Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 18

Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 18
18 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNB LAÐIÐ VIÐSKIPTI Kynningarfundur í London um hlutafélagabreytingu ríkisbankanna Fulltrúar 90 erlendra banka sóttu fundinn LANDSBANKINN og Búnaðar- bankinn stóðu sameiginlega að kynningu á breytingu bankanna í hlutafélög 1. janúar næstkomandi fyrir fulltrúum evrópskra og amer- ískra banka á kynningarfundi i London síðastliðinn miðvikudag. Að sögn Bjöms Sigurðssonar, for- stöðumanns á alþjóðasviði Lands- bankans, komu fulltrúar 90 er- lendra bankastofnana á kynningar- íúndinn. Kynningin tókst vel Tókst kynningin vel og voru full- trúar hinna erlendu banka áhuga- samir um þær breytingar sem verða á íslenska fjármálamarkaðin- Erlendu bankamennirnir áhugasamir um um áramótin. „Megin tilgangur fundarins var að kynna í stórum dráttum breytingar bankanna i hlutafélög," segir Bjöm. Hópur bankamanna úr Landsbanka, Bún- aðarbanka og frá Seðlabankanum hélt til London vegna kynningar- innar. Var fundurinn vel undirbú- inn af hálfu bankanna og nutu þeir aðstoðar sérhæfðra kynningarfyr- irtækja að sögn Björns. A fundinum flutti Björgvin Vil- mundarson, bankastjóri Lands- bankans, erindi um hlutafélaga- væðingu Landsbanka og Búnaðar- banka sem kemur til framkvæmda 1. janúar nk., Ingimundur Frið- riksson, aðstoðarbankastjóri Seðla- banka Islands, flutti erindi um 'stöðu efnahagsmála á Islandi og Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans, fór svo nánar yf- ir þær breytingar sem í vændum em um næstu áramót. Að sögn Björns mátti m.a. sjá fulltrúa frá þýskum, frönskum, hol- lenskum, svissneskum og amerísk- um bönkum, sem reka bankaútibú í Bretlandi, meðal fundargesta, auk fulltrúa breskra banka. Haustráðstefna EDI-félagsins Rætt um upplýs- ingatækni Dana Byggingarvísitala Hækkaði um 3,7% síðastliðna 12 mánuði B YGGIN GARVÍ SITAL AN mældist 225,8 stig eftir verð- lagi um miðjan nóvember og hafði hækkað um 0,1% frá fyrra mánuði. Þessi vísitala gildir fyrir desembermánuð, skv. tilkynningu Hagstofunn- ar. Jafngildir 0,5% verðbólgu Síðastliðna tólf mánuði hef- ur vísitalan hækkað um 3,7% og undanfama þrjá mánuði er hækkunin 0,1% sem jafngildir 0,5% verðbólgu á ári. Hagstofan hefur ennfrem- ur reiknað út launavísitölu miðað við meðallaun í október og var vísitalan 159,3 stig. Hækkun hennar nemur 0,5% frá fyrra mánuði. HAUSTRÁÐSTEFNA EDI-fé- lagsins, félags um útbreiðslu staðl- aðra rafrænna viðskipta, verður haldin á þriðjudag. Meðal fyrirles- ara verður Bjarne Emig, formaður danska EDI-ráðsins og mun hann fjalla um stefnu danskra stjórn- valda í upplýsingatækni, árangur Dana á þessu sviði og hvemig þeir hafi náð honum. Þá mun hann skýra frá því hvernig þeir ætli að ná því markmiði að verða fremstir þjóða í upplýsingatækni um alda- mót. Bjarne hefur verið helsti tals- maður fyrir útbreiðslu rafrænna viðskipta í Danmörku um árabil og verið ötull þátttakandi á þessu sviði í Evrópu að því er fram kem- ur í frétt frá EDI-félaginu. Danir hafi markað svipaða stefnu upplýs- ingatæknimálum og íslendingar en þeir hafi þó stigið mun stærri skref en stjómvöld hérlendis hafi gert. Rafrænn lyfseðill A ráðstefnunni mun Sigþór Guð- mundsson, deildarstjóri hjá Trygg- ingastofnun, kynna rafrænan lyf- seðil en nýlega var gengið frá því að apótekarar sendi Trygginga- stofnun lyfseðla á stöðluðu rafrænu formi. Ingi Þór Hermannsson, framkvæmdastjóri EAN á Islandi, mun fjalla um hlutverk staðlaðra rafrænna viðskipta í skilvirkri neytendasvömn og Steingrímur Hólmsteinsson, verkefnisstjóri í Upplýsingatæknideild Olíufélags- ins hf., kynnir nýjungar á sviði raf- rænna viðskipta hjá félaginu. Ráðstefnan verður haldin í bíó- sal Hótels Loftleiða nk. þriðjudag kl. 14. Aðgangur er öllum heimill og kostar kr. 3.500. Lotus. Nýherji býður þér til kynningar á nýrri útgáfu Lotus Notes 15.30-16.00 I Extci uliiig the Vision-Dommo in the Open standards world 16.15- 16.45 J Foi sendur árancjursríkrar notkunar Lotus Notes í rekstri fyrirtækja 16.15- 17.15 I Umræður ocj léttar veitingar - Sýníncj á helstu sérlausnum Nýherja Fyrirlesarar verða þeir Jens Mikael Jensen og Carsten Grþnning frá Lotus í Danmörku og Frosti Sigurjónsson, forstjóri Nýherja. Skráning fer fram með tölvupósti (hugb@nyherji.is) eða í síma 569 7700. Nánari upplýsingar: www.lotus.nyherji.is Morgunblaðið/Ásdís AXEL Gíslason, stjórnarformaður Fjárvangs, Steinþór Baldursson sjóðsstjóri, Brynhildur Sverrisdóttir framkvæmdastjóri og Geir Magn- ússon stjórnarmaður kynntu Fjárvangsgluggann. inn kynntur FJÁRVANGUR hf. hefur þróað fullkomið tölvukerfi sem fengið hefur heitið Fjárvangsglugginn og verður það boðið fyrii*tækj- um og stofnanafjárfestum. Ann- ars vegar nýtist kerfið við úr- vinnslu á gögnum frá Verð- bréfaþingi Islands og hins vegar við kaup og sölu bréfa. Nýja kerfið var kynnt á fimmtudag í tilefni þess að eitt ár er Hðið frá því Vátrygginga- félag fslands keypti öll hlutabréf í fyrirtækinu af sænska trygg- ingarfélaginu Skandia. Heiðurs- gestir á kynningunni voru Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra og Benedikt Sveinsson, forstjóri íslenskra sjávarafurða. Fram kom einnig að Fjár- vangur hefur fengið einkaum- boð fyrir að selja verðbréfasjóði frá verðbréfafyrirtækinu Fidelity. Á þessu rúmlega ári frá stofnun Fjárvangs hefur margt breyst bæði innan fyrir- tækisins og í umhverfinu. Fjár- vangur hefur á nýliðnu ári end- urskipulagt alla verkferla og upplýsingaflæði innan fyrirtæk- isins. Nýlega var hrundið af stað samstarfsverkefni Landsbank- ans og VIS, en það eru svokall- aðar söfnunarlíftryggingar. Söfnunarlíftryggingar eru sam- bland af sparnaði og trygging- um og er ætlað að vera viðbót við lífeyrissparnað. Oll söfnunin er ávöxtuð í sérstökum verð- bréfasjóðum sem voru stofnaðir í þessum tilgangi. Sjóðirnir og rekstrarfélagið eru í sameign Landsbréfa og Fjárvangs og er Fjárvangur vörsluaðili fyrir sjóðina. Hluthafafundur Hans Petersen hf. Nýir eigendur fá sæti í stjórn GENGIÐ hefur verið frá kaupum Opinna kerfa hf. og Þróunarfélags- ins hf. á rúmlega 36% hlut í Hans Petersen hf., umboði Kodak. Eiga fyrirtækin tvö jafnan hlut í félaginu. Á hluthafafundi í gær var kjörin ný stjórn Hans Petersen hf. og tóku Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri Opinna kerfa, og Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags- ins, sæti í stjórn félagsins. Hildur Petersen, framkvæmda- stjóri Hans Petersen hf., segir að það bíði fyrsta stjómarfundar hinnar nýju stjórnar að taka ákvarðanir um framhaldið. Stefnt er að því að gera Hans Petersen að almenningshluta- félagi og verður hugsanlega sótt um skráningu þess á Verðbréfaþingi á næsta ári, samkvæmt upplýsingum Hildar. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa lýst yfir að aukin tölvuvæðing geri samstarf þessara þriggja fyrir- tækja álitlegt. Hans Petersen hf. er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki og er 90 ára á þessu ári. HÓLl FASTEIGNASALA Skipholti 50b -105 - Reykjavík S. 55100 90

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.