Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 48
48 E SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
142 km/klst e.u.
17,3 kg/ho
Mitsubishi Pajero 3,0 stuttur 2.890.000 kr.
175 km/klst 12,0 sek
9,61 kg/ha 12,51
175 km/klst 12 sek
10,92 kg/ha 13,51
2.350.000 kr.
Mitsubishi L-200 GL
NÝTT útlit kom á L-200 palibílinn frá Mitsubishi með ár-
gerð 1997. Bíllinn er nú fáanlegur með stærri vél, 2.5
lítra dísel turbo með millikæli. Meiri búnaður er í bílnum
nú, og má þar helst nefna rafdrifnar rúðuvindur. L-200
hefur í gengum árin verið vinsæll vinnubíll og ekki ættu
þær vinsældir að dvína með öflugari vél. Nýjung í L-200
GL er sjálfskipting sem nú er fáanleg í hann. Með sjálf-
skiptingu kostar bíllinn 2.490.000 kr.
• Vél: 2,5 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 100 hö við 4.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 240 Nm við 2.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 493/170/161 sm. 1.735 kg.
• Eldsneytiskerfi: Rafstýrð fjölinnsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
MITSUBISHI Pajero hefur fengið andlitslyftingu. Hann er
í boði stuttur með 3.0 lítra vél sem gefur 181 hestöfl. Bíll-
inn er m.a. með aldrifsbúnaði með fjölvali, skriðstilli og
læsingu á afturdrifi. Sjálfskiptingin i Pajero er fjögurra
hraðasviða með þrjú mismunandi skiptingarmynstur.
Þrjár mismunandi stillingar eru á höggdeyfum í bilnum.
• Vél: 3,0 lítrar, 6 strokkar, 24 ventlar.
• Afl: 181 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 255 Nm við 4.500 snúninga á mfnútu.
• Drifbúnaður: Aldrif. Mismunadrif tengt seigju
tengsli.
• Mál og þyngd: 414/178/181 sm. 1.740 kg.
• Eyðsla: 12,5 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
LANGI Pajero jeppinn er 58 sm lengri en styttri gerðin
og 5 sm breiðari. Bíllinn er með sama búnaði og styttri
útfærslan, m.a. aldrifi með fjölvali, stillanlegum högg-
deyfum, skriðstilli, fjöðrun og hita í framsætum og fl.
Pajero kemur nú talsvert breyttur í útliti. Bílarnir eru allir
með stigbrettum, viðarlíki í mælaborði og leðurklæddu
stýrishjóli.
• Vél: 3,0 lítrar, 6 strokkar, 24 ventlar.
• Afl: 181 hö við 5.500 snúninga á mínútu.
• Tog: 255 Nm við 4.500 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Aldrif með fjölvali.
• Mál og þyngd: 473/179/190 sm. 1.985 kg.
• Eyðsla: 13,5 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavfk.
180 km/klst I3,l sek 10,05 kg/ha e.u.
MITSUBISHI Pajero 3.5 er skrautfjöður Pajero fjölskyld-
unar. Bifreiðin er búin öflugri 3.5 lítra vél sem gefur 194
hestöfl. Mjög tækniþróaður aldrifsbúnaður er í Pajero
sem leyfir ökumanni t.d. að skipta úr afturdrifi í sídrif á
allt að 100 km. hraða á klst. Einnig er hægt að læsa aft-
urdrifi 100% þegar bifreiðin er í lága drifinu. Meðal stað-
albúnaðar í Pajero 3.5 er ABS hemla- kerfi, sóllúga, raf-
drifnar rúðuvindur, stillanleg fjöðrun, fjöðrun í framsæt-
um, rafhitun í framsætum og fleira.
• Vél: 3,5 lítrar, 6 strokkar, 24 ventlar.
• Afl: 194 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
*• Tog: 313 Nm við 3.500 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 472/170/190 sm. 1.980 kg.
• Eldsneytiskerfi: Rafstýrð fjölinnsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
Mitsubishi Pajero 2,5 3d. DT 2.360.000 kr.
STUTTI Pajero jeppinn með 2,5 I dísilvélinni með for-
þjöppu er með öllum sama búnaði og bensínbíllinn,
þ.e.a.s. aldrifi með fjölvali, stillanlegum höggdeyfum,
samlæsingum á hurðum, skriðstilli, barnalæsingum, raf-
drifnum rúðuvindum, læsingu á afturdrifi, aukamiðstöð
undir aftursæti, þokulugt að aftan, rafhituðum framsæt-
um og álfelgum.
• Vél: 2,5 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 99 hö við 4.200 snúninga á mínútu.
• Tog: 240 Nm við 2.000 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Aldrif með fjölvali.
• Mál og þyngd: 407/169/180 sm. 1.706 kg.
• Eyðsla: 10,9 I innanbæjar.
• Eldsneytiskerfi: Bein innsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
Mitsubishi Pajero 2,8 DT 3.195.000 kr.
MITSUBISHI Pajero með 2,8 I dísilvél og forþjöppu er
með sama búnaði og styttri útfærslan, m.a. aldrifi með
fjölvali, stillanlega höggdeyfa o.fl. Sjálfskiptur kostar
hann 3.370.000 kr. Pajero kemur nú breyttur í útliti og
eru allir bílarnir nú með stigbretti, viðarlíki í mælaborði
og leðurklæddu stýri.
• Vél: 2,8 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 125 hö við 4.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 292 Nm við 2.000 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Aldrif með fjölvali.
• Mál og þyngd: 470/169/185 sm. 2.120 kg.
• Eyðsla: 12,3 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein innsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
Nissan Double Cab 2,4 2.110.000 kr.
e.u. km/klst e.u. sek 12,4 kg/ho e.u.
NISSAN Double Cab er með fimm manna húsi með heil-
um bekk fyrir þrjá að aftan. Teppi eru á gólfi. Auðvelt er
að breyta Double Cab í öflugan torfærubíl. Sjálfstæð
snerilfjöðrun er að framan og heill öxull með blaðfjöðr-
um að aftan. Tregðulæsing er staðalbúnaður. Hann fæst
einnig með 2,5 lítra dísilvél, 80 hestafla, og kostar þá
•2.310.000 kr.
• Vél: 2,4 lítra bensín, 4 strokka, 8 ventla.
• Afl: 125 hö við 5.200 snúninga á mínútu.
• Tog: 198 Nm við 4.000 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Hátt og lágt fjórhjóladrif.
• Mál og þyngd: 469/169/172 sm, 1.550 kg.
• Umboð: Ingvar Helgason, hf., Reykjavík.
e.u. km/klst e.u. sek 20 kg/hu e.u.
NISSAN King Cab er bíll sem gæti hentað iðnaðarmönn-
um og verktökum. Bíllinn sameinar kosti atvinnutækis
og fólksbíls í einum bíl. Hann tekur þó aðeins tvo í sæti
en aftan við sætin er pláss sem nýtist fyrir farangur eða
fólk á styttri leiðum. Driflokur eruá framhjólum og er bíll-
inn því liprari í akstri þegar ekki er þörf á fjórhjóladrifinu.
King Cab fæst einnig með 2,4 lítra bensínvél, 124 hest-
afla, og kostar þá 1.961.000 kr.
• Vél: 2,5 lítra dísil, 4 strokka, 12 ventla.
• Afl: 80 hö við 4.300 snúninga á mínútu.
• Tog: 163 Nm við 2.200 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Hátt og lágt fjórhjóladrif.
• Mál og þyngd: 482/169/173 sm, 1.600 kg.
• Umboð: Ingvar Helgason, hf., Reykjavík.
Nissan Patrol 2,8 TD SLX 3.799.000 kr.
150 km/klst 22 sek 16,9 kg/ho I2,l
NISSAN Patrol hefur á liðnum árum verið einn öflugasti
jeppinn á markaðnum. Engar breytingar eru á bílnum
núna en von er á nýjum og gjörbreyttum Patrol eftir ára-
mót. Patrol er sjö manna og ríkulega búinn staðalbúnaði.
Hann er eini jeppinn á markaðnum með tvöföldum dri-
flokubúnaði að framan, sjálfvirkum og handvirkum.
• Vél: 2,8 lítra dísil, 4 strokka, 8 ventla, með
forþjöppu.
• Afl: 115 hö við 4.400 snúninga á mínútu.
• Tog: 235 Nm við 2.400 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 4,93/1,93/1,80 sm. 1.945 kg.
• Eyðsla: 12,1 lítri innanbæjar.
• Umboð: Ingvar Helgason, hf., Reykjavík.