Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIÐ gætum margfaldað kosningaloforðin okkar með þessum dalli félagar. Fljótandi ríkis- stofnanir með viðkomu á hverju krummaskuði, hring eftir hring . . . Atlanta um erindi Norræna flutningamannasambandsins til forseta íslands Alvarlegar rangfærslur um starfsemi fyrirtækisins NORRÆNA flutningamannasam- bandið, NTF, hefur sent forseta íslands erindi þar sem mótmælt er orðalagi í kveðju hans til Flugfé- lagsins Atlanta sem birtist í bækl- ingi sem Atlanta gaf út í nóvem- ber 1996 í tilefni af 10 ára af- mæli fyrirtækisins. í kveðjunni lýsir forsetinn því að Atlanta starfí eins og best verði á kosið og hvetur það til frekari dáða. Atlanta hefur sent frá sér greinargerð þar sem segir að í bréfi NTF sé farið með alvarlegar rangfærslur um starfsemi fyrir- tækisins. Mótmælir Atlanta vinnu- brögðum NTF og harmar að NTF skuli tengjast embætti forseta Ís- lands við árásir sínar á Flugfélagið Atlanta. í bréfi NTF til forseta íslands segir að starfsemi leiguflugfélaga á borð við Atlanta sé vaxandi vandamál vegna félagslegra undirboða, réttindi starfsfólks til þátttöku í eigin stéttarfélögum sé nánast bönnuð, stofnuð séu innan- húsfélög, svonefnd gul stéttarfé- lög þar sem eigendur fyrirtækj- anna sjálfra ráði mestu sjálfir, laun séu lítil sem engin, einungis greiddir dagpeningar í útlöndum, og mikil brögð séu að því að starfsmenn slíkra fyrirtækja séu illa tryggðir. Upplýsinga ekki leitað hjá Atlanta í greinargerð Atlanta kemur fram að NTF vitni í bréfi sínu til TORIAQIB Fæst é islensku, ensku, þýsku, frönsku og sænsku Laugavegí 18 • Sfmi 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500 forseta íslands I upplýsingar sem fram komi í bréfi Atlanta til Al- þýðusambands íslands árið 1993 þar sem fjallað sé um starfsemi félagsins á þeim tíma, en margt hafi breyst síðan þá og NTF hafi aldrei leitað eftir upplýsingum frá fyrirtækinu sjálfu. Bent er á að Flugfélagið Atlanta eigi ekki í deilum við nein stéttarfé- lög á íslandi, og það hafí t.d. gert kjarasamninga við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugvirkja- félag íslands um kaup og kjör hluta starfsmanna sinna, en flestir flug- menn Atlanta kjósi að vera í Fijálsa flugmannafélaginu og gera kjarasamning í nafni þess. Per- sónulegir ráðningarsamningar séu gerðir við flugfreyjur og flugþjóna Atlanta með sambærilegum ákvæðum og almennt séu í kjara- samningum. Atlanta bendir á að lágmarks- laun hjá fyrirtækinu séu liðlega 100 þúsund krónur á mánuði fyrir ómenntað, ófaglært starfsfólk og meðalgreiðslur til faglærðra starfsmanna á skrifstofu fyrirtæk- isins séu um 230 þúsund krónur á mánuði, meðalgreiðslur til flug- manna um 400 þúsund krónur og meðalgreiðslur til flugfreyja um 180 þúsund krónur á mánuði mið- að við fullt starf. Þá er bent á að tryggingar starfsmnanna Atlanta séu með því besta sem þekkist í fyrirtækjum á íslandi. Allir starfsmenn séu slysa- og sjúkratryggðir allan sólarhring- inn allt árið um kring, og til dæm- is eigi starfsmaður sem slasast rétt á launum í allt að tvö ár. Meðalbótafjárhæð fyrir slysa- tryggingu sé 14 milljónir króna og meðalbótafjárhæð fyrir líftrygg- ingu sé sú sama, en allir fastráðn- ir starfsmenn Atlanta séu líf- tryggðir. Evrópusambandið eftir ríkjaráðstefnu Sameiginlegt verk- efni ESB óljóst Evrópusamtökin á ís- landi gangast í dag kl. 14 fyrir fundi á Sóloni íslandusi undir yfir- skriftinni „Evrópusam- bandið eftir ríkjaráðstefn- una“. Á meðal þriggja er- lendra fyrirlesara er Gilles Bertrand, franskur sér- fræðingur um Evrópumál. - Hvernig tókst til á ríkjaráðstefnunni? Hvernig býr hún Evrópusambandið undir framtíðina? „Niðurstaðan er augljós- lega skref fram á við, þótt það sé kannski stutt skref. Sambandinu hefur miðað í rétta átt á nokkrum sviðum, til dæmis í dóms- og inn- anríkismálum, þar sem ESB hefur nú fengið aukin völd. Ákvæðum um „sveigjan- leika" hefur nú verið bætt Gilles Bertrand í stofnsáttmála ESB og það er «► Gilles Bertrand er verkefnis- jákvætt ef það verður notað með stjóri hjá Forward Studies Unit réttum hætti, vegna þess að nú geta ríki sambandsins haldið áfram á braut samruna þótt eitt ríki sé á móti. Slíkt er augljóslega mikilvægt í sambandi, þar sem aðildarríkjunum mun fara sífellt fjölgandi. Atvinnumálin eru mjög mikil- vægur þáttur í Amsterdam-sátt- málanum. Þetta er í fyrsta sinn sem ESB fær raunveruleg völd á sviði atvinnumála. Sérhveiju aðild- arríki ber nú að skila skýrslu um árangur sinn í baráttunni við at- vinnuleysið og gefnar verða út leiðbeiningar og ráðleggingar til aðildarríkjanna á hveiju ári.“ - Hvað um Iýðræði og gagn- sæi? Markmiðið var að einfaida sáttmála ESB en Amsterdam-sátt- málinn virðist jafnvel enn torskild- ari en Maastrícht-samningurinn. „Við náðum árangri varðandi grundvallarreglur um að ákvarð- anir skyldu teknar fyrir opnum tjöldum og almannaaðgang að skjölum sambandsins. Hins vegar náðum við ekki jafnmiklum ár- angri og borgararnir væntu. Við- tökurnar, sem Maastricht-sáttmál- inn fékk, voru sterk vísbending um að einfalda þyrfti stofnsátt- málann og gera hann auðskilj- anlegri. Það er rétt að sumir þætt- ir nýja samningsins eru enn flókn- ari en áður hefur sézt og það er jafnvel erfitt fyrir sérfræðinga að skilja ákvæðin um dómsmálasam- starfið í þriðju stoð, ekki sízt vegna þess að þeim fylgir urmull bókana fyrir einstök lönd. Innlimun Schengen-sáttmálans bætir ekki úr skák; sjálf innlimunin er fram- för en henni fylgja lagalegar flækj- ur, til dæmis varðandi stöðu Dan- merkur, sem er erfitt að ráða fram úr. Stærsta verkefnið, sem mis- tókst að ráða fram úr í Amsterdam - það er raunar viðurkennt í samn- ingnum að það hafi mistekizt - er að gera umbætur á sjálfum stofnunum ESB. Þetta ----------- á við um atkvæða- greiðslur í ráðherra- ráðinu, vægi atkvæða í atkvæðagreiðslum og fjölda manna í fram- ” kvæmdastjórninni. Þetta hljómar eins og tæknileg atriði, sem mað- urinn á götunni hefur lítinn áhuga á, en breytingar á þessum stofn- unum eru forsenda þess að stækk- un sambandsins geti gengið snurðulaust fyrir sig. Þess vegna er í Amsterdam-sáttmálanum kveðið á um nýja ríkjaráðstefnu og framkvæmdastjómin og nokk- ur aðildarríkja vilja að hún fari fram áður en ný ríki verða tekin inn. Lykilatriði varðandi þá niður- stöðu, sem náðist í Amsterdam, er að hún svarar ekki þeirri spurn- hjá framkvæmdasljórn Evrópu- sambandsins, en það er rann- sóknastofnun sem heyrir beint undir Jacques Santer, forseta framkvæmdastjórnarinnar. Hlutverk stofnunarinnar er að „hugsa fram í tímann" um ýmis málefni, til dæmis framtíð vinn- unnar og velferðarsamféiags- ins, alþjóðasamskipti á nýrri öld, tengsl ESB við Rússland og Suðaustur-Asíu og síðast en ekki sizt um stækkun ESB til austurs og áhrif hennar. Bertr- and stýrir nú verkefni sem fjall- ar um hugsanlega þróun ESB fram til ársins 2010. Borgararnir bjuggust við meiru ingu hvert sé hið stóra sameigin- lega verkefni ESB. Skortur á sam- stöðu um breytingar á utanríkis- og öryggismálastefnu ESB er gott dæmi um þetta. Aðildarríkin eru ekki sammála um hversu víðtæk sameiginleg utanríkisstefna eigi að vera að yfirleitt hvaða gagn sé að henni. Sum aðildarríkin hafa skýra stefnu um að þau vilji póli- tískan samruna, önnur eru ósam- mála því markmiði. Þetta er mikil- vægt atriði fyrir borgarana; þeir vilja sjá að Evrópusambandið stefni að ákveðnu markmiði. Ef svo væri, myndu hin tæknilegu atriði sáttmálans skipta þá minna máli.“ - Telur þú að jafnvægið á milli smærri og stærri ríkja sambands- ins muni breytast þegar ESB stækkar? „Frá upphafi hafa litlu ríkin haft meiri áhrif í ESB en íbúa- fjöldi þeirra segir til um. Lúxem- borg er til dæmis mjög lítið ríki en sjálfstætt ríki engu að síður og nýtur því sömu virðingar og önnur ríki, smá eða stór. Það mun ekki breytast. Það er augljóst að takmarka verður fjölda fram- kvæmdastjórnarmanna, eigi fram- kvæmdastjórnin að geta starfað með skilvirkum hætti. Það er jafn- framt Ijóst að eftir því sem fleiri lítil ríki bæt- ast í hóp aðildarríkja, munu stærri ríkin þrýsta á um að vægi atkvæða í ráðherrar- áðinu verði endurmetið, þannig að þau verði ekki í minnihluta. Ég held þó að hvorki litlu né stóru ríkin þurfi að hafa áhyggjur af þróuninni í þessum málum. í Amsterdam voru aðildarríkin ná- lægt samkomulagi, en höfðu ekki nægan tíma til að ljúka samning- um. Það er mikilvægt að hafa í huga að bandalög ríkja innan ráð- herraráðsins hafa yfirleitt ekki verið á milli stórra ríkja annars vegar og lítilla ríkja hins vegar. Ríki hafa gert bandalög sín á milli eftir því hvaða hagsmuni þau hafa haft.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.