Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 51
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
MESSUR Á MORGUIM
Fáein orð um
forna skatta
Fr'á Finnboga Guðmundssyni:
EKKI er að efa, að margir þeirra,
er fluttust úr Noregi til íslands á
landnámsöld, fóru þangað undan
ofríki Haralds konungs hárfagra,
þótt þar komi vitaskuld jafnframt
ýmsar aðrar ástæður til greina.
Lýsing Snorra í 4. kapítula Egils
sögu á harðfylgi Haralds hárfagra,
er hann var að bijótast til valda í
Noregi, er sígild og athyglisvert það
lýsingarorð, er hann hefur um Har-
ald í upphafi umræddrar frásagnar:
„Haraldur konungur var mjög gjör-
hugall, þá er hann hafði eignazt
þau fylki, er nýkomin voru í vald
hans.“ En Snorri segir nokkru síðar:
„Haraldur konungur eignaðist í
hveiju fylki óðul öll og allt land,
byggt og óbyggt, og jafnvel sjóinn
og vötnin, og skyldu allir búendur
vera hans leiglendingar, svo þeir,
er á mörkina ortu, og saltkarlanir
og ailir veiðimenn, bæði á sjó og
landi, þá voru allir þeir honum lýð-
skyldir. En af þessi áþján flýðu
margir menn af landi brott, og
byggðust þá margar auðnir víða,
bæði austur í Jamtaland og Helsin-
gjaland og Vesturlönd, Suðureyjar,
Dyflinnar skíði, írland, Norðmandí
á Valland, Katanes á Skotlandi,
Orkneyjar og Hjaltland, Færeyjar.
Og í þann tíma fannst ísland."
Þótt ýmsir séu nú á dögum nógu
slyngir að finna upp og leggja á
nýja skatta, jafnast þeir hvergi að
gjörhygli á við Harald hárfagra.
Hann var ekki að kaupa sér frið
við einstakar stéttir með því að
veita þeim skattafríðindi. Nei, þar
skyldi eitt yfir alla ganga. Hann lét
ekki við það sitja að eignast allt
land, byggt og óbyggt, heldur jafn-
framt sjóinn og vötnin. Og skattur-
inn, sem Haraldur lagði á alla veiði-
menn, bæði á sjó og landi, hann
er ekkert annað en auðlindaskattur-
inn svonefndi, sem nú er mikið
rætt um og vefst fyrir mönnum að
koma á.
Vera má, að Snorri hafi þarna
þegar í huga skatta þá, er Noregs-
konungur kynni að leggja á ísland
og íslendinga á 13. öld, næði hann
tökum á þeim, og kaldhæðni er
það, að ýmsar eignir Snorra skyldu
verða meðal hinna fyrstu, er Hákon
konungur Hákonarson gerði tilkall
til eftir fall Snorra.
í Orkneyingasögu, 4. kapítula,
segir frá því, að „Haraldur hárfagri
fór á einu sumri vestur um haf að
hegna víkingum, er honum leiddist
ófriður þeirra, er heijuðu í Noreg
Frá ólafí R. Jónssyni:
BARÁTTAN milli R-lista og D-lista
virðist ætla að verða hörð. Flestar
skoðanakannanir sýna jafnt fylgi
þótt oftar mælist D-listi aðeins yfír.
Aðrar kannanir eru farnar að
fylgja í kjölfarið. Það eru mæling-
ar á fylgi borgarstjóra. Líklega
voru fyrstu slíkar kannanir gerðar
þegar Davíð Oddsson var borgar-
stjóri. Þessar kannanir sýndu iðu-
lega að fylgi D-listans undir for-
ystu Davíðs sem borgarstjóra var
á milli 50 til 60% en fylgið við
Davíð var alltaf umtalsvert meira,
frá 65 til 85%.
Það vekur því athygli að fylgi
við núverandi borgarstjóra, Ingi-
björgu Sólrúnu, er aðeins á bilinu
50-55% samkvæmt könnunum og
hefur dvínað á undanförnum mán-
uðum. Miðað við reynsluna hefur
fylgi við borgarstjóra jafnan verið
töluvert meira en fylgi við flokk
hans. Nú er það örlítið meira.
um sumrum, en voru á vetrum í
Hjaltlandi eða Orkneyjum". í einni
orrustu féll Ivar, sonur Rögnvaldar
Mærajarls, og var það til þess að
konungur gaf jarli eyjarnar í sonar-
bætur.
Jarl settist þó ekki í eyjarnar,
heldur gaf þær Sigurði bróður sín-
um, en síðar eftir fall hans sonum
sínum, fyrst Hallaði og síðan Ein-
ari með engum góðum kveðjum, því
að hann mælti til hans að skilnaði:
„Ólíklegur ertu til höfðingja fyrir
sakir móður þinnar, því að hún er
í allar ættir þrælborin, en satt er
það, að því betur þætti mér, er þú
fer fyrr á braut og kemur seinna
aftur.“
Síðar segir frá því, að synir Har-
alds konungs og Snæfríðar, Hálf-
dan háleggur og Guðröður ljómi,
fóru að Rögnvaldi Mærajarli og
drápu hann við mikla reiði föður
síns, er nú fór að sonum sínum.
Hálfdan háleggur hljóp þá á skip
og sigldi vestur um haf. Hann kom
í Orkneyjar, „og þegar er það spurð-
ist, að þar var kominn sonur Har-
alds konungs, þá urðu þeir felmts-
fullir, gengu sumir til handa Hálf-
dani, en Einar jarl stökk úr eyjunum
og upp á Skotland.“ Hann kom þó
aftur á hinu sama ári, og varð fund-
ur þeirra Hálfdanar. Varð þar or-
usta mikil, og hafði Einar sigur,
en Hálfdan hljóp fyrir borð við
myrkur um kveldið.
Einar og menn hans fundu Hálf-
dan daginn eftir, og lét Einar drepa
hann á hinn grimmilegasta hátt og
orti um það hrikalegar vísur.
Eftir það lét hann kasta haug
Hálfdanar og kvað:
Rekit telk Röpvalds dauða,
rétt skiptu því nomir,
nú's folkstuðill fallinn,
at fjórðungi mínum.
Verpið, snarpir sveinar,
þvít sigri vér ráðum,
skatt velk honum harðan,
at Háfætu gijóti.
Þ.e. Einar kveðst hafa hefnt
Rögnvalds föður síns að sínum hluta
og hafi nornir skipt því rétt. Nú er
folkstuðill (þ.e. Hálfdan háleggur)
fallinn. Og síðan segir hann sigri
hrósandi: Verpið, snarpir svein-
ar ... at Háfætu gijóti, skatt velk
honum harðan.
Einar ætlar ekki að greiða Hálf-
dani annan skatt en þennan: gijót-
ið, sem fór í að verpa hauginn eftir
hann og hann kallar harðan skatt.
FINNBOGI GUÐMUNDSSON,
Sólvangsvegi 7, Hafnarfirði.
Þetta er staðreynd þótt Ingibjörg
Sólrún baði sig daglega í öllum fjöl-
miðlum með jákvæðum formerkj-
um og án efa oftar en Davíð gerði.
Flestir eru á því að án Ingibjarg-
ar Sólrúnar sé R-listinn afar lítils
virði sem flokkur. Miðað við litlu
meira persónufylgi Ingibjargar
Sólrúnar en lista hennar, er afar
ólíklegt að hún dugi til að draga
inn í meirihluta þessa fulltrúa
Kvennalistans, Alþýðubandalags-
ins, Alþýðuflokksins og Framsókn-
ar, sem hanga með.
Styrkur D-listans nú er að þar
er hæfari hópur einstaklinga en
R-listinn getur státað af. Forystu-
maður D-listans, Árni Sigfússon,
nýtur ótvíræðs trausts samkvæmt
úrslitum nýliðins prófkjörs. Ef rýnt
er því í söguna eru miklar líkur á
að D-listinn fái að spreyta sig í
meirihluta á næsta kjörtímabili.
ÓLAFUR R. JÓNSSON,
Starrahólum 2, Reykjavík.
Guðspjall dagsins:
Dýrð Krists.
(Matt. 17)
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Fjölbreytt dagskrá í tali og tón-
um. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14 fellur niður vegna biskupsvígslu.
DÓMKIRKJAN: Laugardagur:
Bænastund kl. 18 í umsjá sr. Hjalta
Guðmundssonar og sr. Jakobs Á.
Hjálmarssonar. Sunnudagur:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barna-
samkoma kl. 11 í safnaðarheimilinu
í umsjá Auðar Ingu Einarsdóttur.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðsluer-
indi kl. 10 og guðsþjónusta kl. 11
falla niður vegna undirbúnings
tæknimanna vegna beinnar út-
sendingar frá biskupsvígslu. Bisk-
upsvígsla kl. 13.30. Biskup íslands
herra Ólafur Skúlason vígir séra
Karl Sigurbjörnsson til embættis
biskups íslands. Sr. Hjalti Guð-
mundsson dómkirkjuprestur þjón-
ar fyrir altari. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson lýsir vígslu. Vígsluvottar:
sr. Birgir Snæbjörnsson, sr. Guð-
rún Edda Gunnarsdóttir, sr. Miy-
ako Þórðarson og sr. Þórhallur
Heimisson. Dómkórinn syngur
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar og Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Harðar
Áskelssonar. Organisti við vígsluna
Marteinn H. Friðriksson, dómorg-
anisti.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Organisti mgr. Pavel
Manasek. Sr. Helga Soffía Konr-
áðsdóttir. Messa kl. 14 og köku-
basar Kvenfélagsins falla niður
vegna biskupsvígslu.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kamm-
erkór Langholtskirkju syngur. M.a.
verður flutt tónlist eftir sænska
tónskáldið og jazzpíanistann Nils
Lindberg, sem einnig mun spila á
píanó. Kaffisopi í safnaðarheimili
að messu lokinni. Barnastarf í safn-
aðarheimili kl. 11. Umsjón Lena
Rós Matthíasdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnastarf á sama
tíma. Fermingarbörn sýna helgileik
og lesa ritningarlestra. Kór Laugar-
neskirkju syngur. Organisti Ástríð-
ur Haraldsdóttir. Jón Dalbú Hró-
bjartsson.
NESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Starf fyrir 8-9 ára börn á
sama tíma. Opið hús frá kl. 10.
Kirkjubíllinn ekur. Guðsþjónusta kl.
11. Ath. breyttan tíma v/biskups-
vígslu. Prestur sr. Halldór Reynis-
son. Organisti Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11 í þjóðlagastíl. Sr. Þórhallur
Heimisson prestur í Hafnarfjarðar-
kirkju syngur messuna ásamt
söngvurum og hljóðfæraleikurun-
um Guðmundi Pálssyni, sem leikur
á bassa, Erni Arnarsyni sem leikur
á gítar, og Tatu Kantoma, sem leik-
ur á harmoniku. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir prédikar. Barna-
starf á sama tíma í umsjá sr. Hild-
ar Sigurðardóttur, Agnesar Guð-
jónsdóttur og Benedikts Her-
mannssonar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 14. Einsöngur. Oddur
Albertsoon lýðskólastjóri syngur.
Barnastarf á sama tíma. Veitingar.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organisti Pavel
Smid. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Fyrirlestur á vegum foreldrafélags
sunnudagaskólans verður í safn-
aðarheimilinu á sama tíma (Agi og
uppeldi). Foreldrar fjölmennið
ásamt börnum ykkar. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Daníel Jón-
Dvínandi fylgi
borgarstjórans
asson. Barnaguðsþjónusta á sama
tíma. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son. Efni prédikunar: Dómur og
víti. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Léttur hádegisverður eftir
messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Mát-
éová. Barnastarf á sama tíma.
Umsjón Ragnar Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Um-
sjón Hjörtur og Rúna. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Engjaskóla. Um-
sjón Signý og Sigurður H. Prest-
arnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Hjörtur Hjart-
arson þjónar. Nemendur úr Tón-
listarskóla Kópavogs koma í heim-
sókn. Organisti Oddný Jóna Þor-
steinsdóttir. Barnaguðsþjónusta
kl. 13. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Stefán
Lárusson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Örn Falkner. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta fyrir
alla, stóra og smáa. Fjölbreytt dag-
skrá. Ath. Engin guðsþjónusta eftir
hádegi vegna biskupsvígslu. Org-
anisti Jón Olafur Sigurðsson. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavik: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur er Magnús
B. Björnsson. Organisti er Pavel
Smid. Kór Fríkirkjunnar syngur.
Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fnadelfía:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Vörður L. Traustason. Allir
hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Krakkakirkja kl. 11,
börn á öllum aldri velkominn . Sam-
koma kl. 20, lofgjörð, fyrirbæn og
prédikun orðsins. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 10 og fimmtudag kl.
20. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTS-KIRKJA, Landakoti:
Sunnudag: Krists konungs hátíð.
Kl. 10.30 hátíðarmessa. Messa kl.
14. Messa kl. 18 á ensku. Frá og
með 23. nóv. er messa á ensku
kl. 18, ekki kl. 20. Virka daga:
Messur kl. 8 og 18. Laugard.:
Messur kl. 8, 14 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa
sunnudag kl. 10 á þýsku.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumað-
ur Ásmundur Magnússon. Fyrir-
bænaþjónusta/bænaklútar. Allir
hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugardag
kl. 13 laugardagsskóli fyrir krakka.
Sunnudag kl. 19.30 bænastund. Kl.
20 Hjálpræðissamkoma í umsjá
Elsabet Daníelsdóttur. Mánudag kl.
15, heimilasamband, Hilmar talar.
Fríkirkjan
í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14
Prestur sr. Magnús B. Björnsson
Organisti er Pavel Smid,
kór Fríkirkjunnar syngur.
Allir velkomnir.
MOSFELLSPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Mosfells-
kirkju kl. 11. Rútuferð frá safnað-
arheimilinu kl. 10.40. Jón Þor-
steinsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr kór kirkjunnar
leiða almennan safnaðarsöng.
Organisti Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskóli yngri og eldri deild
í kirkjunni á sama tíma. Hans Mark-
ús Hafsteinsson, sóknarprestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða almennan safnað-
arsöng. Stjórnandi John Speight.
Organisti Frank Herlufsen. Ath.
breyttan tíma. Hans Markús Haf-
steinsson, sóknarprestur.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Barna- ,
kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Guðrúnar Ásbjörnsdóttur, organ-
isti Guðjón Halldór Óskarsson. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kl. 11
sunnudagaskóli í kirkju, Setbergs-
skóla og Hvaleyrarskóla. Börn úr
Hvaleyrarskóla heimsækja Set-
bergsskóla. Strætisvagn fer frá
Hvaleyrarskóla kl. 10.55. Kl. 11
guðsþjónusta. Prestur sr. Þórhild-
ur Ólafs. Prestar Hafnarfjarðar-
kirkju.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Edda
Möller. Tónlist Aðalheiður Þor-
steinsdóttir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta sunnudag kl.
11. Baldur Rafn Sigurðsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 semferfram
í Innri-Njarðvíkurkirkju. Strætó fer
frá kirkjunni kl. 10.55. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta fellur niður vegna
biskupsvígslu.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Há-
degisbænir kl. 12.05 þriðjudag til
föstudag, • Leshringur kl. 20
fimmtudag. Kvöldbænir kl. 21.30.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprest-
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Sunnudagaskólinn kl. 11. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14. Vegna
fjarveru presta á vígsludewgi bisk-
ups verður guðsþjónustan alfarið
í höndum leikmanna. Hrefna Hilm-
isdóttir mun prédika, Kór Landa-
kirkju syngur undir stjórn Guð-
mundur H. Guðjónssonar og leik-
menn annast ritningarlestra, bænir
og alla helgiþjónustu. Barnasam-
vera í safnaðarheimilinu í umsjá
Svanhildar Gísladóttur meðan á
prédikun stendur. Að lokinni athöfn
verður aðalfundur kórs Landakirkju
í safnaðarheimilinu og því fellur
messukaffið niður. Kl. 20.30 KFUM
& K Landakirkju, unglingafundur.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
samvera kl. 11. Litastund, bæn og
líflegur söngur undir stjórn Lauru
Ann og Þorvarðar. Verið alltaf vel-
komin. Kristján Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag, laugardag, kl. 11.
Stjórnandi Sigurður Grétar Sig-
urðsson. Kvöldmessa, sunnudag,
í kirkjunni kl. 20.30. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason.
Blússur
og
silkibolir
Frábært
verð
Glugginn
Laugavegi 60 simi 551 2854