Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Opinberri heimsókn Gerhards Schröders til Islands lokið Efnahagsástand í Þýskalandi betra en af er látið Gerhard Schröder, einn helsti forystumaður þýskra jafnaðarmanna, kveðst hafa komist að raun um það, í heimsókn sinni til ís- lands, að íslendingum sé ekkert að vanbún- aði að taka þátt í Evrópusambandinu, en Schröder segist jafnframt skilja þá blendnu afstöðu sem íslendingar hafí til sambandsins. GERHARD Schröder, forsætisráð- herra Neðra-Saxlands og sennilegt kanslaraefni þýska Jafnaðarmanna- flokksins, sagði m.a. á hádegisverðar- fundi á vegum Þýsk-íslenska verslun- arráðsins og viðskiptaþjónustu utan- ríkisráðuneytisins í gær að efnahags- ástandið í Þýskalandi væri mun betra nú en sú mynd, er yfirleitt væri dreg- in upp í fjölmiðlum, gæfi hugmynd um. I erindi sínu á fundinum ræddi Schröder ennfremur stöðu mála í Þýskalandi nú og hvar styrkur þess l'ggi- Opinberri heimsókn Schröders til íslands lauk í gær. Að loknum morg- unverðarfundi hjá Verslunarráði í gærmorgun hélt Schröder til Hafnar- fjarðar þar sem hann skoðaði sig um og átti fund með Ingvari Viktorssyni bæjarstjóra. Að loknum hádegisverð- arfundinum iauk heimsókn Schröders, og hann hélt heimleiðis. Umræðan gefið ranga mynd Schröder sagði í erindi sínu á fundi Þýsk-íslenska að mikil umræða hafi undanfarið farið fram um Þýskaland, ekki einungis innanlands heldur einn- ig utan, og þá ekki síst í breskum og bandarískum fjölmiðlum. Mikið hafi farið fyrir lýsingum á meintum veikleikum Þýskalands, skorti á sveigjanleika, óhemju háum launa- kostnaði og gífurlega flóknu skatta- kerfi. Þessi umræða hafi gefið ranga mynd af stöðu mála í landinu. Schröder benti á að frá því Þýska- land hafí verið sameinað hafí um 150 milljarðar marka verið greiddir árlega frá vesturhlutanum til austurhlutans, en þrátt íyrir þetta hafí Þjóðveijum tekist að halda þeirri stöðu er þeir höfðu á alþjóðlegum mörkuðum áður en þessar greiðslur hófust. Einnig nefndi hann að þýski gjaldmiðillinn væri einn sá stöðugasti í heiminum, og þýskt vinnuafl væri það reyndasta og kunnáttumesta sem fmnanlegt væri. Meðal þeirra breytinga sem Schröder sagði að gera þyrfti á þýsku efnahagslífí er aukin skilvirkni í að koma tækninýjungum á framfæri og taka þær í notkun. Þetta verkefni sagði Schröder tilheyra úi-valsliðinu í efnahagslífinu, fremur en starfsfólki fyrirtækja og verksmiðja. Þetta yrði úrvalsliðið að takast á hendur „elleg- ar það mun ekki lengur verða kallað úrvalslið í efnahagslífínu", sagði Schröder. Einnig þyrfti að auka sveigjanleika á vinnumarkaði, þannig að laun myndu haldast óbreytt, en vinnutím- inn verða breytilegur og miðast við stöðu og þarfír efnahagsumhverfisins. Þá nefndi Schröder að koma þyrfti á nýjum tengslum milli ríkisins og brautryðjenda í efnahagslífinu. „Við þurfum að breyta þeim anda sem nú ríkir og ganga úr skugga um að þeir, sem starfa á vegum hins opinbera, viti að brautryðjendumir séu við- skiptavinir þeirra en eigi ekki að njóta leiðsagnar [opinberra starfsmanna].“ Schröder ræddi einnig Evrópusam- bandið og stöðu Þýskalands gagnvart því. Lagði hann áherslu á að tryggja yrði styrk þingræðis og lýðræðis í CCO 11CÍ1 CCO 107ni«f»l“»,fRflMKMOflSTJÓR| UUC I I UU'UUL I u/U JDHflNNÞÖRDARSON.HRL.tÖGGILTURFASTEIGNJSflLI. Nýlegar á söluskrá meöal annarra eigna: Skammt frá Kirkjusandi Góð sólrík 4ra—5_herb. íbúð á 3. hæð (efstu) í sex íbúöa húsi. Mikil og góð sameign. Útsýni vestur á sundin. Seljandi lánar kr. 6 millj. til 25 ára með 5,1 % ársvöxtum. Einstakt taekifæri. Nánari upplýsingar á skrifst. Álfheimar — hagkvæm skipti Sólrík, nokkuð endurnýjuð 4ra herb. íbúð á 3. hæð um 100 fm skammt frá Glæsibæ. Skipti æskileg á stærri eign í nágrenninu. Úrvalsíbúð — lyftuhús — Garðabær 4ra herb. íbúö 110 fm á 6. hæð í lyftuhúsi I Garðabæ. Frábært út- sýni. Tvennar svalir. Húsvörður. Tilboð óskast í þessa glæsilegu ibúð á einum vinsælasta stað á höfuðborgarsvæðinu. „Vestast í vesturbænum" Eins og ný 3ja herb. kjib. um 80 fm í reisulegu steinhúsi. Sérinng. „Húsbréf" um kr. 3 millj. Tilboð óskast. Góð kjör. Vegna búferlaflutninga til borgarinnar óskast húseign með tveimur (búðum. Má vera f smíð- um, fullgerð eða þarfnast endurbóta. Nágrenni borgarinnar kemur til greina. Opið í dag kl. 10—14. Opið mánudag—föstudag kl. 10—12 og 14—18. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Óvenju mörg hagstæð eignaskipti. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370 - * Morgunblaðið/Ámi Sæberg GERHARD Schröder heidur erindi sitt á hádegisverðarfundi Þýsk-íslenska verslunarráðsins. stjóm sambandsins til þess að gæta réttar einstakra aðildarríkja gagnvart yfírstjóm sambandsins í Brassel. Schröder var m.a. spurður að því hvert viðhorf hans, sem evrópsks stjómmálamanns, væri til hlutskiptis íslands gagnvart Evrópu. „Eins og þið vitið gæti ísland verið þátttakandi í Evrópusambandinu ef ísland vill taka þátt í Evrópusambandinu," sagði Schröder. Hann sagðist hafa í heim- sókninni kynnt sér helstu þætti ís- lensks efnahagslífs og sér sýndist íslendingum ekkert að vanbúnaði, „svo komiði endilega. Ef þið viljið.“ Hann kvaðst þó skilja þá afstöðu, sem hann hafí orðið var við, að ekki ríki eindrægni meðal íslendinga um aðild að Evrópusambandinu. „Því ef litið er til þess hvemig málum er komið hér nú þá sést að þið njótið þegar allra þeirra kosta sem aðild myndi veita, en ykkur hefur á sama tíma tekist að víkja ykkur listilega undan þeim vandkvæðum sem búast má við að fylgi aðild.“ í HAFNARFIRÐI átti Schröder m.a. fund með Ingvari Viktors- syni, bæjarstjóra, sem afhenti honum styttu að gjöf. Hans- Heinrich Eilers, borgarstjóra í Cuxhaven, var einnig færð stytta. Fjármálaráðherra segir oft engan rekstur á bak við óinnheimtar skattaskuldir fyrirtækja Árangur skatteftir- litsins er að batna FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra segir að stærstur hluti af skuldum, sem ríkissjóður hefur þurft að afskrifa hjá gjaldþrota aðilum, sé til kominn vegna áætlana skattyf- irvalda, viðurlaga og dráttarvaxta. I mörgum tilvikum sé enginn óinn- heimtur skattur á bak við skuldina. Ráðherra telur að árangur í skatteft- irliti og skattrannsóknum hafí aukist á seinni árum. í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning 1996 er vakin athygli á miklum afskriftum ríkissjóðs á skattaskuld hjá gjaldþrota aðilum. Um síðustu áramót námu þessar kröfur 14,8 milijörðum. Ríkisendur- skoðun bendir jafnframt á að skatt- rannsóknarstjóri nái ekki að sinna öllum málum. Ekki sé viðunandi að sumir komist upp með skattalaga- brot án viðurlaga og refsinga á meðan aðrir séu dæmdir. „Ég er ánægður með umfjöllun Ríkisendurskoðunar um ríkisreikn- inginn 1996 þar sem bent er á að árangur af skatteftirliti og skatt- rannsóknum sé mikill og leiði yfír- leitt til greiðslu. Ég tek hins vegar undir að okkur hafí enn ekki tekist að ná utan um allt þó margt hafí áunnist vegna hertra viðurlaga og meiri mannafla. Við vonumst til að þetta komist brátt í það horf sem við viljum sjá,“ sagði Friðrik. Friðrik sagði að þær tölur sem hér væri verið að fjalla um væru að mjög stórum hiuta áætlanir. Oft væri um að ræða fyrirtæki sem væru komin úr rekstri eða komin í vandræði með sinn rekstur. Þau skiluðu ekki virðis- aukaskýrslum og fengju á sig áætl- anir frá skattyfirvöldum. í kjölfarið fengju fyrirtækin á sig viðurlög og dráttarvextir væru reiknaðir á allt saman. Að stærstum hluta væri hér því ekki um að ræða, að fyrirtækin væru með í vörslu sinni skatt sem þau hefðu innheimt en ekki skilað til ríkissjóðs. Friðrik sagði að innheimtan hefði verið hert mikið á síðustu áram og á það væri bent í skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Þetta hefði verið gert með hertum viðurlögum og meiri vinnu af hálfu skattrannsóknarembættis- ins. Hann útilokaði ekki að fjölga þyrfti starfsmönnum hjá skattrann- sóknarstjóra. Á dómsmálaþingi fyrir skömmu kom fram það sjónarmið að refsi- harka vegna skattalagabrota sé komin út í öfgar. Friðrik sagði að enginn vafi léki á að refsingar vegna skattalagabrota væru það harðar að þær væru fallnar til að draga úr brotum. 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir til sölu. Sérstaklega til athugunar Stór barnaherbergi, rúmgott baðherbergi, svefndeildin útaf fyrir sig, stórt eldhús og stofa. Einstaklega góðar svalir mót suðri. Upplýsingar gefur byggingaraðili Örn ísebarn, sími 896 1606 40 ára reynsla vió húsbyggingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.