Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 40

Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ * ___________AÐSENDAR GREINAR____ Mikill og stöðugur stuðning- ur við aðildarumsókn að ESB mmBsm Fræðslufund- ur um vist- fræði laxins ENGINN efast leng- ur um að gerð samn- ingsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) hafi verið mikið gæfu- spor fyrir íslendinga og spumingin um hvort ekki sé tímabært að _^.sækja um aðild að Evr- ópusambandinu (ESB) er orðin mjög áleitin. Það eru bæði beinar hagnýtar ástæður og eins pólitískar ástæður fyrir því að umræðunni um Evrópusambands- aðild vex fiskur um hrygg. íslenskt at- vinnulíf sér t.a.m. fram á að greiða hærri vexti og bera meiri viðskiptakostnað en ná- grannaríki sem eru innan sam- bandsins eftir því sem Efnahags- og myntbandalagið (EMU) þróast og ýmis ólík hagsmunasamtök líta hýru auga til þess hvernig tekið er á —,þeirra málaflokkum innan ESB. Sífellt fleiri spyrja að því hvort full- veldi Islands sé ekki best borgið með því að íslendingar taki virkan þátt í ákvarðanatöku í Evrópusam- bandinu. Þrátt fyrir að forystumenn allra stjómmálaflokka utan Alþýðuflokks hafi annaðhvort þagað um stuðning sinn við aðildaramsókn Islendinga eða lýst sig andvíga slíkri umsókn sýna skoðanakannanir að kjósendur eru hlynntir því að sótt verði um að- ild. Þeir sem styðja umsókn um að- ild að Evrópusambandinu era fleiri en þeir sem era andvígir aðildarum- sókn, ef marka má skoðanakannanir Gallup frá áranum 1994, 1995 og 1997. Þessi stuðningur við nánara samstarf ís- lands og ESB er stað- festur í könnunum Hagvangs, sem ná yfir síðastliðin sjö ár. I síð- ustu könnun Hagvangs, sem framkvæmd var í vor, segir helmingur þeirra sem taka afstöðu að þeir séu fylgjandi því að íslendingar gerist aðilar að Evópusam- bandinu. Gallup hefur spurt: „Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að íslendingar vinni að því að sækja um aðild að Evrópusambandinu?“ í nýjustu könnuninni sögðu 49,4% að þeir væru hlynntir, 11,0% að- spurðra vora óviss og 39,6% andvíg. Stuðningurinn við aðildaramsókn er mjög mismunandi eftir aldurs- hópum. Mestur er stuðningurinn í aldurshópnum 16-24 ára, því næst í aldurshópnum 25-34 ára og helm- ingur þeirra sem eru 35-44 ára styðja aðildarumsókn. í hópi þeirra sem eru á aldrinum 45-75 ára virð- ast fleiri leggjast gegn aðildaram- sókn íslendinga. Það er sérstaklega athyglisvert að skoða stuðning Sjálfstæðis- manna við aðildaramsókn. I desem- ber 1994 sögðust 62% þeirra sjálf- stæðismanna sem spurðir voru að þeir styddu aðildarumsókn, í mars 1995 er hlutfall stuðningsmanna að- Það eru bæði beinar hagnýtar ástæður og eins pólitískar ástæður fyrir því, segir Aðal- steinn Leifsson, að uni- ræðunni um Evrópu- sambandsaðild vex fiskur um hrygg. ildarumsóknar í Sjálfstæðisflokkn- um um 59% og nú í haust er hlut- fallið um 58%. Þetta gerist á sama tíma og forysta Sjálfstæðisflokksins leggst eindregið gegn umræðu um málið innan flokksins. Hagvangur hefur spurt reglulega um skoðanir á aðild íslands að Evr- ópusambandinu um langt skeið. Sú spurning sem Hagvangur hefur sett fram hljóðar svona: „Ert þú fylgj- andi eða andvíg(ur) því að Islend- ingar gerist aðilar að Evrópusam- bandinu?“ Engir fyrirvarar eru gerðir um hagstæða niðurstöðu samningaviðræðna eða lausn deilu- mála tengdum sjávarútvegi. Þrátt fyrir það segist helmingur þeirra sem tóku afstöðu í síðustu könnun Hagvangs að þeir séu fylgjandi því að Islendingar gerist aðilar að Evr- ópusambandinu. Það hefur fjölgað í liði stuðningsmanna aðildar jafnt og þétt síðastliðin þrjú ár. Það skal þó tekið fram að óákveðnir era margir í könnunum Hagvangs, á bilinu 30 til'40% síðastliðin ár. í síðustu könn- un mældist mestur stuðningur við aðild í aldurshópnum 25-34 ára. Þegar ýtt hefur verið úr vör um- ræðu um hugsanlega aðild Islend- inga að Evrópusambandinu hefur hún yfirleitt _ strandað á sjávarút- vegsmálum. An þess að lítið sé gert úr því verkefni að ná samkomulagi um aðild Islendinga að sjávarút- vegsstefnunni þá er það smámál í samanburði við þau vandamál sem blasa við í tengslum við inngöngu ríkja Mið- og Austur-Evrópu í ESB og í samanburði við ýmsa hags- munaárekstra sem komið hafa upp á milli aðildarríkja Evrópusam- bandsins í gegnum tíðina. Spurn- ingin er hvort við íslendingar telj- um okkur eiga samleið með grönn- um okkar í Evrópusambandinu eða ekki. Ef við erum þeirrar skoðunar að örlög okkar séu samofin og að okkur sé best borgið með samvinnu þá er rétt á láta á það reyna hvort ekki sé hægt að vinna úr mismundi hagsmunum í sjávarútvegi eins og í öðram málaflokkum. Endurteknar yfirlýsingar almennings um stuðn- ing við aðildarumsókn, þrátt fyrir að sjónarmið þeiira virðist ekki eiga sér málsvara innan Sjálfstæðis- flokks, Framsóknarflokks og Al- þýðubandalags, sýna svo ekki sé um villst að Islendingar vilja láta á það reyna hvort ekki náist hagstæðir samningar um aðild Islands að ESB. Höfundur er stjómmálnfræðingur ojr formaður Evrópusamtakanna á Islandi. SÍÐASTI fræðslufundur Hins ís- lenska náttúrufræðifélags á þessu ári verður haldinn mánudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Fundurinn verður að venju haldinn í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís- lands. Á fundinum flytur Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur á Veiði- málastofnun, erindi sem hann nefn- ir: Vistfræði laxins. í fréttatilkynningu segir: „Heim- kynni Atlantshafslax (Salmo Salar) er í norðanverðu Atlantshafi en út- breiðslu hans hefur mjög hnignað frá því sem áður var. Ástæðurnar eru ill meðferð mannsins á búsvæð- um hans í ánum en þau hafa verið eyðilögð m.a. með stíflugerð og mengun og einnig óheftar veiðar í sjó og ám. Þessi neikvæða þróun heldur enn áfram þó sums staðar sé reynt að endurheimta búsvæði með því að fjarlægja hindranir úr ám og draga úr mengun þeirra. Á Islandi höfum við verið lánsam- ari en margar aðrar þjóðir. Góð lög- gjöf var sett um laxveiðar þegar ár- ið 1932. Þar era sjávarveiðar á laxi bannaðar og grannur var lagður að hófsamari veiðinýtingu í ánum. Stangveiði er oðin mikilvæg at- vinnugrein víða um land og er hún nátengd annarri ferðaþjónustu. Lax er að finna í hlýjustu og frjósöm- ustu ám landsins. Til að auka laxa- gengd hafa menn sleppt seiðum á öllum lífsstigum. Sagt verður frá ár- angri sleppingar. Brýnt er að við fiskrækt noti menn stofn árinnar til ræktunar." Fræðslufundir félagsins eru öll- um opnir og aðgangur ókeypis. Aðalsteinn Leifsson gxorsM> Arnaldur Indriðason skoðar jólamyndir kvikmyndahúsanna. í blaðinu á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.