Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 2

Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Útlán Húsnæðisstofiiunar hafa aukist um 16 milljarða á einu ári Lántakendum í vanskilum hefur fækkað síðustu ár Húsnæðisstofnun: Vanskil, allir sjóðir Ljanúarhvertar 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 Hlutfall vanskila af útlánum 0,8% 0,7% 0,7% 0,9% 1,2% 1,2% 0,9% Fjöldi lána í vanskilum - - - - 12.381 9.695 Hlutfall lána í vanskilum af heildarfjölda lána - - - - 9,2% 7,1% Fjöldi lántakenda í vanskilum - 3.315 5.017 7.220 6.697 5.632 Hlutfall lántakenda í vanskilum af heildarfjölda lántakenda - 6,3% 9,4% 13,0% 11,8% 9,6% SKIL af útlánum sjóða Húsnæðis- stofnunar ríkisins hafa batnað tölu- vert að undanfömu og hafa ekki verið betri frá 1. janúar 1993. Fjöldi lántakenda sem eru í skilum við sjóði stofnunarinnar var 53.742 hinn 1. júlí sl. og hefur þeim fjölgað hlutfallslega frá síðustu áramótum úr 90,4% í 90,9%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um útlán, skil og vanskil lántakenda við sjóði Húsnæðisstofhunar. Vanskil námu 1.593 miUjónum 1. júlí síðastliðinn Úttektin er miðuð við 1. júlí síð- astliðinn en þá námu heildarútlán allra sjóða stofnunarinnar 202,4 milljörðum kr. og höfðu aukist um 7,7 milljarða frá síðustu áramótum og um 16 milljarða frá sama tíma á síðasta ári. Er þar um 8,6% aukn- ingu að ræða. Vanskil, þriggja mánaða eða eldri, við sjóði Húsnæðisstofnunar námu 1.593 milljónum kr. hinn 1. júlí sl., sem er um 0,8% af heildar- útlánum. Til samanburðar voru vanskil 2.100 millj. kr. 1. janúar 1996, en það voru hæstu vanskil sem mælst hafa. Lántakendum í vanskilum hefur fækkað stöðugt að undanfórnu og hafa þeir ekki verið færri síðan í janúar árið 1994, samkvæmt skýrslunni. Lán- takendur í vanskilum voru 5.395 hinn 1. júlí sl. sem er 9,1% af heild- arfjölda lántakenda hjá sjóðum Húsnæðisstofnunar. Til saman- burðar voru 5.632 í vanskilum um seinustu áramót eða um 9,6% af heildarfjölda lántakenda og hinn 1. janúar 1996 var fjöldi þeirra 6.697 eða 11,8% og 1. janúar 1995 voru 7.220 í vanskilum eða 13% allra lántakenda. Lántakendum hefur fjölgað um 1.509 á 12 mánuðum Heildarfjöldi lána hjá sjóðum stofnunarinnar er 138.112. Þar af er fjöldi lána Byggingarsjóðs ríkis- ins 94.564, Byggingarsjóðs verka- manna 9.911 og húsbréfadeildar 33.637. Hefur fjöldi lána aukist hjá Byggingarsjóði verkamanna og húsbréfadeildinni, en dregist sam- an hjá Byggingarsjóði ríkisins. Lántakendum Húsnæðisstofnun- ar hefur fjölgað um 671 frá síðustu áramótum og voru þeir 59.137 tals- ins 1. júlí sl. Hafði lántakendum þá fjölgað um 1.509 á undanfömum 12 mánuðum eða um 2,6%. 13 íslensku- lektorar við er- lenda háskóla Morgunblaðið/Kristján NILS Gfslason við vindaflstöð sem hann hefur hannað en hún er á gömlu bryggjunni við Dagverðareyri norðan Akureyrar. Odýrari en venju- legar vindaflstöðvar SKIPULÖGÐ kennsla í íslensku nú- tímamáli hefur á síðustu tíu árum verið hafín við háskóla í Lyon, London, Erlangen í Þýskalandi, Vín, Berlín, Vilm'us, Tókíó og Moskvu. Stofnun Sigurðar Nordal er aðeins kunnugt um að kennslu hafi verið hætt á einum stað, þ.e. Amsterdam, vegna fjárhagsvandræða háskólans þar. 13 íslenskulektorar eru nú starfandi við erlenda háskóla. Þetta kom fram í svari Bjöms Bjamason- ar menntamálaráðherra á Alþingi við íyrirspum Össurar Skarphéðins- sonar alþingismanns. Össur spurði m.a. við hvaða er- lendar menntastofnanir á háskóla- stigi kennd væri íslenska eða ís- lensk fræði. 600 fræðimenn í fslenskum fræðum Menntamálaráðherra sagði að Stofnun Sigurðar Nordal hefði skrá yfír hátt í 600 fræðimenn í ís- lenskum fræðum erlendis. Kennslu í nútímaíslensku við háskóla er- lendis mætti skipta í þrjá flokka. í fyrsta lagi væru á nokkrum stöðum prófessorar og lektorar sem hefðu íslenskt mál og bók- menntir sem aðalkennslugrein, í flestum tilfellum væri þar um ís- lendinga að ræða. í öðru lagi lífeyrismál LÍFEYRISNEFNDIN kom í gær saman til að reyna að ná málamiðl- un um lífeyrisfrumvarpið og sagði Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndarinnar, að lokafímdur henn- ar yrði haldinn á fostudag. „Þetta var ágætis fundur í dag,“ sagði Vilhjálmur. „Málin voru rædd fram og til baka og hug- myndum velt upp. Ég held að það komi í ljós á fóstudaginn hvort menn verða sammála eða sammála um að vera ósammála." Vilhjálmur kvaðst vona að menn næðu saman á beim fundi. Hann kenndu nokkrir erlendir háskóla- kennarar íslensku ásamt öðrum greinum. í þriðja lagi kenndu ís- lendingar, oft stúdentar sem bú- settir væru erlendis, íslensku í stundakennslu. fslenska kennd við 45 háskóla 1983 Menntamálaráðherra sagði að í könnun á kennslu í fomíslensku og nútímamáli erlendis, sem gerð var árið 1983, hefði komið í ljós að ís- lenska væri kennd við 45 háskóla víða um heim. Þótt könnunin væri meira en tíu ára gömul væri ekkert sem benti til þess að niðurstöður hennar væru ekki enn að mestu leyti í fullu giidi. Menntamálaráðherra sagði að þrettán íslendingar væru í starfi sem íslenskulektorar við erlenda háskóla, þrír í Frakklandi, tveir í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi og einn í Finniandi, Danmörku, Aust- urríki og Bretlandi. í fjárlögum fyrir 1996 var varið til þessa liðar 3,6 milljónum kr., þar af 1,1 milljón kr. til lektorsstöðu í Lundúnum sem ríkið hefur skuldbundið sig til að greiða að hálfu. í ár er varið til þessara mála 4,2 milljónum kr., þar af 1,6 milljónum kr. til lektorsstöð- unnar í Lundúnum. á föstudag vildi þó ekki segja hvort þokast hefði í samkomulagsátt á fundin- um í gær, en kvað viðræður á hon- um hafa verið mjög málefnalegar. Fundurinn stóð í tæpar tvær klukkustundir. í nefndinni eru fulltrúar ríkis- stjórnarinnar og vinnumarkaðar- ins. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands, vildi í gær ekki segja hvort miðaði í störfum nefndarinnar: „Niðurstaða okkar var eiginlega sú að tjá okkur lit- ið.“ NILS Gíslason, uppfinningamaður á Akureyri, segir að alllangt sé síðan hann fékk hugmyndina að gerð nýrrar vindaflstöðvar, sem breska ráðgjafafyrirtækið Garrad-Hassan & Partners telur að geti reynst mun ódýrari í fram- leiðslu en hefðbundnar vindafl- stöðvar. „Það eru þijú ár frá því ég byij- aði að smíða vindmylluna, en mun lengra frá því ég fékk hugmynd- ina, hún hafði verið að geijast með mér í nokkur ár,“ segir Nils. „Það sem gerði útslagið með að ég byijaði á þessu var rafallinn," sagði Nils en skrúfan í vindaflstöð hans er líkust reiðhjólsgjörð. Spaðar sitja í hringlaga gjörð og hægt er að stýra snúningshraða stöðvarinnar með skurði spað- anna. Sjálfur vindhverfíllinn virk- ar sem snúður í raflinum, sem framleiðir rafmagnið og hvorki þarf gírbúnað né hefðbundinn rafal. „Mér fannst þetta verulega spennandi þegar ég sá að hægt var að Iosna við gírinn," segir Nils, en í hefðbundnum vindafl- stöðvum er stór skrúfa með tveim- ur eða þremur spöðum sem knýr rafhverfíl með aðstoð gírbúnaðar sem er þungur, fíókinn og hávaða- samur. Vindorka hf., fyrirtækið sem stofnað var um þróun stöðvarinn- ar, er komið í samband við banda- ríska risafyrirtækið General Electric. Utfæra þarf nokkra þætti í hönnun vindaflstöðvarinn- ar og mun Nils vinna að því á næstunni. Þá munu ráðgjafar Garrad-Hassan í Bretlandi gera verk- og kostnaðaráætlanir og enn fremur stendur yfir Ieit að fjárfestum. „Áætlanir ganga út á að smíða 50 kW tilraunastöð þar sem við munum reyna ýmsar lausnir og í kjölfarið munum við taka ákvörð- un um á hvaða stærð við munum stefna. Aðalacriðið er að stöðin verði traust og einföld í smíðum. Svona stöðvar eiga að geta gengið tiltölulega eftirlitslausar árum saman,“ sagði Nils, en hann segir markað fyrir vindaflstöðvar vera um heim allan. Úrslitafundur um Fluttur úr hreppnum með odd- vitavaldi HAGSTOFU íslands og Fljótshh'ðarhreppi hefur verið stefnt íyrir héraðsdóm til þess að fá ógilta þá aðgerð oddvita hreppsins að tilkynna til þjóð- skrár að 36 ára gamall maður væri fluttur úr hreppnum og til Reykjavíkur. Maðurinn hafði m.a. þegið framfærslustyrk af sveitarfélaginu og telur sig búa í Fljótshlíðinni. Samkvæmt stefnu sem Ólaf- ur Sigurgeirsson, lögmaður mannsins, höfðaði málið með, hafði maðurinn á leigu jörðina Núp I í Fljótshlíð þar til sýslu- maður Rangæinga bar hann út eftir að maðurinn. hafði ekki staðið við samninga um að lýma jörðina. í stefnunni kem- ur fram að þar hafí verið lög- heimili mannsins, hann hafi verið þar búsettur og ekki rýmt jörðina vegna húsnæðis- leysis. Býr á svæði 101 í Reykjavík Útburðurinn var fram- kvæmdur 26. september 1996 en 7. júní 1996 hafði oddviti hreppsins tilkynnt Hagstofu að maðurinn væri fluttur úr hreppnum og til Reykjavíkur. í þjóðskrá er hann nú óstaðsett- ur í hús en sagður búa á svæði 101 í Reykjavík. Málið er höfðað samkvæmt lögheimilislögum til þess að fá ákvörðunina ógilta sem til- hæfulausa. M.a. eru lögð fram gögn um að maðurinn hafi ver- ið búsettur í hreppnum, hann hafi tekið atvinnutilboði frá fyrirtæki á staðnum og hrepps- nefnd Fljótshlíðar hafi sam- þykkt að greiða honum fram- færslustyrk í samræmi við úr- skurði nefndar um félagsþjón- ustu. Hraðakstur í Hafnarfirði Einn farþeg- anna enn á gjörgæslu STÚLKA sem var farþegi i bíl sem ekið var á miklum hraða á tvo ljósastaura á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði aðfaranótt síðastliðins sunnudags er enn á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að sögn læknis er stúlkan heldur á bata- vegi. Þrír farþegar voru í bílnum og köstuðust þeir út úr honum við áreksturinn. Þeir voru allir mikið slasaðir en tveir þeirra voru fluttir af gjörgæsludeild á almenna deild í gær. Okumaður bílsins slasaðist minna. BLAÐINU í dag fylgir tólf síðna auglýsingablað frá Kringlunni, „Kr- inglukast".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.