Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 38

Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 38
U8 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÚLÍUS - GUÐMUNDSSON + Júlíus Guð- mundsson fædd- ist í Reykjavík 18. september 1959. Hann lést á heimili sínu 12. október síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Guðmund- ur Ársælsson póst- varðstjóri, f. 3.5. 1925, d. 22.2. 1995, og Sigfríður Niel- -y johníusdóttir, hús- freyja, f. 9.5. 1920. Systkini hans eru: Ólöf Guðmunds- dóttir sjúkraþjálf- ari, f. 16.6.1958, gift Jóni Heið- ari Gestssyni verkfræðingi. Ársæll Guðmundsson aðstoðar- skólameistari, f. 30.5. 1961, kvæntur Gunnhildi Harðardótt- ur kennara. Júlíus kvæntist 18. septem- ber 1982 Helgu Gottfreðsdóttur ljósmóður, f. 12.12. 1960. For- eldrar Helgu eru Gottfreð Árnason viðskiptafræðingur, f. 13.12. 1932, og Ásdís Magnús- dóttir kennari, f. 23.12. 1931. * Börn Júlíusar og Helgu eru: Þórir, f. 25.6. 1982, Magnús, f. 31.1. 1986 og María Soff- ía, f. 14.6. 1995. Júlíus varð stúd- ent frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1980 og lauk emb- ættisprófi í lög- fræði frá Háskóla íslands 1986. Að námi loknu hóf hann störf sem full- trúi hjá bæjarfóg- etaembættinu á Húsavík og sýslu- manninum í Þing- eyjarsýslu. Árið 1988 réðst hann til starfa sem fulltrúi hjá yfirborgarfógeta í Reykjavík. Frá árinu 1992 starfaði Júlíus sem lögfræðingur við Búnaðar- banka Islands. Júlíus starfaði mikið að félagsmálum. Hann var m.a. í unglingaráði hand- knattleiksdeildar Víkings og í stjórn Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélagsins Hellis. Útför Júlíusar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Haustið hjá okkur var langt og fallegt, en daginn var tekið að stytta og við vorum farin að undirbúa okkur fyrir veturinn. Ekki óraði okkur fyrir að myrkrið gæti hellt sér yfír svo svart, svo snöggt, svo óvægið. Myrkur þar sem þarf að beita öllum kröftum til þess að týna ekki ljósgeislum lífsins, svo þung- bær er sorgin. Á einu andartaki er lífíð óskiljanlegt, spurningin svo stór en engin svör og hversdagslegir hlutir verða svo hégómlegir. Við verðum samferða mörgum á lífsleið- inni, sumum kjósum við að fylgja, aðrir koma inn í líf okkar með einum eða öðrum hætti án þess að við höfum neitt um það að segja. Úr hvorum hópi komast sumir inn að hjarta okkar, en aðrir eru sem steinrunnir í sinni skel og á langri _ ,ævi er lítið sem þeir skilja eftir. Júlli kom inn í líf okkar þegar hann kynntist Helgu eldri systur minni fyrir tæpum átján árum. Frá fyrsta degi átti hann stóran sess í hjarta okkar. Hann var hlýr, einlæg- ur, sannur drengur, og brátt varð eins og hann hefði alltaf verið hluti af fjölskyldunni. Við lítum aftur í tímann og eigum einungis góðar minningar sem engan skugga ber á, aldrei vanhugsuð orð eða gerðir. Það fínnst okkur sérstakt. Milli okk- ar allra ríkti einlæg væntumþykja og kærleikur. Það var ákaflega þægilegt að vera í návist Júlla, enda var hann var rólegur og yfírvegaður þótt allt- af væri mikið á döfínni. Ef til vill ~var ástæðan sú, að hann fann gott jafnvægi í lífinu milli alls þess sem skipti hann máli. Allt sem hann tók sér fyrir hendur í leik og starfi, gerði hann af áhuga og alúð. Helga og börnin þeirra þijú voru hans stolt, líf og yndi og gengu fyrir öllu. Hann var einstakur faðir og sérstakur vin- ur og félagi drengjanna sinna, Þóris og Magnúsar. Hann kenndi þeim skák, handbolta, fór með þá í veiði, á skíði og í sund, og las fyrir þá íslendingasögumar. Áhugamál strákanna voru hans áhugamál. - Litla María Soffía var sannur ljós- geisli pabba sínSj „óskin“ hans eins og hann sagði. Á stuttri ævi sinnti hann börnunum sínum meira en margur gerir á langri lífsleið. Milli þeirra Helgu ríkti sönn ást og um- hyggja alla tíð og oft töluðum við um að við mundum vilja taka ein- stakt fjölskyldulíf þeirra til fyrir- myndar þegar sá tími kæmi að við myndum sjálf eignast böm. Söknuðurinn er óbærilega sár. Júlli var ekki aðeins farsæll í starfí og fjölskyldulífi. Hann leyndi ótrúlega á sér likamlega, var þolinn og vel á sig kominn. Því kynntumst við jafnt í veiði á fjöilum og í vegg- tennis innandyra. Oft var hart bar- ist enda var Júlli mikill keppnismað- ur sem aldrei gaf þumlung eftir. Samt var léttleikinn ávallt í fyrir- rúmi því Júlli var fæddur húmoristi sem var stanslaust að hlæja og gant- ast. Júlii var vinnusamur, ósérhlífinn og óeigingjarn svo eftir var tekið. Hann hafði ávallt tíma fyrir aðra, var ráðagóður og hjálpsamur með afbrigðum. Alltaf fórum við léttari frá fundi hans en á. Hann var afar fjölhæfur, sinnti mörgu og var jafn laginn hvort heldur var i íþróttum og veiðimennsku, við smíðar og við- hald á heimilinu eða við nám og andlega áreynslu. Júlli var sannar- lega afreksmaður í lífínu. Við minnumst með hlýju allra gieðilegu stundanna sem við áttum saman fjölskyldan. Þegar Helga og Júlli giftu sig og við héldum veislu í Garðabænum og dönsuðum og spiluðum á harmoníku og píanó fram á nótt. Við geymum minning- arnar um skíðaferðina til Austurrík- is og heimsóknirnar til okkar til Bandaríkjanna sem fjársjóð. Yndis- legu dagamir sem við áttum saman i Washington D.C. og ferðirnar upp í fjöllin í Norður-Karólínu þar sem náttúran skartaði sínu fegursta og lífið var svo fallegt og bjart og tíminn ódauðlegur. Skyndilega er útilokað að slíkar samverustundir verði fleíri og tilhugsunin er óbæri- leg. Elskulega systir og mágkona, Þórir, Magnús og María Soffía. Það er margt á manninn lagt í þessu lífi, og stundum eins og mest sé á þá lagt, sem best era gerðir. Hún er þung og hörð sorgin sem nú er lögð á herðar ykkar. Megi góður Guð gefa ykkur styrk og leiða úr myrkrinu. Við erum betri manneskj- ur eftir að hafa fengið að vera sam- ferða Júlla á allt of stuttri ævi og fyrir það þökkum við af alhug. Við minnumst elskulegs vinar með djúpri hryggð og söknuði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) María Soffía og Jón Gunnar. Elsku vinur. Mig langar til að minnast þín í fáeinum orðum. Fyrir mér varst þú miklu meira en pabbi, þú varst minn besti vinur. Mörgu af hinu góða og fallega sem lífið hefur uppá að bjóða hef ég kynnst í gegnum þig. Þú byijaðir snemma á að kynna mig fyrir hinu og þessu t.d. skák, hand- bolta og fótbolta, við stunduðum einnig saman líkamsrækt og spiluð- um körfu. Mér fannst þú sterkur og stór þó að ég væri löngu vaxinn þér yfir höfuð. Þú varst alltaf í líkamlega góðu formi og kom það eflaust sum- um vinum þínum á óvart þegar þú skrifstofumaðurinnhljópst upp fjöll- in á engum tíma. Eg man eftir þér þegar ég fékk að fara með að veiða rjúpur, hvað þú kunnir vel að um- gangast náttúruna enda voru marg- ar af þínum bestu minningum tengdar sveitinni. Við byijuðum að veiða saman þegar ég var bara smápatti og í fyrrasumar fórum við saman í okkar fyrsta laxveiðitúr. Þar fékk ég maríufiskinn minn. Við höfðum komið okkur upp aðstöðu úti í bílskúr þar sem við hnýttum flugur og plönuðum komandi tíma. Þú vissir alltaf svörin við öllu en ég gat líka talað við þig eins og jafnaldra minn. Þú varst duglegur að dytta að heima og þegar við fiutt- um þangað sem hlutirnir voru kannski ekki í toppstandi urðu þeir það fljótlega eftir að þú hafðir látið hendur standa fram úr ermum. Núna verðum við að lifa án þín. En ég held að þú hafir ekki farið langt frá okkur. Þú hefur eflaust sent okkur einhveija jákvæða strauma þessa erfiðu daga og kemur til með að fylgjast með okkur eins og þú hefur alltaf gert. Ég er stoltur af að hafa átt þig og sá tími sem við áttum saman var mikill og góður. Fyrir það vil ég þakka þér. Þinn sonur Þórir. Þú komst með vorinu inn í líf okkar og bast fjölskyldunni. Þið Helga, dóttir okkar, komuð gang- andi með hvítu kollana og ljómuðuð af hamingju, sem entist fram á síð- asta dag. Þið völduð ykkur námsbrautir og hófuð undirbúning framtíðar. Þórir, stoltið okkar allra, kom í heiminn og við voram hamingjusöm. Að námi loknu kom sólargeislinn, Magnús, inn í tilveru okkar. Árin liðu við störf og leik. Þið vorað yndisleg fjöl- skylda og lífið blasti við ykkur. Fyrir aðeins tveimur árum fæddist litla yndið okkar, hún María Soffía, og auðgaði líf okkar og hamingju. Þú varst góður heimilisfaðir, sem lést þér annt um velferð fjölskyld- unnar. Þú hafðir mikið yndi af úti- vist. Bönd þín til sveitarinnar, þar sem þú varst löngum sem lítíll drengur, vora sterk. Þú varst trún- aðarvinur drengja þinna. Við mátum þig mikils og þú varst góður maður, ávallt með spaugsyrði og glettni á hraðbergi. Með gíað- værð þinni og hjálpsemi varstu góð- ur tengdasonur, sem við gátum ætíð leitað til og treyst. Nú ertu horfínn okkur um stund, ástkæri tengdasonur. Við biðjum algóðan Guð að gæta þín og gefa þér sinn frið. Tengdaforeldrar. Þagar ég kynntist manninum mínum fyrst varð ég um leið hluti af glaðri og samhentri fjölskyldu. Nú, við fráfall Júlíusar Guðmunds- sonar, hefur verið rofíð óbætanlegt skarð í þá heild. Júlíus var kvæntur mágkonu minni, Helgu Gottfreðs- dóttur. Frá fyrstu kynnum var mér ljóst að Júlíus var öðlingur. Hafí ég verið hálffeimin í fyrstu fjölskyldu- boðunum, gerði Júlli svo sannarlega sitt til að mér liði betur. Hann var fljótur að létta andrúmsloftið með glaðværð sinni og kímni. Við höfð- um fljótlega um margt að tala þar sem ég hóf nám í lögfræði sem hann hafði lokið nokkrum árum áður. Það var gott að leita álits hjá honum um námið. Seinna voram við sumarlangt á sama vinnustað, þegar ég var á „kúrsus“ hjá embætti borg- arfógeta í Reykjavík þar sem Júlli vann þá. Hann var alltaf örlátur á tíma sinn þegar ég bað hann um aðstoð. Með tengdafjölskyldunni fórum við í ferðir, bæði stuttar og langar. Ógleymanleg er skíðaferð til Aust- urríkis þar sem við Helga og Júlli voram saman í skíðaskóla enda á sama róli í skíðaíþróttinni. Þá var aftur ómetanlegt að hafa Júlla með sér. Hláturinn sem hann framkallaði losaði um áhyggjuhnútinn sem lét á sér kræla efst í brekkunum. Ein er sú ferð þar sem okkur Magnúsi varð oft hugsað til Helgu og Júlla þó þau væru ekki með okkur, en það var brúðkaupsferðin okkar. Þau höfðu þá eignast glænýjan jeppa, sem er fyrirbæri sem útivistarmenn virðast oft og tíðum tengjast tilfinn- ingaböndum. Júlli lét slíkar tilfinn- ingar ekki kæfa sitt eðlislæga ör- læti heldur lánaði okkur bílinn í hálendisferð. Júlli var góð fyrirmynd að hafa í lifínu. Þrátt fyrir lifandi áhuga á starfí sínu og lögfræðinni sem fræðigrein, lét hann þann hluta lífs- ins ekki ná yfirhöndinni svo að skugga bæri á fjölskyldulífið. Þrátt fyrir fjölmörg áhugamál, svo sem skák, handbolta, veiðimennsku og útivist, tóku þau ekki tíma frá fjöl- skyldunni, heldur gerði hann þau að hluta af fjölskyldulífinu. Umfram allt annað var Júlli góður fjölskyldu- faðir. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með því af hve mikilli natni hann sinnti sonum sínum tveimur og litlu dótturinni sem nú er ekki nema tveggja ára. Það var líka gam- an að sjá eiginmann sem mitt í annríki hversdagslífsins hafði hugs- un á því að færa eiginkonu sinni blóm án sérstaks tilefnis. í blessaðri blindni manns á hverf- ulleik hamingjunnar, hafði ég ekki gert ráð fyrir öðru en að fá að njóta samvista við Júlla á komandi áram. Ég hafði hugsað til þess með til- hlökkun þegar við Magnús myndum flytja aftur heim til íslands og fjöl- skyldan væri sameinuð á ný. Til- hlökkunin fólst meðal annars í til- hugsuninni um samverastundir í veiðiferðum og útivist með Júlla og Helgu. Júlla mun verða sárt saknað en við munum öll hafa minningar um góðan dreng til að styðja okkur við. Júlli lifír áfram í sonum sínum sem hafa erft marga af góðum kost- um föður síns. Hann skilur líka eft- ir sig litla sólargeislann hana Maríu Soffíu. Hún naut föður síns aðeins í skamman tíma en hefur móður, bræður og heilan frændgarð að leita til sem mun halda minningu hans á lofti. Elsku Helga mágkona mín og kæra börn, við Magnús biðjum al- góðan Guð að styrkja ykkur í þess- ari miklu sorg. Móður Júlíusar, systkinum hans og öðrum aðstand- endum vottum við okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Júlíusar Guðmundssonar. Elín Jónsdóttir. Ég man ennþá þegar hann Júlli frændi útskrifaðist sem lögfræðing- ur. Þetta var mjög mjög merkilegur dagur, ekki bara fyrir Júlla heldur einnig fyrir mig. Þetta var dagurinn þegar ég loksins lærði hvor bræðr- anna hét Júlli og hvor Sæli, en þetta hafði vafíst fyrir mér alla mína barn- æsku og verið mér ti! mikilla vand- ræða. Nú var þetta ekki lengur neitt vandmál, Júlli var einfaldlega lög- fræðingurinn. Nokkrum árum seinna atvikaðist það þannig að ég settist á skólabekk í Háskólanum og hóf að lesa lög- fræði. Sú ákvörðun var kannski ekki tekin að vandlega íhuguðu máli, en ég hafði nú látið mig dreyma um að kannski gæti ég þetta alveg eins og hann Júlli frændi. Fyrstu skref mín á refílstigum laga- námsins voru býsna erfið, en bót var í máli því ég gat alltaf leitað til Júlla frænda. Hann lánaði mér bækur og glósur og sýndi mér í reynd einstaka þolinmæði, sérstak- lega við síðbúin skil mín á bókum og glósum löngu eftir að ég lauk námi í viðkomandi greinum. Þegar sein bókaskil áttu sér stað, benti hann mér alltaf brosandi á það áður en ég gat stunið upp afsökunum, að hann hefði nú bara gleymt því að hann ætti yfirleitt þessar bækur. Á síðasta ári mínu við laganám við Háskólann ræddi ég við hann um þann möguleika að taka hluta af síðasta árinu í Danmörku. Eitt- hvað vafðist þetta fyrir mér, en það vafðist nú ekkert fyrir honum Júlla. Út skyldi ég fara og sækja mér þar þá menntun sem mér bauðst þar. Þessi hvatningarorð urðu ekki hvað síst til þess að ég ákvað að stfga skrefið til fulls og hefja nám við Kaupmannahafnarháskóla. Að lokinni útskrift minni úr laga- deild, ákvað ég að gefa Júlla frænda sem þakklætisvott fyrir hjálpina í náminu, afrit af lokaritgerð minni í lögfræði. Heyrði ég næst í honum eftir nokkra daga, þegar hann hringdi í mig til þess eins að þakka mér fyrir ritgerðina sem hann hafði þá lesið. Ég veit ekki hvort mér þótti vænna um, það að hann hafði raunverulega lagt það á sig að lesa ritgerðina mína, eða að hann skyldi vera svo hugulsamur að hringja í mig til þess að láta mig vita af því. Ekki þótti mér síður vænna um það, að hann skyldi láta hrós fylgja með. Þessar stuttu minningar eru að- eins brot af þeim sem fljúga í gegn um hugann þegar ég hugsa til baka. Samt fínnst mér þau vera einkenn- andi fyrir hann Júlla, því hann var alltaf brosmildur, kátur og reiðubú- inn til þess að veita óeigingjarna aðstoð og hvatningu, ef það var yfirleitt á hans valdi. Það er því með miklum söknuði að ég kveð frænda minn í hinsta sinn. Fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar sendi ég samúðarkveðjur til Helgu og barnanna, Ólafar og Sæla sem og Fríðu frænku, sem eiga öll um sárt að binda og hafa misst í senn félaga og vin. Ása. Mig langar með fáeinum orðum að kveðja æskuvin minn, Júlíus Guðmundsson. Elsku Júlli minn, ég þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman á okkar uppvaxtarár- um í hverfínu okkar og síðar þegar við fórum saman í menntaskólann. Það koma upp í hugann margar góðar minningar af öllu því sem við brölluðum saman. Ég er þakklátur fyrir þær stundir og mun alltaf minnast þeirra. Guð blessi þig, Júlli minn og veiti þér frið. Ég sendi konu hans og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi guð gefa þeim huggun og styrk á þessari erfiðu stundu. Angantýr Sigurðsson. Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund, en lofaðu engan dag fyrir sólarlags stund. Svo ðrstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðizt getur lánið frá morgni til kvelds. Hve sæl, ó hve sæl er hver leikandi lund, og lukkan hún er eilíf, þótt hverfi um stund. (Matth. Jochumsson.) Þegar ég minnist Júlíusar mágs míns kemur fyrst upp í hugann hversu stutt var alltaf í kímni og gott skap. Júlíus var mjög eljusamur og duglegur ásamt því að vera mjög kappsamur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var mikill áhugamaður um skot og fiskveiðar ásamt skák sem hann hvatti syni sína mjög í. Skákáhugann hafði hann frá föður sínum en það kom fyrir að þrír ættliðir tóku þátt í sama skákmóti þ.e. Guðmundur, Júlíus og Þórir. Júlíus notaði hvert tækifæri sern gafst til veiða. Á sumrin átti sil- ungs- og laxveiði hug hans og á haustin og veturna var farið á gæsa- og ijúpnaveiðar. Júlíus fór ungur í sveit á sumrin í Húnavatnssýslu þar sem hann kynntist fólki sem hann hélt tengsl við alla tíð síðan. Þeirra á meðal voru Jóhannes og Auðbjörg á Illuga- stöðum og börn þeirra. Mestum vin- skap hélt hann alla tíð við Adda son þeirra hjóna, sem reyndist honum traustur vinur. Fór ég ásamt þeim og Ársæli mági mínum flest haust í rjúpnaveiðar og voru það yfirleitt 2-3ja daga ferðir þar sem veitt var, teflt og spilað. Júlíus var í þess- um ferðum ávallt hrókur alls fagn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.