Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 21
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Fiskanesflotinn
stækkar
FISKANES í Grindavík hefur
eignast nýtt skip, Albatros GK
60, en það hét áður Vinur IS
8,257 brúttótonn, og var gert
út frá Bolungarvík. Fylgdi
kvóti með í kaupunum en skip-
ið verður á Iínu eins og verið
hefur og er með beitningavél
um borð. Skipstjóri er Kol-
beinn Marinósson. Með Albat-
ros bætist enn eitt fuglsnafnið
við hjá Fiskanesi en fyrir eru
Skarfur, Gaukur og Geirfugl
auk annarra skipa.
Hugbúnaður sem
gjörbreytir gæða-
mati sjávarfangs
Samstarfsverkefni Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins, Tæknivals hf.
og Þorbjörns hf.
NÚ ER unnið að þróun hugbúnaðar
sem mun gjörbreyta gæðamati sjáv-
arfangs. Hér er um að ræða tölvu-
vætt skynmat á rækju sem gerir það
kleift að gefa rækjunni einkunn sam-
kvæmt samræmdum gæðastöðlum.
„Þessi matsaðferð gæti haft svipað-
ar breytingar í för með sér fyrir við-
skipti með rækju og gæðamerkingar
á rauðvínum höfðu á sínum tíma.
Ef til vill á hugtakið eðalrækja eftir
að setja svip sinn á rækjuviðskipti
í heiminum í byijun nýrrar aldar,“
segir meðal annars í frétt frá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins,
Tæknivali og Þorbimi hf.
Stöðluð aðferð
Mat á fiski í Evrópu og víðar
hefur fram að þessu byggst á tiltölu-
lega ónákvæmu skynmati sem gefur
frekar takmarkaðar upplýsingar um
gæði hráefnis, m.a. vegna ýmiss
ósamræmis. Til er mun fullkomnari
aðferð, svonefnd gæðastuðulsaðferð
(Quality Index Method), sem upp-
haflega kemur frá Ástralíu en hefur
verið þróuð áfram á Norðuriöndun-
um, meðal annars á íslandi hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Samstarfsverkefni
Síðastliðið haust hófst samstarfs-
verkefni Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins Tæknivals hf. og rækju-
verksmiðju Bakki hf., sem nú hefur
sameinast Þorbirni hf. Verkefnið lýt-
ur að því að smíða hugbúnað vegna
gæðamats á rækju eftir gæðastuðuls-
aðferðinni (QIM). Þorbjöm hf. á Bol-
ungarvík hefur notað gæðastuðulsað-
ferðina við mat á þorski og ýsu í
eitt ár og hefur fyrirtækið mikinn
hug á að koma upp sams konar að-
ferðum fyrir rækju. Gæðastuðulsað-
ferðin tekur öðrum aðferðum fram
við gæðamat á sjávarafangi því mats-
maðurinn þarf að meta alla gæða-
þætti hráefnisins samkvæmt fyrir-
fram stöðluðum aðferðum. Það kem-
ur að mestu leyti í veg fyrir að mat-
ið sé huglægt eða að smekkur eða
persónulegar skoðanir matsmannsins
hafi áhrif á matið.
Einkunnargjöf
Við matið hefur matsmaðurinn
myndir af öllum gæðaþáttum svo-
nefndrar staðalrækju fyrir framan
sig á tölvuskjá ásamt leiðbeining-
um. Hvern gæðaþátt staðalrækj-
unnar ber matsmaðurinn síðan sam-
an við þá rækju að hann er að
meta. Hveijum gæðaþætti er gefin
einkunn sem er færð inn í tölvuna.
Við lok matsins reiknar hún út
heildarmat á afla skips og flokkar
hann eftir gæðastuðli. Þessar upp-
lýsingar les tölvan síðan inn í
vinnslueftirlit og vistar I gagna-
grunni til geymslu og frekari úr-
vinnslu.
Eðalrækjan
„Þessa aðferð má útfæra á allt
fiskmat. Hún kæmi sér til dæmis
mjög vel á fiskmörkuðum þar sem
menn eru að kaupa óséðan afla og
gæðin oft önnur en menn hugðu.
Einnig er hægt að nota hana við
afurðamat. Gæðastuðlar auðvelda
sölu afurða og samskipti við kaup-
endur. Þeir skapa traustan grund-
völl fyrir mismunandi verðflokkum
á rækju svo dæmi sé tekið. Sú rækja
sem næði hæstri einkunn fengi t.d.
stimpilinn eðalrækja og gæðastuð-
ullinn myndi tryggja að verð og
eftirspurn héldist í hendur við gæði.
Lýkur í febrúar 1999
Verkefnið er það langt á veg kom-
ið að prófanir á rækjunni, ásamt
gerð einkunnastiga og ljósmyndun á
rækjunni í mismunandi ástandi eru
vel á veg komnar. Þá er þarfagrein-
ing og kerfissetning vegna hugbún-
aðargerðarinnar á lokastigum. Eig-
inleg forritun hefst á næsta ári en
reiknað er með að verkefninu ljúki
með fullgerðum hugbúnaði í febrúar
1999.
Rannsóknasjóður íslands styrkti
verkefnið um 1,5 milljónir króna
síðastliðið haust en sá styrkur gerði
í raun þetta verkefni mögulegt,"
segja fulltrúar þeirra, sem að verk-
efninu standa.
t i I b o d
bókabúðu m
BOKM.
verdfrál.
„Bókin er réttnefnd Góðra vina
fundur. í henni er líf og fjör. Eftaust
munu margir lesendur hyggja gott
til vinafundar við Kristin. Þeir verða
varia fyrir vonbrigðum...ljúf lesning
...stanslaust fjör.“
Ármann Jakobsson/OV
skenmtun
Kristinn Hallsson er öruggiega með skemmti-
legustu mönnum. Vinsældir hans helgast ekki
aðeins af óumdeildum hæfileikum heldur einnig af
alþýðieika hans, iandsþekktu skopskyni og léttleika.
Þessi bók er er full af frásagnargleði og húmor. Hér
talar söngmaðurinn, gleðimaðurinn, embættis-
maðurinn, sagnamaðurinn og fjölskyldufaðirinn.
Kristinn lyftir spéspegli að samtíð sinni og sjálfum
sér, horfir glaður um öxl og saga hans er sannar-
lega góðra vina fundur.
m - O R L_ /V G 1 Ð
M A L O G IVl E IM N I N G Bfl