Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 16

Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 16
16 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Héraðsdómur Vestfjarða um brot á lögum um virðisaukaskatt Dæmdur til að greiða 9 milljon- ir króna í sekt ísafirði -Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt 43 ára karlmann á.ísa- firði í 3ja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 9 milljóna króna sektar til ríldssjóðs fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt, með því að hafa eigi í samræmi við það sem lög áskilja, staðið inn- heimtumanni ríkissjóðs skil á virð- isaukaskatti sem hann hafði inn- heimt á árunum 1994 og 1995, sam- tals að fjárhæð 8.908.689 kr. Greiði ákærði ekki framan- greinda sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal hann sæta fangelsi í tólf mán- uði. Auk þessa var ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, þar með talin 80 þúsund króna málsvamarlaun skipaðs verjanda síns. I dóminum segir: „Með afdrátt- arlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem er í samræmi við fram- burð hans hjá lögreglu og önnur gögn málsins, er framangreind háttsemi sönnuð. Af hálfu ákærða er þess krafist, að hann verði dæmdur til vægustu refsingar, sem lög frekast leyfa og að hún verði eftir atvikum skilorðs- bundin með öllu eða að hluta, óháð því hvort um refsivistar- eða sekt- ardóm verði að ræða. Þá er krafist hæfilegra málsvamarlauna skipuð- um verjanda til handa. Er af hálfu ákærða vísað til þess, að hann hef- ur gengist greiðlega við brotum sínum og ekki hagnast persónulega á þeim. Þá er bent á persónulegar aðstæður ákærða, þar á meðal fjöl- skyldu- og heimilishagi, en ákærði er kvæntur, þriggja bama faðir og býr nú í leiguhúsnæði eftir að bú hans var tekið til gjaldþrotaskipta 21. febrúar 1996, en í kjölfar þess miásti ákærði forræði yfir húseign fjölskyldunnar á ísafirði. Loks er vakin athygli á framlagðri greiðslu- kvittun frá 29. desember 1995, en samkvæmt henni greiddi ákærði þá krónur 3.700.000 inn á skuld sína við innheimtumann ríkissjóðs og lét þess sérstaklega getið, að greiðslan skyldi ganga upp í virðisauka- skattsskuld sína við innheimtu- mann. Greiðslunni hafi hins vegar einhverra hluta vegna verið ráð- stafað til lækkunar á skuld ákærða vegna opinberra gjalda utan stað- greiðslu. Með nefndri greiðslu og öðram innborgunum á árinu 1995, samtals að fjárhæð krónur 16.500.000, hafi ákærði engu að síð- ur sýnt ótvíræðan greiðsluvilja í verki, sem beri að taka tillit til við ákvörðun refsingar.“ Innborgun á virðis- aukaskattsskuld Við meðferð málsins fyrir dómi féllst ákæravaldið á þá skoðun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar, að við ákvörðun refsingar bæri að horfa til greiðslu ákærða á 3.700.000 krónum 29. desember 1995 og líta á hana sem innborgun á uppsafnaða virðisaukaskattsskuld, þó þannig að til lækkunar á þeirri skattskuld, sem myndast hafi á árinu 1994 og aldrei næmi hærri fjárhæð en krónum 2.000.000 af höfuðstól. Fallist var á þetta af hálfu dómsins og tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Dóminn kvað upp Olafur Krist- insson, fulltrúi héraðsdómara. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson GUNNAR Þorsteinsson með úrvals ullarreyfi í höndunum. Ullarmat í fullum gangi Fagradal - Um þessar mundir eru bændur í óðaönn við að klippa ull- ina af kindum sínum og þegar því er lokið er ullin metin af ullar- matsmanni frá ístex. Ullin er metin bæði heima á bæj- um hjá bændunum eða í ullar- stöðvunum þar sem ullinni er safnað saman og hún metin. Miklu skiptir að ullin sé þurr og hrein, í henni liggja mikil verðmæti ef vel er um hana hugsað, t.d. borgar ullin í mörgum tilfellum allan áburð á tún sauðfjárbænda og það munar um minna. Þegar ullin er metin er það mýktin, liturinn, ill- hærurnar og hreinleikinn sem skipta mestu máli í hvaða flokki ullin lendir. I Mýrdalnum hefur Gunnar Þor- steinsson frá Giljum metið ull bænda í mörg ár. Heimamatið hef- ur oftast komið vel út fyrir bænd- ur og geta þeir lært ýmislegt af því að fylgjast með því hveraig ullarmatsmaðurinn vinnur. Fjölþætt um- ferðarátak á Sauðárkróki Sauðárkróki - Vikuna 17.-21. nóv- ember stóð yfir átak í umferðarör- yggismálum á Sauðárkróki og voru það umferðamefnd Sauðárkróks- kaupstaðar, lögreglan á Sauðár- króki, Sjóvá-Almennar, VÍS og Tryggingamiðstöðin sem stóðu að framkvæmd átaksins. Upphaf málsins var að umferðar- nefnd Sauðárkróks samþykkti snemma í haust að beita sér fyrir bættri umferðarmenningu í bænum og var ákveðið að leita samvinnu við sýslumannsembættið og lögregluna ásamt tryggingarfélögum um að koma að verkefninu, þannig að ná mætti sem bestum árangri. Var Guðmundi Ragnarssyni byggingar- fulltrúa falið að hafa forgöngu um málið. Þegar var ákveðið að beina sjón- um aðallega að börnum og ungling- um og öryggi þeirra í umferðinni, sérstaklega með tilliti til notkunar endurskinsmerkja og hjálma, en einnig að fylgja fast eftir notkun bíl- stjóra á öryggisbeltum og ljósum svo og að ná niður ökuhraða á göt- um bæjarins sem oft hefur verið allt of mikill. í upphafi vikunnar vora fest upp veggspjöld um allan bæ með slag- orðinu „Betri umferð, betri bær“ þar sem hvatt er til bættrar um- ferðarmenningar og einnig noktun- ar á endurskinsmerkjum og hjálm- um. Þá var bæklingi um sama efni dreift í öll hús og fulltrúar ýmissa hópa hafa komið fram í Svæðisút- varpinu og flutt pistla sem höfða til þeirra sem í umferðinni era. A fimmtudag var Sigurður Helgason frá Umferðarráði á staðn- um og fjallaði á fundum í grunn- skólanum og fjölbrautaskólanum um umferðarmál og ræddi við nem- endur. í grunnskólanum verður hleypt af stokkunum keppni í gerð veggspjalda og mun dómnefnd velja þau bestu sem verða sýnd í Safna- húsinu fyrstu helgina í desember. Þá er bílflak sett niður við aðalum- ferðargötu bæjarins til áminningar ökumönnum um það hversu alvar- legar afleiðingar umferðaróhöpp geta haft. - Sumum finnst þetta of langt í burtu.... Hvað finnst þér? Opið hús í dag á milli kl. 2 og 4 Breiðavík 35-39 O Sérinngangur í hverja íbúð O Sérþvottahús í hverri íbúð O Stórar suðursvalir O Tilb. til innr. eða fullbúnar O Óviðjafnanlegt útsýni O Stutt í skóla og leikskóla Of langt frá hverju, spyrjum við? Víkurhverfið er framtíðarhverfi, sem við erum viss um að verður með vinsælustu hverfum Reykjavikur áður en langt um líður. Þar verða leik-, grunn- og framhaldsskólar steinsnar frá. Verslunarmiðstöð er að rísa og öll önnur þjónusta á næstu grösum. Þjóðvegur handan hæðarinnar og í næstu framtíð mun brú tengja hinn fallega strandveg við gamla Vogahverfið. Ekki spillir óspillt fjaran og græn tún við lóðarmörkin. Útsýni betra en nokkur póstkort og þú labbar á golfvöllinn. Hvað er hægt að biðja um betra. í dag á milli kl. 14.00 og 16.00 bjóðum við þér og þínum að skoða hjá okkur nýjar íbúðir í þessari paradís. ( Breiðavík 35, 37 og 39 eru 3ja og 4ra herbergja íbúðir sem hægt er að fá tilbúnar til innréttinga eða fullbúnar með gólfefnum, allt eftir þínum óskum. Verðið er afar hagstætt, fullbúnar íbúðir með flísalögn og parketi frá kr. 7.450.000. Sölumenn ökkar og fulitrúar verktaka verða á staðnum í dag og veita allar frekari upplýsingar. Láttu sjá þig - þú verður ekki fyrir vonbrigðum. í\ HÚSAKAUP Suðurlandsbraut 52, sími 568 2800 Húsvirki hf. Byggingaverktaki í 15 ár Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli Nýir út- gefend- ur Hvíta fálkans Keflavík - Breyting verður á útgáfu Hvíta fálkans, blaði varnarliðs- manna á næstunni. Blaðið hefur komið út vikulega frá árinu 1952 og hefur flutt varnarliðsmönnum og fjölskyldum þeirra fréttir af mál- efnum líðandi stundar. Islenskum aðilum hefur ekki ver- ið unnt að auglýsa þjónustu eða vörur í blaðinu en nú verður breyt- ing á því. Bandaríkjaher hefur til þessa staðið að útgáfunni af fjár- lagafé og dreift blaðinu til íbúa vall- arins þeim að kostnaðarlausu. Það er útgáfufyrirtækið Mark-Mið á Suðurnesjum sem mun gefa blaðið út og verður það prentað í Grágás í Keflavík. Hvíti fálkinn kemur út vikulega og sagðist Ægir Már Kárason út- gáfustjóri hlakka til að takast á við þetta spennandi verkefni. Hann sagði að með samningnum gæfist íslenskum aðilum nú tækifæri á að auglýsa vörar sínar og þjónustu í fyrsta sinn í Hvíta fálkanum og Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ÆGIR Már Kárason útgáfu- stjóri Mark-Miðs á Suðurnesj- um til vinstri ásamt Brian R. Ellis fulltrúa varnarliðsins, bera saman bækur sínar á rit- stjórn Hvíta fálkans. þegar hefðu mörg fyrirtæki og ein- staklingar sýnt þessu máli áhuga. 5.000 manna byggð Ægir Már sagði að á Keflavíkur- flugvelli væri ellefta stærsta byggð- arlag landsins með um 5.000 íbúa auk þess sem þangað kæmu þangað fjölmargir erlendir gestir. Þessir aðilar hefðu hingað til ekki haft greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem til boða væri utan varnarsvæð- isins. Ægir Már sagði ennfremur að varnarliðsmenn myndu áfram skrifa í blaðið og að það kæmi út óbreytt að mestu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.