Morgunblaðið - 22.10.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.10.1997, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Talsmaður kínverska ÞAÐ verður tekið fyrir allt lakkrísát, herrar mínir . . . Austur-Skafta- fellssýsla Kosið um samein- ingu sveit- arfélaga UNDIRBÚNINGSNEFND sveitarstjórnanna í Austur- Skaftafellssýslu (Hofshrepps, Borgarhafnarhrepps, Homa- fjarðarbæjar og Bæjarhrepps) hafa ákveðið að standa fyrir kosningum um sameiningu sveitarfélaganna 29. nóvem- ber 1997. Kosningar um sama mál- efni fóru fram í nóvember 1993, en voru þá felldar. Kosningar fóru aftur fram í febrúar 1994 og var þá sam- eining Hafnar, Mýrahrepps og Nesjahrepps samþykkt og stofnað sveitarfélagið Homa- fjörður. Ráðinn deildar- stjóri á Orku- stofnun • SVEINBJÖRN Björnsson, fyrr- verandi rektor Háskóla íslands, hefur verið ráðinn deildarstjóri auð- lindamála á Orkustofnun. Skipulagi Orkustofnunar var breytt í grundvallaratriðum í byijun þessa árs. Fólst breytingin í aðskilnaði á framkvæmd rannsókna frá ráðgjaf- ar- og stjórnsýsluhlutverki stofnun- arinnar. Jafnframt fer sá hluti stofnunarinnar sem sinnir ráðgjaf- ar- og stjórnsýsluhlutverki, orku- málasvið, með fjárveitingar Alþing- is til stofnunarinnar og semur um framkvæmd rannsókna fyrirþað fé. í lok sl. árs var ráðið í nýjar stjórn- unarstöður við stofnunina nema - Ómissandi hverjum málnotanda' Orðastaður er fyrsta íslenska I orðabókin sem samin er til að j lýsa málnotkun og orðtengslum. * lt.000 uppfiettiorð * 45.000 orðasambönd * 15.000 notkunardæmi * 100,000 samsett orð Orðastaður á heima við hlið íslenskrar orðabókar. Sveinbjörn Björnsson Laugavegi 18 • Síml 515 2500 • Siðumúla 7 • Síml 510 2500 hvað endanleg ráðning í starf deild- arstjóra auðlindadeildar á orku- málasviði frestaðist. Þessi deild er þungamiðjan í stjórnun orku- rannsókna sem stundaðar eru fyrir opinbert fé. Haukur Tóm- asson,fyrrv. for- stjóri vatnsorku- deildar Orku- stofnunar, hefur gegnt starfi deildarstjóra auðlindadeildar þetta árið. Að undangenginni auglýsingu hefur orkumálastjóri nú ráðið Sveinbjörn Bjömsson, prófessor og fyrrverandi rektor Háskóla íslands, í starf deildarstjóra auðlindadeildar og mun hann taka við starfinu um nk. áramót. Sveinbjörn Björnsson er fæddur 1936. Hann lauk Dipl.-prófi í eðlis- fræði frá Tækniháskólanum í Aach- en árið 1963. Sveinbjörn var ráðinn sérfræð- ingur á jarðhitadeild Orkustofnunar árið 1964. Hann var deildarstjóri háhitasvæða 1971-73, og settur forstjóri jarðhitadeildar um hríð árið 1973. Sveinbjörn sat í fýrstu stjórn Orkustofnunar árin 1981-83. Sveinbjörn hvarf til starfa við Háskóla Islands í ársbyijun 1974, fyrst sem jarðeðlisfræðingur við jarðeðlisfræðideild jarðfræðistofu á Raunvísindastofnun Háskólans. Síðar varð hann deildarstjóri á sömu deild og stjómarformaður Raunvís- indastofnunar 1976-79. Árið 1978 varð Sveinbjörn pró- fessor í jarðeðlisfræði við verk- fræði- og raunvísindadeild. Vara- deildarforseti raunvísindadeildar var hann 1983-85 og forseti 1985-87 og síðan rektor Háskóla íslands 1991-97. Sveinbjörn hefur gegnt fjölmörg- um trúnaðarstörfum innanlands sem utan og starfað sem ráðgjafi á sínu sérsviði, m.a. á vegum al- þjóðastofnana. Aðrir umsækjendur um starfið voru dr. Hákon Aðalsteinsson líf- fræðingur og dr. Valgarður Stef- ánsson eðlisfræðingur. Báðir starfa þeiráOrkustofnun. Spurningalisti um svefn ög heilsu Margar konur fá svefntruflan- ir við tíðahvörf Bryndís Benediktsdóttir Um þúsund fimmtíu ára konur á höfuð- borgarsvæðinu eru þessa dagana að fá í hendur ítarlegan spurn- ingalista um svefn og heilsu. Bryndís Benediktsdóttir heimilisiæknir er einn þriggja sérfræðinga sem standa að þessari viða- miklu rannsókn um svefn og heilsu fimmtugra kvenna en auk hennar eru það þeir Þórarinn Gíslason lungnalæknir og Kristinn Tómasson geðlæknir. Bryndís segir að svefntruflanir aukist með aldrinum hjá fólki og séu mun algengari hjá konum en körlum. „Svefnlyfja- notkun kvenna er jafnvel tvöföld á við hjá karímönn- um.“ - Hvað kallast svefntruflanir? „Þeim má skipta í þrennt. í fyrsta lagi eru það erfiðleikar með að sofna, fólk vaknar ítrekað upp á nóttunni og í þriðja lagi vaknar það of snemma á morgnana. Fái fólk ekki nægan svefn verður það syfjað að deginum og dagsyfja er verulega óþægilegt einkenni.“ - Hvers vegna veljið þið sér- staklega fimmtugar konur í þessa rannsókn? „í ljós hefur komið að svefn- truflanir tengjast greinilega tíða- hvörfum kvenna. Fyrir níu árum var gerð íslensk rannsókn á svefni kvenna á aldrinum 40-59 ára. Þar kom í ljós að konur sem voru á breytingaaldri sváfu verr en aðrar konur í rannsókninni. Auk þess höfum við í starfí okkar orðið vör við að svefntruflanir eru eitt fyrsta umkvörtunarefni kvenna sem eru á komast á breyt- ingaskeiðið. Þær kvarta t.d. yfír því að geta varla haldið sér vak- andi á kvöldin, sofna fljótt en hrökkva upp eftir nokkurra klukkustunda svefn og eru þá glaðvakandi.“ Bryndís segir að í kjölfar þessarar rannsóknar muni aðstandendur hennar bjóða þeim konum sem hafa viss einkenni um svefntruflanir að koma í frek- ari rannsóknir.“ - Nú hefur verið talað um að konur sofi ilia á breytingaaidri vegna hitakófa? „Það var lengi haldið að hita- kófin væru ástæðan. I rannsókn- um hefur það á hinn bóginn verið tímasett hvort hitakófin komi fyrst eða svefntruflan- irnar og niðurstaðan sú að hitakófin koma í kjölfar svefntruf- lana.“ Bryndís segir að líf- fræðilegar skýringar hafi fundist á þessum einkennum. „I heilan- um liggja þeir kjamar hvor upp að öðrum sem hafa með stjórnun svefns, hitastig líkamans og framleiðslu kvenkynshormóna eggjastokka að gera. Allir þessir kjarnar eru undir áhrifum frá kvenkynshormóninu östrogen í blóðinu. Við tíðahvörf lækkar þetta hormón í blóðinu og þá raskast starfsemi allra þessara kjarna, blæðingar hætta eða truflast, svfefntruflanir aukast og hitakóf byija. Oft lagast líka öll þessi einkenni við hormónagjöf. Við upphaf meðferðar verður læknir að meta vandlega kosti og galla meðferðarinnar fyrir ►Bryndís Benediktsdóttir lauk prófi frá læknadeild Háskóla Islands árið 1977. Hún lauk sérfræðiprófi í heimilislækn- ingum frá Uppsölum í Svíþjóð árið 1984 og starfaði sem lækn- ir þar í landi til ársins 1987. Hún hefur verið heimilislæknir í Garðabæ frá árinu 1987 en verið í leyfi þaðan sl. ár og starfað sem læknir svefnrann- sóknadeildar geðdeildar Land- spítalans. Bryndís er lektor við læknadeild Háskóla íslands. Eiginmaður hennar er Þór- arinn Gíslason Iungnalæknir á Vífilsstöðum og eiga þau fjögur börn. hvern einstakling en hormónagjöf við tíðahvörf er auk þess talin draga úr hjarta- og æðasjúkdóm- um seinna á ævinni.“ - Liggja fieiri ástæður að baki svefntruflunum hjá fimmtugum konum? „Vissulega. Hraustar konur sofa til dæmis miklu betur en þær sem eru með stöðuga verki. Það er ein ástæðan fyrir því að kon- urnar eru spurðar ítarlega út í heilsufar í rannsókn okkar. Við spyijum líka um lyfjanotkun því mörg lyf geta truflað svefn. Al- geng blóðþrýstingslyf, svokallað- ir betablokkarar, geta valdið svefntruflunum, eldri astmalyf og viss geðdeyfðarlyf svo dæmi séu nefnd.“ Bryndís segir að spurt sé út í geðræn einkenni, félagslegar að- stæður og reynt að finna út hvernig lífs- gæði séu hjá þátttak- endum. „Allir þessir þættir skipta máli.“ - / þessari rannsókn er spurt hvort konurnar hafí fengið meðgöngueitrun á meðgöngu? Hver er tengingin við svefntrufianir? „í ljós hefur komið að konur sem fengu háþrýsting á með- göngu er hættara við hjarta- og æðasjúkdómum seinna á ævinni. Okkur leikur forvitni á að sjá hvort konur sem hafa öndunar- truflanir í svefni um fímmtugt hafí oftar sögu um meðgöngu- eitrun, en öndunartruflanir í svefni auka líka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum." - Hversu algengt er að konur um fimmtugt kvarti undan svefn- trufiunum? „Hátt í helmingur kvenna á breytingaskeiði kvartar um svefntruflanir.“ Konur nota svefnlyf allt að tvöfalt á við karla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.