Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ UIKI
Ulltl m Mmm'Wmmm
SÆLKERINN
Beaujolais Nouveau er orðið að föstum lið í
íslensku vínmenningunni. Steingrímur
Sigurgeirsson segir Nouveau-hefðina hins
vegar hafa tekið á sig aðra mynd hér á
landi en víðast hvar annars staðar.
ÞRIÐJA fimmtudag nóvembermán-
aðar á hverju ári má taka tappana úr
fyrstu flöskunum af Beaujolais Nou-
veau, víni sem tveimur mánuðum áð-
ur var ótínd vínber á vínekrum
Beaujolais-héraðsins. Hver sá sem
upplifað hefur þá stemmningu er
fylgir Beaujolais á frönskum kaffi-
húsum veit að það er ekki endilega
vínið sem mestu máli skiptir heldur
allt umstangið 1 kiingum Beaujolais-
komuna.
Eftirvæntingin og spenna yfir því
að fá að smakka „nýja árganginn" er
ávallt mikil þó svo að hinn ljúfi en
léttvægi vökvi í Beaujolais-fiöskun-
um segi lítið til um hvernig árið eigi
eftir að koma út í þungaviktarhéruð-
um á borð við Bordeaux og Bour-
gogne. Beaujolais Nouveau á fyrst
og fremst að gleðja fólk í skammdeg-
inu. Ef þetta vín væri tónlist þá væri
það vínarvals.
Það breytir ekki þvi að Nouveau
er ávallt tekið alvarlega, menn pæla
ákaft í víninu, velta fyrir sér kostum
og göllum og komast yfirleitt að
þeirri jákvæðu niðurstöðu að það sé
nú „betra en í fyrra“. Raunar eru all-
ar forsendur fyrir því að núverandi
árgangur sé betri en í fyrra. Sumarið
var heitt og þuirt allt fram að upp-
skeru, sem hófst óvenju snemma, og
náðu bændur inn vel þroskuðum og
óskemmdum þrúgum. Það vantaði
heldur ekki lýsingarnar á gæðum
þess til að byggja upp spennuna og
hópur smakkara á vegum markaðs-
nefndar Beaujolais-héraðs lýsti því
yfir að bragð nýja vínsins væri
hvorki meira né minna en
„himneskt".
Eftir að hafa smakkað Beaujolais
1997 verð ég að staðfesta að það er
virkilega gott og svo sannarlega
betra en í fyrra. Ferskar þrúgur,
rauð ber og berjabaka gefa víninu
mikinn þokka.
Það kann að hljóma furðulega að
þeir fyrstu sem fengu opinberlega að
bragða á Nouveau-víninu voru íbúar
á afskekktum Kyrrahafseyjum. Þar
er hins vegar komið miðnætti þótt
klukkan 'sé einungis tólf á hádegi í
Frakklandi. Noveau-ið færist síðan
vestur tímabeltin þar til klukkan
hefur alls staðar slegið tólf á mið-
nætti.
Beaujolais Nouveau er eitthvert
snilldarlegasta dæmið um vel heppn-
aða markaðssetningu á tiltölulega
venjulegu víni. Raunai' hefur mark-
aðssetning Beaujolais-bænda á ung-
víninu sínu tekist það vel að betri vín
héraðsins eiga undir högg að sækja á
mörgum mörkuðum. Neytendur
setja samasemmerki á-milli Beaujo-
lais og Nouveau og átta sig ekki á að
mörg virkilega góð „alvöruvín" koma
frá þessu héraði, ekki síst þau sem
kennd eru við einstaka þorp þess
(t.d. Morgon, Brouilly og Moulin-á-
Vent) en ekki svæðið sjálft. Það
hindrar hins vegar ekki önnur vín-
gerðarsvæði í að reyna að leika sama
leikinn og setja á markað vín sem
kölluð eru „primeur“, „novello" eða
eitthvað annað til auðkenna þau sern
ungvín.
Nouveau-æði hefur gripið íslend-
inga líkt og aðrar þjóðir á undan-
förnum árum þótt dagsetningarnar
hafi kannski alltaf verið þær réttu.
Svo virðist líka sem séríslensk Nou-
veau-hefð sé að myndast með sí-
sterkari tengslum þessa víns við
jólahlaðborðin. I sjálfu sér ekkert
vitlaus tenging. Jólahlaðborðin
byrja um svipað leyti og Nouveau
kemur í hús og sökum þess hve létt
vínið er og lipurt siglir það auðveld-
lega fram hjá þeim hindrunum hlað-
borðanna er oft reynast stærri og
nafntogaðri vínum óyfirstíganlegar
hindranir.
Það væri hins vegar sorglegt ef
hlaðborðin myndu algjörlega gleypa
Noveau-ið og það einstaka andrúms-
loft er fylgir því að bíða eftir fyrstu
dropunum úr uppskeru ársins.
BEAUJOLAIS: ,.HIMNESKUR“ ARGANGUR
Sala á Beaujolais Nouveau-vínum hófst á
miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins og
þegar hafa verið gefnar út yfir-
iýsingar frá markaðsráði
Beaujolais um að árgangurinn
1997 sé „himneskur".
Beaujolais hefur ákveðna sérstöðu miðað
við mörg vín þar sem að þrúguklasarnir
eru pressaðir heilir, með stilkum og öllu til-
heyrandi, en ekki þrúgurnar einvörðungu.
10BESTU SVÆÐIN
SaintAmour-
Julienas-
Chénas.
Moulin a Vent—(
Fleurie—r
Chiroubles—’
Morgoi
Regnh
Cótes de Brouillj
Brouill'
Þrúgutínslan
tekur nokkrar J
vikur.
10 Km
Saint-Julien
Villefranche-<§
sur-Saöne
Beaujolais
Coteaux du Lyonnais
REUTERS
□ Vln kennd við eitt þorp
□ Vín kennd við héraðið i heild
Lyon
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 27
* Egilsstaðir • Egilsstaðir • Egiisstaðir • Egilsstaðir •
vti^ur
mm I v^turl
n r
ísland að vetri býður
upp á fjölmarga
möguleika til afþreyingar
og skemmtunar.
Skíðaferðir, f jallaskoðun,
listalíf, matur, menning og
skemmtun. Flugfélag íslands
býðurflug, gistingu, skemmtun
og ævintýri á einstöku Gjugg-
verði fyrir einstaklinga, hópa og
fyrirtæki.
Lífgaðu upp á tilveruna í vetur og skelltu þér
í ógleymanlega helgarferð til Egilsstaða
með Flugfélagi íslands.
.airicelandLis
ÍGiLSSTAÐiR ÖRVAf
Gjugghelgin 28. til 30. nóvember
i
1"
• Flug fram og fil baka
*g • Gisting á mann i 2 natur mcð
- morgunverði í tveggja manna herfc.
■«C • Afsláttarhefti og flugvallarskattur
innilalinn
Söfnunardagar vellíðunar .
Njóttu lífsins í rólegu andrúmslofti og rómaijJílc.
Skógurinn, huldufólk, miðnæturganga tíg
orkusöfnun fyrir jólin. J*
n
n
Vlð leggjum áherslu é hollustu og étiveru:
- heimsókn í handverksmiðstöðina að Miðhúsum
- sund í nýrri og glæsilegri sundlaug
- stuttar hestaferðir með leiðsögn
- gönguferðir með leiðsögn
- tónlist, myndlist, leiklist
MARKAÐSFÉLAGIÐ «hf.