Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Nær aldargömlu húsi í miðbæ Akureyrar lyft um 170 sentímetra
Morgunblaðið/Kristján
HÚSINU að Strandgötu 13 verður lyft um 170 cm á morgun og
í kjölfarið steypt ný hæð undir það. Stefnt er að því að opna
nýjan veitingastað á jarðhæðinni í kringum næstu áramót.
HÖSKULDUR Hildibrandsson, sem hefur umsjón með verkinu,
var að rafsjóða í kringum Ijakkinn undir miðju húsinu. Hann
segir að húsið sé hvergi fest niður á grunninn og sitji því aðeins
á þunga sínum.
Sextíu tonna
húsi lyft með 15
vökvatjökkum
ÞEIR eru til sem telja mig hálf-
skrýtinn að láta mér detta þetta
í hug en ég held að menn eigi
eftir að verða vitni að mjög
óvenjulegum atburði," sagði
Tryggvi Pálsson, fasteignasali á
Akureyri, í samtali við Morgun-
blaðið. A morgun, fimmtudag,
er stefnt að því að lyfta húsinu
að Strandgötu 13 um eina 170
sentímetra og steypa nýja hæð
undir það. Tryggvi taldi að að-
eins tæki um 1-2 klukkustundir
að lyfta húsinu.
Strandgata 13 er tveggja hæða
timburhús með steyptum kjall-
ara, byggt árið 1906 og er grunn-
flöturinn um 150 fermetrar. Eft-
ir breytingarnar verður opnað
veitingahús á jarðhæðinni.
Húsið er um 60 tonn að þyngd
og verður því lyft með 15 vökva-
tjökkum en lyftigeta þeirra er
um 150 tonn. Síðustu tvær vikur
hefur verið unnið að því að koma
tjökkunum og öflugum H-bitum
fyrir undir húsinu. Alls eru 12
tjakkar hringinn í kringum húsið
og þrír undir þvi miðju. Búnaður-
inn, sem notaður er til verksins,
er frá Garðasmiðjunni í Garðabæ
en Höskuldur Hildibrandsson
hefur umsjón með verkinu.
Hugmyndin er snjöll
Höskuldur sagðist ekki vita til
að svo stóru húsi hefði verið lyft
á þennan hátt en búnaðurinn
hefur til þessa verið notaður til
að lyfta olíu- og vatnstönkum.
„Hugmyndin er snjöll og það er
gaman að Tryggva skyldi hafa
dottið þetta í hug. Það getur því
verið snjailt fyrir menn sem eiga
hús með lágum kjallara að fara
þessa leið. Kostnaðurinn er sjálf-
sagt svipaður og að reisa hæð í
sambærilegu húsi,“ sagði Hös-
kuldur.
Að Strandgötu 13 er Fast-
eignasalan Holt til húsa, Studíó-
íbúðir og Auglýsingastofan ele-
ment. Sem fyrr sagði verður þar
einnig rekinn veitingastaður í
framtíðinni. Tryggvi sagðist
hverfa af skrifstofu sinni á með-
an húsinu verður lyft en ætla inn
aftur um leið og búið verður að
framlengja tröppurnar. Tryggvi
sagði að það tæki um vikutima
að steypa undir húsið og hann
gerir ráð fyrir að því verði slak-
að niður um miðja næstu viku.
Einnig verður byggð um 30 fer-
metra viðbygging við jarðhæð
hússins.
Nýr veitingastaður á jarðhæð
Arnar Birgisson, sölumaður á
Fasteignasölunni Holti, og Jón
Páll, sonur Tryggva, ætla að
setja upp veitingahús á jarðhæð-
inni. Staðurinn mun taka 50-60
manns í sæti og verður boðið upp
á bæði mat og kaffiveitingar.
Arnar og Jón Páll eru einnig að
taka yfir rekstur Studíó-íbúða
og segir Arnar fyrirhugað að
gera ýmsar endurbætur á gisti-
aðstöðunni. „Við verðum þarna
með hótel og veitingastað í sama
húsinu og ætlum að tengja þá
JÓN Páll Tryggvason, Björgvin Pálsson og Snorri Magnússon
voru að leggja vökvalagnir að Ijökkunum kringum húsið í gær.
starfsemi saman. Og við vonumst
til að geta opnað veitingastaðinn
upp úr næstu áramótum." Arnar
mun starfa áfram á Holti en Jón
Páll mun sjá um rekstur veitinga-
staðarins.
Einkennilega skakkt
í laginu
Ole Lied skósmiður reisti hús
að Strandgötu 13 árið 1885 en
það brann árið 1906. Það sama
ár var núverandi hús reist af
þeim Jónasi Gunnlaugssyni,
’ireppsljóra frá Þrastarhóli í
Eyjafjarðarsýslu, og Davíð Ket-
ilssyni verslunarmanni, áður
bónda í Miklagarði í Eyjafirði. I
bók Steindórs Steindórssonar um
Akureyri segir að húsið sé ein-
kennilega skakkt í laginu því
þess var krafist að það stæði
samhliða báðum götunum sem
það stendur við.
Body-Shop í
Amaróhúsinu
BODY-Shop verslun hefur verið opn-
uð Akureyri og er hún í Amaróhús-
inu. Þetta er þriðja verslunin á ís-
landi og 1.531. í heiminum en versl-
animar er að fínna í 47 löndum.
Body-Shop hefur í rúma tvo ára-
tugi framleitt og selt húð- og hár-
snyrtivörur fyrir fólk af báðum kynj-
um og er þeim ætlað að svara ólíkum
þörfum. Mikið úrval gefur fólki tæki-
færi til að nota ímyndunaraflið og
velja úr þær vörur sem best henta
smekk hvers og eins.
Eigendur Body-Shop á íslandi
eru Oddur Pétursson og Ragnhildur
Pétursdóttir. Verslunarstjóri á Ak-
ureyri er Herdís Margrét ívarsdótt-
ir sem nytur dyggrar aðstoðar
Sunnu Bjarkar Hreiðarsdóttur.
Herdís er frá hægri á myndinni og
Sunna til
Morgunblaðið/Kristján
Stuðningur
við uppbygg-
ingu FSA
BÆJARRÁÐ Dalvíkur hefur lýst
yfir stuðningi við stjórn Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri, en
hún hefur óskað eftir stuðningi
við áframhaldandi uppbyggingu
og þróun sjúkrahússins. Hefur því
verið beint til fjárveitingavaldsins
að sjúkrahúsinu verði tryggðir
þeir fjármunir sem til þarf svo því
verði gert kleift að sinna skil-
greindu hlutverki sínu, þ.e. að
vera héraðssjúkrahús, sérgreina-
sjúkrahús fyrir Norður- og Aust-
urland og aðalvarasjúkrahús fyrir
landið allt.
Fram hefur komið að verkefni
hafa stóraukist en fjárveitingar
ekki að sama skapi.
Alþýðusamband
Norðurlands
Lög um at-
vinnuleys-
istrygging-
ar gölluð
ÍTARLEGA var rætt um tvenn
lög sem sett voru á Alþingi á
vordögum 1997 um atvinnu-
leysistryggingar og vinnu-
markaðsmál á 25. þingi Al-
þýðusambands Norðurlands
um liðna helgi.
í ályktun þingsins kemur
fram að það telji lögin um
vinnumarkaðsmál vera spor í
rétta átt, en hvetur alla þá sem
að skipulagningu og fram-
kvæmd laganna koma að gæta
þess að hagsmunir þeirra at-
vinnulausu séu ávallt hafðir í
fyrirrúmi og stéttarfélögum sé
best treystandi til að gæta
þeirra hagsmuna.
Á hinn bóginn telur þingið
lög um atvinnuleysistrygging-
ar á margan hátt gölluð og
er skorað á félagsmálaráð-
herra að endurskoða þau nú á
haustþingi. Bent er á nokkur
atriði sem betur mega fara,
s.s að afnuminn verði frádrátt-
ur lífeyrisgreiðslna frá at-
vinnuleysisbótum, sett verði
ný almenn ákvæði um geymslu
bótaréttar í 24 mánuði, af-
numin verði refsiákvæði vegna
þeirra sem hætta á miðri nám-
sönn og að eytt verði öllum
vafa um að greiðsla hlutabóta
verði með sama hætti og áður.
Styrkur til
sumarhá-
skóla
ATVINNUMÁLANEFND Ak-
ureyrar hefur samþykkt að
standa í eitt ár til viðbótar að
verkefni við sumarháskóla á
Akureyri. Jafnframt var sam-
þykkt á fundi nefndarinnar
nýverið að veita allt að 500
þúsund krónum fram að ára-
mótum til þessa verkefnis og
að gera ráð fyrir því við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir árið
1998.
Gert er ráð fyrir að kostnað-
ur við rekstur sumarháskóla á
Akureyri í eitt ár sé um 2,1
milljón króna. Áætlað er að
framlag Háskólans á Akureyri
verði 728 þúsund krónur og
hefur verið óskað eftir að at-
vinnumálanefnd leggi fram
nær 1,4 milljónir króna til
verkefnisins.
Sumarháskólinn hóf starf-
semi í smáum stíl í sumar og
voru haldin nokkur námskeið,
fundir og ráðstefnur.
Sótt um lán
til að byggja
33 íbúðir
HÚSNÆÐISNEFND Akur-
eyrar hefur samþykkt að
sækja um lán til byggingar eða
kaupa á 33 íbúðum á næsta
ári. Sótt er um byggingu 20
félagslegra eignaríbúða, 10
félagslegra kaupleiguíbúða og
þriggja leiguíbúða fyrir Akur-
eyrarbæ.
Sigurður J. Sigurðsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, bókaði á fundi bæjar-
ráðs í liðinni viku, þar sem
þetta mál var til umfjöllunar,
að vegna samþykktar um
greiðslu húsaleigubóta frá
næstu áramótum sjái hann
ekki ástæðu til að fjölga leigu-
íbúðum bæjarins að sinni.