Morgunblaðið - 08.10.1997, Síða 36

Morgunblaðið - 08.10.1997, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 FONTYS MÚTIO Land Slig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn Röö: 1 L. Van Wely Holland 2.655 il 0 'A 'A v 0 3 'A 7.-10. 2 Tal Shaked Bandaríkj. 2.500 0 0 0 0 0 'A 0 0 'A 12. 3 A. Shirov Spánn 2.700 1 1 0 'A Vi 'A 0 0 3'A 7.-10. 4 P. Svidler Rússland 2.660 'A 1 1 'A 'A 1 'A 1 6 2. 5 M. Adams England 2 680 'A 1 1/a ’/a 1 'A 'A 5 4. 6 J. Lautier Frakkland 2.660 'A 1 Vi 'A 0 0 1 0 3'A 7.-10. 7 Júdit Polgar Ungverjal. 2670 ’/l 'A 'A 1 1/a 'A 'A 0 4 6. 8 V. Onisjúk Úkraína 2625 % 0 1 0 ’/i 'A Vi 'A 3/2 7.-10. 9 P. Leko Unqverjal. 2.635 'A 'A 1 'A 'A 1 'A 0 4 A 5. 10 J. Piket Holland 2630 'A 0 'A 0 'A 'A 0 0 2 11. 11 V. Kramnik Rússland 2.770 1 1 'A 'A 1 'A 'A 5 'A 3 12 G. Kasparov Rússland 2.820 1 1 1 0 1 'A 1 1 6'A 1. Norræna VISA- bikarmótið hefst í dag SKAK Grand Hótcl Rcykjavík VISA NORDIC GRAND PRIX Mótíð verður sett S dag kl. 15.45 á Grand Hótel Reykjavík. Teflt er daglega frá kl. 16. Að- gangur ókeypis í boði VISA. 8.-22. október. ÞAÐ MÁ búast við því að mesta fjörið í skákunum verði um og eftir kvöldmatarleytið. Fyrstu tímamörkin eru kl. 20. Auk þess sem mótið er úrslita- mótið í norrænu bikarkeppninni er teflt um Norðurlandameist- aratitilinn. Þeir Curt Hansen, núverandi meistari, og Jóhann Hjartarson eru langstigahæstir keppenda, en Hannes Hlífar Stefánsson er líklegur til að veita þeim harða keppni. Norð- mennirnir á mótinu eru einnig til alls líklegir, af einhverjum ástæðum tefla þeir venjulega yfir styrkleika hér á íslandi. Dómarar á mótinu eru þeir Þráinn Guðmundsson og Gunnar Bjömsson. Aðstæður fyrir kepp- endur og áhorfendur á Grand Hótel Reykjavík eru góðar og er ætlunin að hafa skákskýring- ar. Kasparov tapaði Gary Kasparov teflir mjög líf- legar skákir á Fontys mótinu í Hollandi, sem lýkur um helgina. Hann er ennþá efstur, þrátt fyrir tap í sjö- undu umferð fyrir Peter Svidler, sem er aðeins 21 árs, en hefur þó þrívegis orðið Rússlands- meistari, nú síðast í ár. Svidler var í Ólympíuliði Rússa sem vann gullið í Jerevan í fyrra. Hann vakti athygli í viðureign íslands og Rússlands þar fyrir leikræna til- burði í skák sinni við Jóhann Hjartarson. Hann fómaði með miklum grett- um og látum og hefði sjálfur Kasparov mátt vera fullsæmdur af þeim tilburðum. Að lokum var hann þó stálheppinn að ná jafn- tefli. Sigur Svidlers á Kasparov var mjög sannfærandi. Peðsfórnin í byrjun tafls var sérlega snjöll: Hvítt: Peter Svidler Svart: Gary Kasparov Sikileyjarvöm 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. c3 - Rf6 4. Be2 - Rbd7 5. d3 - b6 6. 0-0 - Bb7 7. Rbd2 - g6 Varlegra er 7. - e6. Nú bryddar Svidler upp á snjallri peðsfórn: 8. d4! - cxd4 9. cxd4 - Rxe4 10. Rxe4 - Bxe4 11. Rg5 - d5 Nú lendir biskupinn í vand- ræðum á miðborðinu, en hug- myndin með peðsfórninni sést af 11. - Bb7 12. Bc4 - d5 13. Df3! - Rf6 14. Bb5+ og vinnur. 12. Bb5 - Bg7 13. f3 - Bf5 14. g4 - h6 14. - Be6 15. Hel - 0-0 16. Hxe6 - fxe6 17. Rxe6 - Dc8 18. Bg5! Er einnig gott á hvítt. 15. gxf5 - hxg5 16. fxg6 - a6 17. gxf7+ - Kxf7 18. Ba4 - Hh5 Hvítur hefur unnið peðið til baka og stendur talsvert betur. Biskupaparið nýtur sín vel og hann hefur traustari kóngs- stöðu. Kasparov blæs nú til gagnsóknar í stað þess að leggj- ast í vöm. 19. Be3 - Rf6 20. Dd2 - Dd6 21. Hf2 - Hah8 22. Hg2 - Hh3 23. Hfl - H8h4?! 24. Bc2 - Rh5 25. Bf5! - Rf4 26. Bxh3 - Rxh3+ 27. Khl - Df6 28. Hg3 - Df5 29. Bxg5 - Rxg5 30. Hxg5 - Dh3 31. Hg2 - Bf6 32. Dd3 - Hxd4 33. Dg6+ - Ke6 34. De8 - Hc4 35. Dd8 - Df5 36. Hel+ - Be5 37. Db8 og Kasparov gafst upp. Sigurganga Einars Hjalta Einar Hjalti Jensson, 17 ára gamall Kópavogs- búi, hefur unnið fimm fyrstu skákir sínar á Haustmóti Taflfélags Reykja- víkur, sem að þessu sinni er haldið til minningar um Am- ór Björnsson, skák- meistara, sem lést í fyrra, aðeins þrít- ugur að aldri. Einar Hjalti er langefstur á mót- inu, en næstur kem- ur Kristján Eðvarðsson með þrjá og hálfan vinning. í fimmtu umferð vann Kristján Arnar E. Gunnarsson, sem stendur vel að vígi með þrjá vinninga og fre- staða skák. í B flokki er Jóhann H. Ragn- arsson efstur með 4 '12 v. en Jón H. Bjömsson er næstur með 4 v. í C flokki era þrír efstir og jafnir, þeir Kristján Örn Elías- son, Dagur Amgrímsson og Kjartan Thor Wikfeldt. Þeir hafa allir hlotið 3 '/2 v. í D flokki, sem er opinn, er Andri H. Kristinsson efstur með 4 '12 v. Skákstjóri á mótinu er Ólafur S. Ásgrímsson. Sjötta umferðin verður tefld í kvöld og hefst kl. 19.30. Þátttakendur eru 64 tals- ins, auk unglingaflokks. Margeir Pétursson, Daði Örn Jónsson. Peter Svidler MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- bams þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj@mbl.is Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgnnblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. VELVAKANDI Svarar í sírna 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Erlendir ósiðir í íþróttum EITT af litlu sem ég lærði á íþróttaferli mínum var að taka sigri sem ósigri með jafnaðargeði. Því blöskrar mér oft þegar ég sé hvemig knattspyrnu- menn óskapast þegar þeim tekst að skora mörk í leik. Þegar svo heilu liðin skvetta kóka-kóla drykkj- um og mjólk á félaga sína lýsir það óhugnanlega að á ferðinni eru íþróttamenn sem ekki kunna að taka sigri - hvað þá ósigri. Framkoma íþróttamanna hefur mikið gildi fyrir æskuna. Því finnst mér að forystumenn og þjálf- arar ættu að taka þetta framferði til rækilegrar meðferðar en láta erlenda ósiði iönd og leið. Guðmundur Hermannsson. Dato komið aftur KONA hafði samband við Velvakanda og sagðist hún hafa séð klausu í Vel- vakanda þar sem spurt var um þvottaefnið Dato. Hún segist hafa séð þetta þvottaefni í Nóatúnsbúð- inni í Rofabæ 39 og virð- ist það nýkomið aftur á markaðinn. Dýrahald Lotta er týnd LÍTIL, loðin, rauð kisa, hvít á bringu með hvítar hosur, hljóp út úr húsi við Tómasarhaga sl. laugar- dagsmorgun og hefur ekki sést síðan. Lotta litla er rúmlega 17 ára og því orð- in heymarskert og ellileg. Þeir sem kunna að hafa séð hana eða vita um örlög hennar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 552-3625 eða í Kattholt. Hundaeigendur athugið ÞEIR hundaeigendur sem týnt hafa hundum sínum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Dýraspítalann í Víðidal strax í síma 567-4020. Köttur í óskilum á Laugarvatni SVARTUR köttur með hvítar loppur, mjög vina- legur, er í óskilum á Laug- arvatni. Uppl. í síma 486-1126. Tapað/fundið Svartur jakki týndur HÁLFSÍÐUR kvenmánns- jakki, svártur, týndist á Kaffi Reykjavík laugar- daginn 27. sept. Þeir sem hafa orðið varir við jakk- ann hafi samband í síma 565-4102. Morgunblaðið/Kristján VINKONURNAR Unnur Sigurðardóttir og Lísbet Hannesdóttir héldu á dögunum hlutaveltu við útíbú KEA á Byggðavegi. Þær söfnuðu rúmum 4.200 krón- um sem lagðar voru inn á reikning Sophiu Hansen. FJÓRIR félagar, þau Oddur Páll Laxdal, Fanney Ryes Laxdal, Sigfús Már Reynisson, Rakel Ósk Reynisdóttir héldu á dögunum hlutaveltu við versl- unarmiðstöðina Sunnuhlíð á Akureyri, en þau eru á aldrinum 6-9 ára. Þau söfnuðu alls 960 krónum sem þau gáfu Rauða krossinum. HLUTAVELTA SKAK IJmsjön Margeir Pétursson H VÍ TUR leikur og vinnur. STAÐAN kom upp á Fontys mótinu Tilburg Hollandi, sem stendur yfir. Stiga- hæsti skák- maður heims, Gary Kasparov (2.820), var með hvítt og átti leik, en heima- maðurinn Jeroen Piket (2.630) hafði svart. 26. Rxf7! - Hxf7 27. Dxg7+ - Kf8 (Eða 27. - Hg7 28. De8+ - Bf8 29. Dxc6 og vinnur) 28. Rxe6+ - Bxe6 29. Hxc6 - Bd7 30. Dxh6+ og Piket gafst upp, því 30. - Ke8 31. e6! er vonlaust með öllu. Með þessum sigri í átt- undu umferð komst Kasparov aftur einn í efsta sætið, en hann tapaði fyrir Rússanum Svidler í sjö- undu umferð og missti hann upp að hlið sér. Norðurlandamótið hefst í dag kl. 16 á Grand Hótel Reykjavík. Víkverji skrifar... FORYSTUMENN lífeyrissjóð- anna kynntu fyrir skömmu skoðanakönnun um viðhorf al- mennings til lífeyrissjóðanna. Skoðanakönnunin er, að því er þeir segja, hugsuð sem innlegg inn í þá umræðu sem á eftir að verða í vetur um frumvarp um starfsemi lífeyrissjóðanna. Víkveiji fær ekki séð að þessi skoðanakönnun geti á nokkurn hátt gagnast í þessari umræðu. Meginástæðan er sú að í skoðanakönnuninni er ekki spurt um þá þætti frumvarpsins sem mestum deilum olli á síðasta þingi og mestur ágreiningur hefur verið um í samfélaginu. í skoðanakönnuninni er ekki spurt hvort fólk vilji að launþegar geti valið á milli sameignarsjóða og séreignarsjóða. Ekki er spurt um hvort fólki vilji að sett verði þak á lífeyrisiðgjöld eins og fjár- málaráðherra lagði til á síðasta vetri. Ekki er heldur spurt um hvort fólk vilji að verkalýðsfélögin og samtök atvinnurekenda skipi menn í stjórnir lífeyrissjóðanna eða hvort stjórnirnar verði kosnar beinni kosningu. Starfsfólk lífeyrissjóðanna, sem samdi spurningarnar, taldi mikil- vægara að spyija hvort fólk teldi mikilvægt að lífeyrissjóðirnir greiddu maka- og örorkulífeyri eða hvort greiða ætti konum jafnháan lífeyri og körlum. Víkveiji kannast ekki við að þessar spurningar hafi verið ofarlega í umræðu um líf- eyrismál og enginn ágreiningur var um þessi atriði þegar lífeyrissjóða- frumvarpið var samið. Ef forsvars- menn lífeyrissjóðanna vilja koma með eitthvað gagnlegt inn í þá umræðu sem verður um lífeyrismál í vetur verða þeir að koma með eitthvað annað en þessa könnun. Hún kemur engum að gagni nema fyrirtækinu sem fékk borgað fyrir að gera könnunina. XXX FYRIR nokkrum vikum lýstu samtök aldraðra óánægju með að í skoðanakönnunum væri oftast nær látið undir höfuð leggjast að spyija um afstöðu aldr- aðra. Svarendahópurinn væri yfir- leitt á aldrinum 18-70 ára. Hag- vangur virðist ekki hafa tekið mið af þessari gagnrýni því að í skoð- anakönnun fyrirtækisins um lífeyr- ismál er fólk á aldrinum 18-67 ára spurt álits. Engu máli virðist skipta hvaða skoðun ellilífeyrisþegar hafa á lífeyrismálum. Þetta geta tæp- lega talist góð vinnubrögð. XXX NOTKUN farsíma færist sífellt í vöxt. Stundum valda sím- arnir óþægindum þegar þeir taka að hringja á miðjum fundum. Fyrir nokkru kom fyrir skemmtilegt at- vik á fundi þar sem launadeila kennara og sveitarfélaganna var til umræðu. Sveitarstjórinn á Rauf- arhöfn fór í ræðustól og sagði að laun kennara væru of lág og þess vegna hefðu sveitarfélög í nokkr- um tilfellum neyðst til að yfirborga þá til að fá kennara til starfa. Hann sagði að það væri á hreinu að ef hann hefði boðið kennuram taxtalaun hefði hann ekki fengið eina einustu símhringingu við aug- lýsingu um laust starf. Um leið og sveitarstjórinn hafði sleppt orðinu hringdi síminn í bijóstvasa hans. Fundarmenn töldu víst að þar væri kennari að sækja um starf!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.