Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 283. TBL. 85. ARG. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Snarpar deilur á langvinnum næturfundi undir lok Kyoto-ráðstefnu SÞ ÁgTeiningiir um sölu- kvdta tafði samkomulag Kyoto. Reuters, Morgunbladið. UNDIR lok Kyoto-ráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna um umhverfísmál í gærkvöldi var útlit fyrir að sam- komulag um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda væri í burð- arliðnum. Heimildarmenn sögðu í gærkvöldi að Bandaríkjamenn hefðu fallist á að taka til greina athugasemdir Kínverja um sölukvóta á losun, en hann var helsta þrætueplið undir lokin. Fundi var fram haldið til klukkan níu í morgun að stáðar- tíma, eða til miðnættis í gær að ís- lenskum tíma. Raoul Estrada, formaður alls- herjarnefndar ráðstefnunnar, frestaði fundi um klukkan hálffimm í morgun að staðartíma þegar deilur milli fulltrúa iðnríkja og þróunar- landa um losunarkvóta virtust komnar í óleysanlegan hnút. Hálfri klukkustund síðar setti Estrada fund á ný og sagði þá að þrjár klukkustundir væru til stefnu því ráðstefnunni yrði að ljúka klukkan átta, eða klukkan ellefu í gærkvöldi að íslenskum tíma. Skömmu fyrir ellefu var síðan tilkynnt að fundað yrði lengur. Sæst var á að ráðstefnan tæki til umræðu athugasemdir Kínverja við tillögum Bandaríkjanna um losun- arkvóta og var þá hægt að halda fundi áfram. Tillagan að lokasátt- mála var í gær lengst af að mestu óbreytt frá því sem var á þriðjudag, en undir lokin hafði orðalagi m.a. verið breytt þannig að í stað þess að „iðnríkjum beri“ að minnka losun skyldu „iðnríki leitast við að minnka losun“. Meðal þess sem olli hvað mestum deilum um sáttmálatillög- una voru ákvæði um að þróunarríkj- um væri „heimilt" að draga úr út- blæstri gróðurhúsalofttegunda, og ákvæði um kvóta á losun, sem geng- ið gæti kaupum og sölum. Það voru helst iðnríkin sem beittu sér fyrir ákvæðinu um heim- ild til handa þróunarlöndum, sem sjálf vildu ekki sjá slíkt ákvæði þvi óréttlátt væri að þau tækju þátt í að draga úr losun nú, þegar efnahagur þeirra væri í vexti. Var þetta ákvæði fellt út úr tillögunni. Aður en nýju tillögumar voru kynntar í gær sagði bandarískur fulltrúi að þróunarlöndin héldu samkomulaginu „í gíslingu" með andstöðu sinni við kvótasölu. Sagði embættismaðurinn við Reuters síð- degis í gær að líkur á að endanlegt samkomulag næðist væru „í mesta lagi 30 prósent". Skipuleggjendur ráðstefnunnar höfðu vonast til þess að henni lyki fyrir miðnætti í gær að japönskum tíma (15.00 að íslenskum tíma) og klukkan sjö í morgun að staðartíma þurfti ráðstefnunni að vera lokið því að þá þurfti að rýma húsakynnin. Embættismenn SÞ sögðu að ef ekk- ert hefði þokast um klukkan fimm í morgun væri öll nótt úti. Andstæðingar samkomulagsins á Bandaríkjaþingi eru reiðubúnir að koma í veg fyrir að þingið leggi blessun sína yfír það, en samþykki þingsins er forsenda þess að Banda- ríkin fari að ákvæðum samkomu- lags. Trent Lott, leiðtogi repúblik- ana í Öldungadeildinni, sagði í yfir- lýsingu í gær að deildin myndi ekki samþykkja „gallaðan sáttmála". ■ Bandaríkjamenn/42 Reuters Albright í Uganda MADELEINE Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, heldur á sjö mánaða gömlu barni í bænum Gulu í Norður-Uganda, sem hún heimsótti í gær. Móðir barnsins féll fyrir byssukúlum uppreisnar- manna í landinu en fjögurra ára gamall bróðir þess bjargaði því og eru börnin nú í búðum fyrir fóm- arlömb stríðsátakanna. Albright er nú á ferð um sjö Afríkuríki. Reuters JUDY Williams hneigði sig fyrir Tun Channareth, kambódisku fórnarlambi jarðsprengju sem tók við verð laununum fyrir hönd ICBL, áður en hún tók sjálf við verðlaununum. Assad hvetur fund múslimaríkjanna í Teheran Rjúfi tengsl við Israel Teheran. Reuters. HAFEZ al-Assad, forseti Sýrlands, sagði í gær á leiðtogafundi samtaka múslimalanda, OIC, að öll ríki múslima yrðu að rjúfa tengsl sín við ísraela. Hann sagði að hófsemi af hálfu araba leiddi aðeins til öfga og ofstækis í ísrael. Assad sagði að samvinna arabaríkjanna við ísraela þjónaði aðeins útþenslustefnu Israela, sem vildu drottna yfir nágrannaþjóðum sínum og etja allri heimsbyggðinni gegn múslimum. „Reynslan hefur sýnt okkur að öfgar ísraela aukast eftir því sem hófsemi araba eykst.“ Sýrlendingar hafa einkum áhyggjur af tengslum ísraela við Tyrki sem þau segja stofna öryggi Sýrlands í hættu. Tyrkir hafa neitað að rjúfa þessi tengsl ojg tóku á móti varnarmálaráðherra Israels fyrr í vikunni. Sýrlendingar bera einnig kala til Husseins Jórdaníukonungs og Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu- manna, vegna friðarsamninga þeirra við ísraela. Stjórn Benja- mins Netanyahus, forsætisráðherra Israels, hefur verið sökuð um að svíkja samningana við Palestínu- menn og Sýrlendingar segja það réttlæta tortryggni sína í garð ísra- ela. ■ Leiðtogar araba deila/33 Friðarverðlaun Nóbeis afhent í Ósió Baráttu verði haldið áfram Ósld. Reutcrs. JODY Williams, sem farið hefur fremst í flokki herferðar gegn notkun jarð- sprengna, og Tun Channareth, fulltrúi Alþjóðasamtaka um jarðsprengju- bann, ICBL, tóku við friðarverðlaunum Nóbels við hátíðlega athöfn í Ósló í gær. Verðlaunahafarnir, sem hlutu verðlaunafé að andvirði 7,5 milljóna sænskra króna (tæplega 70 milljónir íslenskra króna), hétu því við athöfn- ina að halda áfram baráttu sinni gegn notkun og framleiðslu jarð- sprengna. Williams sagði að alþjóðlegur samningur gegn jarðsprengjum, sem undirritaður var af fulltrúum 122 rikisstjórna í síðustu viku, sannaði að vilji almennings og ríkisvalds geti farið saman. Samningurinn sé þó ekki fullkominn en muni verða lagfærður. Þá sagði hún samvinnu u.þ.b. 1.000 grasrótarhreyfinga að þessu markmiði sögulegan áfanga sem hefði breytt veraldarsögunni. Hún endurtók ekki fyrri ásakanm sínar á hendur Bandaríkjastjórn, við athöfnina, en sagðist gera sér grein fyrir því hversu erfitt það hefði ver- ið öðrum þjóðum að standa gegn Bandaríkjunum sem neituðu að und- irrita samninginn. Það hefði því ver- ið sér mikils virði að sjá þjóðir sem studdu bannið standa fast á sínu og að hún tryði því að þær hefðu þar með hafist handa við að skapa nýtt risaveldi sem myndi í framtíðinni vinna saman að þróun nýrra tíma. Rae McGrath, leiðtogi ICBL, ávarpaði samkomuna fyrir hönd samtakanna. I ræðu sinni hvatti hann allar þjóðir heims til að undir- rita samninginn og sakaði Bandarík- in, Kína, Rússland og aðrar þjóðir, sem ekki hafa undirritað hann, um skort á mannúð. Þá hvatti hann þá sem þegar hafa undirritað samning- inn til að vinna að því að lönd þeirra verði meðal íyrstu 40 ríkjanna til að lögleiða bann við notkun og fram- leiðslu jarðsprengna. Talið er að 60-100 milljónir jarð- sprengna leynast nú í 69 löndum heims og að þær drepi og örkumli rúmlega 25.000 manns árlega. Það samsvarar allt að þremur á hverjum klukkutíma að meðaltali. Jeltsín á heilsuhæli Moskva. Reuters. BORÍS Jeltsín Rússlandsfor- seti þjáist af heiftarlegri vírus- sýkingu í öndunarfærum. For- setinn fékk sýkinguna upp úr kvefi sem hann fékk á meðan á Stokkhólmsheimsókn hans stóð í síðustu viku. Talsmaður forsetans sagði hann ekki vera rúmliggjandi en að læknar hefðu ráðlagt honum að halda sig innandyra. Hann muni því dvelja sér til hressingar á Barvikha heilsu- hælinu, fyrir utan Moskvu, næstu 10 til 12 daga. Jeltsín gekkst undir hjartaaðgerð í nóvember á síðasta ári og fékk síðan lungnabólgu í febrúar. Talsmaður Bandaríkjafor- seta sagðist telja, samkvæmt þeim upplýsingum sem liggi fyrir um ástand forsetans, að ekki sé ástæða til að óttast um heilsu hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.