Morgunblaðið - 08.10.1997, Side 21

Morgunblaðið - 08.10.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 21 LISTIR AÐSENDAR GREINAR Markaðsvæðing ljóðlistarinnar MURRAY Lachlan Young nefn- ist ungt, breskt skáld sem hefur farið nýjar leiðir í útgáfu ljóða sinna. Hann hefur gert samning við hljómplötuútgáfuna EMI upp á 1,1 milljón punda og ann- an við Bantam-útgáfuna upp á litlu minni upphæð. Hann hefur slegið í gegn á sjónvarpsstöð- inni MTV og blöð og tímarit keppast við að birta fréttir af honum. Menn eru á einu máli um að ljóðskáld hafi aldrei fyrr fengið slíka athygli og spurn- ingin sem brennur á vörum allra er: Skyldi þetta vera framtíð ljóðlistarinnar? Útlærður í fræðum um frægðina í viðtali við tímarit Ljóð- skáldafélags Bretlands, Poetry News, segist Young hafa verið viðriðinn skemmtanabransann síðan hann fæddist. Hann hóf skriftir á unglingsárum innblás- inn af ferð vítt og breitt um Bandaríkin. Hann lærði fjöl- miðlaframkomu við háskólann í Salford, en það var fyrsti skól- inn sem kenndi það fag. Loka- ritgerð sína skrifaði hann um frægðina, um það að verða stjarna, og í beinu framhaldi hélt hann til London að láta reyna á þessar kenningar sínar. Hann segist fyrst í stað hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar í stórborginni. Kom fyrst fram á knæpu sem bifhjólamenn sækja og heitir Frog and Bucket. Hann var algjörlega á hausnum, átti hvorki til hnífs né skeiðar en gafst ekki upp. Hann tók að skrifa um reynslu sína af borg- inni. Ljóð hans, „Það eru ein- faldlega allir á kóki“ („Simply Everyone’s Taking Cocaine"), er frá þessum tíma. „Ljóðið er skrifað frá sjónar- hóli sakleysingja í stórborg. Þegar ég kom fyrst til London var ég mjög undrandi á því hvað fólk var yfirleitt sjálfsör- uggt. Þegar ég komst að því að þetta fólk var allt að éta eða sniffa eitthvert eitur leið mér miklu betur.“ Young nýtti sér leiklistar- menntunina, sem hann hlaut í fjölmiðlanámi sínu, og tók að flytja ljóð sín klæddur í sér- stakan búning og við undirleik sellós. Hann kom fram á börum í Soho, í veislum hjá Channel 4, Literary Review og MTV. Smám saman fór honum að ganga allt í haginn en vendi- punktur varð þegar hann svindl- aði sér inn á tónleika hjá Rolling Stones í London ásamt nokkrum vinum sínum. Þeir höfðu mynd- bandsupptökuvél meðferðis og gerðu stutta mynd um leiðang- urinn. MTV féll fyrir myndband- inu sem þótti sneisafullt af orku. Sjálfur vildi Young flokka mynd- bandið undir ljóðlist þótt það vekti nokkra undrun. Ekki upptekinn af hefðinni Undrun einkenndi líka viðbrögð gagn- rýnenda við fyrsta geisladiskinum sem kom út með " ljóðaflutningi Youngs, Vice and Verse. Menn voru raunar ei- lítið ráðvilltir sem þarf ekki að koma á óvart, EMI-útgáfan stóð sjálf ráðvillt frammi fyrir því hvernig hún ætti að mark- aðsselja Young. Þrennt kom til greina; ljóðskáld, uppistandsgrínisti eða skemmtikraft- ur. Svo virðist sem gagnrýnendum hafi þótt það heldur hvatvíslegt af Young að titla sig ljóð- skáld. Sjálfur segist hann ekki vera upptekinn af ljóðlistarhefðinni og lítið hafa kynnt sér hana. „Mér kemur það ekki við hvort fólki þykir ljóð mín vera tómt bull. Það sem ég hef gert er að lýsa því yfir að ljóðið sé lif- andi. Ég hef rutt brautina en það hefur auðvitað kostað mig ýmislegt, kannski mannorðið.“ Það er greinilegt að stjórn- endur EMI-útgáfunnar telja sig geta grætt á ljóðlistinni og Young segist vona að hann geti staðið undir væntingum þeirra. „Þeir hafa sett allt sitt besta fólk í þetta verkefni og ég hef gaman af því að koma fram þannig að þetta ætti að geta gengið upp.“ Það er ekkert vandamál að selja gömlu meistarana en það er alþekkt að nútímaljóðlist hefur ekki verið þaulsætin á sölulistum bókabúða. Það er augljóst að verið er að mark- aðssetja Young eins og hvern annan poppara en um leið og hann er tilbúinn að taka þátt í þeim leik hefur hann líka það sem fólk almennt vill sjá í fari Ijóðskálds; fólk býst enn við að ljóðskáldið dragi seiminn svo- lítið íhugult á svip, andlits- drættir þess lýsi byronskum lífsleiða og það sé tíður gestur á börum í Soho. Það lítur því út fyrir að Yo- ung uppfylli öll skilyrði til að geta komið ljóðinu inn á vin- sældalistana, hvort sem það á nú heima þar eða ekki. MURRAY Lachlan Young er ungt, enskt ljóðskáld sem hefur gert millj- ónasamning við EMI-hljómplötuút- gáfuna. Hann segist ekki vera upp- tekinn af hefðinni en segist hins veg- ar hafa lífgað ljóðlistina við. Ekki aðeins atvinnu- leysisskráning I VIÐTALI dag- blaðsins Dags við formann stjórnar At- vinnuleysistrygginga- sjóðs á föstudaginn var, lætur hann þung orð falla í garð vinn- umiðlana, þ.á m. Vinn- umiðlunar Reykjavík- urborgar, og segir að „þar sé einungis verið að skrá þá sem eru án atvinnu og nánast ekk- ert annað“. Ekki verð- ur hjá þvi komist að leiðrétta þennan mis- skilning. Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að byggja upp, efla og þróa starfsemi Vinnumiðl- unar Reykjavíkurborgar með það að leiðarljósi að útvega einstakling- um störf við hæfi og draga eins og unnt er úr skaðlegum áhrifum at- vinnuleysisins. Sérstök áhersla hef- ur verið lögð á að auka þjónustu og ráðgjöf við atvinnulausa og hef- ur Reykjavíkurborg kappkostað að bjóða atvinnulausum þátttöku í úr- ræðum sem skila árangri þegar til lengri tíma er litið. Hjá Vinnumiðlun Reykjavikur- borgar eru nú 25 starfsmenn og má skipta starfseminni í eftirfar- andi þjónustuþætti: Vinnumiðlun Vinnumiðlun skiptist í almenna vinnumiðlun, vinnumiðlun fyrir fatl- aða, EES-vinnumiðlun og Vinnu- miðlun skólafólks. Á annað þúsund einstaklingar voru ráðnir til starfa fyrir milligöngu almennrar vinnu- miðlunar á árunum 1995 og 1996 og búist er við svipuðum fjölda ráðninga í ár. Vinnumiðlun fatlaðra sinnir um 400 fötluðum einstakling- um á ári, en EES-vinnumiðlun er hluti af sameiginlegri vinnumiðlun ríkjanna á evrópska efnahagssvæð- inu. Vinnumiðlun skólafólks er starfrækt í fjóra mánuði á ári og hafði sl. sumar milligöngu um sum- arráðningar 1.300 reykvískra skólanema, 17 ára og eldri. Starfs- og námsráðgjöf Frá árinu 1994 hefur verið boðið upp á starfs- og námsráðgjöf hjá stofnuninni. Sérmenntaðir náms- ráðgjafar sjá um einstaklingsráð- gjöf, bjóða upp á áhugasviðspróf og annast ýmsar innkallanir, út- tektir og kannanir á stöðu atvinnu- lausra, auk þess að taka þátt í verk- efnum tengdum starfsmenntaáætl- un ESB. Upplýsingagjöf og námskeiðahald Kynningarfundir eru haldnir, allt að þrisvar sinnum á dag, fyrir alla þá sem eru að koma á atvinnuleysis- skrá í fyrsta sinn eða eftir lengra hlé. Á fundunum er farið yfir rétt- indi og skyldur atvinnulausra, þjón- ustu vinnumiðlunarinnar og úrræði í boði fyrir atvinnulausa. Vinnu- miðlunin býður upp á stutt nám- skeið sem tengjast starfsleit og starfsleitaraðferðum. Kynningar- og leiðbeiningarefni er gefið út ásamt því að boðið er upp á sér: staka upplýsingaþjónustu í síma. í afgreiðslusal er upplýsingahorn sem hefur að geyma mikið af starfs- tengdu efni þ.m.t. auglýsingar um laus störf, bæði hér á landi og er- lendis, tilkynningar um sérstök úr- ræði, afslætti, styrki og annað sem atvinnulausum stendur til boða. Atvinnuleysisskráning Árlega eru á milli 9.000 og 10.000 einstaklingar skráðir at- vinnulausir í Reykjavíkurborg í lengri eða skemmri tíma. Nákvæm- ar skrár eru haldnar yfir atvinnu- lausa, fjölda hveiju sinni og sam- setningu hópsins. Auk daglegra yfirlita eru á þriggja mánaða fresti gefnar út tölulegar skýrslur um skráð at- vinnuleysi í borginni sem eru, auk annarra sérstakra úttekta Vinnumiðlunarinnar, undirstaða ákvarðana borgaryfirvalda um að- gerðir gegn atvinn- leysi. Úrræði fyrir atvinnulausa Rey kj avíkurborg hefur á undanförnum árum staðið fyrir og tekið þátt í margs konar úrræð- um/átaksverkefnum fyrir atvinnu- Sérstök áhersla hefur verið lögð á að auka þjónustu og ráðgjöf við atvinnulausa, segir Oddrún Kristjáns- dóttir, og hefur Reykja- víkurborg kappkostað að bjóða atvinnulausum þátttöku í úrræðum, sem skila árangri. lausa sem miða að því að bæta stöðu þeirra á vinnumarkaði. Vinnumiðl- un Reykjavíkurborgar hefur komið að þessum verkefnum á ýmsan hátt, t.d. með skilgreiningu mark- hópa, tillögum um verkefni og val á þátttakendum. Nokkur dæmi um verkefni á þessu ári eru eftirfarandi: Vinnuklúbburinn, sem er sam- starfsverkefni Reykj avíkurborgar og félagsmálaráðuneytis sem býður atvinnulausum að taka þátt í sjö vikna verkefni þar sem tekin eru fyrir flest atriði sem varða atvinnu- leit. Starfsnám Hins hússins er sex mánaða verkefni fyrir atvinnulaus ungmenni 18 til 25 ára þar sem þátttakendur byrja á námi í fjórar vikur en starfa síðan hjá ýmsum stofnunum í fimm mánuði. Skiptiverkefni fyrir borgarstarfs- menn og atvinnulausa þar sem fast- ráðnir borgarstarfsmenn fara í 10 vikna endurmenntun og atvinnu- lausir einstaklingar leysa þá tíma- bundið af. „Gangskör“ er nýtt úrræði sem ætlað er langtímaatvinnulausum konum á aldrinum 40 til 59 ára. Um er að ræða sex mánaða verk- efni, sambland af námi og starfi. Námskeið fyrir 67 ára og eldri um málefni sem tengjast ævikvöldi og starfslokum, haldin á vegum Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar fyrir elsta hóp atvinnulausra á skrá „Aukin ökuréttindi" eru styrkir Reykjavíkurborgar fyrir atvinnu- lausa til að bæta við sig ökuréttind- um s.s. meiraprófi og vinnuvélarétt- indum. „Nám og starf“ er verkefni á vegum Námsflokka Reykjavíkur þar sem atvinnulausir stunda nám í uppeldisfræðum hálfan daginn og starfa í grunnskólum borgarinnar hálfan daginn. Líkleg þróun á vinnumarkaði Tölur um þróun atvinnuleysis í Reykjavík sýna að ungu fólki án starfsmenntunar og starfsreynslu og eldra fólki án fagmenntunar er sérstaklega hætt við atvinnuleysi á sama tíma og eftirspurn vinnu- markaðarins eftir sérmenntuðum starfsmönnum eykst. Spáð er að eftir 10 ár verði um 80% þeirrar tækni sem við notum í dag orðin úrelt og að gjá sé að myndast á milli menntunar/þjálfunar vinnu- aflsins og þarfa vinnumarkaðarins. Miðað við mannfjöldaspár í Reykja- vík er einnig fyrirsjáanlegt að á næstu 15 árum muni fjölga mið- aldra vinnuafli á sama tíma og fjöldi ungs fólks sem kemur á vinnumark- aðinn verður nær óbreyttur. Þörf fyrir endur- og símenntun vinnu- aflsins mun því verða brýnni en nokkru sinni fyrr. Atvinnuleysisvandinn, sem jafn- framt er vandi vinnumarkaðarins í heild, verður því ekki leystur með sleggjudómum og upphrópunum. Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem að menntunar- og vinnumarkaðs- málum koma snúi' bökum saman og starfi markvisst að lausn þessa vanda. Höfundur er framkvæmdasljóri Vinnumiðlunar Reykja víkurborgar. Síðasti bekkurinn byrjar í kvöld... í kvöld kl. 19.30 byrjar síðasti bekkur ársins í skemmtilegasta skólanum í btenum, Sálarrannsóknarskólanum Langi þér að lyfta þér upp, eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í viku þá er hér örugglega ein af betri og ódýrari og skemmtilegari leiðunum til þess. Og langi þig að vita flest allt sem vitað er um líf eftir dauðann, hvernig miðlar starfa, um hættur í andlegum málum, og hvar og hvernig þessir væntanlegu handanheimar okkar líklegast eru, í þægilegum fyrirlestrarskóla fyrir hófleg skólagjöld, þá áttu mjög líklega samleið með okkur. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um mest spennandi skólann í bænum sem í boði er í dag. Örfá sæti eru enn laus ( kvöld og í laugardagsbekknum. Svarað er í síma skólans alla daga vikunnar kl. 14-19. Sálarrannsóknarskólinn — „mest spennandi skólinn í bænum" — Vegmúla 2, s. 561 9015 og 588 6050. Oddrún Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.