Morgunblaðið - 22.10.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 19
ERLEIMT
Reuters
BELGÍSKUR rannsóknarlögreglumaður ber box með sönnunargögnum út úr húsi i eigu sakborn-
ingsins Andreas Pandy eftir að lögreglan í Brussel gerði húsleit þar í gær.
Morðmál prests slær
belgísku þjóðina óhug
Brussel. Daily Telegraph. Reuters.
MÁL belgíska prestsins Andreas
Pandy, meints morðingja tveggja
fyrrverandi eiginkvenna sinna og
fjögurra barna, þykir álitshnekkir
fyrir belgísku lögregluna og belgíska
dómskerfið. Lögreglan hafði áður
tekið þá skýringu góða og gilda að
konumar og bömin hefðu farið úr
landi en hann fluttist 1957 frá Ung-
veijalandi til Belgíu þar sem hann
hefur starfað síðan.
Pandy var handtekinn í síðustu
viku og í fyrradag kærður fyrir morð
á sex manns eftir að mannabein
fundust undir steingólfi í einni íbúð
hans í Brussel og grunsamleg kjöt-
stykki í frystikistum í tveimur öðrum
húsum hans. Blóðblettir fundust
sömuleiðis á veggjum í stigagangi
og óþekkt aska í duftkeri.
Pandy stendur á sjötugu og hefur
kennt trúar-
bragðasögu og
guðfræði við
fjölda skóla í
Belgíu frá því
hann fluttist
þangað frá Ung-
veijalandi 1957.
Hann er sakaður
um að hafa
Andreas framið morðin á
Pandy árunum 1986-89
en konurnar
tvær og fjórar dætur af átta börnum,
sem hann átti með þeim, hurfu spor-
laust á níunda áratugnum. Þótti
hvarfið grunsamlegt og lögreglan tók
hann á sínum tíma til yfirheyrslu en
tók gilda þá skýringu hans að kon-
umar og dætumar hefðu farið úr
landi.
Rannsókn tekin upp að nýju í
kjölfar Dutroux-máls
í kjölfar rannsóknar á máli bama-
níðingsins Marcs Dutroux, sem upp
komst um í ágúst í fyrra, var rann-
sókn á hvarfí eiginkvenna og dætra
Pandy tekin upp að nýju. Þrátt fyrir
ítarlega eftirgrennslan belgísku og
ungversku lögreglunnar fundust eng-
in spor um þær, hvorki í Belgíu né
Ungveijalandi. Beindust spjótin þvi
að prestinum sjálfum á ný.
Málið hefur slegið óhug á belgískan
almenning, sem þó er orðinn ýmsu
vanur eftir að morð og níðingsverk
Dutroux komu fram í dagsljósið. Kjöt-
fundur í ísskápum minnir einnig á
það er lögregla fann fyrir tilviljun lík
þriggja kvenna í frystikistum vinsæls
líbansks matsölustaðar í Brussel.
Losun mengunarefna í Bandaríkjunum eykst
Bílaframleið-
endur mæla
með hækkun
orkuverðs
Washington. Reuters.
FORYSTUMENN bandarísku
bílaverksmiðjanna General Motors
Corp (GM) viðurkenndu í gær að
vaxandi útblástur koltvísýrings
út í andrúmsloftið ógni veðurfari
á jörðinni og mæltu með því að
orkuverð í Bandaríkjunum yrði
hækkað til að þvinga Bandaríkja-
menn til að minnka eitthvað við
sig hina miklu brennslu jarðefna-
eldsneytis, sem einkennir banda-
rískar neyzluvenjur.
Þessi yfirlýsing frá stjórnend-
um stærsta bílaframleðianda
heims kom á óvart, þar sem hún
stangast á við fyrri yfirlýsingar
frá bandarískum bílaframleiðend-
um, en hún var gefin út þegar
alþjóðlega bílasýningin í Tókýó
var að hefjast, þar sem gróður-
húsaáhrifin, sparneytni bifreiða
og mengunarvarnartækni eru efst
á baugi.
Losun gróðurhúsalofttegunda
frá bílum, verksmiðjum og orku-
verum í Bandaríkjunum jókst um
3,4% á síðasta ári og mun meira
en undanfarin ár, samkvæmt
skýrslu frá bandaríska orkumála-
ráðuneytinu, sem birt var í fýrra-
dag.
Losun lofttegundanna jókst
meira en orkunotkunin í Banda-
ríkjunum, sem jókst um 3,2%, og
aukningin var mun meiri en hag-
vöxturinn, sem var 2,4% á síðasta
ári. The Washington Post segir
að rekja megi þessa þróun til efna-
hagsuppgangsins í landinu og
hærra verðs á jarðgasi, en það
hefur aftrað mönnum frá því að
hætta að nota eldsneyti, sem veld-
ur meiri mengun, svo sem kol.
Skýrsluhöfundarnir segja að
þessi aukna losun mengunarefn-
anna skyggi á þann árangur sem
náðst hefur í bættri orkunýtingu
á síðustu tveimur áratugum.
Eykur þrýstinginn á Clinton
The Washington Post sagði nið-
urstöðu skýrslunnar geta styrkt
málstað þeirra sem leggja nú hart
að Bill Clinton Bandaríkjaforseta
að ganga lengra en hann hefur
viljað til þessa til að draga úr los-
un lofttegunda sem taldar eru
valda auknum hita á jörðinni.
Clinton býr sig nú undir að skýra
frá stefnu Bandaríkjastjómar fyrir
alþjóðlega ráðstefnu um málið í
Kyoto í Japan í desember. Embætt-
ismenn í Hvíta húsinu hafa sagt
að stefna stjómarinnar verði kynnt
síðar í vikunni á fundi í Bonn, þar
sem samið verður um drög að al-
þjóðlegum samningi um að tak-
marka losun mengunarefnanna.
Evrópusambandið hefur lagt til að
iðnríkin dragi úr útblæstri gróður-
húsalofttegunda um 15% fyrir árið
2010, miðað við árið 1990, en
Bandaríkjastjóm hefur ekki viljað
ganga svo langt.
Samkomulag
Sviss og ESB
fyrir áramót
Lúxemborg. Reuters.
JACQUES Poos, utanríkisráð-
herra Lúxemborgar, sem nú fer
með forsæti í ráðherraráði Evr-
ópusamband-
sins, ESB, sagði
í fyrradag að
líklega tækist
að ganga frá
tvihliða samn-
ingum ESB við
Sviss fyrir kom-
andi áramót,
þrátt fyrir að
deila samningsaðila um umferð
þungaflutningabifreiða í gegn um
Sviss sé enn óleyst.
„Hinn pólitiski vilji er fyrir
hendi,“ sagði Poos um afstöðu
ESB á fréttamannafundi í Lúx-
emborg að loknum fundi með aðal-
samningamanni Svisslendinga,
Flavio Cotti.
Samkomulag um takmarkanir á
og gjaldtöku af flutningaumferð
í gegn um Sviss er það sem alls-
heijarsamningar Sviss um frjáls-
ari aðgang að innri markaði Evr-
ópu hefur hingað til strandað á.
Sviss, sem er ásamt íslandi, Nor-
egi og Liechtenstein í EFTA en
hafnaði aðild að Evrópska efna-
hagssvæðinu í þjóðaratkvæða-
greiðslu 1992, hefur staðið í tví-
hliða samningaviðræðum við ESB
frá 1994.
Til þess að vernda það sem
Svisslendingar kalla hina „sér-
stöku náttúru" Alpasvæðisins hafa
þeir vi(jað
rukka flutn-
ingabifreiðar
sem vilja leggja
leið sína í gegn
um Sviss um
háa vegatolla til
að beina þeim
frekar um borð
í flutningalest-
ar, en ESB hefur staðið fast á því
að vijja halda vegatollum lágum.
Nýjar tillögur til athugunar
Neil Kinnock, sem fer með sam-
göngumál í framkvæmdastjórn
ESB, sagðist í síðustu viku hafa
fengið nýjan tillögupakka frá
Svisslendingum til athugundar.
Poos sagði tillögurnar vera „mikil-
vægan umræðugrunn" og að
markmiðið sem lægju þeim til
grundvallar - að beina flutning-
um af vegum á teina - væri góð
og gild.
Cotti, sem áður hafði átt fund
með Jean-Claude Juncker, forsæt-
isráðherra Lúxemborgar, sagðist
trúa því að „viljinn til að Ijúka
samningum fyrir árslok hafi verið
sýndur í dag, jafnvel þótt erfið
úrlausnarefni liggi enn fyrir.“
EVRÓPA^
Baráttumann í
Reykvtkitigar þutfa á ungufólki meó reynslu aó balda
í borgarstjóm. Tryggjum Kjartani Magnússyni, blaóamanni
og varaborgaifulltrúa, góÓa kosningu í prófkjöri
Sjálfstæóisflokksins í Reykjavík.
Stuðningsmenn.
Sólheimar 33 • Sími 588 5570 • Simbréf 588 5571 • http://this.is/kjartan