Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 39 AÐSENDAR GREINAR Um laxinn og hafið og kaffi- bollavísindi í vesturbænum í Morgunblaðinu 31. október síðastlið- inn var smágrein sem byggðist á viðtölum við þá Tuma Tómas- son og Sigurð Má Ein- arsson fiskifræðinga og fjallaði að mestu um slakar endur- heimtur á laxi undan- farin ár. í greininni kom fram að þekking fræðimanna á laxi væri orðin nokkuð góð hvað varðar þann hluta ævinnar sem hann lifir í ferskvatni en örlög laxins í haf- inu væru fræðimönn- um enn sem komið er illskiljanleg. Ég vil taka það fram að þessi skil- greining á stöðu þekkingar fræði- manna á líffræði laxins er að mínu viti rétt og það er þakkarvert þeg- ar vísindamenn viðurkenna tak- mörk sín á svo opinskáan hátt. Árangurinn látið standa á sér Mörg undanfarin ár hafa áhuga- menn um laxinn unnið að því að draga úr veiðum á laxi í sjó. Með- al annars hefur veiðiréttur“ ein- hverra þjóða verið keyptur upp fyrir alldijúgar fúlgur. Þrátt fyrir þessa viðleitni hefur árangurinn látið standa á sér og reyndar virð- ast menn í fljótu bragði vera að fjarlægjast markmiðin. Þetta ger- ist á sama tíma og mennirnir reyna í auknum mæli að auka fram- leiðslu ánna með mikilli ræktun og auknum sleppingum. Það hlýtur að reyna á þolrifin á þessum áhugasömu mönnum að viðleitni þeirra virðist ef eitthvað er skila öfugum árangri. Þrátt fyrir að ég undirritaður sé ekki prýddur neinu akademísku skrauti og verði þar af leiðandi að byggja trúverðugleika minn á skilningi og umburðarlyndi lesenda minna, langar mig að reyna að hughreysta alla laxaunnendur með því að næstu tvö árin munu verða þeim gleðitími. Mikil aukning mun verða á laxagengd og endur- heimtum á næsta sumri en þó mun sum- arið 1999 líklega verða enn betra og þá sér- staklega hvað stórlax varðar. Hvorki byggt á draumum né dulspeki Ég vil taka það fram að ofangreindar full- yrðingar eru ekki Sveinbjörn byggðar á draumum Jónsson eða dulspeki af nokkru tagi og kann það að draga nokkuð úr áreiðanleika þeirra heldur er hér um að ræða þijár til fjórar líffræðiforsendur sem tengj- ast öðrum fiskistofni í hafinu og sambandið var afhjúpað yfir nokkr- um kaffibollum vestur í bæ nýlega. Þannig var að félagi minn og þjáningarbróðir til margra ára í málefnum trillukarla, hinn vörpu- legi formaður smábátaeigenda, Arthur Bogason, bauð mér til sín í kaffi þegar ég var á ferð í bænum nýlega. Eins og venjulega var umræða okkar á léttari nótunum, gert góðlátlegt grín að hinum ábyrgðarþjökuðu bírókrötum þessa lands og annarra, en þó þannig að ég þurfti aldrei að víkja langt frá aðaláhugamáli mínu til nokk- urra ára en það er að sjálfsögðu þorskar af ýmsu tagi. Þar kom þó samræðu okkar að Arthur vildi útfæra hana og bæta við hana einu af sínum hjartans málum en það er að sjálfsögðu áhugi hans á löx- um og stórlöxum alls konar. Heyrðu Svenni, þú hefur verið að halda því að mér undanfarið að margir fiskistofnar í hafinu ættu mikið undir framleiðslugetu þorskstofnsins, hefurðu eitthvað velt fyrir þér hugsanlegu samspili laxins og þorsksins? Nei, ekki get ég sagt það, en ég er þó viss um að smástofn eins „Mikil aukning mun verða á laxagengd og endurheimtum á næsta sumri, skrifar Svein- bjöm Jónsson, „en þó mun sumarið 1999 lík- lega verða enn betra og þá sérstaklega hvað stórlax varðar.“ og laxinn ykkar hlýtur að eiga eitt- hvað undir sveiflukenndum veislu- höldum þorskstofnsins (mesti breytileiki í seiðaframleiðslu síð- ustu 21 ár er 240 faldur), ætli þetta sé ekki bara eins og hjá okk- ur mönnunum. Þar sem nóg er af þorskum þrífast stórlaxar best og ekki get ég útilokað að einhvem- tíma verði smálaxi það á að synda inn í opið ginið á stórþorski. í fullri alvöru, heldurðu að það sé hægt að greina eitthvert sam- hengi þama á milli? Já, það kæmi mér mjög á óvart ef hægt væri að greina einhver áhrif laxastofnsins á þorskstofninn okkar, en ég er næstum því viss um að áhrif þorskstofnsins á laxa- stofninn eru veruleg, þetta er væntanlega bara spurning um að skilja í hveiju þau era fólgin. ---------------------N BIODROGA snyrtivörur y^Bankastræti 3, simi 551 3635.^y JÓLATILBOÐ FRÁ MARCO A.t.h. Takmarhað magn Mörleinni 4 • 108 Reykjavík Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 Við styöjum við bakið á þér i Einhvem veginn svona þróuðust samræðurnar og fyrr en varði vora komnir nokkrir árgangar af Veiði- manninum á borðið innan um kaffi- bollana. Þorskstofninn hefur áhrif á endurheimtur laxa Niðurstöður kaffiboðsins urðu svo einhvemveginn svona: Þorsk- stofninn hefur að minnsta kosti á þrennan hátt áhrif á endurheimtur laxa úr hafi. Þegar þorskstofninn býður til stórveislu í hafinu frestar hluti laxanna uppgöngu í árnar. Á sama tíma veldur margfalt fæðu- framboð þorsksins því að afföll niðurgönguseiða laxins minnka til muna (mikið framboð þorsksins af fæðueiningum hlífir ungviði ann- arra tegunda einfaldlega vegna minni eftirspumar). Og í þriðja lagi veldur mismunandi vaxtar- hraði því að laxinn getur fljótlega farið að nærast á þeim einingum sem hlífðu honum í upphafi. Ég ætla ekki að fara nánar út í umræddar forsendur í þessu greinarkorni enda era hugmyndir mínar um nýtingu og uppfærslu ljóstillífunar í hafinu og verka- skiptingu þar að lútandi allt of viðamiklar til að rúmast í lítilli grein. Hins vegar þætti mér vænt um ef laxaunnendur beindu sjónum sínum að skrifum mínum undan- farin ár um náttúruvalspíramýta og íslenska þorskstofninn því ég er nokkuð viss um að litli stofninn þeirra á mikið undir því komið að mennirnir hætti að misveiða þorsk- stofninn. Hugsum vel um stórþor- skinn og þá mun ekki bara hafið verða okkur gjöfulla heldur munu ’ laxárnar fyllast líka! Mér finnst við hæfi að enda þessa grein á vísukorni, ættuðu frá þorskum, sem gengur undir nafn- inu Paradísarheimtufrekjúmissir: Á Ijúfum völlum ljóstillífunar hófst líf vort bundið sporðum þá vorum bæði veislugestir þar og vegleg krás á borðum samt einhvem veginn ávallt fengum þó vors erfðagóss að njóta uns vera ein sem vitið hefur nóg oss vemda tók með kvóta. Höfundur er sjómaður á Suðureyri. EPSON Ljósmyndaprentun iðveldari en nokki ru sinni fyrr með nýja Epson Stylus Photo bleksprautuprentaranum Gæði prentunarinnar í Epson Stylus Photo prent- aranum eru hreint út sagt frábær, þökk sé hinni nýju Epson PRQ tækni (Photo Reproduction Quality). Nú getur þú notið þess að fylgjast með Ijósmyndunum þínum verða að veruleika heima hjá þér. Með því að taka myndirnar á stafræna myndavél frá Epson, vista þær inn á tölvuna þína og prenta út með Epson Stylus Photo bleksprautuprent- aranum, losnarðu við hið hefðbundna fram- köllunarferli. Auk þess getur þú lagfært og breytt eigin myndum eftir smekk og prentað út eins mörg eintök og þú þarft, allt upp í A4 stærð. Ljósmyndaprentun hefur aldrei verið auðveldari en einmitt núna. : i. r mvwggm Stafræn myndavél frá Epson eða Epson filmuskanni, ásamt tölvunni þinni og Epson Stylus prentara, mynda hið fullkomna Epson myndastúdló. Tæknival p PÓR HF Armúlo 11 . Sfml Skelfunni 17 108 Reykjavlk Siml 550 4000 Fax S50 4001 Netfang: Reykjavlkurvegi 64 220 HafnarfirOI Simi 550 4020 Fax 550 4021 Netfang: mottaka9taeknlval.lt fjorduretacknlval.lt m- *Sr
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.