Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 28

Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 28
VIKU IM MORGUNBLAÐIÐ 28 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 A POPPHINJASÝNINGU HEÐ HLJÓHUM FRÁ KEFLAVíK Hljómar frá Keflavík voru án efa vinsælasta ^ -V popphljómsveit landsins á sjöunda áratugnum. Erlingur Björnsson, Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson mynduðu kjarna sveitarinnar frá upp- hafí og rifjuðu upp gamlar minningar með Sveini Guðjónssyni á poppminjasýningu, sem nýlega var opnuð í heimabæ þeirra. PIM sem þetta ski-ifar líða seint úr minni tónleikarn- ir i Háskólabíói á útmán- uðum 1964, þegar poppsveitin Hljómar frá Keflavík kom, sá, sigraði og gerði bókstaf- lega allt vitlaust, enda er upphaf bítlaaldar á Islandi miðað við þann viðburð. Þá skipuðu sveitina Eggert Kristjánsson trommuleikari, Gunn- ar Þórðarson sólógítarleikari, Erl- ingur Bjömsson rythmagítarleikari, Rúnar Júlíusson bassaleikari og söngvari sveitarinnar var Karl Her- mannsson, síðar yfirlögregluþjónn í Keflavík. Eggert var talinn frum- kvöðullinn að stofnun Hljóma, en hann hafði dvalið á Englandi og drukkið í sig áhrifin frá nýrri tón- Iistarstefnu, sem þar var að ryðja sér til rúms, þar sem hljómsveitirn- ar The Beatles frá Liverpool og The Rolling Stones frá London fóru fremstar í flokki. Tímabil þetta í rokktónlistarsögunni er kennt við Bítlana og ekki leið á löngu þar til Hljómar frá Keflavík höfðu fengið á sig sæmdarheitið „hinir íslensku Bítlar“ og heimabær þeirra, Kefla- vík, var á góðum stundum nefndur „Liverpool Islands". Undirrituðum var líka ljóst, strax á þessum fyrstu tónleikum Hljóma í höfuðborginni, að hér kvað við nýjan tón og enginn, sem var viðstaddur tónleikana, varð samur á eftir. Hljómarnh- spiluðu einhvern veginn öðruvísi en aðrar hljómsveitir og öll „hollingin“ á þeim bar þess glöggan vott, að ferskir vindar blésu nú um íslenska dægurtónlist. Þai-na steðj- uðu þeii' um sviðið, í leðurvestum með lakkrísbindi, og hristu loðin toppstykkin framan í áheyrendur svo mörgum stóð ógn af, en fram til þessa hafði enginn töffari í bænum vogað sér að greiða öðruvísi en Elv- is. Reyndar hafði hin gljásmurða „barta- og píkugreiðsla" Presleys þá þokað fyi'ir snyrtilegi'i „herraklipp- ingu“ og þeim mun byltingakennd- ara þótti því „bítlafax“ hinna ungu Suðurnesjamanna á þessum tíma. En fyrir undinitaðan varð ekki aftur snúið og Hljómar frá Keflavík varð umsvifalaust uppáhaldshljómsveitin og ekki spillti fyrir frændsemin við Erling rythmagítarleikara. A rfur Suðurnesja- manna Ferill Hljóma, og reyndar fleiri hljómsveita og tónlistarmanna af Suðurnesjum, er rakinn í máli og myndum á nýstárlegri poppminja- sýningu, sem nýlega var opnuð í IILJOMAR f fyrsta | sinn á sviði haustið 1966, frá vinstri: Riínar, Erlingur, i Gunnar og Einar .bílíusson söngvari. Leðurvestiu eru þarna koniin til sögunnar en hítla- hárið átti eftir art vaxa þá um vetur- veitingahúsinu Glóðinni í Keflavík, eða Reykjanesbæ, eins og bærinn heitir nú. Greinarhöfundur hafði mælt sér þar mót við þá þrjá liðs- menn Hljóma, sem mynduðu kjai'na sveitarinnai' frá upphafi, þá Erling Bjömsson, Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson, og þarna var vissu- lega margt forvitnilegt að sjá. Auk fjölmargra mynda, sem prýða veggina eru á sýningunni ýmsir TONLEIKARNIR í Háskólabíói vorið 1964 mörkuðti upphaf bitlaæðis á islandi. Hér er einn tónleikagésta orðinn svo „hítilóð- ur“ að lögreglan taldi ástærtu til art hafa afskipti af homim. munh' sem tengjast dægurtónlistai'- lífi Suðurnesjamanna í gegnum árin. Þarna er til dæmis jakkinn, sem Erl- ingur spilaði í þegar Hljómar komu fram í Cavern-klúbbnum í Liverpool, skrautlega málaður bassinn sem Rúnar plokkaði á blómatímabilinu og skórnir frægu, sem gerðu mikla lukku á þessum árum. I einum kass- anum er að finna gítarnögl, sem Rúni Júl gaf ungri konu í Húsafells- „BERTI var einn besti dægurlaga- söngvari sem ísland hefur alið,“ segir Rúnar og bendir á félaga sinn Engilbert Jensen á skjánum. Erlingur og Gunnar eru þessu sammála. skógi, einhvern tíma á sjöunda ára- tugnum. Þegar hún frétti af opnun poppminjasýningarinnar kom hún með nöglina á ball á Skaganum, þar sem Rúnar var að spila, en nöghna hafði hún geymt í rúm þrjátíu ár. Sagt er frá bæjar- brag í Keflavík um 1960, brautryðjandan- um Guðmundi Ingólfs- syni, en með hljóm- sveit hans stigu þeir Erlingur og Gunnar sín fyrstu spor á tón- listarsviðinu. Auk Hljóma er sagt frá hljómsveitunum Oð- mönnum, Júdasi, Magnúsi og Jó- hanni, Trúbroti, Lónlí Blú Bojs og hinum ýmsu skólahljóm- sveitum sem settu svip sinn á þetta tímabil. Tónlistarmanninum og laga- smiðnum Þóri Baldurssyni eru gerð skil, að ógleymdum Þorsteini Egg- ei'tssyni textahöfundi, og fleiri laga- og textahöfundum, sem gerðu garð- inn frægan. Ekki má heldur gleyma söngvurunum Engilbert Jensen, Einaii Júlíussyni, Ónnu Vilhjálms, Maríu Baldursdóttur, Ruth Regjn- alds og systkinunum Vilhjálmi og Ellý Vilhjálms. Allt þetta fólk er á sínum stað á sýningunni enda lögin þeirra sá lifandi arfur, sem Suður- nesjamenn skilja eftir sig í íslensku dægurtónlistarlífi. Harft á akkur eias ug viðrini Þegar ég kem á Glóðina berast ljúfir tónar af nýjum safndiski, sem bei' heitið Hinir íslensku Bítlar, og hefur að geyma 25 bestu lög Hljóma. Þeir segja mér að frískað hafi verið upp á mörg laganna með nútíma hljóðtækni, án þess þó að umbylta hinni upprunalegu útgáfu laganna. Á plötunni eru líka lög sem ekki hafa áður komið út á hljómplötu, en varð- veist hafa á hljóðböndum. Og víst er N otað og nýtt í draumum DRAUMSTAFIR/Kristjáns Frímanns ENDALAUST má ræða eilífðarmál- in, gníska í gömlum fræðum og kíkja í menningarkistur annarra þjóða í von um lausn á gátunni miklu um lífið og dauðann. Dusta rykið af sjálfum sér með innhverfri íhugun, í leit að svörum við spumingum um tilveruna, Guð og mann. Stunda and- legar íþróttir, lesa leynisögur og leysa krossgátur í von um skarpari skilning á sjálfan sig, þetta sjálf sem vefst fyrir og veldur hugverkjum. Hver er ég? Hvaðan kem ég? Á hvaða leið er ég? Þegar á svörin reynir verða hughrifin óljós, mein- ingarnar óskýrar, svörin gloppótt og blákaldur veruleikinn hristir mann til sín að tannhvössum tíma. Maður ýtir tómleikanum frá sér, fer í gufu- bað og nudd, slappar vel af og sofnar vært er heim kemur. En þá, alltaf þá, gerist það sama; óljós minning um opið haf, ferð milli vita og hvít- fyssandi storm vekur mann upp af værum blundi og hjartað slær ört. Var það bara draumur eða... ? Af hverju kemur þessi skrýtna tilfinn- ing að eitthvað liggi að baki, að þetta hafi ekki verið bara draumur? Á vegum draumsins liggja einmitt svörin, tilveran er borðleggjandi, Guð er opinberun og líf mannsins sem dauði er skannað í bláma svefnsins. Hver þú ert, hvaðan þú kemur og hvert þú heldur er upp- raðað í gagnabanka draumanna, svörin, sem þú leitar, er að finna á draumanetinu. Þú lærir bara á for- ritin; tákntakkana, myndmeiningar- spjöldin og ígildisþætti þeirra ímynda sem draumuiinn færir þér af diski sínum, þér til góða. Þar er enginn sýndarveruleiki, ekkert leynimakk eða undirferli, ekkert selstsemgull. Að nýta drauma sína er að kunna að hagræða boðskap þeÚTa á réttlátan og 'sannfærandi hátt, sjá framtíðina og sannleikann í réttu Ijósi og vera vakandi fyrir vel- ferð þeirri sem draumurinn býður þér. Sannleikurinn er eilífur og þótt framtíðin virðist þegar skrifuð, þá er það uppkast að handriti sem alltaf má breyta og lagfæra til hins betra með hjálp drauma. Draumur frá „Eikiá Mig dreymdi að ég sat í bíl ásamt einhverjum manni sem ók bflnum. Mér verður litið til himins sem var alskýjaður, en í því fara skýin að greiðast sundur og mynda ferhymdan heiðskíran blett. Síðan fara að myndast orð sem skrifuð eru á þennan tæra flöt og fannst mér fyrsta orðið vera þriggja stafa og byrja á G. Mér fannst ég beygja mig niður í sætið til þess að sjá ekki hvað væri skrifað. Eg var viss um að það væru boð til mín og ég sagði skelf- ingu lostin að það væri verið að skrifa á himininn. Þá hló maðurinn við og sagði að þetta væri kunningi sinn sem væri stundum að skrifa svona. Réðning Þessi draumur er skýr, hann talar fyrir hönd þíns innri manns (maðurinn í bílnum) sem er nokkuð ósáttur við afskiptaleysi þitt og doða (himinninn alskýjaöur) í trúmálum (draumurinn gerist á himni). Hann væntir þess (hló við, kunningi hans skrifar) að þú takir þig á (heiðskíri bletturinn) og eflir sóknar- (þriggja stafa orð sem byrjar á G) viljann, þrátt fyrir vissan ótta (skelfingu lostin að sjá skrifað á himininn) við hið óþekkta. Draumur „Snffíuáá Mig dreymdi að ég og dóttir mín vorum á skíðum uppi á heiði í Noregi. Hún var fljótari en ég að setja á sig skíðin og fór strax af stað inn á heiðina. Þegar ég var að verða búin að setja á mig skíðin heyrði ég hana hrópa hjálp mamma, hjálp. Þá fannst mér norski prinsinn vera á skíðum ekki langt frá, svo ég hróp- aði á hann að hjálpa mér að hjálpa henni, svo hljóp ég (án skíða) til Mynd/Kristján Kristjánsson AUGA draumsins er alsjáandi. hennar, en hún hafði farið út á ís á vatni sem brast og hún var þarna í vatninu og komst ekki uppúr. Ég stökk út í til hennar, þá sagði hún „Þetta áttir þú ekki að gera mamma, nú komumst við ekki uppúr“. En ég dró hana (hún hafði skíðin enn á sér) þangað til vatnið var grynnra (ísinn gaf eftir) og við komumst uppúr. Svo fannst mér að einhver sagði að prinsinn hefði hringt og beðið um hjálp. Réáning Draumurinn höfðar mjög sterkt til tilfinninga (renna á skíðum, snjór og vatn) og þátta í umhverfinu (inn á heiði) sem hafa áhrif á tilfinningam- ai', bæði neikvætt (vatnið með ísnum sem brast) og jákvætt (snögg við- brögð við hjálparbeiðni). Það virðist sem hið neikvæða (dóttir þín í vatn- inu, enn á skíðunum) í draumnum skapi jákvæða þættinum (þið komust upp úr, norski prinsinn) far- veg til góðrar lausnar (norski prins- inn?) á vandamáli. Þó virðast viss vandkvæði þar á, því viðkomandi er stoltur („þetta áttir þú ekki að gera mamma, nú komumst við hvorug upp úr“) og þiggur ekki glatt aðstoð annarra. „Diúmiáá sentfir draum Ég var staddur á Austurvelli í Reykjavík, á gangstéttinni við Al- þingishúsið. Allur völlurinn var þak- inn grænlitu vatni, það djúpu að hvergi sást í grasið né stétt. Yfir- borðið var vel gárað og stundum hvítfyssandi öldufall. Svo var ég kominn inn í Alþingishúsið, á jarð- hæðinni var einn minni forsalur og tveir stórh'. Það var fundur í salnum sem snýr að Landakoti. Sætin í saln- um voru hvít. Ég og aðrir sem voru þar, vorum beðin að færa okkur í fremri salinn svo við trufluðum ekki fundinn. Við gerðum það án mót- þróa. Svo var ég kominn á efri hæð- ina sem snýr að Austurvelli. Þar voru þrír lögreglumenn í bláum skyrtum, án höfuðfats og með vélrit-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.