Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Aðstoðar IMF leitað vegna fjármálakreppu í Suður-Kóreu Stjórnin óskar eftir 20 milljarða dala láni Seoul. Reuters. FJARMALAKREPPAN I SUÐUR-KOREU Gengi wonsins, gjaldmiðils Suður-Kóreu, og suður-kóreskra verðbréfa hækkaði verulega í gær eftir að skýrt var frá samningaviðræðum stjórnar landsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lán vegna fjármálakreppunnar í landinu. KOSPI vísitalan (við lokun) WON gagnvart doliarnum ígær 1051.0 400 'T'-' 1 1 I i-r-T-r-n-T-n-i-r-|-i-i-, 27.okt. 3. nóv. 10. nóv. 17. nóv. REUTERS 9 1997 1200 11 l1' 1 1 ' l T'~|" T" I ' 'I T I | I I I I 27. okt. 3. nóv. 10. nóv. 17. nóv. 1997 Reuters STANLEY Fisher, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins (t.v.), með Liam Chang-yuel, fjármálaráðherra Suður-Kóreu, eftir fund þeirra í Seoul í gær. STJÓRN Suður-Kóreu kvaðst í gær hafa óskað eftir lánum frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum (IMF) vegna fjár- málakreppu í landinu. Stjómin sagði að 20 miHjarðar Bandaríkjadala, andvirði 1.400 milljarða króna, ættu að nægja en fjármálasérfræðingar töldu að Suður-Kórea þyrfti miklu hærri lán til að leysa efnahagsvand- ann til frambúðar. „Við fórum að ráðum IMF og vinaþjóða okkar og ákváðum að óska eftir lánum frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum,“ sagði fjármálaráðherra Suður-Kóreu, Lim Chang-yuel. „Fjárhæðin verður rædd frekar en við og IMF teljum að 20 milijarðar dala nægi til að leysa vandann.“ Ráðherrann sagði að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn og aðildarríki hans myndu ákveða skilmála fjár- hagsaðstoðarinnar. „Ég tel að við getum fengið lánin þremur eða fjór- um vikum eftir að samkomulag næst.“ Lim viðurkenndi að líklegt væri að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn myndi setja ströng skilyrði fyrir lánveiting- unni og spáði því að þau myndu hafa mikla erfíðleika í för með sér fyrir Suður-Kóreu. Hann hvatti alla landsmenn til að sýna þessu skilning og taka höndum saman til að sigrast á erfiðleikunum. 70 milljarðar nærri lagi Fjármálakreppan á rætur að rekja til gjaldþrota sem hafa sligað banka landsins og valdið gengishruni á verðbréfa- og peningamörkuðum Suður-Kóreu á síðustu vikum. Fjármálasérfræðingar í London sögðu að 20 milljarðar dala myndu ekki nægja til að leysa vandann og töldu að 70 milljarðar dala, andvirði 4.900 milljarða króna, væru nærri lagi. Beiðni stjómarinnar væri að- eins bráðabirgðaráðstöfun, sem dygði aðeins til áramóta, og mörg fyrirtæki myndu eftir sem áður ramba á barmi gjaldþrots vegna holskeflu gjaldfallinna skammtíma- lána. Fjölmiðlar í Suður-Kóreu hafa sagt að lánin þurfi að nema 50-60 milljörðum dala, andvirði 3.500-4.200 milljarða króna, og nokkrir þeirra hafa sagt að Iandið þurfi allt að 100 milljónum dala, tæpum 7.100 milljörðum króna, áð- ur en yfir lýkur. Mesta aðstoð sem Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn hefur veitt til þessa nam rúmum 50 milljörðum dala. IMF lofaði Mexíkó þeirri aðstoð ár- ið 1995. Gengi verðbréfa og suður- kóreska gjaldmiðilsins, vonnsins, hækkaði verulega í gær eftir að skýrt var frá beiðni stjórnarinnar. Varpar skugga á APEC-fund Fjármálakreppan í Suður-Kóreu og fleiri Asíuríkjum hefur varpað skugga á undirbúningsviðræður embættismanna frá aðildarríkjum Efnahagsráðs Asíu- og Kyrrahafs- ríkja (APEC) vegna leiðtogafundar samtakanna í Vancouver í Kanada á mánudag og þriðjudag í næstu viku. Charlene Barshefsky, viðskipta- fulltrúi Bandaríkjanna, sagði á fyrsta degi viðræðnanna á fimmtu- dag að stjórnvöld í Bandaríkjunum viídu gera ráðstafanir til að binda sem fyrst enda á umrótið á fjár- málamörkuðum Asíu. APEC stefnir að því að koma á fríverslunarsvæði í aðildarríkjunum fyrir árið 2020 og gert hafði verið ráð fyrir því að leiðtogafundurinn snerist aðallega um aðgerðir til að auka viðskiptafrelsið. Embættis- menn í Vancouver segja að fjár- málakreppan í Asíu hafi sett strik í reikninginn og verði rauði þráður- inn í viðræðunum. Ólga innan Líkud-bandalagsins í Israel Milo sagður íhuga stofnun nýs flokks Jerúsalem. Reuters. Reuters BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðherra ísraels. SAMKVÆMT nýjustu fréttum í gærkvöldi hafði Benjamin Netanya; hu, forsætisráðherra ísraels, ekki tekist að lægja öldumar í Líkud- bandalaginu vegna óánægju at- kvæðamikilla manna í flokknum með störf hans. Óstaðfestar fregnir hermdu að Roni Milo, borgarstjóri Tel Aviv, væri að íhuga að stofna nýjan flokk eftir helgi. Þá var Limor Livnat samskiptaráðherra sögð vera að íhuga afsögn. Mikil óánægja hefur ríkt meðal ráðherra og þingmanna bandalags- ins vegna þeirrar ákvörðunar mið- stjórnarinnar að fella niður prófkjör og Netanyahu setti á fimmtudag fram málamiðlunartillögu um að gengið yrði til atkvæðagreiðslu inn- an bandalagsins um hvernig þing- mannsefni flokksins skyldu valin. Áður hafði forsætisráðherrann lagt til að stofnuð yrði nefnd til að fjalla um kvartanir vegna ársfundar miðstjórnarinnar sem fram fór í byrjun nóvember. Fyrir ársfundinn hafði Netanyahu lofað ráðherrum sínum að atkvæða- greiðsla um það hvort prófkjör yrðu lögð niður færi ekki fram fyrr en í febrúar. Þegar á hólminn var komið varð hann hins vegar að láta í minni pokann fyrir meðlimum miðstjórn- arinnar sem gengu til atkvæða- greiðslu um málið, þvert á tilmæli hans, og samþykktu með 60% at- kvæða að leggja niður prófkjör sem tekin voru upp fyrir nokkrum árum. 2000 manns eiga sæti í miðstjórn Líkud-bandalagsins en flokksbundn- ir meðlimir eru rúmlega 200.000. Uppreisnarmenn hvöttu til klofnings Eftir fundinn á fimmtudag, sem var fyrsti fundur Netanyahus með blaðamönnum frá því hann sneri heim úr ferð til Bretlands og Banda- ríkjanna á miðvikudag, lýstu ráð- herrar og þingmenn bandalagsins yfir ánægju með þessa málamiðlun þó framkvæmd hennar væri óljós og Netanyahu hafi tekið fram að síðasta orðið yrði eftir sem áður hjá mið- stjórninni. Netanyahu hefur á undanfömum dögum lagt sig fram um að lægja öldur innan flokksins og m.a. átt fundi með ráðherrum og þingmönn- um. Lengstur var fundur hans með Limor Livnat sem var sögð vera að hugleiða að segja af sér embætti samskiptaráðherra. Notar ekki stjórnarbreytingar sem hótanir Mikil óánægja blossaði upp innan Líkud-bandalagsins eftir niðurstöðu ársfundarins, sem talin var styrkja stöðu Netanyahus en veikja stöðu ráðherra hans og þingmanna, og not- uðu óánægðir áhrifamenn tækifærið á meðan forsætisráðherrann var er- lendis til að lýsa yfir óánægju með forystu hans og kvetja til klofnings innan þingflokksins. Samkvæmt frétt í The Jerusalem Post í gær vísaði Netanyahu þvi á bug á fundinum að hann hygðist boða til kosninga fyrir lok kjörtlma- bilsins og sagði aðspurður um þrá- látan orðróm þess efnis að unnið væri að stofnun nýrrar ríkisstjórn- ar, með þátttöku Verkamanna- flokksins, að slíkt kæmi ekki til greina án þess að allir hlutaðeigandi flokkar gengju að þeim starfs- grundvelli sem núverandi ríkis- stjórn hefði þegar komið sér saman um. Þá þvertók hann fyrir að nota stofnun slíkrar stjórnar til að hóta ráðherrum sínum. Yasser Arafat Getur ekki gleymt Rabin Nýju-Delhi. Reuters YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, sagði á Indlandi í gær að ósamræmis gætti í viðbrögðum Vesturveldanna gagnvart írak ann- ars vegar og fsrael hins vegar. Þá sagði hann friðarferli Israela og Palestínumanna liafa siglt í strand vegna óbilgirni ísraela. „Hvers vegna er ekki sama áhersla lögð á að ísraelar hlíti fjöl- mörgum ályktunum öryggisráðs og allshetjarþings Sameinuðu þjóð- anna allt frá árinu 1947 og lögð er á að Irakar hlíti einni ákvörðun ör- yggisráðsins?“ spurði Arafat sem staddur er í þriggja daga ferð á Indlandi. Um Yitzhak Rabin, forsætisráð- herra ísraels, sem var myrtur fyrir tveimur árum sagði Arafat: „Ég get ekki gleymt félaga minum Rabin sem ég hafði undirritað friðarsam- komulag við í Hvíta húsinu.“ Þá benti hann á að skuldbindingar Ósióarsamningsins væru ekki einkamál fsraela og Palestínu- manna heldur undirritaðir í viður- vist Bills Clintons Bandaríkjafor- seta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.