Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 46

Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Suoru?.! £q ^JituAtílNO T f ÓUum- bxnum/ ! KonoiSykhtr sctsnanr um> þe-ttix. Pyrir fxUfí munö !Bo hef (tert þx<5 sem> ,■ 'eo orJ: / . ^ -C ' Ferdinand Ég lít ekki svo illa út þrátt fyrir Það hefur alltaf verið metnaður . . . að líta ekki svo illa út þrátt allt! minn ... fyrir allt... BREF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Kirkjustarf á Hvammstanga, Vatns nesi og í Vesturhópi Frá sr. Kristjáni Björnssyni: VETRARSTARF Hvammstanga- kirkju er komið á skrið og hefst einn þátturinn af öðrum þessar vikurnar. Áhersla verður lögð á barna- og æskulýðsstarf. Einnig verður sú ný- breytni að almenn bæna- og kyrrðar- stund verður reglulega í nýrri kap- ellu Sjúkrahúss Hvammstanga. Barnaguðsþjónustur eru hvern sunnudag í Hvammstangakirkju kl. 11. I vetur verður í fyrsta sinn sér- stök samvera fyrir 10-12 ára börn í kirkjunni þriðja hvern föstudag eftir hádegi. Barnafræðararnir eru Laura Ann-Howser og Guðrún Helga Bjarnadóttir, auk organistans og Lilju Jónsdóttur. Æskulýðshópur kirkjunnar er að undirbúa ferð á landsmót æskulýðsfélaga sem verð- ur í Vatnaskógi 17.-19. október. Hópurinn kemur því saman reglu- lega til að æfa söngva, ræða málin og byggja sig upp í trúnni. Hópstjór- ar eru þær Erna Sif Ólafsdóttir og Inga Rut Guðmannsdóttir. Æsku- lýðsfélagið er þriggja ára um þessar mundir. Fermingarfræðslan er viku- lega á dagskrá og verður farið á fermingarbarnamót í byrjun nóvem- ber að Löngumýri í Skagafirði. í athugun er að stofna leshóp í prestakallinu og hefur verið talað um að lesa bókina Ljós í heimi eftir dr. Einar Sigurbjörnsson. Áhuga- samir eru hvattir til að hafa sam- band við prestinn og taka þátt í að móta þennan þátt. Bæna- og kyrrðarstund er annan hvern fimmtudag kl. 17:30 í kapellu Sjúkrahússins á Hvammstanga. Hún er öllum opin og getur fólk komið fyrirbænaefnum til prestsins sím- leiðis eða á miða fyrir stundina. Kapellan er ný og var vígð í júlí sl. af sr. Bolla Gústavssyni, Hólabisk- upi. Innviðir hennar og búnaður er allt gjöf frá Kvennabandi Vestur- Húnvetninga. Samtök um sorgarviðbrögð og missi í V-Hún. hafa haldið fundi undanfarin ár með mismikilli reglu. Fyrsti fundur vetrarins verður al- mennur umræðufundur og samvera undir handleiðslu prestsins. Kirkjukór Hvammstanga er að hefja reglulegar æfíngar vetrarins. Formaður kórsins er Bjarni Þór Ein- arsson. Æfingar eru haldnar á mánudagskvöldum undir stjórn Helga Sæmundar Ólafssonar, org- anista Hvammstangakirkju. Hann þjálfar einnig barnakór grunnskól- ans ásamt Guðrúnu Jónsdóttur. Messur með altarisgöngu, fjöl- skylduguðsþjónustur eða aðrar al- mennar guðsþjónustur eru annan hvern sunnudag í Hvammstanga- kirkju yfir vetrarmánuðina og um hátíðir. Formaður sóknarinnar er Karl Sigurgeirsson. Aðrar sóknarkirkjur í prestakall- inu eru á Tjörn, Vesturhópshólum og að Breiðabólsstað í Vesturhópi. Starfsemi þessara sókna er sameig- inleg að nokkru, m.a. með sameig- inlegu kórstarfi Tjarnar- og Hóla- sókna og sameiginlegu aðventu- kvöldi. Næstu messur verða að Tjörn sunnudaginn 26. október og að Breiðabólsstað 16. nóvember. Barnastarfið er einnig sameiginlegt og verða barnaguðsþjónustur í Vest- urhópsskóla eins og undanfarna vet- ur. Starfsfólk kirkjunnar í Breiða- bólsstaðarprestakaili býður alla hjartanlega velkomna til þátttöku í því starfi, sem vekur áhuga eða mætir þörf hveiju sinni. Öllum ábendingum er líka vel tekið um það sem bæta má og auka í þjónustunni við Drottin, svo að kirkjustarfið verði honum enn frekar til lofs og dýrðar. KRISTJÁN BJÖRNSSON, Hvammstanga. Opið bréf til formanns Starfsmannaf élags Reykjavíkurborgar Frá Karli Jöhanni Ormssyni I DV hinn 10. september sl. seg- ir Sjöfn Ingólfsdóttir: „Þegar konur úr Framsókn ráða sig til Reykjavík- urborgar fylgir því fastráðning og ákveðinn réttindapakki sem líta má á sem kjarabót." Ég spyr: Hvers virði er fastráðning hjá Reykjavík- urborg um þessar mundir - þegar horft er til nýlegra uppsagna vagn- stjóra hjá SVR? í áratugi hefur opinberum starfs- mönnum verið haldið á lúsarlaunum með þeirri röksemd að þeir væru fastráðnir, þ.e. öruggari í starfi en aðrir. Við sem höfum unnið hjá því opinbera í áratugi segjum: Öryggi fastráðningar er lítils virði þegar og ef forstöðumenn beita uppsögn- um með sama hætti og forstjóri SVR. Þetta veit formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkur, Sjöfn Ingólfsdóttir, jafnvel og aðrir. Hún veit líka að félagar í Verkakvenna- félaginu Framsókn og Verka- mannafélaginu Dagsbrún telja sig tapa allt að 30% af launum við færslu til Reykjavíkurborgar. Hvað hefur Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gert til að rétta hlut vagnstjóranna sem sagt var upp? Heldur Sjöfn að hún geti setið á friðarstóli, ef hún lætur sem félag- inu komi uppsagnirnar ekkert við? Stjórn Starfsmannafélagsins þarf að vakna af þyrnirósarsvefni og taka á máli vagnstjóranna og annarra félagsmanna sem brotið er á. Það er ekki verkefni stjórnar- innar að þjóna pólitíkusum R-list- ans. Það er af sú tíð að Reykjavíkur- borg var það sveitarfélagið sem hæstu launin greiddi. Nú mun borg- in vera í sjöunda sæti, hvað laun og skuldir áhrærir. KARL JÓHANN ORMSSON, deildarfulltrúi. Allt efni sem birtist f Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.