Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 23 Harmleik- ur í Alpa- þorpi FIMM manns að minnsta kosti biðu bana er 36 ára maður, vopnaður skammbyssu, gekk berserksgang í þorpinu Maut- erndorf í Salzburgarhéraði í Austurríki í gær. Myrti hann nágranna sinn, konu hans og dóttur, sem bjuggu í sama húsi, og síðar aðstoðarsveitar- stjórann sem reyndi að miðla málum. Særði maðurinn tvo til viðbótar en stytti sér svo aldur. Denver varð bensínlaus FLUGVÉL bandaríska söngv- arans Johns Denver hrapaði í Montereyflóa vegna bensín- leysis að öll- um líkindum, að því er sjónvarps- stöð í San Francisco hafði eftir mönnum sem unnið hafa að rannsókn á því hvers vegna flugvél Denvers fórst. Sýnt þykir að hann hafi freistað þess að skipta yfir á annan tank en ekki tekist í tæka tíð. Fórust á flóttanum FIMM ólöglegir innflytjendur drukknuðu og 12 er saknað eftir að lítill seglbátur, sem þeir hugðust sigla á frá Durr- es í Albaníu til suðurhluta ítal- íu, lenti í óveðri og haugasjó. Tíu manns, allir mjög hraktir, voru enn í bátnum er varðskip fann hann í gær 40 km norð- ur af Brindisi. Mandela vill miðla málum NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, hyggst freista þess að miðla málum í deil- unni um Austur- Tímor en Su- harto Indó- nesíuforseti dvelst nú sem gestur Mandela í Suður-Afr- íku. Sökkti báti Bastesens BANDARÍKJAMAÐUR hefur lýst því yfir að hann hafi sökkt hvalveiðibáti norska þing- mannsins Steinars Bastesens í Bronnoysund í vikunni sem leið. Maðurinn sendi Bastesen bréf þar sem hann játar þetta og telur lögregla ekki ástæðu til að rengja hann. Danadrottn- ing til Brasilíu MARGRÉT önnur Dana- drottning fer í opinbera heim- sókn til Brasilíu 17.-26. maí næstkomandi, að því er brasil- ísk yfirvöld skýrðu frá í gær. Mandela Carl Bildt kynnir bók um uppbyggingarstarfið 1 Bosníu Lofsamar fram- lag Rússlands RÚSSUM hefur verið hrósað mjög fyrir framlag þeirra til að leysa deilu íraka og Sameinuðu þjóð- anna og nú hef- ur Carl Bildt, leiðtogi sæn- skra hægri- manna, sem hafði umsjón með alþjóðlegu uppbyggingar- starfi í Bosníu, lýst því yfir að aðild þeirra að uppbyggingunni þar hafi ekki ver- ið metin að verðleikum, að því er segir í Jyllands-Posten. Bildt kynnti á fimmtudag bók sem hann hefur skrifað um starf sitt í Bosníu. í bókinni staðfestir Bildt mikil- vægi framlags Bandaríkjamanna til Dayton-friðarsamninganna. Hann gagnrýnir þá hins vegar harðlega fyrir að hunsa Rússa í friðarviðræðunum og gera lítið úr frumkvæði þeirra og framlagi. Bildt kveðst hafa átt afar gott samstarf við rússnesku utanríkis- ráðherrana, fyrst Andrej Kozyrev og svo Jevgení Prímakov. Bildt talar varlega um flesta menn sem hann átti samskipti við en ræðst hins vegar harkalega á ýmsar stofnanir, t.d. öryggisráð Samein- uðu þjóðanna, sem gaf út fjórar yfirlýsingar sem Bildt segir hafa verið órafjarri raunveruleikanum, Evrópusambandið, sem hafi viljað en ekki getað gert neitt, NATO sem hafi getað en ekki viljað gera neitt og að síðustu Bandaríkin sem í fyrstu hafi ekki viljað neitt en svo viljað ákveða allt. Sjálfur segist Bildt vera ánægð- ur með starf sitt. Carl Bildt Sýning um helgina Þeir sem staðfesta pöntun á jeppa fá ferð með jeppadeild Útivistar að eigin vali. Til að ná sem bestum akstureiginleikum er mikið hjólhaf höfuðatriði. Hjólhaf Opel Frontera er meira en annarra jeppa og skilar það sér í afburða aksturseiginleikum * Byggður á sjálfstæðri grind. Millikassi, hátt og lágt drif. Mjúk og slaglöng gormafjöðrun. Tregðulæst drif. Upphitað sæti og rafdrifnar rúður. Rafdrifnir og upphitaðir útispeglar. Fjarstýrðar samlæsingar. Vökva- og veltistýri. Opel Frontera er sparneytnari en nokkur annar stór ieie jeppi. Hann eyðir aðeins 10 lítrum á hundraði. Verð frá kr. 2. Þeir sem reynsluaka jeppa geta dottið í lukkupottinn og unnið ferð með ^úmviST * Hjólahaf Opel Frontera er meira en Mitsubishi Pajero, Toyota Land Cruiser og Ssangyong Musso til að nefna elnhverja. ** Miðað vlð 90 km meðalhraða. 3ja ára ábyrgð. 8 ára ryðvarnar- ábyrgð. opel# Bílheimar ehf. - þýskt eðalmerki Sævarhöfða 2a • Reykjavík • Sími 525 9000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.