Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 9

Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 9 Tapaði ddmsmáli gegn Brimborg Fékk ekki Ford á 356 þús- und kr. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur sýknað Brimborg hf. af kröfu manns, sem taldi sig eiga rétt á að kaupa nýjan Ford Fiesta bíl af fyrirtækinu með því að greiða alls 9.900 krónur á mánuði í 36 mánuði, eða 356.400 krónur. Maðurinn byggði kröfu sína á auglýsing- um Brimborgar um „físlétta fjármögnun“, þar sem mánað- argreiðslur voru tíundaðar. Maðurinn bar að hann hefði ásamt félaga sínum farið í sölu- sal Brimborgar í janúar og fal- ast eftir bíl á kjörum í sam- ræmi við auglýsingu fyrirtæk- isins. I þeirri auglýsingu hafí falist ótvíræð yfirlýsing um verð og tegund bifreiðarinnar og sú yfirlýsing verið bindandi. Mennirnir, sem em laganem- ar, fengu ekki bíl og var bent á að þeir þyrftu að greiða útborg- un og ganga frá lokagreiðslu, en umræddar 9.900 krónur væru mánaðarleg afborgun af eftirstöðvum. „Örlítil aðgæsla" Dómarinn, Arngrímur Is- berg, segir um auglýsingu Brimborgar að „við fyrstu sýn gæti virst sem svo, að þarna væri á ferðinni tilboð um að kaupa bifreið á þessum kjöram en við örlitla aðgæslu sést að verið er að auglýsa möguleika til að eignast bifreið með auð- veldari fjármögnun en áður hafði tíðkast. I auglýsingunni kemur fram þegar í upphafi að verið er að auglýsa fjármögnun og er það endurtekið og kostir hennar tíundaðh-. Þá er tekið dæmi um „fisléttar greiðslur" og ætti öllum að skiljast að þar er átt við fjármögnunina. Að lokum er bent á að fá nánari upplýsingar. Það er niðurstaða dómsins að í auglýsingunni felist ekki tilboð um að hægt sé að kaupa bifreið með þeim mánaðarlegu greiðsl- um, sem þar era tilgreindar, og ætti öllum að mega vera það ljóst, er skoða auglýsinguna. Hvort hún kunni að vera vill- andi er annað mál og ágreiningi aðila óviðkomandi." Maðurinn var dæmdur til að greiða Brimborg 100 þúsund krónur í málskostnað auk virð- isaukaskatts. FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR ±: ;Í:: ATú\\ k lis ’É: Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 FRÉTTIR_________ Tjón sameigenda bætt þött leiðsla sé annarra HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt að húsfélagi beri að greiða fatahreinsun 350 þúsund króna bætur vegna tjóns sem varð þegar öryggisloki í kyndiklefa húss- ins bilaði og heitt vatn flæddi inn í hreinsunina. í dóminum eru ákvæði laga um fjölbýlishús túlkuð á þann veg, að enginn eðlismunur sé á því hvort tjón verði rakið til leiðslu sem tilheyri hluta eigenda fjölbýlishúss eða til leiðslu í sameign allra. Fatahreinsunin fékk tjón sitt bætt að hluta frá sínu tryggingafé- lagi, en ekki að því er varðaði end- urvinnslu á fatnaði, lagfæringu á vélum, töpuðum viðskiptum og end- urvinnslu bókhaldsgagna. Ibúar í íbúðunum, sem umrædd leiðsla taldist til, voru tryggðir húseig- endatryggingu og fór fatahreinsun- in fram á að fá þetta tjón sitt bætt hjá tryggingafélagi þeirra, en var hafnað. Skylda fylgir réttindum Fatahreinsunin vísaði m.a. til þess ákvæðis í lögum um fjölbýlis- hús að bili sameiginleg leiðsla skuli reikna allt tjón sem af því leiði, svo og viðgerð og skemmdir, sem sam- eiginlegt tjón. Gert væri ráð fyrir að tiltekin sameign innan eins og sama fjölbýlishússins gæti verið á hendi hluta eigenda, en ekki þeirra allra. Engin rök stæðu til þess að hluti eigenda gæti átt sameignarréttindi með þessum hætti, en bæru síðan ekki samsvarandi skyldur. Af hálfu húsfélagsins var á því byggt, að ákvæðið yrði alls ekki skýi-t svo, að í því fælist ströng eða hlutlæg ábyrgð eigenda leiðslunnar gagnvart öðram, sem fyrir tjóni yrðu, heldur fælist eingöngu í því regla um ábyrgð þeirra innbyrðis. Vísaði húsfélagið jafnframt til þeirr- ar grandvallarreglu skaðabótarétt- ar, að tjónþoli fengi því aðeins tjón sitt bætt úr hendi annars aðila, að sá ætti sök á því. Dómarinn, Helgi I. Jónsson, sagði óumdeilt að fatahreinsunin væri einn af sameigendum hússins, enda þótt leiðslan sem bilaði hafi ekki legið til séreignar hreinsunar- innar. Þrátt fyrir að leiðslan væri einungis sameiginleg sumum eig- endum hússins mætti beita um- ræddu ákvæði laga með lögjöfnun um tjón fatahreinsunarinnar og fella bótaábyrgð vegna atviksins á húsfélagið fyrir hönd íbúanna. ---------------------- Fundur um ESB eftir ríkjaráð- stefnuna EVRÓPUSAMTÖKIN á íslandi halda opinn fund um niðurstöður ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins sem lauk í Amsterdam fyrir skömmu. Fundurinn verður haldinn á Sóloni Islandusi, efri hæð, laugar- daginn 22. nóvember kl. 14. Frummælendur verða Gilles Bertrand, frá Foi-ward Studies Unit í Brussel, Luigiano d’Erman, frá Sendiráði Evrópusambandsins á ís- landi og í Noregi og Per Morken, varaformaður norsku Evrópusam- takanna. Aðgangur er ókeypis og opinn öll- um. Barna- skódagar 15% afsláttur af öllum barnaskóm dagana 22.-29. nóvember. Opið í dag kl. 10-16. SKÓVERSLUIU KÓPAV0GS Hamraborg 3. Sími 554 1754 NÝKOMIÐ FRÁ ÍTALÍU Mikið úrval af kommóðum og skápum. Tilvalin nátrborð við „amerísk rúm“. Verð frá kr. 8.200 stk. (11 gerðir) Sjónvarpsskápar. Verð frá 19.900. Blómasúlur. Verð frá 17.900. Barborð Verð frá 21.900 Hornskápar. Verð frá 27.900. stgr. Margar gerðir af borðum, stórum og smáum. Verð frá 8.200. 36máa "wST 24máa Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 mnrannrTi HÚSGAGNAVERSLUN HVAD MEO ÞIG? - KDMDU STRAX! SYND I REGNBOGANUM DFfiiMonr.iMM SYNINGARTIM&R AUGLYSTIR I DAGBL0ÐUM - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.