Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Morgunblaðið/Þorkell KAMPAKÁTIR forráðamenn Ffns miðils, þeir Guðlaugnr Þðr Þórðar- son, Þormóður Jónsson, Björn Árnason og Baidvin Jónsson. Fínn miðill í nýju húsnæði FINN MIÐILL ehf. flutti í gær í nýtt húsnæði við Aðalsti-æti 6, gamla Morgunblaðshúsið, í Reykjavík. Þar eru fimm útvarpsstöðvar fyrirtækis- ins til húsa: Aðalstöðin, X-ið, FM 95,7, Klassík FM og Sígilt FM. Fastir starfsmenn sem sjá um all- an rekstur Fíns miðils eru milli 10 og 15 en alls er starfsmannahópurinn um 60 manns að meðtöldum dag- skrárgerðarmönnum stöðvanna. „Markmið okkar er að bjóða uppá fjölbreytt og vítt svið í dagskrá og góða þjónustu með þessum fímm stöðvum sem hver um sig þjónar sín- um aldurs- og áhugahópi. Má reynd- ar segja að bæði dagskrárgerðar- menn og hlustendur séu mjög fjöl- breyttur hópur,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson útvarpsstjóri. „Hver stöð hefur skýi-a dagskrár- stefnu sem höfðar tO mismunandi hópa en við reynum ekki að gera allt fyrir alla með einni stöð. Þessir auknu möguleikar fyrirtækisins hafa fengið góð viðbrögð hjá auglýsend- um sem bæði hafa getað náð betur til viðkomandi markhóps og náð til stærri hóps með þvi að leika auglýs- ingarnar á öllum stöðvunum.“ Markaðsdeild stöðvanna er sam- eiginleg en dagskrárgerð í höndum hverrar stöðvar. Fínn miðill er til húsa á jarðhæð og annarri hæð húss- ins, „í þessu gamla góða fjölmiðla- húsi,“ sagði Guðlaugur. Hljóðverin snúa út að Aðalstræti og Ingólfstorgi og geta vegfarendur nánast fylgst með dagskrár- og útsendingarfólki að störfum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson HINN nýi sjúkrabfli mun eflaust vekja athygli þegar hann ekur um göturnar með blikkandi ljós. Sjúkrabíll með nýju útliti REYKJAVÍKURDEILD Rauða kross fslands tekur f notkun nýjan og fullkominn sjúkrabfl með nýju útliti við upphaf opins húss fyrir al- menning í húsnæði deildarinnar í dag, laugardag. Sjúkraflutningamenn telja að bíl- amir þurfi að vekja enn meiri at- hygli í umferðinni en áður. Reykjavíkurdeild er stærsta deild Rauða kross Islands. Hún býður al- menningi að kynna sór margvíslega starfsemi deildarinnar í Fákafeni 11 kl. 13-16 í dag og eru allir vel- komnir. Mól og mennlng • Laugavegi 18 • Sími 515 2500 Njóttu kvöldsins á Súfistanum — yfir kaffibolla og góðri bók Eigðu notalega stund í Súfistanum, bókakaffi í verslun Máls og menningar Opíð alla daga tí! ki. 22 - iíka um heigar 49 árum eftir hvarf breska togarans Goth útaf Vestfjörðum Blómsveigur lagður á síðasta legstað Goth BLÓMSVEIG með minningar- áletrun um sjómennina sem fórust með breska togaranum Goth árið 1948 verður í dag kastað í hafíð þar sem reykháfurinn af skipinu kom upp með trolli Helgu RE á Vestfjarðamiðum síðastliðinn laugardag. Helga RE lagði aftur af stað út á sjó um hádegi í gær eftir nokk- urra daga viðveru í Reykjavík og gert var ráð fyrir að hún yrði komin að staðnum þar sem reyk- háfurinn fannst snemma í dag. Skipstjórinn, Geir Garðarsson, mun lesa bæn áður en kransinum verður kastað í sjóirin. A borðum á kransinum er áletr- un til minningar um W. Elliot skipstjóra og áhöfn hans frá Helgu RE 49. Nafn togarans, Goth FD-52, er skráð ásamt stað- arákvörðuninni þar sem hann fórst. Viðar Benediktsson, sem var skipstjóri á Helgu þegar reykháf- urinn fannst, ætlar að hreinsa seltuna af honum til að halda hon- um óskemmdum þangað til hann verður fluttur á brott. Líklegt er að hann verði fluttur með skipi til Fleetwood á Englandi, en ef ekki verður af því verður hann senni- lega sendur á safnið á Hnjóti í Vestur-Barðastrandasýslu. Áður hafa fundist leifar af togaranum Goth Viðar segir að líklega hafí leifar af Goth áður fundist, því togarinn Hákon RE dró upp lukt af enskri gerð á þessum slóðum fyrir fáein- um árum. Engum hugkvæmdist á þeim tíma að tengja luktina hvarfí Goth. „Það eru fleiri skipsflök á þess- um slóðum. Meðal annars lá leið skipalesta frá Bandaríkjunum til Murmansk ekki langt frá þessum stað,“ segir Viðar. Viðar segist vera sannfærður um að flakið liggi þar sem reyk- háfurinn var dreginn upp, því það hafi kostað mikið átak að losa trollið og hafí það sennilega komið af því að rífa reykháfmn af skip- inu. Morgunblaði4/Ásdís SKIPSTJÓRAR Helgu RE, þeir Viðar Benediktsson og Geir Garðarsson, halda í borða á blómsveig til minningar um Goth, en milli þeirra stendur Hann- es Þ. Hafstein, fyrrverandi forsljóri Slysavarnafélags Islands. ÚR breska dagblaðinu Blackpool'Evening Gazette sem fjallaði um fund reyk- háfsins af Goth á fimmtu- dag. Missti mann sinn með Goth þremur vikum eftir brúðkaupið „Var alltaf hrædd um hann á Islandsmiðum“ EVELYN var 23 ára þegar eigin- maður hennar, hásetinn E.J. Park- er, fór í síðustu ferð sína með tog- aranum Goth 4. desember 1948. Hann var 28 ára og þau höfðu verið gift í þrjár vikur. „Ég man mjög skýrt eftir því þegar hann fór. Klukkan var þrjú að nóttu þegar hann fór á fætur og tók leigubíl að togaranum.“ Eiginmaður Evelyn hafði oft áð- ur komið til íslands, enda voru helstu fískimið togara frá Fleetwood vestm' af landinu. „Ég var alltaf hrædd um hann í þessum ferðum," segir Evelyn. Þetta var hræðilegur tími Þegar engin jólaskeyti bárust frá sldpverjum fór Evelyn og aðra að- standendur þeirra að gruna að ekki væri allt með felldu. Eftir jól fréttu þau að ekkert hefði heyrst frá togai'- anum, en ekki var enn rætt um að hann hefði farist. „Útgerðarfyrirtæk- ið vildi ekkert segja okkur annað en að skipið myndi fínnast bráðlega. Þetta var hræðilegur tími. Alls konar orðrómur komst á kreik um að skipið hefði sést einhvers staðar nýlega." Auk eiginmannsins var frændi Evelyn í áhöfn, svai'amaður þeirra hjóna í brúðkaupinu og þrír nágrann- ar. Hún kannaðist líka við fleiri úr áhöfninni, því allir þekktu alla í fiski- mannasamfélaginu í Fleetwood á þessum tíma. Um áramót segist Evelyn hafa verið orðin viss um að Goth hefði farist. „Þegar ég frétti að reykháfurinn hefði fundist fann ég bæði fyrir létti og sorg. Minningamar frá þessum tíma rifjuðust allar upp. Ég er glöð að málið skuli loksins hafa verið leyst.“ Seinni eiginmaðurinn og sonur sigldu til íslands Rúmum tveimur árum eftir hvarf Goth giftist Evelyn aftur, og nú ber hún nafið Laird. Seinni eig- inmaðurinn var einnig sjómaður og sigldi til Islands, og sama var að segja um son þeirra. Faðir Evelyn var sjómaður og móðir hennar hafði unnið við fískverkun. Önnur störf var varla að hafa í Fleetwood á þessum tíma. „Sonur minn og seinni eigin- maðurinn komu oft til íslands og lýstu því fyrir mér. Sonur minn sá meðal annars Surtseyjargosið. Mig hefur lengi langað að koma til landsins, en það hefur ekki orðið af því.“ A stríðsárunum lönduðu margir íslenskir togarar í Fleetwood og nokkrir íslendingai’ eru þar bú- settir nú. Evelyn segist kannast við eina íslenska konu í bænum, sem hún kallar Siggí. Eftir útfærslu landhelginnar og þorskastríðin lokuðust fiskimiðin fyrir togurunum frá Fleetwood. Evelyn segir að menn hafí kennt stjómvöldum um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.