Morgunblaðið - 08.10.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFDÍS RAGNA
G UNNARSDÓTTIR
+ ÁIfdís Ragna
Gunnarsdóttir
fæddist á Sauðár-
króki 8. ágúst 1926.
Hún varð bráðkvödd
á heimili sínu 28.
september síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Gunnar Ein-
arsson kennari og
Hildur Jóhannesdótt-
ir ljósmóðir. Systkini
Álfdísar Rögnu voru
Einrós Fjóla og Jó-
hann Þór, bæði látin.
Ragna giftist
Bjarna Óskarssyni
1946. Börn þeirra eru: 1) Hall-
dór, sem lést 1973. Hann var
kvæntur Guðlaugu Rögnvalds-
dóttur og þeirra börn eru Jó-
hanna, Hildur, Álfdís Ragna og
Halldór. 2) Hildur, gift Bjarna
Thors. Þeirra böm em Hörður,
Brynhildur og Pétur. Álfdís
Ragna og Bjami skildu. Árið
1955 giftist hún Pjetri Hall-
dórssyni. Þeirra börn em: 1)
Sigríður Brynja, sem lést 1994.
Eiginmaður hennar var Krist-
geir Hákonarson. Þau vom
barnlaus. 2) Halldór Láms. Með
Elísabetu Kristj-
ánsdóttur á Hall-
dór soninn Þor-
berg Bergmann.
Einnig á hann
Bryiyu Bergmann
og Pétur Berg-
mann, móðir
þeirra er Kristín
Gísladóttir.
Álfdís Ragna og
Pjetur skildu.
Árið 1974 giftist
hún Páli Kr. Pét-
urssyni, sem lést
1988. Dóttir hans
er Ólöf Pálsdóttir.
Álfdís Ragna vann ýmis störf
í gegnum árin, m.a. veitti hún
forstöðu gæsluvelli í Gnoðar-
vogi í nokkur ár, vann í Hþ'óð-
færahúsi Reykjavíkur, saumaði
lampaskerma fyrir verslunina
Lýsingu og ýmsa einstaklinga.
Síðustu árin vann hún í mötu-
neyti ÁTVR, þar sem hún varð
að hætta vegna hjartasjúkdóms
1993.
Útför Áifdisar Rögnu fer
fram frá Háteigskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Farin er merkileg kona, Ragna,
móðir vinar míns, Dolla. Hann var
að hjálpa mér í flutningum er hann
frétti um andlát móður sinnar.
Hjálpsemi var einmitt einn af
mörgum góðum eiginleikum
Rögnu. Er ég var í gifsi á annarri
hendi í fleiri vikur, kom Ragna
iðulega keyrandi með nýeldaðan
mat fyrir mig og litlu synina mína.
Allir vinir Dolla og Siggu voru
einnig vinir hennar. Við vorum
ætíð velkomin á heimili þeirra.
Vafalítið muna allir vinir Dolla og
Rögnu eftir kjötsúpunni hennar,
sem var hálfgerð skyldumáltíð ef
fólk hafði verið úti að skemmta
sér. Kenndi hún að maður skyldi
aldrei erfa nokkuð við nokkum
mann og allt sem maður gerir,
skilar sér til baka. Sigga, dóttir
Rögnu, lést um aldur fram og var
það ákaflega þungbært fyrir hana.
Ég er þess fullviss að Sigga hefur
HERDÍS
GUNNARSDÓTTIR
+ Herdis Gunn-
arsdóttir fædd-
ist á Vatnsenda í
Ljósavatnsskarði,
S-Þing., 28. mai
1928. Hún lést á
Akureyri 19. sept-
ember siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Gunnar
Siguijónsson,
bóndi í Vatnsenda,
og kona hans
Sigurbjörg Sigur-
jónsdóttir. Þau
bjuggu á ýmsum
bæjum í S-Þing. og
voru síðustu ábúendur í gamla
bænum á Grenjaðarstað.
Systkini Herdísar voru Helga,
Þóra, Líney, Birna, Ari, Sig-
urður og Theodór.
Herdís eignaðist dóttur með
Valdimar Jónssyni frá Ysta-
gerði, Ragnheiði, f. 3. mars
1955.
Útför Herdísar fór fram frá
Akureyrarkirlgu 1. október.
Árið 1958 fór Dísa sem ráðskona
að Hjalteyri til Áma Jónssonar í
Hvammi og eru þau þar til ársins
1970, er þau flytjast inn á Akur-
eyri í Hafnarstræti 107b, sem varð
þeirra heimili alla tíð eftir það.
Ámi lést 1993 og var hún þá
ein eftir þar til dauðadags. En þar
byijuðu líka sinn búskap Ragnheið-
ur, dóttir Dísu, og maður hennar
Sigurður Gíslason, ásamt dóttur
sinni Eygló Ömu, fædd 6.8. 1977.
Eygló var augasteinn ömmu sinnar.
Samband Rögnu og Eyglóar við
Dísu var einstakt, þar ríkti skilning-
ur og virðing á báða bóga.
Hjálpsemi þeirra við Dísu var
einstök, sem henni fannst hún aldr-
ei geta endurgoldið. Lítillát var
Dísa og fyrir lítið var
þakkað af alhug, til
allra sem það gerðu,
en alltaf var hún tilbú-
in að rétta öðrum
hjálparhönd. Þó heilsa
hennar væri léleg til
margra ára varð hún
að láta af sinni dag-
launavinnu árið 1987.
í Hafnarstrætið var
alltaf litið við til skrafs,
og að fá sér kaffibolla
er einhveijir vinir og
kunningjar áttu leið í
bæinn.
Margt var spjallað
um veraldleg og landsins málefni,
og enginn fór svo frá Dísu að ekki
væri hann léttari í lund á eftir.
Um Áma hugsaði Dísa og ekki
síður Ragna dóttir hennar mjög vel
allt til hans dauðadags, og eiga þær
þakkir skildar.
Margar heimsóknir áttum vð fjöl-
skyldan til Dísu allt frá því að við
kynntumst fyrir 20 árum er Ragn-
heiður dóttir hennar giftist Sigurði
Gíslasyni, bróðursyni Stefáns, og
alltaf var jafngott að hitta þau Dísu
og Áma er komið var til Akur-
eyrar. Vorum við aufúsugestir þar
alla tíð, margt var spjallað í eldhús-
inu og hlýhugur alltaf til staðar
fyrir okkur hjón og böm okkar.
Því viljum við að leiðarlokum
þakka góðar samverustundir og
óskum þess að algóður guð verði
með ykkur, Ragna, Siggi og ekki
síst þér, Eygló Arna, sem varst
annað líf ömmu þinnar frá því að þú
fæddist.
Far þú í friði,
friður pðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Hafdís, Stefán, Bragi,
Hanna, Inga.
MINIMIIMGAR
tekið á móti kærri móður sinni.
Kæra Ragna, þakka þér fyrir allt.
Elsku Dolli vinur minn, Hildur,.
Brynja, Pétur og Beggi, ég votta
ykkur mína innilegustu samúð
vegna fráfalls móður ykkar og
ömmu. Hún var einstök kona.
Ólína Björk (Ollý).
Gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá,
því amma hún er mamma hennar mömmu,
og mamma er það besta sem ég á.
í dag er borin til hvíldar móðir
min, Álfdís Ragna Gunnarsdóttir.
Efst í huga mínum er ég kveð þig
með þessum fáu línum er setningin,
sem ég er alltaf að skilja betur enn
þann dag í dag: „Að ekkert í þessu
lífi er sjálfgefið". En mestu skiptir
að ég naut þeirra forréttinda að
eiga þig líka sem besta vin.
Elsku mamma mín, ég þakka þér
fylgdina og leiðsögnina í gegnum
lífið. Bömin mín koma til með að
sakna mikið ömmu ljós, hafðu þökk
fyrir allt.
Þú komst og fórst með ást til alls sem græt-
ur,
á öllu slíku kunnir mikil skil.
Þú varst líf í ljósi einnar nætur,
það Ijós sem þráði bara að vera til.
(Vilhjálmur frá Skáholti.)
Þinn sonur,
Halldór Lárus Pjetursson
(Dolli).
Með þessum fáu línum langar
mig að minnast ógleymanlegrar
og tryggrar vinkonu, Rögnu Gunn-
arsdóttur. Hún kvaddi án fyrirvara
en kannski ekki með öllu óvænt
því að hún hafði átt við hjartveiki
að etja í allmörg ár. Engan ókunn-
an hefði þó gmnað að neitt alvar-
legt amaði að Rögnu. Hún var allt-
af jafn hress á að hitta og létt í
lund.
Það em liðin nær fimmtíu ár
síðan við hittumst fyrst, en þá var
þessi fallega, unga kona nýflutt
til borgarinnar. Þótt við höfum
verið óaðskiljanlegar undanfarin
ár vildi það brenna við á fyrri áram,
eins og við er að búast, að alllang-
ur tími gat liðið milli þess að við
hittumst. En alltaf var tryggðin
söm frá hennar hálfu og velvildin.
Engri manneskju hef ég heldur
kynnst sem var jafn fljót til að
koma til hjálpar ef hún vissi að
eitthvað hafði bjátað á. Sjálf fékk
hún líka, því miður, of oft að reyna
það á lífsleiðinni að lífíð er ekki
alltaf auðvelt, því að lifið var
Rögnu minni ekki alltaf milt. En
aldrei kvartaði hún og alltaf var
hún fljót til að uppörva og gleðja
aðra og seint taldi hún eftir sér
snúninga í annarra þágu.
Við eigum mörg eftir að sakna
þessarar yndislegu og glaðværa
vinkonu sáran. Og skarð verður
fyrir skildi í „spilaklúbbnum" þar
sem Ragna var einstakur félagi
og vinur. En sárastur er söknuður-
inn auðvitað hjá nánustu ástvinum
hennar, börnunum og bama-
bömunum. Hjá þeim er hugur minn
og bið ég góðan Guð að gefa að
sá fjársjóður minninga sem Ragna
eftirlætur verði þeim huggun og
styrkur í sorginni.
Guð blessi minningu Rögnu
Gunnarsdóttur.
Sigrún Þórarinsdóttir.
Sérfræðingar
i l)loninskrevtin<>uiii
\ ifj öll tækitæri
I blómaverkstæði I
| ISlNNA I
SkólaMtrftusIig 12.
a liorni Bergstaðastriutis.
sinii 551 ‘>09(1
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 29
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
STEINGRÍMS BENEDIKTSSONAR,
Langholtsvegi 167,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru til lækna og hjúkrunarfólks
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir góða umönnun.
t
i
5*
\
i
1
I
Unnur Steingrimsdóttir,
Benedikt Steinar Steingrímsson, Júlía Ásmundsdóttir,
Eggert Steingrímsson,
Herdís Steingrfmsdóttir, David Gillard,
Steinunn Steingrímsdóttir, Bergsveinn Þór Gylfason,
Steinunn Margrét Steingrfmsdóttir, Einar Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐBJARTAR GUÐBJARTSDÓTTUR
frá Einlandi,
Vestmannaeyjum,
Lönguhlíð 3,
Reykjavfk.
i
>
Bjarni Herjólfsson, Unnur Ketilsdóttir,
Guðbjartur Herjólfsson, Bima Bogadóttir,
Guðjón Herjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og út-
för elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
HRAFNS SVEINBJÖRNSSONAR
bifvéiameistara,
Rimasiðu 23B,
Akureyri.
Innilegar og sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki og læknum
krabbameinsdeildar 11E og K-deildar Landspítalans og deildar 2 á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir góða umönnun.
Jafnframt þökkum við kórfélögum á Akureyri söng þeirra við útförina.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bára Jakobsdóttir Ólsen.
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTU JÓNSDÓTTUR,
Uppsalavegi 4,
Húsavfk.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Þingeyinga.
Hermann Þór Aðalsteinsson,
Auður Þórunn Hermannsdóttir,
Hera Kristfn Hermannsdóttir,
Jón Hermannsson,
Kristján Hermannsson,
Guðrún Helga Hermannsdóttir,
Árni Kristjánsson,
Sigurður V. Olgeirsson,
Stefán Sveinbjörnsson,
Helga Gunnarsdóttir,
Sofffa Örlygsdóttir,
Pálmi Jakobsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
'4
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓSKARSJÓNSSONAR,
Hæðargarði 35,
Reykjavfk.
Guðrún Egilsdóttir,
Guðrún J. Óskarsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Svanborg E. Óskarsdóttir, Guðjón Antonsson,
Ragna S. Óskarsdóttir, Bergsveinn Jóhannsson
og barnabörn.