Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 39
aðar sem endranær og naut greini-
lega útiverunnar og landsvæðis þess
sem farið var um.
Júlíus var mikill fjölskyldumaður
og besti vinur drengjanna sinna.
Hvatti þá til dáða í íþróttum og tók
þátt í flestu sem þeir tóku sér fyrir
hendur. Voru þau Helga mjög sam-
hent í því að skapa börnum sínum
gott heimili.
Júlíus reyndist foreldrum sínum
góður sonur og systkinum góður
vinur og félagi. Ohætt er að fullyrða
að stórt skarð sé höggvið í þann
samhenta hóp nú.
Alltaf var það tilhlökkun hjá
yngstu meðlimum fjölskyldunnar að
fá „Júlla frænda" í heimsókn. Enda
gátu þau stólað á að fá þá væna
„flugferð", verða tekin í kleinu eða
annan galsa. Júlíus var einstaklega
greiðvikinn og hjálpsamur og oft
áttaði maður sig ekki á hvernig
hann komst yfir alla þá hluti sem
hann sinnti og það af samviskusemi
því hún var honum í blóð borin.
Eftir stendur minning um góðan
dreng.
Ég votta Fríðu, Helgu og börnum
mína innilegustu samúð.
Jón H. Gestsson.
Það er aldrei auðvelt að kveðja
einhvern sem manni þykir vænt um.
Sérstaklega þegar um hinstu kveðju
er að ræða. Fram í hugann streyma
ótal minningabrot, fyrst á ruglings-
legan hátt, síðan taka minningarnar
á sig heilsteyptari mynd. Kynni okk-
ar Júlla hófust fyrir rúmum þrem
áratugum er hann kom í sveit til
föðurbróður míns, Bjössa, og Val-
gerðar á Harastöðum. Hjá þeim var
hann á sumrin, meðan Bjössi lifði,
eftir það var hann í sveit hjá foreldr-
um mínum á Syðri-Þverá í mörg ár.
Á þessum árum náðist góð og sterk
vinátta milli okkar sem hélst alla
tíð. Hann var veiðifélagi minn í
mörg ár, fastur liður í tilveru okkar
var að fara til ijúpna á haustin. Oft
nutum við þess að labba bara um
fjallið og njóta útsýnisins. Þetta
haust verður frábrugðið öllum öðr-
um haustum sem og eftirleiðis. Á
þessum ferðum okkar norður var
oft teflt heilu og hálfu næturnar,
eða bara setið og spjallað um lífið
og tilveruna.
Ég fann hve hann unni sveitinni,
hvort heldur við vorum að veiða í
vatninu, gilinu eða að gróðursetja
tré. Þetta kom vel fram í því að
hann vildi kynna sveitina fyrir strák-
unum sínum, og til þess notaði hann
hvert tækifæri sem gafst. Hann lét
mann alltaf fínna fyrir því að honum
þætti vænt um mann, góðlátleg
stríðni hans er eftirminnileg sem
og hjálpsemi.
Hann var mikill fjölskyldumaður
og hjá honum var fjölskyldan í fyrir-
rúmi. Ég kveð þig, kæri vinur, með
söknuði og þakklæti fyrir allar sam-
verustundirnar. Ég sendi Helgu,
Þóri, Magnúsi, Maríu Sofflu og öðr-
um aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur, megi Guð veita ykkur
styrk í sorg ykkar.
Árni.
í dag er komið að kveðjustund.
Fallinn er frá góður drengur, Júlíus
Guðmundsson. Orð fá ekki lýst
missinum, sorginni og söknuðinum
hjá þeim sem honum kynntust. Við
horfum til baka og minnumst með
þakklæti og gleði einlægrar vináttu
hans og góðvildar, léttleika, húmors
og glettni. Júlíus var einstakur
maður, einstakur vinur og félagi,
einstakur fjölskyldumaður, einstak-
ur pabbi. Blessuð sé minning hans.
Fjölskyldu hans og vinum vottum
við okkar dýpstu samúð og biðjum
góðan Guð að veita huggun og
styrk.
Hallgrímur, Marion og synir.
Júlíus Guðmundsson lögfræðing-
ur er látinn. Þegar okkur barst sú
fregn að hann væri fallinn frá vorum
við harmi slegin því með andláti
hans er genginn góður vinnufélagi
og kær vinur.
Júlli var ákaflega farsæll í starfí
sínu sem lögmaður í lögfræðideild
Búnaðarbanka íslands. Hann var
vinsæll meðal samstarfsmanna og
öll þau vandasömu verkefni sem
honum voru falin leysti hann af
mikilli kunnáttu, vandvirkni og ná-
kvæmni sem einkenna einungis
vinnubrögð góðs lögmanns. Mikill
tölvuáhugi Júlla og kunnátta hans
á því sviði kom oft að góðum notum
í starfínu og alltaf var hann tilbúinn
til þess að leiðbeina okkur og hjálpa
þegar kunnáttu okkar og þekkingu
þraut. Júlli hafði mikla þörf fyrir
að gefa öðrum og gleðja og þau eru
ófá skiptin sem hann birtist okkur
öllum að óvörum með kökur og aðr-
ar kræsingar og kallaði - það er
veisla. Þessar litlu veislur hans Júlla
lyftu okkur upp úr gráum hvers-
dagsleikanum og settu skemmtileg-
an blæ á líðandi stund.
Ferðalög og útivist skipuðu stór-
an sess í lífí Júlla og í eðli sínu var
hann mikið náttúrubam. Hann naut
þess að ganga til veiða á hún-
vetnsku heiðunum sem hann þekkti
vel frá bamæsku og ekki síður hafði
hann unun af því að renna fyrir físk
í silfurtærri á. Margar skemmtilegar
veiðisögumar höfum við fengið að
heyra hjá honum eftir slíkar ferðir,
nú síðast þegar þeir feðgarnir og
vinirnir Júlli og Þórir fóru saman
norður fyrir skemmstu.
Júlli var vinsæll maður og vina-
margur og þau vom margvísleg
verkefnin sem hann tók að sér utan
vinnu. Hann stundaði erfítt og tíma-
frekt rekstrar- og viðskiptanám í
Endurmenntunardeild Háskóla ís-
lands en áhugamálin vom fleiri.
Hann hafði mikinn áhuga á skák
og var um tíma formaður Taflfélags
Reykjavíkur, einnig tók hann virkan
þátt í störfum íþróttafélagsins Vík-
ings. Júlli var mikill fjölskyldumaður
og einstaklega góður faðir barnanna
sinna. Hann sagði okkur stoltur frá
því þegar drengirnir hans, Þórir og
Magnús, stigu sín fyrstu spor á
skáksviðinu og handboltavellinum
og síðar fengum við að heyra hvern-
ig hann fylgdi þeim eftir í leik og
starfí, ávallt reiðubúinn að kenna
þeim og leiðbeina eins og hann best
kunni. Litla ljósið hans María Soffía
kom í heiminn fyrir rúmum tveimur
árum og skipaði hún einnig stóran
sess í hjarta hans.
Að leiðarlokum viljum við þakka
fyrir að hafa fengið að kynnast
Júlla, þessum góða dreng sem við
nú kveðjum með miklum trega og
sorg í hjarta. Elsku Helga, Þórir,
Magnús og María Soffía. Mikill er
missir ykkar. Megi góður guð al-
máttugur vaka yfir ykkur, styðja
og styrlq'a á þessum erfiðu tímum.
Drottinn blessi minningu Júlíusar
Guðmundssonar.
Sofðu nú rðtt, svefninn geymi
sætijóða kinn við sinn líknandi barm.
Senn kemur nótt, sætt þig dreymi
sólfógur lönd, laus við söknuð og harm.
(Tegnér/Guðmundur Ómar Óskarsson.)
Samstarfsfólk í lögfræðideild
Búnaðarbanka íslands.
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni
að eigi geti syrt
eins sviplega og nú
og aldrei er svo svart
yfír sorgarranni
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú.
(Matthías Jochumsson.)
Okkur langar til þess að minnast
Júlíusar Guðmundssonar í fáum orð-
um. Við höfðum lengi verið kunn-
ingjar, allt frá því er Júlli og Helga
kynntust á menntaskólaárunum og
fundum okkar bar saman við ýmsar
aðstæður og tilefni. Við minnumst
Helgu og Júlla sem ungra og stoltra
foreldra með frumburð sinn Þóri í
litlu íbúðinni á Melunum, minnumst
þeirra á brúðkaupsdaginn í faðmi
fjölskyldu og vina, munum eftir
gleði þeirra þegar þau eignuðust
hann Magnús sinn, og svo minn-
umst við þeirra þar sem þau voru
að hasla sér völl hvort á sínu starfs-
sviði norður á Húsavík.
Allur var þessi kunningsskapur
okkur mikils virði og ekki minnkaði
það samkenndina að aðstæður okk-
ar voru að mörgu leyti svipaðar.
Við stóðum öll í því að reyna að
sameina fjölskyldulíf og kreíjandi
menntun eða störf, og það stappaði
í okkur stálinu að verða vitni að því
hvað Helgu og Júlla gekk þetta
vel. Líf okkar kölluðust enn frekar
á fyrir tveimur árum, þegar lítil
stúlka bættist við hvora fjölskyldu
á sama sumrinu, en þá eignuðust
þau hana Maríu Soffíu sína.
Á síðasta ári vorum við svo hepp-
in að kynnast Júlla enn nánar í eftir-
minnilegri vorferð til Amsterdam.
Þar komu vel í ljós miklir mannkost-
ir hans, hvað hann var góður og
skemmtilegur félagi, frábær húmo-
risti og einstaklega góður og natinn
pabbi. Júlli stendur okkur enn lif-
andi fyrir hugskotssjónum á rölti
okkar um hina yndislegu borg i
vorblíðunni, sólin skin og hann ýtir
kerrunni hennar Maríu litlu áfram
eftir steinlögðum stéttunum með
gamanyrði á vör og Helgu sér við
hlið. Eftir þessa velheppnuðu ferð
lágu leiðir okkar oftar saman og
alltaf var jafngaman að hitta Helgu
og Júlla, hvort sem það var í sundi
eða í gagnkvæmum heimboðum.
Það var líka gaman að fylgjast með
því hvað þau voru áhugasöm og
samtaka í því að búa fjölsyldunni
nýtt og fallegt heimili í Fossvogsd-
alnum.
Elsku Helga, Þórir, Magnús og
María litla, við vitum að orð mega
sín lítils í ykkar miklu sorg, en við
vottum ykkur dýpstu samúð okkar.
Minningin lifír um góðan mann,
föður og félaga.
Inga og Sveinn.
Þau sorgartíðindi hafa borist að
einn af félögum okkar Júlíus Guð-
mundsson sé látinn. Það er erfitt
að heyra og skilja slíka sorgarfregn
og erum við öll harmi slegin.
Kynni okkar urðu skemmri en við
áttum von á og hefðum óskað. Skarð
er komið í hópinn sem höf rekstrar-
og viðskiptanám við Endurmennt-
unarstofnun Háskóla íslands í árs-
byijun. Í fyrstu var hópurinn sund-
urleitur en þegar við hittumst á ný
eftir sumarhlé og hófum vinnu við
hópverkefni, kynntumst við betur. í
þeirri vinnu duldist engum mikil
reynsla og hæfni hans til að fást
við námsverkefnin. Júlíus var sér-
staklega viðmótsgóður og sam-
starfsfús. Góður félagi og féll vel í
hópinn. Hann hafði skoðanir á
mönnum og málefnum og kryddaði
tímana með innskotum sínum. Við,
samnemendur hans, sjáum á eftir
góðum dreng sem við söknum.
Fjölskyldu Júlíusar vottum við
einlæga samúð okkar.
Hópur 515.
Fréttin um lát Júlíusar Guð-
mundssonar kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Ég kynntist Júlíusi
þegar ég starfaði hálft árið 1996 í
lögfræðideild Búnaðarbanka ís-
lands, en sú vist tengdist að hluta
námi mínu við Háskóla íslands.
Naut ég þar öruggrar tilsagnar Júl-
íusar sem leiddi mig í allan sann-
leika um hinar ýmsu og ólíku hliðar
lögfræðistarfanna, og þá ekki síst
þær, sem ekki verða af bókum lærð-
ar, en skipta e.t.v. ekki síður máli.
Var það ómetanlegt fyrir mig, fá-
fróðan nemandann, að geta sótt
holl ráð til Júlla, sem aldrei taldi
eftir sér tíma og fyrirhöfn þrátt
fyrir mikið annríki á stundum. Nú
er mér fyrst og fremst þakklæti í
huga fyrir vinskapinn og það traust
sem hann sýndi mér á þessum tíma.
Á yfírstandandi ári hitti ég Júlla
einstaka sinnum á skákmótum, en
hann var mikill skákáhugamaður
eins og svo berlega kom fram í síð-
asta samtalinu sem við áttum sam-
an.
Takk fyrir ánægjuleg og lær-
dómsrík kynni, Júlli, sem því miður
urðu alltof stutt.
Börnum Júlíusar, eiginkonu og
öðrum þeim, sem eiga um sárt að
binda, votta ég mína innilegustu
samúð.
Sverrir Örn Björnsson.
0 Fleiri minningargreinar um
Júlíus Guðmundsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VIKTOR ÞORVALDSSON
fyrrv. vélgæslumaður
á Vífilsstöðum,
Smyrlahrauni 12,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, mánu-
daginn 20. október síðastliðinn.
Guðrún Ingvarsdóttir,
Ingvar Viktorsson, Birna Blomsterberg,
Guðmunda Viktorsdóttir,
Ingunn Viktorsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Matthías Viktorsson, Inga Andreasen,
Þorvaldur Jón Viktorsson, Magnhildur Gísladóttir,
Gunnar Viktorsson, Harpa Hrönn Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar,
MÁLFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
áður Meistaravöllum 25,
iést þriðjudaginn 21. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Blöndal,
Ólafur Ólafsson,
Jónfna Ólafsdóttir,
Þórir Örn Ólafsson,
Jóhannes Þorgeirsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, systir og mágkona,
GUÐFINNA KAREN BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Hrauntungu 4,
Hafnarfirði,
sem lést aðfaranótt miðvikudagsins 15. októ-
ber verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju á
morgun.fimmtudaginn 23. október, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Heimahlynningu Krabba-
meinsfélagsins.
Grétar K. Ingimundarson,
Sigurður Ingi Grétarsson,
Arnar Grétarsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir,
Brynjar Grétarsson,
Brynjólfur Þórðarson,
Ólafía Birna Brynjólfsdóttir,
Erna Brynjólfsdóttir, Markús Sigurðsson,
Þórður Brynjólfsson, Elín Inga Ólafsdóttir,
Elfa Björk Brynjólfsdóttir, Kristján Norðdahl,
Heiðveig Erla Brynjólfsdóttir, Ævar Guðjónsson.
+
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
FRIÐJÓN SIGURÐSSON
fyrrv. skrifstofustjóri Alþingis,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun,
fimmtudaginn 23. október, og hefst athöfnin
kl. 13.30.
Áslaug Siggeirsdóttir,
Kolfinna Gunnarsdóttir,
Sigurður H. Friðjónsson,
Jón G. Friðjónsson, Herdis Svavarsdóttir,
Ingólfur Friðjónsson, Sigrún Benediktsdóttir,
Friðjón Örn Friðjónsson, Margrét Sigurðardóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
INGVELDAR ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR,
Grund,
Hringbraut 50.
Gfsli Guðmundsson, Hulda Ragnarsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Klemenz Jónsson,
Jóhann Guðmundsson, Laufey Hrefna Einarsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.