Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 40

Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI FRIÐÞJÓFSSON + Árni Friðþjófs- son fæddist á Suðureyri við Súg- andafjörð 5. júní 1940. Hann lést í Hafnarfirði 15. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Finney Rakel Arnadóttir, fædd 8. jan. 1919, og Frið- þjófur Ólafsson, f. 11. júlí 1917, d. 10. júlí 1985. Árni ólst upp hjá móður sinni og fósturföður, Guðna Ólafssyni, f. 1. apríl 1916. Systkini Árna eru: María Friðþjófsdóttir, f. 18. sept. 1939, búsett á Selfossi. Sigur- geir Hilmar Friðþjófsson, f. 27. mars 1946, búsettur á Þingborg í Flóa. Halldór Guðnason, f. 18. júlí 1943, búsettur í Hafnar- firði. Ingveldur Jóna Guðna- dóttir, f. 1. sept. 1946, búsett í Hafnarfirði. Guðfinna Kolbrún Eins og blóm án blaða söngur án raddar skyggir dökkur fugl heiðríkjuna vorið sem kom í gær, er aftur orðið að vetri (Magnús Jóhannsson frá Hafnamesi.) Eg er óskin, aleiga hins snauða, bænin heilaga, hjartarauða Guðnadóttir, f. 26. nóv. 1950, búsett við Laxárvirkjun. Matthildur Guðna- dóttir, f. 14. sept. 1954, búsett í Hafn- arfirði. Árni kvæntist Friðbjörgu Ingi- marsdóttur, f. 6. maí 1944, hinn 29. des. 1963. Börn þeirra eru: Ragnar Aron, f. 11. maí 1970, búsettur á Isafirði. Unnusta hans er María Lár- usdóttir frá Bolungarvík. Finn- ey Rakel, f. 24. janúar 1983. Árni og Friðbjörg bjuggu lengstan sinn búskap á Suður- eyri en fluttu til Hafnarfjarðar 1990. Árni starfaði sem bif- reiðastjóri lengst af og nú síð- ast hjá Rafveitu Hafnarfjarðar. Útför Áma fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. umvafin fegurð og ást í lífi og dauða. (Gestur Guðfinnsson.) Takk fyrir allar stundirnar sem þú gafst mér. Þú verður alltaf hjá mér. Ég sakna þín, elsku pabbi. Þín ástkæra dóttir, Finney Rakel. Mig langar að þakka Árna frænda mínum og vini okkar Hilmars í gegn- + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN HÁLFDÁN ÞORBERGSSON, Garðsenda 7, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 24. október kl. 13.30. Sigríður Ebenesersdóttir, Randver Jónsson, Valgeir Ómar Jónsson, Ebeneser Jónsson, Guðmundur Páll Jónsson, Elísabet María Jónsdóttir, Guðlaug Traustadóttir, Lára Viðarsdóttir, Berglind Benediktsdóttir, Jens Níelsson og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SÍMONAR KRISTJÁNSSONAR, Túngötu 23, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til félagsins AKÓGES og kórs Landakirkju, Anna Tómasdóttir, Helga Símonardóttir, Halldór Guðbjörnsson, Líney Símonardóttir, Friðþjófur Árnason, Jóhann Halldórsson, Símon Halldórsson, Anna Halldórsdóttir. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KARLS LÚÐVÍKSSONAR fyrrv. apótekara. Sérstakar þakkir til starfsfóiks hjarta- og öldrunardeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur i Fossvogi. Anna Þóra Karlsdóttir, Ingibjörg Karlsdóttir Sigurður Karlsson, Guðrún Hlín Þórarinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. MINIMINGAR um árin góða vináttu og hlýju sem ávallt var í okkar samskiptum. Þeg- ar við hittum Árna síðast fyrir al- gjöra tilviljun í Hafnarfirði í síðasta mánuði, hvarflaði ekki að okkur að þetta væri kveðjustund. Við spjölluð- um saman góða stund og Árni var ræðinn eins og alltaf og hafði feng- ið von um að líkur væru að aukast á að eitthvað mætti gera til að lækna þann sjúkdóm sem hann bjó við síð- ustu ár og slökkti svo á lífi hans fyrirvaralaust. Ég minnist þess að Árni hafði einhverntíma á orði að það lægi í ætt okkar að falla frá fyrirvaralaust og eflaust væri það ekki verri dauðdag' en hver annar. Það eru orð að sönnu, en fæstir eru tilbúnir þegar kallið kemur og það er erfiðara fyrir ástvini að bera miss- inn þegar menn deyja fyrir aldur fram. Árni hefur verið sá gæfumaður að eiga góða íjölskyldu og það var áberandi ást og umhyggja á heimil- inu sem fór ekki fram hjá þeim er þangað komu. Það var aðdáunarvert að honum tókst að sigrast á erfið- leikum sem mættu honum á lífsleið- inni og snúa vörn í sókn. Árni bjó og starfaði á Suðureyri mest allt sitt líf en flutti til Hafnar- fjarðar í kjölfar veikinda sinna. Hann vann í mörg ár hjá Suðureyrar- hreppi sem tækjamaður við snjó- mokstur og fleira og einnig á snjó- bílnum sem mikið þurfti að treysta á yfir vetrartímann þegar engin jarð- göng voru til staðar. Árni var laginn bílstjóri og traustur og oft reyndist Botnsheiðin erfið yfirferðar í snjó- komu og byl en hann þekkti aðstæð- ur vel og þær voru ófáar ferðirnar sem hann fór yfir heiðina á þessum árum. Það var skemmtilegt að spjalla við Árna, hann kunni frá mörgu að segja og hafði frásagnargáfu sem er ekki öllum gefin, atburðir og per- sónur urðu Ijóslifandi þegar hann sagði frá og hann var glettinn og gamansamur en gat líka verið á al- varlegu nótunum og rætt þjóðmálin hveiju sinni. Árni hafði sterkar taugar til Súg- andafjarðar þar sem ræturnar lágu og kom oft vestur eftir að hann flutti suður enda sonur hans, vinir og vandamenn búsettir fyrir vestan. Með þessum fáu orðum viljum við Hilmar kveðja góðan vin og sam- ferðamann og biðja Guð að styrkja ástvini hans, elsku Fribbu, Finney Rakel og Ragnar Aron, foreldra hans og systkini. Lilja Rafney og Hilmar Oddur, Suðureyri, Súgandafirði. Þegar mér var sagt andlát Árna Friðþjófssonar frá Súgandafirði, brá mér mikið. Ég vissi reyndar að hann hafði lengi búið við hjartagalla, en mér var ekki kunnugt um að honum hefði versnað svo upp á síðkastið, að dauðann gæti borið að með jafns- nöggum hætti og varð. Reyndar fór hann í vinnuna þennan morgun eins og venjulega, en maðurinn með Ijá- inn virðir engin landamæri, spyr aldrei um stað eða stund og hlífir engum. Ég hef þekkt Árna alla tíð og vorum við lengi nánir vinir og sam- ferðarmenn, stunduðum báðir lenst af bifreiðaakstur, vorum með vöru- bíla, rútur, leigubíla og olíubíla. Margs er að minnast frá þessum árum, sem voru oft viðburðarík, og í mörgum ævintýrum lentum við saman, bæði í vetrarferðum á heið- um uppi við margskonar erfiðleika og basl í snjó og illviðrum, og eins ylja minningarnar frá björtum sum- ardögum. Árni var mikið snyrtimenni, skap- góður og ekki fyrir að trana sér fram. Hann var hjálpsamur með af- brigðum og alltaf reiðubúinn til að- stoðar ef á þurfti að halda og taldi aldrei eftir sér að rétta hjálparhönd. Hann var gleðigjafi og oft hrókur alls fagnaðar á mannfundum ung- dómsáranna, en var orðinn hógvær- ari og alvörugefnari síðasta áratug- inn eða svo. Þegar Árni hætti akstri gerðist hann gröfustjóri hjá Suðureyrar- hreppi og gegndi því starfí þar til hann fluttist til Hafnarfjarðar með fjölskyldu sína árið 1990. Sem gröfumaður naut sín vel lagni hans og mikil snyrtimennska til frágangs á jarðraski og þess hátt- ar, sem óhjákvæmilega hlýst af notkun stórvirkra vinnuvéla. Sem starfsmaður sveitarfélagsins þurfti hann að annast snjómokstur af göt- um þorpsins en það var ekki alltaf þakklátt starf í snjóakistu eins og Suðureyri, því allir vilja að fyrst verði mokað til sín. í þessu starfi sýndi hann oft ótrúlega lagni, þolin- mæði og fyrirhyggju. Þá var hann í fjölda ára snjóbílsstjóri hreppsins og sá um póst og farþegaflutninga til og frá ísafirði, sótti lækna og margskonar varning. Margar þessar ferðir yfír Botnsheiði voru mjög erf- iðar og oft sannkallaðar þrekraunir, því ekki var alltaf spurt um veðurfar og oft var farið og komið í n-stór- hríð og nánast engu skyggni. Allar þessar ferðir fór Árni af æðruleysi og þeirri hógværð sem honum var svo eiginleg. Eftir að hann fluttist suður vann hann hjá Rafveitu Hafnarfjarðar á gröfu o.fl. Núna þegar ég kveð þennan vin minn við leiðarlok á þessari jörð, sækja minningarnar á hugann og þar munu þær varðveitast. En svona er lífið, elfur tímans rennur óstöðv- andi fram og ber okkur öll að feigða- rósi hvert á sínum vitjunartíma. Gleðin er léttfleyg og lánið er valt. Lífið er spuming sem enginn má svara. Vinirnir koma og kynnast og fara, kvaðning til brottfarar lífið er allt. (Fr.G) Elsku Fribba mín, við hjónin biðj- um góðan Guð að styrkja þig, börn- in ykkar, foreldra hans og aðra að- standendur í sorginni. Blessuð sé minning góðs drengs. Eðvarð Sturluson. + PÁLL FR. EYJÓLFSSON lést á heimili sínu, Skeggjagötu 21, mánu- daginn 20. október. Jarðarförin auglýst síðar. Guðbjörg Jósefsdóttir og aðstandendur. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, GUNNARS SVEINBJARNAR GRÍMSSONAR frá Jökulsá á Flateyjardal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík. Systkini hins látna. „Það tekur í, þó taugar séu sterk- ar, að tefla oft við hel.“ Er mér barst til eyrna að ferming- arbróðir minn og frændi, Árni Frið- þjófsson, væri allur, sótti margt á hug minn. Úr fermingarhóp ellefu barna er fæddust 1940 eru þrír á brautu kvaddir. Tímans hjól snýst hratt. Súgandafjörður minninganna er ekki sá sami og við blasir í dag. Hann geymir aðra íbúa. Lífsbaráttan var hörð en samheldni íbúanna mik- il og þó að kastaðist í kekki var talið jafn sjálfsagt að sættast. Annað hefði verið talið veikleiki. Árni var hægur maður í allri framgöngu. Hann var prúður í háttum og manna- sættir. Slíkir menn veljast gjarna til þjónustustarfa. Við tókum báðir bíl- próf sama daginn á sama bílinn. Guðni Ólafsson, föðurbróðir okkar beggja, hafði kennt okkur báðum. Árni komst klakklaust í gegnum prófið en mér leist ekki á blikuna þegar prófdómarinn sagði við mig: „Þú hefur farið að keyra áður en þú fórst að læra.“ Ég svaraði því til að ég hefði farið að læra um leið og ég fór að keyra. Lengri varð nú umræðan ekki og ég fékk prófið. Það átti fyrir Árna að liggja að stunda akstur sem sitt aðalstarf. Honum var það auðvelt og hvort heldur sem það var vörubíll, rúta, leigubíll eða snjóbíll, léku þessi tæki í höndunum á honum. Einnig vann hann á gröfu m.a. við snjómokstur. Læknisleysi hefur löngum verið vandamál Súgfirðinga. Ömmubróðir okkar Árna, Veturliði H. Guðnason, var á sinni tíð oftar til kallaður að sækja lækni til Fiateyrar eða fylgja mönnum yfir Klofningsheiði þegar veður voru válynd. Veturliði var rat- viss maður með afbrigðum, mikið þrekmenni andlega og líkamlega. Meðan snjóbíll var aðalsamgöngu- tæki Súgfirðinga að vetrarlagi, þurfti oft að flytja fólk með bílnum sem ófært var um að ganga til byggða ef bíllinn bilaði. Árni tók þessum bíl lengur en nokkur annar. Oft var erfitt að rata, sökum dimm- viðris og ábyrgðin stór að skila far- þegum á leiðarenda. í blíðviðri úti á Suðureyri var ekki alltaf skilningur fyrir því að hríð gæti verið á heið- inni þó farþegar hefðu oftast búið sig vel. Á tímabili var aðeins einn snjóbíll til í firðinum og því ekki aðstoðar að vænta ef hann bilaði. Ég veit að þessar ferðir reyndu mjög á frænda minn þegar frá leið og mistök annarra við ákvörðunar- töku urðu til þess að hann fór einni ferð of oft yfir heiðina. Hann sagði mér frá þeirri ferð löngu seinna og varð aldrei samur eftir það. Þess sáust þó engin merki hið ytra. Þau ár sem ég var mjólkurpóstur frá sjö ára aldri til þrettán ára ald- urs að sumarlagi kom ég á heimili Árna annan hvern dag. Það er því ekki að undra að mér finnist eins og eitthvað af sjálfum mér sé farið. Þegar Árni kenndi fyrst óþæginda fyrir hjartanu fannst manni það ekki í takt við veruleikann, að jafnungur maður væri í raunverulegri hættu. Hann bjó allmörg ár við þennan sjúk- dóm, en stundaði þó aljtaf fulla vinnu. Nú er hann allur. Ég veit að hann er kominn til nýrra heimkynna. Friðbjörg mín, ég veit að góður Guð styrkir þig og börnin ykkar. Það er betra að hafa átt og þurfa að missa, en að hafa ekkert átt. Finney mín og Guðni, fátt er að segja. Góður drengur hefur kvatt. Það er lífsins gangur þó kveðju- stundin sé sár. Hins góða er vert að minnast. Það sigrar um síðir allan söknuð. Ólafur Þ. Þórðarson. Sérfræðingar í I) I ó iii as k rev t i n « u m við öil tækifæri 1 "BTfe blómaverkstæði I | ISlNNA I Skúlavörðustíg 12, á hurni Bergstaðastrætis, sími 551 9090

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.