Morgunblaðið - 22.11.1997, Side 24
24 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ihaldsflokkurinn í Bretlandi á enn undir högg að sækja
Deilur blossa upp eftir
ófarir í aukakosningum
íi. Rputi>rs.
London. Reuters.
DEILUR blossuðu upp að nýju í
íhaldsflokknum í Bretlandi í gær í
kjölfar ófara í tvennum aukakosn-
ingum, sem haldnar voru í fyrradag.
Helsti talsmaður aðildar Breta að
Evrópusambandinu (ESB) innan
flokksins, Peter Temple-Morris,
sagði sig úr flokknum en áður hafði
hann verið leystur ótímabundið
undan þingflokksaga sem jafngildir
útskúfun úr flokknum.
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, beitti sér fyrir því að
Temple-Morris var í gærmorgun
leystur undan flokksaga eftir að
hann hafði ítrekað dregið í efa opin-
berlega að hann ætti samleið með
flokknum. í ljós hefur og komið að
hann hefur tvisvar rætt við Tony
Blair forsætisráðherra, leiðtoga
Verkamannaflokksins, á undanfóm-
um vikum í þeim tilgangi að kanna
möguleika á því að ganga til liðs við
stjómarþingmenn.
Vart hafði Temple-Morris verið
leystur undan flokksaga er Michael
Heseltine, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra, ýfði upp gömul sár
með því að gagnrýna ákvörðun
Hagues opinberlega. Heseltine, sem
gagnrýnt hefur stífni Hagues gagn-
vart aðild að sameiginlegri Evrópu-
mynt, kom fram í sjónvarpi og sagði
ákvörðun flokksleiðtogans gagnvart
Temple-Morris bæði „óþarfa og
óviturlega". „Pingmaðurinn endur-
speglar viðhorf innan íhaldsflokks-
ins sem við eigum fremur að ýta
undir en segja skilið við“, sagði
Heseltine.
Temple-Morris óháður
Hague svaraði fyrir sig og sagðist
ekki hafa átt annarra kosta völ eftir
fundi Temple-Morris með Blair.
„Það er eins og að stjóma fót-
boltaliði þar sem einn leikmannanna
segist hugsanlega ætla að spila með
hinu liðinu í seinni hálfleik. Það
gengur ekki í stjómmálaflokki,"
sagði hann.
I stað þess að ganga til liðs við
Verkamannaflokkinn sagðist
Temple-Morris í gær ætla að starfa
sem sjálfstæður íhaldsmaður og
njóta samviskufrelsis í stað þess að
bindast flokki sem hann gerðist í
auknum mæli fráhverfur.
Talsmaður Verkamannaflokksins
sagði að líta bæri á brottvikningu
Temple-Morris í ljósi hörmulegra
úrslita aukakosninganna fyrir
íhaldsflokkinn. Útkoma flokksins í
þeim var mun verri en í þingkosn-
ingunum 1. maí sl.
Betur heima setið
í Winchester knúðu íhaldsmenn
fram aukakosningar á grundvelli
þess að 55 atkvæði hefðu ekki verið ’
talin í vor vegna þess að þau vom
ekki réttilega stimpluð. Frambjóð-
andi Frjálsra demókrata, Mark
Oaten, vann sæti af þingmanni
Ihaldsflokksins, Gerry Malone,
með aðeins tveimur atkvæðum 1.
maí. Ihaldsmenn töldu að vafaat-
kvæðin hefðu verið þeirra megin
og kærðu niðurstöðuna og knúðu
fram aukakosningar. Kjósendum
fannst strax að Malone hefði átt að
játa ósigur og sagði það til sín nú
því Oaten hlaut 21.000 atkvæðum
meira en Malone í fyrrakvöld.
Stuðningsmenn Verkamannaflokk-
sins virtust og snúast á sveif með
Oaten því frambjóðandi flokksins
hlaut aðeins 944 atkvæði. Með úr-
slitunum hefur flokkur Frjáls-
lyndra demókrata 46 þingmenn og
með brottvikningu Temple-Momis
fækkar þingmönnum íhaldsflokks-
ins í164.
í kjördæminu Beckenham í suð-
austurjaðri London var efnt til
aukakosninga eftir að íhaldsþing-
maðurinn Piers Merchant neyddist
til að segja af sér vegna ásakana um
framhjáhald með ungri stúlku.
Hann vann 1. maí með 5.000 at-
kvæða meirihluta en arftaki hans,
Jacqui Lait, hélt sætinu með aðeins
1.200 atkvæða meirihluta.
Hefur ekki skipt um skoðun
Cecil Parkinsson, formaður
Ihaldsflokksins, sagði í gær, að
flokknum hefði verið hafnað i þing-
kosningunum í vor og þjóðin hefði
greinilega ekki skipt um skoðun
enn.
Tony Blair sagði að úrslitin í
aukakosningunum og brottfór
Temple-Morris skildi íhaldsflokk-
inn eftir í enn verra ástandi en eftir
þingkosningamar og Paddy Ash-
down, leiðtogi Frjálslyndra demó-
krata, sagði að allt tal að undan-
förnu um að íhaldsflokkurinn væri í
sókn á ný væri þvaður.
Niðurrifi
þinghúss
mótmælt
STUÐNINGSMENN flokks
fyrrverandi kommúnista í
Austur-Þýskalandi, PDS, hafa
efnt til mótmæla vegna niður-
rifs Lýðveldishallarinnar í
Berlín, sem hýsti austur-þýska
þingið fyrir sameiningu Þýska-
lands árið 1990. Tveir af for-
ystumönnum flokksins eru hér
á byggingnnni að setja upp
mótmælaborða með áletrun-
inni: „Stöðvið niðurrif hallar-
innar!“
Reuters
Dóttir Pandys
sögð játa á
sig morð
Brussel. Reuters.
ELZTA dóttir Andras Pandys,
prestsins af ungverskum uppruna
sem ákærður er í Belgíu fyrir að
hafa myrt tvær eiginkonur sínar
og fjögur af átta bömum, hefur
játað að hafa skotið móður sína
og bróður og að hún hafl fimm
mannslíf á samvizkunni. Sagt var
frá þessu í belgískum fjölmiðlum í
gær.
Saksóknari í Brassel greindi í
gærmorgun frá handtöku dóttur-
innar, Agnesar Pandy, og að hún
hefði verið ákærð fyrir að hafa
„framið eða átt þátt í morðum og
morðtilræðum". Skrifstofa sak-
sóknara var þó að svo komnu
máli ekki reiðubúin að staðfesta
fregnir fjölmiðla af játningum
Agnesar.
Agnes, sem er 39 ára, ákærði
föður sinn 1991 fyrir kynferðis-
lega misnotkun og lýsti áhyggj-
um af örlögum nokkurra meðlima
fjölskyldunnar, sem höfðu horfíð í
lok níunda áratugarins. Rann-
sókn málsins þá skilaði engum ár-
angri og var hætt. Rannsókn var
hafín á ný í september sl. og við
húsleit í tveimur húsum í Brassel,
sem Pandy á, fundust mannabein
grafin og óþekkt kjöt í frysti.
Fundið hefur verið út að beina-
leifamar séu af fjórum manneskj-
um, en samkvæmt niðurstöðum
DNA-prófs era þær ekki úr
Pandy-fjölskyldunni. Samkvæmt
frásögn dagblaðsins Le Soir gætu
beinin verið leifar fyrrverandi
vina Agnesar, sem komið hefðu
fi’á Ungverjalandi í heimsókn til
Brassel.
Andras Pandy hefur haldið því
staðfastlega fram að fólkið sem
hvarf hafi farið til Ungverjalands.
Dutroux
kveðst saklaus
Samtímis þessum nýjustu
óhugnaðarfregnum birti belgíska
dagblaðið La Derniere Heure í
gær bréf frá hinum dæmda bam-
aníðingi Marc Dutroux, sem er í
gæzluvarðhaldi vegna ákæra fyr-
ir morð á samstarfsmanni sínum
og fjóram stúlkum. I bréfinu seg-
ir Dutroux m.a. að dauði stúlkn-
anna hafi hvorki verið að ósk
sinni né hafi hann beinlínis tengst
honum.
Persson
sætir
ámæli
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞEGAR Göran Persson, forsætis-
ráðherra Svía, hafði viðkomu á
Keflavikurflugvelli fyrir skömmu á
leið sinni vestur um haf var hann í
lítilli þotu, sem leigð hafði verið und-
ir hann til ferðarinnar. Auk tveggja
lífvarða og samstarfsmanns voru
kona hans og fjögur börn þeirra
hjóna með í forinni. Kostnaðurinn
varð um þrettán milljónir íslenskra
króna og segir Persson nú að hann
hefði ekki leigt vélina, ef honum
hefði verið ljóst hversu dýrt það
væri.
Frá því Persson tók við embætti í
mars 1996 nemur kostnaður vegna
leigufluga 25 milljónum króna og
hefur hann lýst því yfir að hann vilji
láta fara fram rannsókn á ferða-
kostnaðinum.
Sænska stjómin hefur afnot af
tveimur litlum þotum, sem flugher-
inn rekur. Sú stærri var í skoðun á
þessum tíma og því ekki tiltæk, en sú
minni er ekki notuð í langflug. Ingv-
ar Carlsson, fyrirrennari Perssons
og flokksbróðir, ferðaðist alltaf með
áætlunarflugi, en samkvæmt blaða-
fulltrúa Perssons fór sænska örygg-
islögreglan fram á að Persson flygi í
einkaþotu, auk þess sem álitið var
hentugt að hafa þotu til taks, ef for-
sætisráðherrann neyddist til að
breyta ferðaáætlun sinni skyndilega.
Persson segist nú ætla að fylgjast
sjálfur með ferðakostnaði, en hingað
til hafi ferðimar verið skipulagðar af
starfsfólki hans.
Málið þykir nokkuð óþægilegt fyr-
ir Persson, því hann hefur gert mikið
úr gildi spamaðar og aðhalds.
---------------------
Yarnir Noregs
Þjóðverjar til
ráðgjafar
í NÝRRI bók um norsku leyniþjón-
ustuna er sagt frá því að yfirmenn í
þýska hernum, sem gegndu lykil-
hlutverki við hernám Noregs á
stríðsái-unum, hafi verið fengnir til
ráðgjafai- um vamir Norður-Nor-
egs, aðeins fjóram árum eftir stríðs-
lok. Frá þessu er sagt í Aftenposten.
í bók sagnfræðinganna Olavs
Riste og Amfinns Molands kemur
fram að óttinn við innrás Sovétríkj-
anna í Norður-Noreg hafi verið svo
mikill að ákveðið hafi verið að fá
Þjóðverja til aðstoðar. Þeir dvöldu í
Noregi undir dulnefni í rúman mán-
uð árið 1949 við ráðgjöf. Fullyrða yf-
irmenn leyniþjónustunnar að ekki
leiki nokkur vafi á því að Þjóð-
verjarair, tveir liðsforingjar og einn
aðmíráll, hafi engu leynt og að upp-
lýsingar þeirra hafi komið Norð-
mönnum að góðum notum.
Víst er að þessar upplýsingar
munu koma illa við marga Norð-
menn, sérstaklega þá sem muna
hernám Þjóðverja, en þeir skildu
eftir sig sviðna jörð í Finnmörku og
Troms í stríðslok.
Fjármálaráðherra Finnlands um fyrirhugað EMU-ráð
Helsinki. Reuters.
SAULI Niinisto, fjármálaráðherra
Finnlands, segir að sérstakt óform-
legt ráðherraráð aðildarríkja Efna-
hags- og myntbandalags Evrópu
(EMU) muni tryggja að öll ríki,
sem nota nýja Evrópugjaldmiðil-
inn, evró, taki þátt í umræðum um
málefni myntbandalagsins.-Eðlilegt
sé að ríki, sem ekki nota gjaldmiðil-
inn, standi utan ráðsins.
Frakkar og Þjóðverjar hafa lagt
til að óformlegt EMU-ráð komi
saman kvöldið fyrir reglubundna
fundi efnahags- og fjármálaráð-
herra ESB, ræði málefni mynt-
bandalagsins og samræmi stefnu
sína í efnahagsmálum. Gert er ráð
fyrir að eingöngu ríki, sem aðild
Eðlilegt að aðeins
EMU-ríkin séu með
eiga að EMU,
taki þátt í þessum
óformlegu fund-
um. Danmörk,
Svíþjóð og Bret-
land, sem hyggj-
ast standa utan
EMU í fyrstu,
hafa mótmælt tillögunni harðlega.
Finnar hyggja hins vegar á
stofnaðild að EMU. Niinisto sagði í
samtali við
Reuters að eðli-
legt væri að ríki
EMU hefðu með
sér samráð um
efnahagsstefnu.
„Enginn getur
vefengt að aðild-
arríkin hafa augljóslega eitthvað að
ræða um fyrst þau munu nota sama
gjaldmiðil," segir Niinisto. „Við vilj-
um vera viss um að þegar rætt er
um gjaldmiðil okkar sitjum við
einnig við borðið."
Ráðherrann segir hins vegar
óeðlilegt að ríki utan EMU, þar á
meðal Danmörk og Svíþjóð, taki
þátt í umræðum um gjaldmiðil, sem
þau ekki noti. „Þegar [Erik] Ás-
brink [fjármálaráðherra Svíþjóðar]
eða einhver annar fjármálaráð-
herra ræðir málefni síns gjaldmið-
ils er mér ekki boðið,“ segir Niini-
sto. „Á sama hátt er það svo að
þegar ég ræði við finnska seðla-
bankann um markið býð ég engum
öðram og ég geri ekki ráð fyrir að
þetta breytist þótt við tökum upp
sameiginlegan gjaldmiðil.“