Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 47
i
i
i
I
i
i
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
<
<
i
i
i
i
<
<
i
<
SIGURSVEIT Flugleiða í bridskeppni evrópskra flugfélaga. Frá
vinstri eru Kristján Blöndal, Sæmundur Björnsson, Geirlaug
Magnúsdóttir og Torfi Axelsson.
Flugleiðir sigr-
uðu í bridskeppni
flugfélaga
BRIPS
Torremolinos
EVRÓPUMÓT
FLUGFÉLAGA
EVRÓPSK flugfélög standa fyrir
mikilli félagsstarfsemi og einn þátt-
ur í henni er að halda bridsmót. Þar
eru Flugleiðir framarlega og hefur
bridssveit félagsins verið sigursæl á
undanförnum árum.
Bridskeppnin var haldin nýlega í
16. sinn, að þessu sinni á Torremol-
inos á Spáni. Alls kepptu 40 sveitir
á mótinu, þar af 3 frá Flugleiðum,
og stóð ein þeirra uppi sem sigurveg-
ari. Hún var skipuð Geirlaugu Magn-
úsdóttur, Torfa Axelssyni, Kristjáni
Blöndal og Sæmundi Björnssyni.
Að auki unnu Geirlaug og Torfi
parakeppni sem spiluð var á sama
stað.
Sveitakeppnin var spiluð eftir
Monradfyrirkomulagi þar sem stiga-
hæstu sveitirnar spila jafnan saman.
Sveit frá SAS í Kaupmannahöfn
leiddi mótið lengst af en Flugleiða-
sveitin mætti henni á 1. borði í síð-
ustu umferð. Þá hafði SAS 7 stiga
forskot þannig að Flugleiðir þurftu
að vinna leikinn 14-6 eða meira.
Það var ekki mikið í spilunum í
þessum síðasta leik, en Flugleiða-
sveitin var heppin í þessu:
Suður gefur, allir á hættu
Norður
♦ K83
¥ G7652
♦ DG
*K32
Vestur Austur
♦ 1094 ♦ DG2
V4 ¥ D1098
♦ ÁK1054 ♦ 7632
+ G105 * 984
Suður
♦ Á765
¥ÁK3
♦ 98
♦ ÁD76
Við annað borðið enduðu SAS-
spilararnir í 4 hjörtum i NS og
trompíegan gerði það að verkum að
spilið fór einn niður.
Við hitt borðið sátu Kristján og
Sæmundur NS:
Vestur Norður Austur Suður
KB SB
1 grand
pass 2 tíglar pass 2 hjörtu
pass 3 grönd//
Kristján yfirfærði í hjarta og sýndi
svo jafna skiptingu með stökki í 3
grönd, og Sæmundur ákvað að passa
þótt eðlilegra virðist að breyta í 4
hjörtu, með stuttlit í tígli og góð
kontról. AV gátu enda tekið fyrstu
5 slagina á tígul, en vestur ákvað
að spila út tígulfimmunni, frekar en
ásnum. Sæmundur fékk því fyrsta
slaginn á tígulgosa í borði og þegar
laufið féll 3-3 átti hann 9 slagi.
Þetta spil átti stærstan þátt í því
að Flugleiðasveitin vann þennan úr-
slitaleik 19-11 og þar með mótið.
í víking til Bournemouth
íslensk sveit tók nýlega þátt í
haustþingi Bridssambands Englands
í Bournemouth.
Sveitin, sem skipuð var Gylfa
Baldurssyni, Sigurði B. Þorsteins-
syni, Helga Jóhannssyni og undirrit-
uðum, endaði í 3. sæti í A-úrslitum
sveitakeppninnar, en alls tóku um
80_sveitir þátt í mótinu.
íslendingarnir tóku einnig þátt í
tvímenningskeppni og þar komust
Gylfi og Sigurður í A-úrslit og end-
uðu þar í miðjum hópi 28 para.
Guðmundur og Helgi spiluðu í B-
úrslitum og enduðu þar í miðjum
hópi 28 para en alls tóku um 145
pör þátt í tvímenningnum.
Þetta haustþing laðaði ekki til sín
þekktustu spilara Breta en styrkleiki
almennra keppnisspilara á Englandi
er nokkuð svipaður og á íslandi,
þótt sagnkerfi Englendinga séu mun
einfaldari. Þeir notast einkum við
Acol og margræðar veikar opnanir,
sem þykja sjálfsagðar hér á landi,
voru bannaðar í þessu móti.
í úrslitum sveitakeppninnar
græddi íslenska sveitin vel á þessu
spili:
Suður gefur, AV á hættu:
Norður
♦ KD93
¥1052
♦ 873
♦ 653
Vestur Austur
♦ 5 ♦ 1087
¥ G43 ¥ KD97
♦ ÁK4 ♦ G2
♦ KG10942 ♦ ÁD87
Suður
♦ ÁG642
¥ Á86
♦ D10965
♦ -
Við annað borðið sátum við Helgi
Jóhannsson í NS:
Vestur Norður Austur Suður
GSH HJ
1 spaði
2 lauf 3 spaðar 4 lauf 4 spaðar/
AV þótti ólíklegt að þeir ættu
geim á 5. sagnstigi og gáfu því spil-
ið eftir í 4 spöðum. Vestur lyfti tígul-
ás í útspilinu og þurfti nú að skipta
í hjarta til að hnekkja spiiinu. En
hann spilaði laufi og þá gat Helgi
trompað, tekið trompin, fríað tígul-
inn og hent hjörtum í borði í tígulfrí-
slagi. íslenska sveitin fékk því 420
við þetta borð. Við hitt borðið sátu
Gylfi og Sigurður AV:
Vestur Norður Austur Suður
SBÞ GB
1 spaði
2 lauf 2 spaðar 3 spaðar 4 tíglar
pass 4 spaðar 5 iauf//
Gylfi var ekkert feiminn við að
fara upp á 5. sagnstig eftir að Sig-
urður hafði komið inná sagnir á
hættunni. Og það var heldur engin
leið að hnekkja 5 laufum svo 600
bættust við inneignina og alls var
gróðinn 14 impar.
Guðm. Sv. Hermannsson
FRETTIR
Kvennakór Hafnarfjarðar.
Opin kóræfing
OPIN kóræfing verður hjá Kvennakór Hafnarfjarðar í Kæn-
unni, Oseyrarbraut 2, á morgun, sunnudag, frá kl. 15 og fram
eftir degi. Efnisskráin verður fjölbreytt og skemmtileg með jóla-
ívafi. Kórkonur bjóða upp á kaffi og meðlæti sem selt verður
gegn vægu gjaldi. Frítt er fyrir börn yngri en 12 ára. Allir vel-
komnir.
KIRSTI Birkeland blæs nýju lífi í gömul norsk ævintýri
í Norræna húsinu.
Leiklestur fyrir böm
í Norræna húsinu
Sýningum
lýkur
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi
SÝNINGU Eggerts Magnússon-
ar lýkur nú á sunnudag.
Gerðuberg er opið föstudaga
9-19, laugardaga og sunnudaga
12-16.
Kjarvalsstaðir
Farandsýning á ljósmyndaverk-
um eftir þijátíu erlenda listamenn,
„Að skapa raunveruleikann" lýkur
nú á sunnudag.
Leiðsögn um sýningar safnsins
er alla sunnudaga kl. 16. Opið er
á Kjarvalsstöðum frá kl. 10-18 alla
daga vikunnar.
Hæðarbyggð 24, Garðabæ
Sýningu Jónínu Magnúsdóttur
„Nínný“ lýkur nú á sunnudag.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18. A alnetinu kemur sýningin
til með að standa eitthvað áfram.
Netfangið er http://www.if.is/n-
inny
Myndlist ’97
Sýningunni Myndlist ’97 í Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu lýkur á
sunnudaginn. Aðgangseyrir er 100
kr. og renna þær til verðlauna fyrir
besta verk sýningarinnar, að mati
áhorfenda.Vefur hefur verið settur
upp í boði Nýheija á slóðinni:
http://www.art.box.is.
------» ♦ ♦----
Basar KEFAS
KEFAS, kristið samfélag, verður
með basar sunnudaginn 23. nóvem-
ber kl. 14-17 að Dalvegi 24, Kópa-
vogi. Þar verða til sölu heimabakað-
ar kökur auk muna til jólagjafa.
Boðið verður upp á jólaskreyting-
ar, bækur, postulínsvörur og ýmsar
gjafavörur. Lofgjörðartónlist verður
leikin og sungin og aðstaða verður
fyrir börn. Boðið verður upp á
ijómavöfflu og kaffi á 200 kr.
------» » ♦----
Basar
í Mosfellsbæ
FÉLAGSSTARF aldraðra í Mos-
fellsbæ verður með basar og kaffi-
sölu sunnudaginn 22. nóvember kl.
14-17 í Dvalarheimili aldraðra í
Hlaðhömrum.
Ýmiss konar prjónavörur og jóla-
vörur verða á boðstólum. Þá verður
einnig kynning á félagsstarfinu
m.a. bókbandi og tréskurði og kór
aldraðra Vorboðarnir syngur nokk-
ur lög.
NORSKI barnabókahöfundur-
inn Kirsti Birkeland les norsk
ævintýri og bregður sér í hlut-
verk sagnaþuls og gömul norsk
ævintýri öðlast nýtt líf í frá-
sögnum hennar í Norræna hús-
inu sunnudaginn 23. nóvember
kl. 14.
Kirsti Birkeland hefur ferð-
ast víða um Noreg sem sagna-
konan Martha með ævintýras-
kjóðu sína.
Ævintýrin eru skráð af
norsku þjóðháttafræðingunum
Asbjernsen og Moe og hafa
verið gefin út í islenskri þýð-
ingu. Leikskólabörn koma í
heimsókn í Norræna húsið á
föstudag til þess að kynnast
þessum ævintýrum.
Ævintýrið um Folana sjö
verður flutt á sunnudag kl. 14.
Allir velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Nykomin
tendinq at —
leöri og áklæði
••
reröii
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísuná staðgreiðslu
usgogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 e 568-5375 m Fax 568-5275