Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„FESTU beltin eða ég löðrunga
þig,“ segir skrækróma flugfreyja
' •, sem segist vera frá Transylvanian
Airlines. Blaðamaður, sem hélt sig
vera í fjölleikahúsi, fálmar eftir belti
í stólnum en grípur í tómt. Flug-
freyjan horfist í augu við hann og
segir svo vottar fyrir meðaumkun í
rómnum: „Veistu ekki hvar þú ert
staddur?“
Förinni er heitið til Lastaborgar
árið 2020 e.h. (eftir Helförina). Þar
ræður ríkjum dr. Haze sem stendur
fyrir hrollvekjandi skemmtiatriðum
í borg úrkynjunar og djöfulgangs.
Klausturtónlist kraumar undir
lostafullri lýsingunni og innan um
áhorfendur vafi-a vampírur, upp-
Hryllingsfj ölleikahúsið
er forvitnileg sýning
sem ber nafn með
rentu. Pétur Blöndal
komst að raun um það
þegar hann sá sýning-
una í Lundúnaborg.
vakningar og furðuverur að
ógleymdum kroppinbaknum Igor.
„Gaman að hitta þig,“ segir blaða-
maður og brosir til hans.
Hæsta einkunn: © .
DIE WOCKE
„Það gustar af þessari mynd.“
Mannlíf
„...viðkvæmnisleg...“ Hæsta einkunn.
TV SPEILFILM
„...myndin er bæði metnaðarfull og
vel gerð...stórkostleg leikkona
MORG0NBLAÐIÐ
„Leggur upp með dásamlegum
þunga...“
STERN
„Mesti leikur Arnars Jónssonar á
hvíta tjaldinu..."
DAGSLJÓS
„...frábært hlutverk fyrir Barböru
Auer..fullheppnuð leikstjórafrumraun
hjá Einari Heimissyni.“
FRAU IM SPIEGEL
MARU
„Sömuleiðis," svarar Igor. „Eða
hitt þó heldur.“
Svo lýtur hann að grunlausri
hefðarkonu sem á leið hjá og hvísl-
ar: „Eg hata þig.“
Þannig stílar Hi-yllingsfjölleika-
húsið eða „The Circus of Horrors"
upp á að koma áhorfendum í opna
skjöldu. Rétt áður en sýningin á að
hefjast hleypur blaðamaður til og
smellir myndum af mönnum sem
hanga í gálga yfir sviðinu. I sömu
mund bergmálar um salinn: „ÞAÐ
ER STORMUR í AÐSIGI.“
„Sjáðu hvað þú gerðir!“ hrópar
flugfreyjan og blaðamaður hrökkl-
ast aftur í sæti sitt. Hún hleypur
upp á svið og lítur ráðleysislega í
kringum sig. Svo er hún skotin í
bakið, henni skóflað í líkkistu og að
síðustu er hún lögð undir græna
torfu. Blessuð sé minning hennar.
Við tekur hrikaleg sýning. Rúm-
ensk stúlka hangir á hárinu og ger-
ir loftfimleikaæfingar, hinar ýmsu
aðstoðarstúlkur eru bútaðar niður,
dansaður er línudans á skellinöðru,
sagaðir eru fætur af áhorfendum
og síðast en ekki síst treður upp
hálfnakinn maður sem virðist geta
misþyrmt skrokknum á sér tak-
markalaust.
Hann nefnist Vaxdrengurinn og
það sem hann afrekar meðal ann-
ars er að sveifla tunnum sem
hanga í geirvörtunum, troða upp-
takara upp í nefið á sér og opna
flöskur, gleypa sverð og í fram-
haldi af því rafljós sem lýsir í gegn-
um líkamann til þess að sanna að
ekki sé um neinar hundakúnstir að
ræða.
Blaðamaður veit ekki hvaðan á
sig stendur veðrið, enda aðeins séð
fjölleikahús á jólunum. Honum er
því um og ó þegar hann skyggnist
bakvið tjöldin í hléi. Á leið þangað
biður blaðamaður lostafulla konu
sem verður á vegi hans um að stilla
sér upp fyrir Ijósmynd. Hún verður
góðfúslega við því. Spyr svo: „Er
þetta fyrir klámblað?" „Nei,“ svar-
ar blaðamaður hálfmóðgaður.
„Ohhh,“ segir hún og dæsir af von-
brigðum. Næst verður maðurinn á
bakvið sýninguna á vegi blaða-
manns, - dr. Haze.
Hvernig kviknaði hugmyndin að
Hryllingsfjölleikahúsi?
„Mér leiddist og mig langaði til
að prófa eitthvað nýtt,“ svarar dr.
Haze kæruleysislega. „Eg ákvað
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
VAXDRENGURINN sýnir listir sínar.
RÚMENSKA stúlkan Mercia er komin
af Drakúla í níunda lið.
A vit vampíra og upp-
vakninga í Lundúnum
DR. HAZE vinnur
myrkraverk sín í rannsóknarstofunni.
DR. HAZE með eitt af til-
raunadýrum sínum.
DR. HAZE
lengst til hægri ásamt að-
stoðarmönnum sínum.
því að sameina fjölleikahús,
rokktónlist og hrylling, - allt sem
ég elska í lífinu. Tónlistin er frá
mér komin og flestir þeirra
sem vinna við
sýninguna
era fæddir
og uppaldir í
hefðbúndn-
um fjölleika-
húsum.“
Þarna virð-
ast vera mörg
áhættuatriði.
Hefur einhver
slasast?
„Reyndar,“
syarar dr. Haze.
„f síðustu viku
datt einn af fjór-
hjóli þegar hann var að láta það
vega salt á sviðinu og varð undir
því.“ Hann glottir: „Ætli hann
verði ekki frá næstu sýningar.“
Hafið þið farið víða?
„Já, það má segja það. Við höf-
um verið á ferðalagi í tvö og hálft
ár og voram að
koma frá Suður-
Ameríku.—' Við
höfum einnig
verið á hinum
ýmsu hátíðum.
Við fengum
fyrstu verðlaun á
Glastonben-y,
vorum vinsælust
á Edinborgarhá-
tíðinni og vökt-
um mikla athygli
í Múnchen í
fyrra.“
Að endingu
spyr blaðamaður vongóður: Eruð
þið á leið til íslands?
„Hvernig er veðurspáin?“