Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Góður árangur af borun eftir heitu vatni á Brimnesborgum í Árskógshreppi Meira afl en búist var við MÆLINGAR á heitavatnsholunni á Brimnesborgum í Árskógshreppi, sýna að holan er mun aflmeiri en í fyrstu var talið. Holan er 440 metra djúp og gefur allt að 55 sek- úndulítra af um 73-74 gráðu heitu vatni. Talið er að aðeins þurfi um 10-15 sekúndulítra til húshitunar í öllum hreppnum. Grímur Björnsson, jarðeðlisfræð- ingur hjá Orkustofnun, var við mælingar á holunni í gær ásamt starfsmönnum Jarðborana og hann sagði í samtali við Morgunblaðið að eitthvað mikið þyrfti að koma til, verði ekki hægt að setja upp hitaveitu í hreppnum. „Það liggur ekki fyrir á þessari stundu hvernig staðið verður að dælingu úr holunni en við erum að prófa holuna m.a. til þess að geta valið réttu dæluna." Jarðskjálftamælar ný verkfæri Grímur segir að jarðskjálftamæl- ar Veðurstofunnar á svæðinu séu ný verkfæri við jarðhitaleit og með þeim sé frekar hægt að fínna lík- lega staði. „Þessar sprungur eru alltaf kjaftandi og þótt við finnum ekki alltaf fyrir skjálftunum, gera mælar Veðurstofunnar það.“ Kristján Snorrason, oddviti Ár- skógshrepps, var að vonum bros- mildur þegar holan blés með hvað mestum látum í gær. Hann sagði að veitunefnd í nýju sveitarfélagi við fjörðinn myndi ákveða með framhaldið og yrði veturinn notaður til að fara yfir stöðuna. „Það gæti þó verið álitlegur kostur að leggja strax frá holunni að bamaskólanum sem er hér í næsta nágrenni. Þar er m.a. kennslulaug og hefur hrepp- urinn verið að borga á aðra milljón króna á ári í hitunarkostnað á skóla- mannvirkjum." Ákjósanlegri búsetuskilyrði Kristján sagði að hitaveita byði upp á ákjósanlegri búsetuskilyrði í hreppnum og þá bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Hann sagði það jafnframt vönduðum vinnubrögðum starfs- manna Orkustofnunar að þakka hversu vel hefur tekist til en þar hafa þeir Ólafur Flóvenz og Kristján Sæmundsson farið fremstir í flokki. Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Jarðborana Iétu heitavatnsholuna á Brimnesborgum í Árskógshreppi blása hressi- lega er hún var mæld í gær. Globus- | Vélaver 1 kaupir hús Vífilfells GLOBUS-Vélaver hf. hefur keypt fasteignina Dalsbraut 1E af Vífil- | felli hf. Hún er um 400 fermetrar r að stærð og er lóðin um 3.500 fer- S metrar. * Magnús Ingþórsson fram- kvæmdastjóri sagði að í húsnæðinu á Akureyri væri fyrirhugað að opna sölu- og þjónustumiðstöð fyrir Norð- urland. Undanfarin ár hefði Globus- Vélaver átt mikil viðskipti við bænd- ur, fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og þjónustufyrirtæki á Norðurlandi. Með stofnun þjónustumiðstöðvar á | Akureyri hyggst fyrirtækið styrkja < þjónustu sína við þessa viðskipta- 1 vini. „Við viljum auka okkar þjón- 1 ustu á svæðinu og munum verða með hluta af okkar innflutningi beint til Akureyrar, en það hefur í för með sér styttri afhendingartíma á vörum til viðskiptavina á svæðinu og sparar flutningskostnað innan- lands,“ sagði Magnús. Starfsemi þjónustumiðstöðvar- innar byggist á rekstri vélaverk- | stæðis, varahlutaverslunar og sölu- | skrifstofu auk innflutningsstarf- g semi. Gert er ráð fyrir, að sögn " Magnúsar, að starfsmenn verði fjór- ir til sex. Húsnæðið verður afhent í mars á næsta ári og er áætlað að opna þjónustumiðstöðina eftir lag- færingar á húsinu í apríl. -----» + 4---- Nýdönská tónleikum < NÝ DÖNSK kemur fram á tónleik- j um í Menntaskólanum á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 22. októ- ber. Húsið verður opnað kl. 19.30, ; en hljómsveitin 200.000 naglbítar hita upp. Forsala aðgöngumiða er í versluninni Contact og í skólum bæjarins. Miðaverð er 700 krónur ( fyrir þá sem eru í nemendafélögun- - um en 1.000 krónur fyrir aðra. 'jj Nemendafélög framhaldsskólanna, % MA og VMA efna til tónleikanna. Grunnskólar Akureyrarbæjar verði vímuefnalausir árið 2000 Öflugt forvamastarf og áróður meðal unglinga BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur sett sér það markmið að grunn- skólar bæjarins verði vímuefna- lausir árið 2000. Gefið hefur verið út fréttablað sem helgað er baráttunni gegn vímuefnum, en þar er m.a. að finna viðtöl við ýmsa sem tengjast for- vamarstarfi og vinna á þeim vett- vangi á Akureyri, greint frá mark- miðum bæjaryfirvalda og á hvern hátt reynt verður að ná þeim. Við- tal er við unga stúlku er ánetjaðist fíkniefnum á unga aldri og eyddi rúmum sjö árum af lífi sínu í heimi vímunnar og rætt er við nema í Verkmenntaskólanum á Akureyri sem annast jafningjafræðslu á Akureyri. Samstarf með Reylqavík- urborg og fleirum. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði að markmiðum bæjaryfír- valda yrði reynt að ná með öflugu forvarnastarfi og áróðri. Nefndi hann að Akureyrarbær hefði staðið fyrir ráðstefnu um unglinga og notkun vímuefna fyrr á árinu, tek- ið þátt í samstarfi t.d. með Reykja- víkurborg á þessum vettvangi. Þá sagði bæjarstjóri að tómstunda- starf unglinga í bænum hefði verið endurskipulagt en enn væru allir þættir ekki komnir til fram- kvæmda. Einnig nefndi Jakob að hlutverk áfengis- og vímuvamanefndar Morgunblaðið/Kristján JAKOB Björnsson bæjarsljóri og Kristín Sigfúsdóttir formaður áfengis- og vímuvarnanefndar Akureyrar kynntu baráttu bæjar- yfirvalda gegn vímuefnanotkun ungmenna og það markmið að stefna að vímuefnalausum grunnskóla á Akureyri árið 2000. Gefið hefur verið út fréttabréf sem dreift verður á öll heimili í bænum en það er helgað baráttunni gegn vímuefnum. hefði verið breytt og þá væri hún nú launuð sem ekki hefði tíðkast áður. Nefndin mun vinna að því að koma á samstarfí þeirra sem vinna að forvarnarstarfi og afleið- ingum neyslu vímuefna. Kristín Sigfúsdóttir formaður nefndarinnar sagði að framlög til málaflokksins næmu á bilinu 3-4 milljónum króna á þessu ári. Bæjarráð samþykkti í síðustu viku að veita hálfa milljón króna í for- varnarsjóð sem nefndin mun nota til að kaupa tæki og búnað fyrir lögregluna á Akureyri sem nýtast munu við störf hennar að vímu- efnamálum. Þá hefur ráðið einnig ákveðið að veita sömu upphæð til þessa málefnis á næsta ári. Vaxandi vandamál Vímuefnaneysla ungmenna er vaxandi vandamál á Akureyri sem annars staðar á landinu. Eina leið- in til að veijast þessum vágesti er að þær stofnanir sem vinna að lög- gæslu, vímuefnavömum og upp- eldismálum taki höndum saman við foreldra, uppalendur og al- menning um að leita allra leiða til að beijast gegn honum. Ákvörðun bæjaryfirvalda á Akureyri er liður í þeirri viðleitni og er fréttabréfinu ætlað að kynna hana og hvetja bæjarbúa, sérstaklega foreldra til dáða. Hvetur Kristín fólk því til að lesa blaðið sem hafi að geyma mikinn fróðleik og upplýsingar og eiga það. 0 PIONEER The Art of Entertainment • Sjónvörp.myndbands- og hljómtæki • Ljósritunarvélar • Faxtæki • Örbylgjuofnar • Reiknivélar • Skipuleggjarar • Búðarkassar Hljómtækja- verslun Akureýri ■B'462 3626 Norðurlands örugg þjónusta í fjörtíu ár J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.