Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 41
FRETTIR
Opinber fyr-
irlestur um
mótun kven-
leikans
ANNADÍS Gréta Rúdólfsdóttir,
félagssálfræðingur, flytur opin-
beran fyrirlestur fimmtudaginn
6. nóvember sem nefnist Mótun
kvenleikans á íslandi. Fyrirlestur-
inn er á vegum Rannsóknastofu
í kvennafræðum og er öllum op-
inn. Hann fer fram í stofu 101 í
Odda og hefst kl. 17.15.
Fyrirlesturinn byggir á dokt-
orsritgerð Önnudísar um mótun
kvenleikans, þar sem skoðað er
hvernig myndir hans hafa breyst
milli kynslóða. Ritgerðir byggist
m.a. á innihaldsgreiningu á 209
minningargreinum sem birtust á
árunum milli 1922 og 1992. Að
auki voru innihaldsgreind viðtöl
við 18 konur á aldrinum 16-88
ára búsettar í Reykjavík og úti á
landi.
Annadís Gréta Rúdólfsdóttir
lauk doktorsprófi í félagssálfræði
frá London School of Economics
and Political Science árið 1997.
Hún er stundakennari í kvenna-
fræðum við Háskóla íslands.
Fundur um
bókmennta-
sögu
Á RANN SÓKNARKVÖLDI Fé-
lags íslenskra fræða miðvikudag-
inn 5. nóvember verður varpað
fram spurningunni Hvað er bók-
menntasaga?
Tveir bókmenntafræðingar,
Gísli Sigurðsson og Matthías Við-
ar Sæmundsson, munu leita svara
við þessari spurningu en þeir
skrifuðu báðir kafla í III. bindi
íslenskrar bókmenntasögu sem
kom út á síðasta ári.
„Líflegar umræður hafa orðið
um eðli og hlutverk bókmennta-
sögu að undanförnu og sýnist sitt
hverjum í því efni. Ekki er að efa
að áhugaverð skoðanaskipti munu
eiga sér stað á rannsóknarkvöld-
inu, enda er öllum frjálst að taka
til máls að lokinni framsögu þeirra
Gísla og Matthíasar," segir í frétt
frá félaginu.
Fundurinn er öllum opinn með-
an húsrúm leyfir og verða veiting-
ar á boðstólum. Rannsóknar-
kvöldið er haldið í Skólabæ við
Suðurgötu og hefst kl. 20.30.
Líkams-
ræktarstöðin
Hress 10 ára
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐIN
Hress heldur upp á tíu ára af-
mæli sitt um þessar mundir. Til
að fagna tímamótunum verður
sérstök afmælisdagskrá fyrir við-
skiptavini Hress til 20. nóvember.
„Allir kennarar á staðnum
munu brydda upp á nýjungum til
skemmtunar og fræðslu í kennsl-
unni. Farið verður í æfingaratleik,
nætureróbik, hjólakeppni og
haldnir fyrirlestrar, föndurkvöld,
happdrætti, uppskriftasam-
keppni, námskeið fyrir kennara
og viðskiptavini og gestakennarar
koma í heimsókn. Dagskránni lýk-
ur svo með afmælisfagnaði,“ seg-
ir í fréttatilkynningu.
Myndakvöld
hjá Útivist
FYRSTA myndakvöld vetrarins
hjá ferðáfélaginu Utivist verður
haldið í Fóstbræðraheimilinu
fimmtudaginn 6. nóvember kl.
20.30.
Sýndar verða myndir út Tré-
kyllisvík og frá Hornströndum.
Umsjón með myndasýningu hafa
Hákon Gunnarsson og Vignir
Jónsson.
Málstofa Véla-
og iðnaðarverk-
fræðiskorar
ANDRÉS Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri verkfræðistofunnar
Vista heldur erindi um myndræna
forritun, forritunarmálið G og for-
ritunarkerfíð LabVIEW á mál-
stofu í Véla- og iðnaðarverk-
fræði. Erindið hefst kl 17:15 1 dag
og verður í stofu VI58 í VR II,
húsi Verkfræði- og raunvísinda-
deildar við Hjarðarhaga 4.
„Erindið fjallar um myndræna
forritun með G-forritunarmálinu,
en það hefur ýmsa yfirburði, sér-
staklega hvað varðar hraða og
afköst forritara. Þá skiptir máli,
að auðvelt sé að fá yfirsýn yfir
forritin.
Sýnd verður forritun og upp-
bygging kerfa. Þá verður sýnt
fjargæslukerfí gatnamálastjórans
í Reykjavík, þar sem haft er radíó-
samband við fjölda mælistöðva
um borgina. Loks verða sýndar
lausnir, sem setja mælitæki beint
á skjáinn. Um er að ræða sveiflu-
sjá, sírita, tíðnisjá og fjölmæli,"
segir í fréttatilkynningu.
Málstofan er opin öllum á með-
an húsrými leyfír.
Kvennakirkjan
í nýtt húsnæði
KVENNAKIRKJAN hefur fengið
húsnæði undir starfsemi sína í
Þingholtsstræti 17 í Reykjavík.
Þar verða haldin námskeið, sön-
gæfíngar og opið hús sem kallast
„fastur punktur".
Fastur punktur verður á
fimmtudögum kl. 17 til 19 og
verður bænastund fastur liður kl.
18.30. Fyrsta fimmtudag í mán-
uði kemur gestur i heimsókn og
hinn 6. nóvember kemur fyrsti
gesturinn, dr. Hólmfríður Gunn-
arsdóttir, sem ætlar að segja frá
bókinni Leitin að tilgangi lífsins,
eftir Victor Frankl en Hólmfríður
þýddi bókina.
Allir, sem hafa áhuga á að
kynna sér starfsemi Kvennakirkj-
unnar, eru velkomnir í Þingholts-
stræti 17 á fimmtudögum.
Kynningarfyr-
irlestur um
Tantra Jóga
TVEIR jógakennarar á vegum
Amanda Marga samtakanna
halda kynningarfyrirlestur um
Tantra Jóga sem er alhliðaæf-
ingakerfí þar eð þessi ævarfornu
dulvísindi innihalda flestar grein-
ar jóga.
Lögð verður áhersla á nokkur
hagnýt meginatriði Tantra-visk-
unnar og áhrif iðkunarinnar til
heildræns þroska.
Kynningin fer fram dagana 6.
og 8. nóvember kl. 20 í miðstöð-
inni, Lindargötu 14, án endur-
gjalds.
Gengið út á
Suðurnes
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
fer miðvikudagskvöldið 5. nóvem-
ber kl. 20 frá Hafnarhúsinu og
með SVR vestur í Bakkavör. Það-
an verður gengið kl. 20.20 út á
Suðurnes og með Seltjörn út á
Snoppu.
Þar verður val um að fara með
SVR til baka eða ganga með
ströndinni niður á Höfn. Allir eru
velkomnir í ferð með Hafnar-
gönguhópnum.
Yakningaher-
ferð á Hjálp-
ræðishernum
VAKNINGASAMKOMUR verða
á Hjálpræðishemum, Kirkjustræti
2, dagana 5.-9. nóvember á
hveiju kvöldi og hefst samkoman
kl. 20 með lofgjörðarsöng.
Ræðumaður herferðarinnar
verður Erlingur Níelsson frá Ak-
ureyri. Hann er leiðtogi Hjálpræð-
ishersins fyrir norðan og er þar
að auki ritstjóri Herópsins. Allir
eru hjartanlega velkomnir á þess-
ar samkomur og er aðgangur
ókeypis.
Bubbi Morth-
ens á tónleika-
ferð á Snæ-
fellsnesi
BUBBI Morthens heldur tónleika
á Kristjáni IX á Grundarfirði mið-
vikudaginn 5. nóvember.
Að auki spilar Bubbi á Knudsen
í Stykkishólmi fimmtudaginn 6.
nóvember. Báðir tónleikarnir hefj-
ast kl. 21. Þetta eru síðustu tón-
leikar Bubba fram að sjálfum út-
gáfutónleikunum sem verða í
Borgarleikhúsinu þann 17. nóv-
ember.
Skemmtun til
styrktar
Hallbirni
TÓNLEIKAR og skemmtun til
styrktar kántrýkóngnum Hall-
birni Hjartarsyni verða haldnir
fimmtudaginn
6. nóvember á
Næturgalanum,
Kópavogi.
Fram koma
Snörumar,
Hjördís Geirs,
Einar Júlíusson,
Bjarni Arason,
Viðar Jónsson,
Hljómsveit
Önnu Vilhjálms
og Ari Jónsson sem kynnir lög
af nýjum geisladisk sínum „Allt
sem þú ert“. Sýningarhópur Kú-
rekans í Kópavogi sýnir línudans.
Heiðursgestur kvöldsins verður
Hallbjörn Hjartarson og rennur
aðgangseyrir óskertur til hans.
Húsið verður opnað kl. 21.
LEIÐRÉTT
Fengur á Netíð
í hestaþætti í blaðinu í gær
sagði að gagnagrunnur Bænda-
samtakanna, Fengur, færi á al-
netið innan tíðar. Hið rétta er að
Fengur fór á netið 28. október
s.l. undir heitinu Veraldarfengur.
Þar er að finna upplýsingar um
100 þúsund hross.
Röng mynd
í frétt í blað-
inu gær um nýja
skáldsögu Vil-
borgar Davíðs-
dóttur, Eldfórn-
ina, var röng
mynd af höf-
undi. Um leið og
rétt mynd birtist
er beðist velvirð-
ingar á þessum
mistökum.
Léttsveitin til írlands
í frétt í blaðinu í gær var rang-
hermt að 80 konur úr Léttsveit
Kvennakórs Reykjavíkur væra
farnar til írlands. Rétt er að þær
fara á inorgun, fimmtudag. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um.
Vilborg
Davíðsdóttir
Skortur á vilja
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Málmi:
„Stjórn Málms, samtaka fyrir-
tækja í málm- og skipaiðnaði,
mótmælir ummælum iðnaðarráð-
herra, sem hann lét falla fyrir
skömmu í umræðum á Alþingi um
íslenskan skipaiðnað. Hann sagði
að stjórnvöld hefðu komist að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu
með iðngreininni og samtökum
hennar að reglur EES kæmu í veg
fyrir að hönnun og smíði hafrann-
sóknarskips væri gert að sérstöku
þróunarverkefni. Þetta er rangt.
Þvert á móti voru skipasmiðj-
urnar og Samtök iðnaðarins sam-
mála um að hægt væri að gera
þetta verk að þróunarverkefni en
það mætti þó ekki vera bundið við
þetta tiltekna skip. Því lögðu Sam-
tök iðnaðarins fram tillögu til
sjávarútvegs- og iðnaðarráuneyt-
anna þess efnis, að efnt yrði til
sérstaks verkefnis um þróun og
hönnun haf- og fiskirannsókna-
skipa á norðlægum slóðum. Með
því að skilgreina verkefnið með
þessum hætti hefði það tvímæla-
laust bætt samkeppnisstöðu inn-
lendra skipasmiða við endanlegt
útboð og ekki brotið í bága við
reglur EES. Var sá skilningur
staðfestur í viðtölum við Eftirlits-
stofnun EFTA. Því miður var
hvorki sjávarútvegsráðuneytið né
smíðanefnd skipsins áhuga á að
fara þessa leið. Þegar viljann
vantar er hægt að bera fyrir sig
ótal afsaknir og var það gert ríku-
lega í þessu tilviki.
Þegar þessi neikvæða afstaða
lá fyrir bauð sjávarútvegsráðherra
Samtökunum að fá beina eða
óbeina aðild að smíðanefndinni og
var þaðt talið skárra en ekkert í
stöðunni. Hins vegar var aldrei
staðið við þetta samkomulag og
að lokum gáfust innlendar skipa-
smiðjur upp á að vekja sams kon-
ar áhuga stjórnvalda og víða hefur
tekist hjá samkeppnisaðilum okk-
ar innan EES. Þetta er sannleikur
þessa máls, en ekki hitt að iðn-
greinin hafi komist að sameigin-
legri niðurstöðu með stjórnvöldum
um að ekki væri hægt að skil-
greina slíkt verkefni sem þróunar-
verkefni. Það var eingöngu tækni-
legt viðfangsefni og spurning um
vilja.
Með hliðsjón af þeim mikla
ákafa, að víkja í engu frá ströng-
ustu ákvæðum útboðsreglna á
EES-svæðinu, skýtur skökku við
að smíðanefndin bauð ekki út
hönnun umrædds hafrannsókna-
skips sem þó er tvímælalaust út-
boðsskylt eins og aðrir hlutar
þessarar framkvæmdar. Það virð-
ist vera í samræmi við þau við-
horf, að reglunum skuli ávallt
beitt af fyllsta þunga og ósveigj-
anlega gagnvart verktökum í
skipaiðnaði en aðrir sem að verk-
inu koma þurfa ekki að hlíta
þeim.“
Gam selt
í 1.100
peysur
HANNYRÐAVERSLUNIN Móly
í Kópavogi hlaut nú á dögunutn
viðurkenninguna Garnverslun
ársins 1997 frá Garnbúðinni
Tinnu í Hafnarfirði.
„Viðurkenningin er veitt fyrir
góða kynningu á handprjóni en
frá áramótum hefur Móly af-
greitt garn í rúmlega 1.100
peysur sem er um 40% aukning
frá árinu á undan. Þetta er
fimmta viðurkenningin sem er
veitt en henni er ætlað að efla
veg og vanda handmenntar hér
á landi.
Ragnheidur Karlsdóttír, eig-
andi Móly, er mikil pqónakona
og hefur að hennar sögn orðið
mikil vakning í Kópavogi fyrir
öllu því sem tengist handavinnu.
Viðurkenningin er veitt í sam-
starfi við norska garnframleið-
andann Sandnes Uldvarefabrik
RAGNHILDUR Karlsdóttir
tekur við viðurkenningar-
skildi og blómum frá Auði
Kristinsdóttur, eiganda
Tinnu.
en Tinna er umboðsaðili hans á
íslandi," segir í fréttatilkynn-
ingu frá Tinnu.
Handpijónasamband íslands 20 ára
Kynning á handpijóni
í TILEFNI af 20 ára afmæli Hand-
pijónasambands íslands, sem er í
dag, verður kynning á framleiðslu-
vörum félagsmanna í húsnæði fé-
lagsins að Skólavörðustíg 19 alla
þessa viku. Einnig verður opið á
sunnudag frá kl. 13-16. 20% afmæl-
isafsláttur verður veittur af öllum
vörum.
Stofnfundur Handpijónasam-
bands íslands var haldinn í Glæsibæ
5. nóvember 1977. Á fundinn
mættu um 1.000 manns. Fyrsti for-
maður sambandsins var kjörin
Hulda Gísladóttir, en hún hafði ver-
ið helsti hvatamaður að stofnun
þess.
Þeir sem gerðust félagsmenn í
Handpijónasambandinu höfðu
flestallir drýgt heimilistekjurnar
með prjónaskap, og þá fyrst og
fremst lopapeysupijóni.
Heilsa og fegurð í Síðumúla
í SEPTEMBER var opnuð í Síðu-
múla 34 snyrti- og hárgreiðslustof-
an Heilsa og fegurð en ekki Hár
og fegurð og mishermt var í blaðinu
28. október sl.
I tilefni opnunarinnar fylgir gjöf
hveiju ljósa- og „strata“-korti og
tilboðsverð gildir í ljósin, tilboð á
gervinöglum kr. 3.900 og förðun
1.900 kr. út mánuðinn.
Opið virka daga frá kl. 10-22,
og laugardaga kl. 10-16.