Morgunblaðið - 08.10.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 13
LANDIÐ
Bylting í sorp-
málum á Akranesi
, ^ Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
NYJA sorpmóttökustöðin á Akranesi.
Akranesi-Á næstu vikum verður
mikil breyting gerð á sorphirðu á
Akranesi og er ástæðan sú að aukn-
ar kröfur eru nú gerðar til sorpeyð-
ingar bæði af opinberum aðilum og
einstaklingum, auk þess sem ríkj-
andi fyrirkomulag í þessum málum
er gengið sér til húðar.
Þær breytingar sem fyrirhugað
er að gera eru að í stað sorppoka,
sem notaðir hafa verið um árabil,
verða teknar upp sorptunnur, sem
taka meira magn en pokarnir og eru
ódýrari en blikkkassarnir sem halda
pokanum. Nokkur sveitarfélög hafa
nú þegar tekið upp þetta form og
er almenn ánægja með það. Að sögn
Gísla Gíslasonar bæjarstjóra verður
tunnunum dreift um miðjan október,
en nánari tímasetning verður til-
kynnt síðar.
Gísli segir að margir spyrji hvað
gera eigi við gömlu sorpkassana og
því sé til að svara að þeim, sem
vilji nýta sér þá áfram t.d. undir
blaðapappír, gosdósir eða á annan
hátt sé það frjálst. Þeim sem hins-
vegar vilja losna við þá geta á
ákveðnum degi sett þá út á gang-
stétt og þá verð þeir fjarlægðir,
bæjarbúum að kostnaðarlausu.
Ekki er gert ráð fyrir að gjald verði
innheimt fyrir tunnurnar, þegar
þeim verður dreift, heldur verður
stofnkostnaður við kaup á þeim inn-
ifalinn í sorpeyðingargjaldi, sem
lagt er á samhliða fasteignagjöld-
um.
Sorphirða á 10 daga fresti
Þegar hin nýja skipan á sorpmál-
um hefst er ætlunin að hirða sorp á
tíu daga fresti, í stað sjö daga áður.
Ætlunin er að gefa út sorphirðuda-
gatal þar sem fram kemur hvenær
sorp verður hirt í einstökum hverfum
bæjarins. Gísli Gíslason segir að ein-
hveijir kunni í upphafi að verða fljót-
ir að fylla nýju tunnurnar, en þá er
mikilvægt að íbúar skoði hveiju hent
er og hvernig. Reynsla annarra er
sú að með grófri flokkun á rusli má
minnka það magn sem fer í tunnurn-
ar og með því að ganga vel frá því
sem hent er má minnka rúmmál
þess verulega. Gísli segist vilja
hvetja bæjarbúa sérstaklega til að
gefa þessu gaum, því flokkun á sorpi
og minnkun á rúmmáli þess sé einn
af hornsteinum í sorpstefnu bæjar-
ins.
Að undanförnu hefur verið unnið
að því að koma upp nýtísku móttöku-
stöð fyrir sorp á Akranesi. Staðsetn-
ing hennar er í gamalli gijótnámu
við Beijadalsá rétt utan byggðarinn-
ar. Þarna hefur verið lagt í mikla
fjárfestingu sem er nauðsynleg sé
til lengri tíma Iitið. Þarna verður
sorp flokkað að vissu marki og það
sorp pressað sem flutt verður burt
til urðunar. Þegar móttökustöðin
verður opnuð verður gámasvæðinu
við Ægisbraut lokað, en gámum
fyrir pappír komið fyrir á aðgengi-
legum stöðum í bænum. Á nýja
staðnum verður einnig fyrir hendi
aðstaða til að taka á móti spilliefn-
um, sem síðan verða flutt til Sorpu
til eyðingar. Einnig hefur verið und-
irbúið endumýtingarsvæði þar sem
urða á það, sem ástæðulaust er að
flytja annað.
Suzuki Vitara er ekta jeppi.
Hann er með háu og lágu
drifi, sterkbyggður á grind,
upphækkanlegur, með feiki-
og
• VERÐ: JLX 3-D. 1.675.000 KR., JLX 5-D. 1.940.000 KR.,
DIESEL 5-D 2.180.000 KR.,V6 2.390.000 KR.
• Snar í viðbragði, hljóðlátur, lipur í akstri
- og ekki bensínhákur.
• Gott pláss - mikill staðalbúnaður.
Komdu og sestu inn!
Sjáðu plássið og alúðina við smáatriði.
Vitara er vinsœlasti jeppinn á íslandi.
Og skyldi engan undra.
AFL ÖG
ÖRYGGI
SUZUKI BÍLAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ:Akranes:Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila-og búvélasalan hf., Miðási 19, slmi 471 20 11. Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Keflavlk: BG bllakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00. Sími 568 51 00.
Alvöru j eppi á verði j epplings
iVITARA 1998