Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 11 FRÉTTIR Biskupsvígsla í Hallgrímskirkju öllum opin Séra Karl vígður á morgun NÝR biskup íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, verður vígður í Hallgrímskirkju í Reykjavík á morgun. Athöfnin er öllum opin og hefst klukkan 13.30. Herra Ólafur Skúlason biskup vígir eft- irmann sinn og flytur vígsluræðu og nývígður biskup flytur préd- ikun. Meðal boðsgesta eru forseta- hjónin, ráðherrar, vígslubiskup- ar, prestar, djáknar, borgar- stjóri, sóknarnefndir Dómkirkju og Hallgrímskirkju og fleiri sem tengjast vígslunni með einum eða öðrum hætti. Þá verða nokkrir erlendir biskupar viðstaddir og taka nokkrir þeirra beinan þátt í vígsluathöfninni með ritninga- lestri. Séra Hjalti Guðmundsson dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari og séra Ragnar Fjalar Lárusson, fyrrum sóknarprestur í Hallgrímskirkju, lýsir vígslu. Vígsluvottar verða séra Birgir Snæbjörnsson, séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir, séra Miyako Þórðarson og séra Þórhallur Heimisson. Nývígður biskup flyt- ur prédikun og í Iokin verður altarisganga. Munu átta prestar annast útdeilingu. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, sem jafnframt verður organisti við vígsluna, og Mótettukór Hallgrímskirkju einnig en honum sljórnar Hörður Askelsson. Frumflytur Mótettu- kórinn tónverk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson, bróður tilvonandi biskups, við sálm eftir föður þeirra, Sigurbjörn Einarsson biskup. Einnig syngur Skólakór Kársnesskóla undir sljórn Þór- unnar Björnsdóttur tónverk sem Þorkell samdi þegar séra Karl var vígður til prests árið 1973. Erlendu biskuparnir eru frá Norðurlöndunum, að Færeyjum og Grænlandi meðtöldum, ensku kirkjunni og viðstaddir verða einnig fulltrúi Lútherska heims- sambandsins og fulltrúi vestur- íslensku kirkjunnar. Bænastund í Dómkirkjunni síðdegis í dag Séra Karl Sigurbjörnsson verður þrettándi biskup Þjóð- kirkjunnar frá árinu 1801 er landið varð eitt biskupsdæmi. Tveir fyrrverandi biskupar taka þátt í vígslunni, þeir Sigurbjörn Einarsson og Pétur Sigurgeirs- son og tveir fyrrum vígslubiskup- ar, Jónas Gíslason og Sigurður Guðmundsson. Klukkan 18 í dag, laugardag, verður bænastund í Dómkirkj- unni í umsjá dómkirkjuprest- anna, séra Hjalta Guðmundsson- ar og séra Jakobs Agústs Hjálm- arssonar og hvetja forráðamenn Þjóðkirkjunnar fólk til að taka þátt í henni. Séra Karl Sigur- björnsson hefur óskað þess að þeir sem hyggjast sýna gleði og samhug í tilefni dagsins láti Hjálparstofnun kirkjunnar njóta þess með framlagi sínu enda sé aðventusöfnun stofnunarinnar Hallgrímskirkja senn að hefjast. Séra Karl hefur fengið leyfi frá starfi sínu við Hallgrímskirkju til að búa sig undir að taka við biskupsembætt- inu og var séra Ragnar Fjalar Lárusson, fyrrum prestur við Hallgrímskirkju, fenginn til að þjóna á meðan. Al-Anon samtökin á íslandi hafa starfað víða um land í aldarfjórðung Einstaklingur getur aldrei borið ábyrgð á drykkju annars HÉR á landi starfa um 50 Al-Anon deildir, ein deild uppkominna barna alkó- hólista og Alateen-deildir, sem styðja 12-18 ára börn alkóhólista. Sú regla gildir hjá Al-Anon að fullrar nafnleyndar er gætt um alla sem sækja fundi, engar fundargerð- ir eru haldnar og félagaskrá er engin. Í viðtali við Morgunblaðið sögðu talsmenn samtakanna, sem í samræmi við þessa reglu óskuðu nafnleyndar, að meðvirkni væri sjúkdómur fjölskyldunnar allrar. „Þegar alkóhólistinn fer í með- ferð og eftirmeðferð, situr fjölskyld- an eftir og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Auðvitað eiga allir að vera sælir og glaðir, en fjölskyldan situr eftir með óuppgerðar til- finningar, sem hún verður að vinna úr. Alkóhólismi þrífst ekki á heimili án þess að fá stuðning. Stuðningsmaður alkóhól- istans er því maki hans og börnin taka þátt í leiknum. Makinn hringir í vinnuna og til- kynnir veikindi þegar alkóhólistinn er drukkinn, hann segir ættingjum og vinum ósatt, þegir yfir hneyksl- anlegri framkomu, tekur að sér að sjá um fjármál heimilisins og hylm- ir yfir með alkóhólistanum þegar hann hefur klúðrað sínum málum. Þetta er meðvirkni og það er ótrú- legur léttir þegar hún hættir.“ Hætta að miða allt við alkóhólistann Al-Anon fundi sækja ekki aðeins aðstandendur alkóhólista sem hætt- ur er að drekka, heldur einnig að- standendur virkra alkóhólista. AL-ANON samtökin á íslandi áttu 25 ára afmæli í vikunni. Hlutverk samtakanna er að styðja aðstandendur alkóhólista til sjálfs- hjálpar, að brjótast undan oki sjúkdómsins sem heldur fjölskyldunni allri í heljargreipum. Fullrar nafn leyndarer gætt „Þegar aðstandandi fer að byggja sig upp, hættir hann að miða allt við alkóhólistann. Á fundunum segir fólk reynslusögur og áttar sig á að það er ekki eitt um að þurfa að kljást við vandamál; þau eru alls staðar svipuð. Fólki léttir þegar það fær fullvissu um að alkóhólismi er sjúk- dómur, en ekki „aum- ingjaskapur.“ Það er mjög erfítt að fordæma ástvini og ekki hægt að taka á vandanum nema átta sig á þessu. Einstaklingur getur aldrei verið ábyrgur fýrir drykkju annarra." Tólf reynsluspor Fólk, sem leitar til Al-Anon, fer fyrst á sex fundi fyrir byijendur. Þar eru 2-10 manns. Hver og einn fær tíma til að tala um sín mál. Farið er í gegnum „Tólf reynslu- spor“, sem eru byggð upp á svipað- an hátt og sporin tólf sem alkóhól- istar fara í gegnum samkvæmt meðferð AA-samtakanna, enda var Al-Anon upphaflega stofnað af fjöl- skyldum alkóhólista sem hættu að drekka með hjálp AA. Fyrsta spor- ið er að viðurkenna vanmátt sinn gegn áfengi og að fólki sé orðið um megn að stjórna eigin lífi. „Stundum verður fólk óþolinmótt, því það heldur að það finni töfra- lausn á fundunum okkar. Svo er ekki. Við skiptumst á reynslusög- um, förum yfir sporin tólf og hvern- ig fólk hefur nýtt sér þau. Eitt af kjörorðum okkar er „góðir hlutir gerast hægt“. Auðvitað ----------------------- getur verið erfitt fyrir Hver og einn fólk að bíða betri tíma, fær nægan en um annað er ekki að tíma ræða.“ ___________________ Alþjóðaskrifstofa Al- Anon er í New York í Bandaríkjun- um, enda voru samtökin stofnuð þar í landi fyrir hálfri öld. Alþjóða- skrifstofan samþykkir lesefni, sem notað er á fundum um allan heim. „Við getum gengið inn á fundi hvar sem er í heiminum og þeir eru alls staðar eins.“ Sjálfboðavinna og frjáls framlög Rekstur Al-Anon byggist ein- göngu á fijálsum framlögum, fólk lætur litlar upphæðir af hendi rakna á hveijum fundi, þýðingar á erlendu lesefni eru unnar í sjálfboðavinnu og ársfjórðungsrit samtakanna, „Hlekkurinn“, er einnig unnið af sjálfboðaliðum. Þá eru margir fé- lagar í Al-Anon áskrifendur að mánaðarriti Al-Anon í Bandaríkjun- um. „Meðferðarstofnanir, bæði op- inberar og í einkarekstri, vísa fjöl- skyldum og vinum alkóhólista til okkar. Flestir, sem sækja fundi, hætta aldrei alveg. Þeir koma ef til vill ekki í einhveijar vikur eða mánuði, en birtast yfirleitt aftur. Eftir að fólk fer að stunda fundi finnur það sér trúnaðarmann, ein- hvern sem það getur alltaf talað við. Smám saman dregur úr þeirri þörf, eftir því sem fólk nær betri tökum á eigin lífi, en fundarsóknin heldur áfram, rétt eins og alkóhól- istinn heldur áfram að sækja AA- fundi.“ Skrifstofa Al-Anon samtak- anna er í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17. Skrif- stofan er opin frá kl. 13-16 þriðjudaga til föstudaga, en símsvari samtakanna veitir upp- lýsingar allan sólarhring- inn um fundartíma og fundarstaði. „Við bjóðum alla velkomna. Al- Ánon tilheyrir engum trúarhópi og blandar sér ekki í pólitískar deilur eða dægurþras í þjóðfélaginu." PCI hm og fuguefni mm Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sfirá 567 4844 Þagnarskylda læknis Landlæknir óskar and- svara vegna meints brots EMBÆTTI landlæknis hefur sent Esra S. Péturssyni sál- fræðingi bréf vegna meints brots hans á læknalögum. í nýútkomnum æviminningum Esra, Sálumessu syndara, er skýrt frá ástarsambandi hans og konu, sem var sjúklingur hjá honum, og varðar meint brot Esra þann hluta frásagn- arinnar sem tíundar sjúkra- sögu konunnar. I læknalögum er kveðið á um fyllstu þagmælsku lækna og tekið fram að þagnarskylda falli ekki niður við lát sjúkl- ings. Konan, sem ritað er um í endurminningum Esra, er látin. í lögunum segir einnig að svipta megi lækni, sem brýtur gegn ákvæðum þeirra lækningaleyfi. Landlæknir gerir tillögu til ráðherra, sem getur úrskurðað hvort svipta eigi viðkomandi lækningaleyfi. Þeim úrskurði er hægt að skjóta til dómstóla. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann gæti aðeins staðfest að Esra hefði verið skrifað bréf, þar sem farið væri fram á andsvör hans fyrir 1. desember. nÞá mun siðanefnd lækna einnig hafa þetta mál til umfjöllunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.