Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 20

Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 20
20 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÚRVERINU Ny kerfi ógna Teledesic kerfi Bills Gates Genf. Reuters. MARGMIÐLA gervi- hnattakerfum eins og Skybridge frá Alcatel og Celestri frá Moto- rola hefur fengið tryggingu fyrir að- gangi að vandfundn- um útvarpstíðnisvið- um og tryggð sam- keppni gegn Teledesic kerfi Bill Gates, hins kunna forstjóra Mic- rosofts. Um þetta hafa aðal- lega Bandaríkin og Evrópuþjóðir undir forystu Frakka náð tímamótasamkomu- lagi á alþjóðlegri út- varpsfjarskiptaráðstefnu á vegum alþjóðlega fjarskiptasambandsins, ITU, einni stofnun Sameinuðu þjóðanna, í genf. Ráðstefnuna sóttu 2000 fulltrú- ar frá 142 löndum, þar á meðal talsmenn þrýstihópa. Ákvarðanir ráðstefnunnar verða að samning- um, sem taka munu þegar gildi og 188 aðildarríki ITU verða skuld- bundin að standa við í tvö ár. Á fundinum var í raun og veru gengið að kröfu Evr- ópuríkja þess efnis að svokallað Teledesic kerfi Gates („Internet- in-the-Sky“) og fjar- skiptafrumhetjans að Craig McCaw missi raunverulega einokun á aðgangi að útvarps- breiðböndum, sem það fékk í ITU viðræðum 1995. Fyrirætlunin er metin á 9 milljarða dollara og nýtur stuðninfs Boeings. Einokun útilokuð Málsvari ITU sagði þegar samkomulag hafði náðst að á það hefði verið lögð áherzla á ráðstefnunni að skipta yrði breiðbandinu og útiloka einokun. Mikið var í húfi á ráðstefnunni, þar sem baráttumenn hraðvirkra fjarskiptakerfa reyndu að náð að- gangi að eftirsóttum útvarpstíðni- sviðum ætluðum undruðum gervi- hnatta sem ráðgert er að skjóta frá því árið 2001 að sögn fulltrú- anna. Bill Gates Gerstner hjá IBM í 5 ár enn Armonk, New York. Reuters. LOUIS GERSTNER Jr. forstjóri IBM hefur samþykkt að vera við stjórnvölinn í fimm ár enn að sögn fyrirtæksins. Gerstner er 55 ára að aldri og hefur verið stjómarformaður síðan 1993. Hann fær forkaupsrétt á 2 milljónum hlutabréfa í IBM sam- kvæmt vinnusamningi. Áður lyá Nabisco í viðtali við Wall Street Journal kvaðst Gerstner líta svo á Ð aðeins helmingi starfs hans hjá IBM væri lokið. „Fyrri hlutinn var í því fólginn að gera fyrirtækinu kleift að halda Tietmeyer vill sátt um yfir- mann ECB Frankfurt. Reuters. HANS TIETMEYER, yfír- maður þýzka seðlabankans, kveðst vilja skjóta lausn á deilu um yfirmann fyrirhug- aðs seðlabanka Evrópu, ECB. Frakkar hafa valdið ljaðra- foki með tillögu um að yfir- maðurinn verði franski seðla- bankastjórinn Jean-Claude Trichet. Þjóðveijar styðja Duisenberg Áður hafði verið þegjandi samkomulag um að yfirmaður peningamálastofnunar Evr- ópu, EMI, Wim Duisenberg frá Hollandi, fengi starfið. Framboð Duisenbergs nýt- ur stuðnings Þjóðveija. EMI er forveri ECB. velli og styrkjast," sagði hann. „Nú þurfum við að breyta styrk í for- ystu.“ Áður en Gerstner hóf störf hjá IBM var hann stjórnarformaður RJR Nabisco Inc. í fjögur ár. Þar áður starfaði ahnn í 11 ár hjá American Express Co., þar sem hann var forstjóri móðurfyrirtæk- isins og stjórnarformaður stærsta dótturfyrirtækisins. American Ex- press Travel Related Services Co. Gerstner er forstjóri Bristol- Myers Squibb Co. og hefur setið í stjórnum American Express, AT&T Corp., Caterpillar Inc., og Thee New York Times Co. ------» ♦ ♦------ Býður VW í Volvo? Frankfurt. Reuters. VOLKSWAGEN, sem hefur látið í ljós hug á að kaupa Rolls-Royce, íhugar að kaup hlut í AB Volvo eða að kaupa fyrirtækið á einu bretti. Þýzka vikuritið Stern, sem skýr- ir frá þessu, segir að VW og Volvo ræði hugsanlegan samning. ------»-♦-♦-...-. Bankasam- runi vestra Fíladelfíu. Reuters. BANKARNIR First Union Corp. og CoreStates Financial Corp. hafa skýrt frá 16,6 milljarða dollara samruna, hinum mesta í sögu bandarískra banka. Samkvæmt samningum fá hlut- hafar CoreStates 83,84 dollara í First Union hlutabréfum fyrir hvert bréf í CoreStates. Kaupandinn, First Union, sagði að samningurinn mundi auka hagn- að fyrirtækisins á 18 mánuðum. Morgunblaðið/Golli FULLTRÚAR á Fiskiþingi, því 56. í röðinni en það var fyrst haldið árið 1913. Vill fiskvinnslubónus og afnám ieigukvóta verðmæti, fiskverkafólksins. Það væri kannski ekki að undra þótt fólkið flýði sjávarplássin því að síð- arnefndi hópurinn til dæmis byggi við ekkert atvinnuöryggi og reglurn- ar um atvinnuleysisbætur væru óvið- unandi. Allur afli á markað 56. Fiskiþing samþykkti einnig, að allur sjávarafli skyldi verða verð- lagður á fiskmarkaði, með tengingu við markaðsverð eða við afurðaverð. Var þessi tillaga samþykkt fyrst í nefnd með 10 atkvæðum gegn fjór- um og á þinginu urðu nokkrir til að benda á, að hér væri verið að fara inn á kjaramál, sem ættu heima á öðrum vettvangi. Stuðningsmenn tillögunnar sögðu, að vissulega væri um kjara- mál að ræða en jafnframt eitt mesta deilumálið innan sjávarútvegsins, verðmyndunina. Með henni væri ver- ið að benda á farveg, sem hugs- anlega gæti rutt þessum stóra steini úr vegi. Andmælendur tillögunnar héldu því fram, að vinnslan væri alls ekki undir það búin að fara að keppa um fiskinn á uppboðsmark- aði. Yrði þetta fyrirkomulag ákveðið í skyndingu myndi það leiða til hruns í fiskvinnslunni og Helgi Laxdal, formaður Sjávarútvegs- og allsheij- arnefndar, tók þá fram, að þótt það kæmi ekki fram í tillögunni sjálfri, vekti það fyrir mönnum, að hún yrði tekin upp í áföngum. Af öðrum tillögum má nefna, að skorað var á sjávarútvegsráðherra að taka til endurskoðunar kvótaálag vegna útfiutnings á ferskum, óunn- um fiski og því var beint til ráðherr- ans, að hlutfalli slægðs og óslægðs þorsks á tímabilinu 1. febr. til 1. maí yrði breytt í samræmi við niður- stöður rannsókna. Skorað var á stjórnvöld að láta kanna áhrif flot- trolls og hringnótar við veiðar á síld og loðnu á þá stofna og marka síðan skýra stefnu um notkun veiðarfær- anna. Áður hefur væntanlegum skipu- lagsbreytingum á Fiskifélaginu verið gerð skil en Fiskiþing samþykkti ýmsar ályktanir varðandi umhverf- ismál. Meðal annars, að ekki yrði lit- ið á sjávarútveginn sérstaklega þegar rætt væri um að takmarka mengun og lagt var til, að mótuð yrði sérstök umhverfísstefna fyrir íslenskan sjáv- arútveg. Þá var vakin athygli á nauð- syn rannsókna á þeim svæðum í Faxaflóa og við Reykjanes þar sem fyrirhuguð væri vinnsla vegna hugs- anlegrar magnesíumverksmiðju með tilliti til áhrifa á lífríkið. Að lokum má þess geta, að 56. Fiskiþing mótmælti hugmyndum um flutning Stýrimanna- og Vélskólans úr núverandi húsnæði. SAMÞYKKT var á 56. Fiskiþingi, sem lauk Grand Hótel í gær, að skora á stjómvöld að breyta núver- andi reglugerð um veiðar í atvinnu- skyni þannig, að landaður botn- fiskafli til vinnslu innanlands teldist aðeins að hluta í kvóta viðkomandi skips. Lagt var til, að allur afli færi á markað og einnig var samþykkt tillaga frá Guðjóni A. Kristjánssyni um að leigukvótaframsal yrði aflagt og aðeins heimiluð jöfn skipti á afla- heimildum innan núverandi físk- veiðastjórnkerfís. Af fjölmörgum tillögum Fiski- þings urðu einna mestar umræður um tvær fyrrnefndar tillögur en fram kom hjá þeim, sem mæltu fyr- ir og með tillögunni um sérstakan kvótabónus til skipa, sem lönduðu til vinnslu innanlands, að markmiðið með henni væri að styðja við land- vinnsluna. í upphaflegri tillögu um físk- vinnslubónusinn var lagt til, að afli fískiskipa, sem lönduðu til vinnslu innanlands, yrði aðeins talinn til kvóta að 80% en í tillögunni, sem kom frá Sjávarútvegs- og allsheij- arnefnd, var sú tala felld út og orða- lagið að hluta sett í staðinn. Ekki var þó gerð nein tillaga um hvar taka ætti þennan bónus en í máli manna komu fram ýmsar hugmynd- ir, meðal annars, að ákveðinn kvóti yrði lagður til hliðar við kvótaúthlut- un hveiju sinni og jafnvel, að hann yrði sóttur með sérstöku álagi á frystitogarana. Einn fundarmanna benti á, að þetta fyrirkomulag eða óbeinn stuðningur við fiskvinnsluna væri nú þegar við lýði þótt með öfugum formerkjum væri. Kæmi það fram í þeirri skerðingu, sem yrði hjá þeim, sem flyttu út ferskan físk, og væri mismikil eftir tegundum. Að loknum umræðum um tillöguna var hún samþykkt með góðum meirihluta. Leigukvótaf ramsalið óvinsælt Miklar umræður urðu um tillög- una um afnám leigukvótaframsals og að aðeins yrðu leyfð jöfn skipti á aflaheimildum. í henni segir einn- ig, að stöðvist skip vegna bilunar eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum í langan tíma, geti eigandi þess geymt sér kvótann til næsta árs ef þurfa þykir. I greinargerð með tillögunni seg- ir, að gífurlegt ósætti sé um frjálst framsal aflaheimilda enda hafi það ekki vakað fyrir Fiskiþingi á sínum tíma, þegar það tók afstöðu með aflamarkakerfínu, að leiguframsai yrði aðalmarkmiðið. Markmiðið eigi að vera, að aflaheimildir hvers skips verði veiddar af því. Guðjón A. Kristjánsson, flutnings- Fiskiþing leggur til að allur afli fari á markað maður tillögunnar, sagði, að tekjur útgerðarinnar ættu að verða til af veiðunum en ekki af braski með kvóta. Því bæri að afnema það. Tóku ýmsir undir það og bentu á, að það væru þessi viðskipti, sem almenning- ur í landinu þyldi ekki lengur auk þess sem sjómenn væru víða látnir taka þátt í kvótaleigunni. Á hinn bóginn væri sú hætta fyrir hendi, að yrði leigukvótaframsalið bannað, myndi það verða til að þjappa kvótan- um á enn færri hendur enn nú væri. 111 en óhjákvæmileg nauðsyn? Þeir, sem studdu fijálst framsal veiðiheimiida, bentu á, að það stuðl- aði að aukinni hagræðingu og hefði áhrif í þá átt að minnka flotann, sem væri nauðsynlegt. Þar fyrir utan væri varasamt að hrófla of mikið við núverandi kerfi þar sem þar yrði að ríkja stöðugleiki umfram allt. Ekki færi þó á milli mála, að kerfið væri óvinsælt og við því yrði að bregðast með einhveijum hætti og draga úr leigunni með öðrum hætti en beinu banni. Sú rödd heyrðist líka, að þótt leigukvótaframsalið væri hábölvað, þá ættu margir ekki annan kost. Án þess gætu þeir ekki gert út og ef það yrði bannað, yrði um leið að binda við bryggju fjöldamarga ver- tíðarbáta. Kvótinn, sem þessi skip hefðu, gæti kannski dugað í nokkrar vikur og því væri það betra fyrir sjómennina til dæmis, að hægt væri að leigja kvóta svo þeir hefðu vinnu alla vertíðina. Með afnáminu væri í raun verið að gera út af við einstakl- ingsútgerð í landinu. Kvótakerfíð eða núverandi físk- veiðistjórnunarkerfí átti sína tals- menn á Fiskiþingi þótt ýmsir lýstu andstöðu við það eða vildu gera á því einhveijar breytingar. Kom það vel fram í umræðum um fyrrnefnd mál og önnur, til dæmis um fólks- flutninga af landsbyggðinni. Tók einn fundarmanna þannig til orða, að kvótakerfíð væri að leggja lands- byggðina í rúst og ef fram héldi sem horfði, yrði að stofna sérstakan úr- eldingarsjóð fyrir litlu byggðarlögin til að fólk gæti komið sér suður með reisn. Um það var líka spurt hvernig kvótinn hefði orðið til og sagt, að svarið við því væri veiðireynsla út- gerðarmanna. Þá gleymdist hins vegar að geta þeirra, sem hefðu veitt fískinn, sjómannanna, og þeirra, sem hefðu unnið úr honum I k \ i > >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.