvæði með fjárlagafrumvarpinu og
hvöttu forsætisráðherrann til að
koma til móts við kröfur þeirra.
Arja Alho
Finnskur
ráðherra
segir af sér
Helsinki. Morgunblaðið.
ARJA Alho, skattamálaráðherra
Finnlands, baðst lausnar frá emb-
ætti í gær vegna hneykslismáls er
tengist skaðabótakröfu ríkisins á
hendur Ulf Sundqvist, fyrrverandi
bankastjóra og formanns Jafnað-
armannaflokksins. Sagðist Alho,
sem er úr Jafnaðarmannaflokkn-
um, vera sannfærð um að hafa
ekki brotið lög en álit aimennings
og annarra stjórnmálamanna hefði
knúið sig til að fara frá.
Alho tilkynnti um ákvörðun
sína eftir að hún kom af fundi
þingnefndar sem rannsakar samn-
ing ríkisins og Sundqvist. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem finnsk-
ur ráðherra biðst lausnar af póli-
tískum ástæðum.
Meðal þeirra sem nefndir hafa
verið sem hugsanlegir eftirmenn
Alho er Erkki Tuomioja, þing-
flokksformaður jafnaðarmanna.
*
Þing Ihaldsflokksins
Belfast, Madríd. Reuter.
SVARNIR andstæðingar settust að
sanmingaborði í Belfast í gær, er
viðræður um framtíð Norður-ír-
lands hófust, en vonir standa til
þess að þær verði fyrsta skrefið til
að binda enda á 28 ára vopnuð
átök mótmælenda og kaþólikka
þar. Er þetta í fyrsta sinn frá því
að Irlandi var skipt árið 1921, sem
fulltrúar sambandssinna, sem eru
mótmælendatrúar, og þjóðernis-
sinnaðir kaþólikkar sitja við sama
borð.
Breski ráðherrann Paul Murphy
sagði í lok fyrstu lotu viðræðnanna
að árangur hefði náðst. Andrúms-
loftið á fundinum hefði verið „fag-
niannlegt" og að menn hefðu ekki
verið með neinn skæting eða óvin-
samlegar athugasemdir hver f
annars garð.
A fundinum sögðust fulltrúar
Sinn Fein, stjórnmálaarms írska
lýðveldishersins, vilja „sameinað
Irland" en kváðust engu að síður
reiðubúnir að hlýða á röksemdir
andstæðinga sinna. Fulltrúar mót-
mælenda minntu á að „þijátiu ára
ofbeldisalda lýðveldissinna" hefði
ekki orðið til þess að Norður-ír-
land sameinaðist Irlandi enda væri
meirihluti ibúanna því andvígur.
Adams vongóður
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, sagði í viðtali við spænska
blaðið El Pais í gær að hann teldi
meiri möguleika á friði nú en verið
hefðu um langt skeið. Ástæðuna
sagði hann „nýjar aðferðir" stjórn-
ar breska Verkamannaflokksins
en sagði nauðsynlegt að hún
breytti stefnu sinni í málefnum
Norður-Irlands. „Blair verður að
komast yfír þær hindranir sem
John Major [fyrrverandi forsætis-
ráðherra] setti upp.“ Segir Adams
að nú sé „sögulegt tækifæri" til að
byggja upp frið, sé pólitískur viiji
fyrir hendi.
Tæp 80%
styðja
umbætur
Blackpool. Reuter, The Daily Telegraph.
TÆP 80% félaga í breska íhalds-
flokknum studdu áform Williams
Hague, leiðtoga flokksins, um
mestu umbætur á starfsemi flokks-
ins í 120 ár í atkvæðagreiðslu meðal
íhaldsmanna fyrir flokksþing þeirra
sem hófst í Blackpool í gær.
Hague hyggst auka áhrif al-
mennra félaga í flokknum og veita
þeim atkvæðisrétt í leiðtogakosn-
ingum og atkvæðagreiðslum um
stefnuskrá og val á frambjóðendum
í næstu kosningum.
Klofningur gagnrýndur
Óvægin sjálfsgagnrýni setti mark
sitt á umræðuna á flokksþinginu í
gær enda leituðu ræðumennirnir
skýringa á mesta ósigri flokksins
frá 1906 í kosningunum í maí.
„Þingflokkur okkar leit út íyrir
að vera klofinn, hrokafullur, sín-
gjarn og fláráður," sagði William
Hague og hvatti íhaldsmenn til að
taka höndum saman og láta af ára-
löngum deilum sínum um Evrópu-
málin.
■ Óvægin sjálfsgagnrýni/15
Reuter
FAUSTO Bertinotti, leiðtogi „kommúnískrar endurreisnar“ á ítalska
þinginu hylur andlit sitt á meðan forsætisráðherrann Romano Prodi
hvetur flokksinenn lians til að bregðast stjórninni ekki.
„Eg mun ganga á fund forseta
lýðveldisins á morgun [miðvikudag]
til þess að ræða niðurstöðu um-
ræðna i báðum deildum þingsins,"
sagði Prodi.
Jafngildir ekki
vantrausti á stjórnina
Forseti neðri deildar þingsins,
Luciano Violante, sagði að neðri
deildin myndi hefja umræður á ný á
hádegi á fimmtudag og atkvæði
yrðu greidd að henni lokinni. At-
kvæðagreiðslan jafnast ekki á við
atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýs-
ingu við stjómina, sem þýðir að þótt
niðurstaðan verði stjórninni ekki í
hag hefur það ekki sjálfkrafa í fór
með sér afsögn hennar.
Reuter
GERRY Adams, formaður Sinn Fein, kemur til viðræðnanna í Stormont-kastala við Belfast í gær. í fylgd með
houum eru Lucilita Bhreatnach (t.v.) og Mairead Keane, sem báðar eru í samninganefnd flokksins.
Fundar Arafats og Netanyahus vænst
Yrði fyrsti fund-
ur í átta mánuði
Jerúsalem. Reuter.
Lenín seldur
fyrir lýsingu
Riga. Reuter.
BÆJARSTJÓRNIN í lett-
neska bænum Preili hefur
brugðið á það ráð að selja
Lenín-styttuna, sem áður fyrr
stóð hnarreist fyrir framan
héraðshöfuðstöðvar kommún-
istaflokksins í bænum, til þess
að standa straum af kostnaði
við götulýsingu.
„Með þessu höfum við efni
á að halda götuljósunum log-
andi,“ sagði Valdis Upenieks,
bæjarverkstjóri Preili.
Preili er um 200 km austur
af Riga, í því héraði Lettlands
þar sem atvinnuleysi er mest,
og hefur bæjarfélaginu gengið
erfiðlega að halda bæjar-
sjóðnum á floti. Hin 4,8 tonna
þunga málmstytta var seld
fyrir 4.000 lats, um 140.000 kr.
BANDARÍKJAMENN reyndu í
gærkvöldi að koma á fundi milli
Benjamins Netanyahus, forsætis-
ráðherra Israels, og Yassers
Arafats, forseta heimastjórnar Pal-
estínumanna. Var þess vænst að
fundurinn yrði haldinn í dag. Palest-
ínskur embættismaður greindi frá
þessu í gær. Netanyahu og Arafat
hafa ekki átt fund í átta mánuði.
Verði af fundi þeirra er þaðglöggt
merki um batnandi samskipti Israela
og Palestínumanna, en hvorki hefur
gengið né rekið í friðarumleitunum
þeirra fyi-ir botni Miðjarðarhafs
undanfarna mánuði vegna bygging-
arframkvæmda Israela í Austur-Jer-
úsalem, og sprengjutilræða ísl-
amskra öfgamanna í Israel.
A mánudag hófust viðræður emb-
ættismanna ísraela og Palestínu-
manna að undirlagi Dennis Ross,
sendifulltrúa Bandaríkjamanna.
Viðræðurnar féllu nokkuð í skugg-
ann af hörðum deilum í ísrael um
misheppnaða morðtilraun ísraelsku
leyniþjónustunnar, Mossad, við
stjórnmálaleiðtoga Hamas í Jórdan-
íu og eftirmála tilraunarinnar. Hef-
ur Netanyahu sætt harkalegri gagn-
rýni og segja andmælendur hans að
rannsókn á tilrauninni, sem hann
hefur fyrirskipað, verði ekkert ann-
að en yfirklór.