Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 47
Börnin og
leikhúsið
Eftir frumsýningu á
| Galdrakarlinum í Oz
j í Borgarleikhúsi
Frá Önnu Snorradóttur:
ÞAÐ VAR til fyrirmyndar hjá Borg-
arleikhúsinu að hefja vetrarstarf
með leikriti fyrir börn jafn giæsi-
legu og Galdrakarlinum í Oz, sem
frumsýnt var sl. sunnudag. Það er
fátt, sem gleður jafn innilega og
- að sjá lítil börn skemmta sér í leik-
húsi, og þegar vel tekst til er það
( nokkuð öruggt að barn, sem kemur
{ glatt og ánægt úr leikhúsi vill fara
aftur í leikhús. Það er með öðrum
orðum ekki sama hvernig leiksýn-
ing fyrir börn er, það er hún sem
ræður framhaldinu, leikhúsið elur
upp leikhúsgesti framtíðarinnar og
um þetta mætti lengi tala, en eitt
er víst, að aldrei er of vel unnið
fyrir börn.
| Það er mikið borið í þessa sýn-
ingu, fallegir búningar, skemmtileg
1 músík, lifandi hundur innan um
I leikara á öllum aldri, sem verða
galdrakerlingar og nornir, töfra-
menn, Smándar, Ozbúar, Vinkar
og draugar og börn eiga auðvelt
með að ferðast upp til regnbogans
eða hvert sem er með góðum leikur-
um, sviðsbúnaði, ljósahönnun og
glæsilegum búningum. Mikill fjöldi
barna og unglinga í skrautlegum
i búningum dansaði og lék forkunnar
vel og litla Dórótea með hundinn í
fanginu var heillandi. Það var einn-
ig mjög til fyrirmyndar, hve vel var
farið með texta, framburður skýr
og framsögn, hvert orð náði til
barnanna bæði í söng og töluðu
máli.
Fjöldi fólks stendur að þessari
sýningu. Höfundur verksins er
Frank Baum, en leikgerðin er byggð
á handriti kvikmyndarinnar eftir
John Kane. Vel man ég þá kvik-
mynd á unglingsárum á Akureyri
og hve hún heillaði okkur, sem þá
vorum að alast upp, og við sungum
með Judy Garland „Somewhere
over the rainbow" daginn út og
inn. Leikkonan varð heimsfræg eft-
ir leik sinn og söng í þessari kvik-
mynd. Karl Ágúst Úlfsson hefir ís-
lenskað textann og eflaust ljóð líka
og nú geta krakkarnir sungið
„Landið rétt fyrir ofan regnbog-
ann,“ o.s.frv. og eiga eflaust eftir
að gera.
Það er of langt að nefna alla, sem
standa að sýningunni en leikstjóri
og danshöfundur heitir Kenn Old-
field, Elín Edda Árnadóttir átti
heiður af stórskemmtilegum bún-
ingum, geysilega góð leikmynd var
eftir Finn Arnar Arnarson, lýsing
eftir Ögmund Þór Jóhannesson og
tónlistarstjórn var í höndum Sigurð-
ar Rúnars Jónssonar. Allt á þetta
fólk stóran hlut í því hve vel sýning-
in tókst. Leikararnir voru alveg
stórskemmtilegir, Sóley Elíasdóttir
lék Dóróteu litlu af prýði og söng
hreint og fallega, Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir lék stórvel tvö hlutverk
Emmu frænku og svo glæsilegu
góðu norðan nornina, sem kom svíf-
andi í blómakörfu ofan frá himnum.
Ungu mennirnir á bænum voru
bráðskemmtilegir, leiknir af Kjart-
ani Guðjónssyni, Birni Inga Hilm-
arssyni og Ellert Ingimundarsyni,
þeir voru einnig í hlutverkum Ljóns-
ins (Kjartan), Tinkarlsins (Björn
Ingi) og Fuglahræðunnar (Ellert)
og gerðu þessum fígúrum feikna
góð skil. Ari Matthíasson var í hlut-
verki Hinriks frænda og var
skemmtilegur. Ein af okkar ágæt-
ustu leikkonum, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, fór með hlutverk
fröken Almíru Gölts og einnig lék
hún vondu vestan nornina og varð
ógleymanleg, held ég, þótt skelfing-
arsvipur sæist á stöku andliti leik-
húsgesta. Theodór Júlíusson fór
einnig með tvö hlutverk, bæði var
hann prófessor Gestur Ljómi með
miklum tilþrifum og sjálfur Galdra-
karlinn í Oz.
Ógleymanleg barnasýning, troð-
fullt hús af prúðbúnum börnum í
fylgd með mömmu og pabba eða
ömmu eða afa og sérstaklega
ánægjuleg stemmning í húsinu,
engin ærsl, en eftirvænting og
gleði. Sýningin er öllum sem að
henni standa til mikils sóma. Til
hamingju, Borgarleikhús.
ANNA SNORRADÓTTIR,
Hofteigi 21, Reykjavík.
Vafasöm við-
skiptasiðfræði
Frá Bjarnfreði Ármannssyni:
NÚ UNDANFARIN misseri hef ég
orðið var við, í stórauknum mæli,
stórhættulega viðskiptasiðfræði
meðal sumra hópbifreiðaeigenda nú
yfir vetrartímann þegar borist er á
banaspjótum um alla þá vinnu sem
í boði er, helst hjá framhaldsskólum,
barnaskólum og leikskólum, svo og
hjá hinum ýmsu félagasamtökum.
Til að skapa sér verkefni bjóða
þessir hópferðaleyfíshafar niður hver
fyrir öðrum, oft niður í hlægilegt
verð, jafnvel langt niður fyrir eðlilegt
kostnaðarverð. Til að standa straum
af þessum tilboðum sínum, kalla þeir
til, oftar en ekki, reynslulitla menn
af götunni svo sem menn sem þiggja
alls kyns bætur og hentar að vinna
svarta vinnu til að skerða ekki bæt-
urnar, svo og vaktavinnumenn héðan
og þaðan. Þessum mönnum eru
greidd lág verktakalaun, rétt á með-
an löppin er á olíugjöfinni og greiða
þeir því hvorki virðisaukaskatt né
launatengd gjöld. Þessir menn eru
settir undir stýri á hópbifreiðum sem
þeir kunna oft lítið sem ekkert á og
þeir eru svo sendir með börnin okkar
eitthvað út í óvissuna.
Manni er því spum, þegar maður
horfir á þennan nánasarsparnað í
mannalaunum, hvernig viðhaldi bif-
reiðanna er háttað og hvort trygg-
ingafélögin hafí ekki eitthvað við
slíka útgerð að athuga?
í mínum huga er ekki alttaf ódýr-
asta tilboðið það „hagstæðasta",
heldur það tilboð sem hefur að geyma
reyndan og góðan bifreiðastjóra og
trausta og góða bifreið.
Ég vil skora á foreldra og forráða-
menn skóla og félagasamtaka að
kynna sér vel áður en lagt er af stað
í ferð hvort viðkomandi ökumaður
sé reyndur fastráðinn ökumaður sem
þekki viðkomandi bifreið til hlítar.
Svo mikið er víst, að mér þykir
vænna um börnin mín en það að ég
sendi þau eitthvað út í óvissuna með
lítið eða óreyndum ökumönnum og
það með siðlausu hópferðafyrirtæki.
BJARNFREÐUR ARMANNSSON,
Þúfubarði 13, Hafnarfirði.
Mikíá úrvðl cif
fallegum rúmfiatnaði
SkóUvöröustlK 21 Simi 5514(150 Reykiavtk
STEIN GRÍMSSTÖÐ í felulitum.
Sjónmengun
Frá Guðbjarti Þorleifssyni:
MIKLAR deilur urðu á liðnu sumri
vegna væntalegs álvers við Grund-
artanga og áhrifa mengunar í Hval-
firði. En það er annars konar meng-
un sem sjaldan er minnst á þ.e.
sjónmengun. Sitt sýnist hveijum
um útlit og litaval á hinum ýmsu
mannvirkjum, að því leyti er sjón-
mengun afstæð. Mig langar að
benda á nokkur atriði sem flestir
ættu að vera sammála um að væru
til bóta.
Þegar ekið er inn Hvalfjörð úr
suðri lítum við Járnblendiverksmiðj-
una handan fjarðarins, þótt verk-
smiðjan sem slík sé lítið augna-
yndi, þá fellur þakrit höfuðskálans
mætavel við fjallatinda Hafnarijalls
og Skarðsheiðar. En það er val litar-
ins á ýmsum mannvirkjum í Guðs
grænni náttúrunni. í flestum tilfell-
um eru staurar, möstur, skúrar,
geymar, pípur, stokkar og leiðslur
málaðar með skærum litum sem
gætu hentað á leikvöllum barna eða
innanstokks í tívolí. Ég minni hér
á Hafnarhúsið og gömlu verbúðirn-
ar í Reykjavík.
í Hvalfjarðarbotni við hvalstöð-
ina er smekkleysan í einstakri út-
gáfu, lýsis- og olíugeymar eru
dreifðir upp um alla hlíðina vestur
af Þyrli. Pípur, skúrar og staurar,
flestar af þessum fornminjum eru
málaðar hvítar fyrir utan ryðið sem
víða er. Lengra vestur með hlíðinni
eru geymar, sem jarðvegi hefur
verið ýtt að og málað með þokkaleg-
um jarðlitum og snyrtilega frá
gengið.
Eflaust verður það síðar talið
náttúruslys af manna völdum þegar
úrrennsli Þingvallavatns var tekið
til virkjunar. Þarna fossaði tært
bergvatnið niður um hrikalegt
klettagljúfur og breiddi úr sér á
lygnunni fyrir neðan, þar stendur
nú stöðvarhús, hvernig á litinn? Nú,
hvítt auðvitað.
Mér var sagt það eitt sinn að
eitrað hafi verið fyrir mývarginn í
þrengslunum, flugan var víst til
ama. Þar með tókst að útrýma sil-
ungi á einu besta veiðisvæði lands-
ins. Það fylgist víst að - engin
fluga, enginn fískur. Nútímafólk
sem nú ekur um svæðið tekur eftir
hvítri kassabyggingu klesstri við
bratta hlíðina hjá Úlfljótsvatni.
Þessa byggingu ætti að mála með
felulitum eins og dulmálað hernað-
armannvirki og ekki síður stífluhús-
ið þar sem Kaldá rennur úr Þing-
vallavatni.
Um allt land eru mannvirki sem
mætti bæði mála með felulitum og
önnur sem mætti fegra með smekk-
legum mildum litum er falla að
umhverfinu. Það virðist vera ótrú-
lega föst regla hjá opinberum aðil-
um að merkja sér áttundu undrin
með hvítri málningu, en þó sjást
þess merki að þessi kækur sé í rén-
un. Sunnan við Elliðaárbrýrnar
nærri gömlu rafstöðinni er mikil og
luraleg ferköntuð bygging sem er
falin með mosalit og hverfur því
þetta hús að mestu.
Ég held að það færi vel á því
að mála staura, möstur og volduga
geyma sem ber við himininn í ljósg-
ráum lit, ef þannig mannvirki ber
einnig við holt og hæðir er sjálfsagt
að skipa litum í samræmi við bygg-
ingarstað og umhverfí.
Það ber að þakka augljósar fram-
farir í umgengni og frágangi við
uýbyggingar hins opinbera, og vil
ég sérstaklega taka fram einstak-
lega fagra hraunhleðslu umhverfis
bókhlöðuna á Melunum, en hvað
finnst mönnum um rauðhettuna á
byggingunni?
GUÐBJARTUR ÞORLEIFSSON,
Lambastekk 10, Reykjavík.
Gínur og herðatré
Vandað, sterkt
og smekklegt
Margar gerðir
- gott verð
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
Kraftmeiri, nú með 1400W mótor.
Fislétt, aðeins 6.5 kg.
Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu.
Og hinn frábæri Nilfisk AirCare1
síunarbúnaður með HEPA H13 síu.
Komdu og skoðaðu nýju
Nilfisk GM-400 ryksugurnar
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Fjölbreytt æskulýðsstart byggt
á traustum grunni kristinnar trúar |
www.kirkjan.fs/KFUM 1
Strákabolir með kraga .... áður 4.990
Strákabolir..............áður 5.640
Flístreflar..............áður 1.540
Úlpur — jakkar...........áður 7.990
Ungbarnabolir............áður 2.860
Ungbarna joggbuxur......áður 2.400
Ameriskar sm/galiabuxur áður 3.600
nú 2.900
nú 2.400
nú 990
nú 4.300
nú 1.800
nú 1.800
nú 2.400