Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 11 FRÉTTIR SAMNINGURINN handsalaður. Jónas Þ. Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, (t.v.) og Þór Gunn- arsson, formaður Sambands íslenskra sparisjóða. Með þeim eru lengst til vinstri Páll Stefánsson, verkefnisstjóri hjá Hjálpar- stofnun, og Ólafur Guðgeirsson, markaðsstjóri SÍSP. Samstarf sparisjóðaima og Hiálparstofnunar Innanlandsstarfið styrkt í tvö ár SAMBAND íslenskra sparisjóða og Hjálparstofnun kirkjunnar hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að SÍSP styrki innan- landsstarf Hjálparstofnunar um eina milljón króna á ári næstu tvö árin. Framlagið gerir stofnuninni kleift að veita skjólstæðingum sín- um betri stuðning en áður og renna þannig styrkari stoðum undir inn- anlandsstarf hennar. Þór Gunnarsson, formaður SÍSP, sagði við undirritun samningsins að sambandið hefði sett sér það mark- mið að taka þátt í samfélagslegum verkefnum og ætla til þess ákveðið fjármagn á hveiju ári. Eru tvö önn- ur verkefni styrkt þessi árin. „Mér var þetta verkefni strax mjög hug- leikið,“ sagði Þór, „meðal annars vegna þess að ég sá lengi um fjár- mál Hafnaríjarðarkirkju og vil gera mitt til að styðja það sem viðkemur Þjóðkirkjunni." Þór segir ennfremur að sparisjóðafjölskyldan, en þeir eru alls 27 að tölu, vilji gjarnan leggja lið í heimabyggðum sínum og að þeim sé ljúft að taka þátt í starfi með kirkjunni á þennan hátt. Jónas Þórisson, framkvæmda- stjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, kvaðst ánægður með að þetta sam- starf hefði nú tekist, stofnunin hefði lengi átt ánægjuleg viðskipti við SPRON og önnur fyrirtæki í eigu sparisjóðanna. Sálgæsla og fagleg ráðgjöf „Það er að mínu viti söguleg stund að skrifa undir þennan styrkt- arsamning og hann gerir Hjálpar- stofnun kleift að sinna innanlands- aðstoð betur en áður. Sálgæsla og fagleg ráðgjöf verður nú stærri þáttur aðstoðarinnar sem að öðru leyti felst í matargjöfum og annarri fyrirgreiðslu og okkur er nú kleift að ráða félagsráðgjafa, Elínborgu Lárusdóttur, til að hafa umsjón með starfinu.“ Jónas segir að síðustu sjö árin hafí fjöldi umsókna vegna slíkrar hjálpar aukist úr 10 í 1.300 á ári, minna hafi því verið til skiptanna og stofnunin átt sífellt örðugra með að veita skjólstæðingum þá ráðgjöf sem oft þyrfti til að aðstoðin skilaði sér. „Með þessum samningi er hægt að standa mun betur að þessum verkefnum." 7-vikna fitubrennslu- námskeið: • Þjálfun 3-5x i viku • Fræðslu- og kynningarfundur • Filumælingar og vigtun • Matardagbók • Uppskriftabókin “Léttir réttir,, 150 frábærar uppskriftir • Nýr upplýsingabæklingur: „f formi til framtíðar" • Mjög mikið aðhald • Vinningar dregnir út í hverri viku áótœdusc tií ad ue'ui tned: - ná settu þyngdarmarkmiði - verða hressari á sál og líkama - æfa í skemmtilegum og hvetjandi félagsskap! Þeim fjölgar stöðugt konunum sem hafa náð frábærum árangri á fitubrennslu- námskeiðunum hjá okkur. Vertu með þetta er auðveldara en þú hyggur! SKEIFAN 7 10S REYKJAVÍK S. 533-3355 KA HEIMILINU 600 AKUREYRI S. 462 6211 Kvöldhópar Daghópur Morgunhópur Framhaldshópur Barnagæsla Hefst 27. okt. Vatnskælikerfi í húsnæði í staðinn fyrir loftræstikerfi Mun minni fjárfestingar- og rekstrarkostnaður KÆLING húsnæðis með köldu neysluvatni í stað lofts sparar veru- legan fjárfestingarkostnað, eða er einungis 60% af þeim kostnaði sem þarf að leggja í vegna smíði kerfis sem byggist á loftkælingu, auk þess sem orkukostnaður vegna reksturs kerfisins er helmingi minni en reksturskotnaður vegna loftkælingar. Þetta eru niðurstöður athugana Guðna Jóhannessonar, prófessors í byggingatækni við bygginga- og lagnadeild KTH, verkfræðiháskól- ans í Stokkhólmi. Guðni hélt nám- skeið nýlega um þetta hér á landi fyrir verk- og tæknifræðinga á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að til skamms tíma hefði ekki verið mögulegt að kæla húsnæði hér á Reykjavíkursvæðinu með vatni vegna þess að ekki hefði verið vatn fyrir hendi til þess. Því hefði loftkæling orðið ofan á. Nú hefðu hins vegar skapast aðstæður til þess með nýjum virkjunum Vatns- veitu Reykjavíkur. Stóran hluta ársins þarf kælingu Guðni sagði að fólki fyndist það kannski skjóta skökku við að kæla húsnæði á íslandi, en þannig væri það nú samt þrátt fyrir að hita þyrfti húsnæði á köldum skeiðum, að mikil varmamyndun frá tölvum, vélum og fólki ætti sér stað í mörg- um tegundum húsnæðis, eins og skrifstofuhúsnæði til dæmis. Stór- an hluta ársins þyrfti að sjá fyrir kælingu á álagstímum og þetta hefði verið gert með því að auka loftmagn umfram það sem þyrfti til að vinna á móti þeirri hitamynd- un sem yrði. Oft þyrfti að þrefalda til fimmfalda loftmagn til að vinna á móti þeirri hitamyndun sem yrði og afleiðingin væri sú að loftræsti- kerfin yrðu mjög stór og þar af leiðandi dýr í viðhaldi og rekstri. Því fylgdu líka oft tæknileg vanda- mál að flytja mikið loftmagn inn og út úr herbergjum. Guðni sagði að vegna þessa hefði kæling með vatni orðið ofan á til dæmis í Skandinavíu. Það væri framkvæmt þannig að komið væri fyrir sérstökum vatnskældum einingum, sem byggðar væru upp með svipuðum hætti og vatnskassi í bíl og hefðu hlotið nafnið kæli- raftar í íslenskri þýðingu. Þeim væri komið fyrir í loftum her- bergja. Loftið kólnaði við að leika um þær og þar sem kalt loft væri eðlis- þyngra en heitt félli það niður og heita loftið streymdi upp í staðinn. Þannig skapaðist hringrás og þetta þýddi að ekki væri meiri hávaði af þessari kælingu heldur en af venjulegum ofni. Síðan væri stjórn- loki á einingunni sem næmi hita- stigið í herberginu og stýrði vatns- rennslinu í samræmi við það hita- stig sem óskað væri eftir. „Þetta gefur möguleika á þægi- legra loftslagi og minnkar að mun það loftmagn sem þarf að blása inn, þannig að vandamál sem tengjast hávaða og trekk frá loft- ræstikerfum verða mun minni en ella,“ sagði Guðni. Hann sagði aðalkosturinn við vatnskælinguna væri hins vegar kostnaðarhliðin. Fyrir stærra hús- næði eins og til dæmis skóla, fundarsali og skrifstofur mætti lík- lega minnka fjárfestingu niður í 60% af því sem hefðbundið loft- ræstikerfi myndi kosta, auk þess Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐNI Jóhannesson, prófessor í Stokkhóimi, sýnir teikningu af kælirafti, sem er vatnskæld eining til kælingar húsnæðis. sem orkukostnaður sem fylgdi rekstri kerfisins væri ekki nema um það bil helmingur af því sem annars væri. Fimm sinnum ódýrara en í Stokkhólmi Guðni sagði að ástæðan fyrir því að kalda vatnið hefði ekki ver- ið nýtt fyrr til þessara hluta væri að til skamms tíma hefði verið skortur á köldu vatni í Reykjavík. Það hefði breyst með nýjum virkj- unum og nú væri nægt framboð á köldu vatni hér. Þá væri einnig vert að nefna að kalda vatnið væri fimm sinnum ódýrara heldur en til dæmis í Stokkhólmi, þannig að aðstæður til að setja upp og reka svona vatnskælikerfí hér á Islandi væru betri en annars staðar. María Pétursdóttir hefurmisst 12 kg. Bryndis Berg heturmisst 13 kg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.