Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 13
Morgunblaðið/Ásdís
Danir gefa Gæslunni byssur
LANDHELGISGÆSLAN fékk afhentar tvær kveðju-
skotsbyssur, „salut-byssur“ eins og þær eru einnig
nefndar, sl. sunnudag. Byssurnar eru gjöf frá
dönsku strandgæslunni. Úr byssunum verður ekki
skotið föstum skotum. Hafsteinn Hafsteinsson for-
stjóri Landheigisgæslunnar veitti gjöfinni viðtöku.
Hafsteinn var nýlega í heimsókn hjá dönsku
strandgæslunni og afhenti þá Christian Hvidt, yfir-
maður varnarmála í Danmörku, Hafsteini gjafabréf-
ið. Byssurnar voru svo fluttar hingað til lands í
strandgæsluskipinu Skytteren.
Steen Vestergaard Andersen, aðmíráll dönsku
strandgæslunnar, afhenti Hafsteini byssurnar um
borð í Skytteren. Hafsteinn segir að byssurnar séu
færanlegar og verði hafðar í skipum Landhelgis-
gæslunnar þar sem þeirra verður þörf hveiju sinni.
Tveir gagnagrunnar
með sama heiti á Netið
Doktor í
sameinda-
líffræði
•GUÐMUNDUR Guðmundsson
hefur varið doktorsritgerð sína í
sameindalíffræði við University of
Southern California í Bandaríkjun-
um. í ritgerðinni,
sem nefnist:
„Genetic Con-
formation of Esc-
herichia coli DNA
Polymerase II
Direct Involve-
ment in DNA
Synthesis in
vivo,“ lýsir Guð-
mundur rann-
sóknum sínum á DNA hvata af
gerð tvö (DNA Polymerase II), sem
eftirmyndar kjarnsýrur í bakteríum.
Bakteríur hafa þijár gerðir hvata
sem eru notaðir við eftirmyndun og
viðgerð kjamsýra. Hvatarnir, sem
eru nefndir eftirmyndandi kjarn-
sýruhvatar (polymerasar) eitt, tvö
og þijú, sinna mismunandi hlutverk-
um við eftirmyndun kjamsýranna
og eiga samsvömn i heilkjörnung-
um, þ.m.t. mönnum. Af þessum
þremur hvötum er minnst vitað um
hlutverk hvatans af gerðinni tvö.
í rannsóknum sínum notaði Guð-
mundur mismunandi úrfellingar og
stökkbreytingar á geninu sem tjáir
gerð tvö hvatans í bakteríum til að
athuga áhrif stökkbreytinga á
nokkrum genasetum. Til að auka
stökkbreytingatíðnina var methyl-
stýrt viðgerðarkerfí bakteríunnar
gert óvirkt. Þannig tókst að sýna
fram á að hvatinn tekur þátt í eftir-
myndun kjarnsýra bæði á sjálfum
litningi bakteríunnar og einnig á svo
nefndum plasmíðum. Bakteríur með
úrfellingu hvata af gerð tvö höfðu
aukna tíðni stökkbreytinga, einkum
á adenín yfir í gúanín basa breyt-
ingu. Jafnframt fundust lesramma-
breytingar í stökkbreyttu bakteríun-
um. Einnig kom fram að frumur
með óvirkan hvatatvö, höfðu aukið
næmi fyrir vetnisperoxíði, semjókst
enn frekar við að gera dismutase
hvata óvirkan. Stýrðar (adaptive eða
directed) stökkbreytingar voru einn-
ig athugaðar. Nefndur hvati jók
mjög þessa gerð af stökkbreytingum
í ákveðnum stökkbrigðum. Niður-
stöður rannsóknanna hafa birst í
víðlesnum vísindatímaritum.
Til þessara rannsókna hlaut dr.
Guðmundur styrki frá Fullbright-
stofnuninni, Thor Thors styrk frá
íslensk Ameríska félaginu, minning-
arsjóði Helgu Jónsdóttur og Siguriiða
Kristjánssonar, NATO og University
of Southem Califomia. Guðmundur
lauk stúdentsprófi úr náttúmfræði-
deild Menntaskólanns í Reykjavík
árið 1982 og BS gráðu í líffræði frá
Háskóla íslands árið 1988. Hann hóf
framhaldsnám í líftækni við Worcest-
er Polytechnic Institute í Massachu-
sets og útskrifaðist þaðan með meist-
aragráðu árið 1991. Guðmundurer
sonur Ingibjargar Guðmundsdótt-
ur læknafulltrúa og Benedikts J.
Þórarinsonar (látinn). Sambýlis-
kona Guðmundar er Þóra Christ-
iansen tjáskiptafræðingur og eiga
þau eitt barn, Egil Ian. Guðmundur
starfar hjá íslenskri erfðagreiningu
í Reykjavík.
TVENN gagnagrunnskerfí með
nafninu Fengur eru væntanleg inn
á Netið. Er þar um að ræða kerfi
Bændasamtaka íslands sem hefur
að geyma öll skráð hross Iandsins,
ættir þeirra, eigendaskráningu,
kynbótamat og einstaklingsdóma
þar sem um slíkt er að ræða. í hinu
tilvikinu er um að ræða kerfí Bókís
sem eru samtök notendafélags
bókasafna sem nota Feng og inni-
heldur það safnefni ýmissa bóka-
safna á íslandi.
Bændasamtökin hafa selt áskrift
að sínum Feng til áhugamanna um
hrossarækt um nokkurra ára skeið
bæði utan- og innanlands. Hafa
áskrifendur fengið gagnagrunninn
á disk fram að þessu. Bændasam-
tökin tóku upp nafnið Fengur árið
1991 en Bókís hóf notkun á nafninu
tveimur árum síðar eftir að hafa
efnt til verðlaunasamkeppni um
nafn.
Aðilar vissu hvor af öðrum fljót-
lega eftir að Bókís hóf notkun á
nafninu en töldu án þess að samráð
væri haft að þetta gæti gengið þar
sem um algerlega óskylda hluti
væri að ræða. Öðru máli gegnir nú
þegar bæði kerfin eru á leið inn á
Netið og sagði Kristinn Hugason
hrossaræktarráðunautur hugsan-
legt að þetta gæti komið sér illa
ef bæði nöfnin verði notuð á netinu.
Sólveig Þorsteinsdóttir, formaður
Bókís, benti á að á Netinu væri til
dæmis fjöldinn allur af fyrirtækjum
með sama nafni en í slíkum tilvikum
væru skýringar aftan við nafn fyrir-
tækisins sem kæmi í veg fyrir að
farið væri inn á rangar síður. Hugs-
anlega væri hægt að leysa málin á
þann hátt með Fengs nafnið. Það
væri vissulega slæmt að þurfa að
skipta um nafn því lagt hefði verið
í mikinn kostnað við að kynna og
markaðssetja nafnið Fengur. Hún
segir jafnframt að þau hjá Bókís
hafi uppgötvað Feng Bændasam-
takanna þegar þau sóttu um lög-
gildingu á nafninu og fengu ekki
af þessum sökum.
Kristinn Hugason sagði að sér
fyndist kostulegt að hestnafn skuli
notað á gagnagrunn sem tilheyrði
bókasafnsfræðum þótt þess bæri að
gæta að fiskibátar hafí borið þetta
nafn. Báðir viðmælendur voru sam-
mála um að kanna þyrfti þessi mál
frekar og líklega yrðu hlutaðeigend-
ur að funda um lausn á þessu máli.
PP
&co
ÞAKVIÐGEBÐA
---------------
Á ÞÖK - VEG6I - GÓLF
Rutland þéttir, Rutland er einn helsti
bætir og kætir framleiðandi
þegar að þakið þakviðgerðarefna í
fer að leka Bandaríkjunum
RUTIAND
ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 / 568 6100
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
ÍÞRÓTTASKÓR - AIROBICSKOR
frá Adidas, Nike, Puma, Reebok og fl.
1. LÆRABANI, Margvíslegar
æfingar fyrir læri, brjóst hand-
leggi, bak og maga. Æfinga-
leiðbeiningar fylgja. Þetta
vinsæla og einfalda æfinga-
tæki er mikið notað á æfinga-
stöðvum. Verð aðeins
kr. 890, stgr. 801.
2. MAGAÞJÁLFI. Ekki síðra á-
hald en auglýst er í sjónvarpi,
en verðið miklu hagstæðara,
aðeins kr. 1.690, stgr. 1.521.
3. ÞREK/AIR0BIC)PALLUR
Það nýjasta í þjálfun, þrek,
þol og teygjur fyrir fætur,
handleggi og maga. Stöðugur
á gólfi meö mismunandi hæö-
arstillingum. Þrekpallinn má
einnig nota sem magabekk.
Verð aðeins kr. 5.900, stgr.
5.310.
4. TRAMBÓLÍN. Hentugt fyrir
bæði leiki og æfingar, svo
sem skokk og hopp. Hagstætt
verð kr. 4.900, stgr. 4.410.
ÞREKHJÓL
Besta tækið til að byggja upp þrek
og styrkja fætur. Mikið úrval af
vönduðum hjólum meö fjölvirkum
tölvumælum. Verð frá kr. 19.000,
stgr. 18.050.
SPINNING HJÓL
Vandað spinning hjól frá
KETTLER, V-Þýskalandi. Fjölvirkur
tölvumælir með púls, þungt
kasthjól, sem gefur jafnt ástig,
stillanlegt stýri og hnakkur.
Lokaður keðjukssi og brúsi. Verð
kr. 59.000, stgr. 56.050.
Hjólabuxur með púöa frá kr. 2.500
GEL-hnakkhlífar kr. 1.090
PÚLSMÆLIR-UR
Púls, hámarks- og
lágmarks púls, meðal
púls, samanburður á
meðal- og núverandi
púls, klukka, skeið-
klukka, vika og dagur.
Verð aðeins kr. 7.600,
stgr. 7.220.
ÆFINGABEKKIR 0G LÓÐ
Bekkur meö fótaæfingum og lóðasett 50 kg. Á
tilboð kr. 16.500, stgr. 15.675. Lóðasett 50 ™mu/aZ.t/
kg. með handlóðum kr. 6.500, stgr. 5.850. Simar: 553 5320
HANDLÓÐ mikið úrval, og 568 8860
verð frá kr 690 parið, stgr. 621.
ALVORU SPOfíVOfíUVEfíSLUN - OTfíULEGT VOfíUUfíVAL
r/H4R
ÆFINGATÆKI