Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 25 NEYTENDUR Morgunblaðið/Þorkell RAGNHILDUR Sif Reynisdóttir gullsmiður og dóttir hennar, Hlín Gísladóttir, afhentu Leifi Erni Einarssyni verðlaun fyrir teikningu hans af Askasleiki sem nú prýðir jólasveinaskeið Gull- og silfursmiðj- unnar Ernu 1997. Jólasveinaskeiðin 1997 Askasleikir Leifs fékk 1. verðlann LEIFUR Örn Einarsson, tólf ára nemandi í Foldaskóla í Reykjavík, hlaut fyrstu verð- laun í teiknimyndasamkeppni tólf ára nemenda um besta ís- lenska jólasveininn til að útfæra á jólasveinaskeið Gull- og silfur- smiðjunnar Ernu 1997. Jólasveinaskeiðin er sam- starfsverkefni Félags íslenskra myndlistarkennara og Gull- og silfursmiðjunnar Ernu með það að leiðarljósi að tengja atvinnu- líf og skóla. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til samkeppni af þessu tagi og að þessu sinni bárust 65 til- lögur. Allir sem þátt tóku fengu viðurkenningarskjal og Leifur Örn fékk auk þess peningaverð- laun og sjálfa skeiðina. Jólasmákökur frá Frón HUGMYND Leifs Arnar komin yfir á jólasveinaskeiðina, sem nú er seld í verslunum víða um land. ÞAÐ er löngu orðin hefð fyrir því hjá kexverksmiðjunni Frón að baka smákökur fyrir jólin og er nú boðið upp á tíu tegundir. Nýjasta smákökutegundin hjá Frón er hinar svokölluðu stafapipai-- kökur, en auk þeirra eru á boðstól- um vanilluhringir, súkkulaðibitakök- ur, kókoskökur, piparkökur, pipar- dropar, loftkökur, skopparakökur, prakkarakökur og makkarónukökur. I fréttatilkynningu frá Frón kemur fram að salan á Frón-jólasmákökum hafi aukist með hverju árinu og er ekki gert ráð fyrir að þetta ár verði undantekning frá því. Til að anna eft- irspum þurfi að baka um 10 milljónir af smákökum nú fyrir jólin. Frón- jólasmákökur eru fáanlegar í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Reiðhjólasalar undrast staðhæfíngar frá Hvelli ehf. Skráning reiðhjóla hefur tíðkast hér frá upphafi Morgunblaðið/Jim Smart SÉU nöfn kaupenda og stellnúmer reiðhjóla skráð þegar þau eru keypt gerir það hjólaþjófum erfiðara fyrir að koma hjólunum í verð. VEGNA fréttar um skráningu á seldum reiðhjólum hjá versluninni Hvelli ehf. á neytendasíðu á fimmtudag hafa reiðhjólasalar haft samband við Morgunblaðið og bent á að rangt sé að hingað til hafi eng- inn íslenskur reiðhjólasali skráð hjá sér nöfn eigenda, né heldur stellnúmer seldra reiðhjóla. Tekið skal fram að fréttin er alfarið byggð á skriflegum upplýsingum frá Hvelli ehf. og samtali við starfs- mann fyrirtækisins. Reiðhjólaverslanirnar Fálkinn, Örninn, Markið, Hjólið og GÁ Pét- ursson hafa allar þann háttinn á þegar reiðhjól er selt að skrá nafn og kennitölu kaupanda ásamt stell- númeri hjólsins, og hafa raunar gert það frá upphafi. Nokkuð er mismunandi hvenær farið var að tölvuskrá þessar upplýsingar en fyrir þann tíma voru allar nótur geymdar, þannig að þær hafa alla tíð verið aðgengilegar, að sögn for- svarsmanna verslananna. Auk þessarar skráningar reið- hjólaverslananna býður Óryggis- þjónustan Vari reiðhjólaeigendum að skrá hjól sín þar, þeim að kostnaðarlausu. Að sögn Viðars Ágústssonar, framkvæmdastjóra Vara, er þar ekki síst um að ræða þá sem keypt hafa reiðhjól í stór- mörkuðum eða annars staðar þar sem ekki er boðið upp á skrán- ingu eins og í reiðhjólaverslunun- sem haldið var fram að enginn ís- lenskur reiðhjólasali hefði hingað til skráð hjá sér nöfn eigenda, né heldur stellnúmer seldra reiðhjóla. Harald G. Haralds, innkaupastjóri hjá Fálkanum, orðaði það svo að menn hefðu verið „löngu búnir að finna upp hjólið áður en þeir gerðu það í Hvelli". Samkvæmt upplýsingum frá Karli Steinari Valssyni, aðstoðaryf- irlögregluþjóni í forvarnadeild, er lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um 500-800 stolin hjól á ári hverju og hefur þeim heldur farið fjölg- andi á síðustu árum. Af þeim hjólum sem hurfu á síð- asta ári skiluðu rúmlega 400 sér til lögreglunnar og yfirleitt kemst um þriðjungur þeirra hjóla sem þang- að koma aftur í hendur réttra eig- enda, að sögn Þóris Þorsteinsson- ar, varðstjóra í óskilamunadeild lögreglunnar í Reykjavík. um. Löngu búið að finna upp hjólið áður en þeir gerðu það í Hvelli Forsvarsmenn reiðhjólaverslana sem Morgunblaðið ræddi við lýstu allir yfir undrun sinni vegna stað- hæfinga frá versluninni Hvelli þess efnis að hún hefði verið fyrst til þess að taka upp skráningu reið- hjóla og bentu á að í raun væri nær lagi að segja að umrædd verslun hefði verið þeirra síðust til að taka upp skráninguna. Vissulega væri rétt að Hvellur væri fyrstur til að setja þessar upplýsingar inn á Net- ið en það væri hins vegar alrangt Kökubæklingur Nóa Síríus Enn er leiðrétt LÍNA féll niður í frétt á neyt- endasíðu Morgunblaðsins á fimmtudag, þar sem birtar voru nokkrar leiðréttingar á nýjum kökubæklingi Nóa Sírí- us. I uppskrift að Baileystruffl- um á bls. 13 í bæklingnum eru tvær villur, sem leiðréttast hér með báðar: ‘A bolli af rjóma á að vera V* bolli og Vz bolli af Baileys á að vera 'A bolli. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Mosfellsbær Nv Hagkaupsversl- un opnuð í dag NY VERSLUN Hag- kaups verður opnuð í dag í Kjamanum, nýrri verslunar- og þjónustumiðstöð í Þverholti í Mosfells- bæ. Verslunin er á 1.600 fermetra fleti og er fyrst og fremst mat- vömbúð, ekki ósvipuð versluninni í Garðabæ, nema hvað þar verður heldur meira rými fyr- ir sérvöra, að sögn Óskars Magnússonar, forstjóra Hagkaups. „Þarna verður stórt og myndarlegt kælt ávaxta- og grænmetis- torg, kjöt- og fiskborð og bakarí. Auk þess verðum við með svo- kallað mjólkurtorg, sem er fyrirbrigði sem við eram að prófa í fyrsta skipti og er nýj- ung hér á landi. Þetta er afmarkað svæði, þar sem er aðeins kaldara en í búðinni sjálfri, og þar era allar mjólkuraf- urðir samankomnar á litlu torgi,“ segir hann. Auk matvöruverslunar- Morgunblaðið/Ásdís TORFI Matthíasson, verslunarstjóri Hag- kaups í Mosfellsbæ, bregður á leik með mjólkurbrúsa. Það skal þó tekið fram að á mjólkurtorginu verður seld rnjólk í fernum en ekki á fiöskum. innar, sem verður opnuð kl. 10 í dag, verður Lyfjabúð Hagkaups opnuð á sama stað innan fárra vikna, að sögn Óskars. TI1J30Ð HjáðmyndoAtofa CfiuituvtA JngimwLioonm. Suðurveri, sími 553 4852 Opið hús hjá Reykjavíkurdeild Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands býður öllum áhugasömum að koma og kynnast starfsemi deildarinnar í Fákafeni 11 í dag kl. 13-16 Sjúkrabílarnir • Skyndihjálp • Kvennadeildin Vinalínan • Ungmennastarfið • Öldrunarþjónusta Hvernig lítur nýi sjúkrahíllinn ut? Allir velkomnir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.