Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
. Ákjósanleikí
I MORGUNBLAÐ-
INU 25. nóv. síðastlið-
inn var fremur stutt
frétt undir fyrirsögn-
inni „Skagaíj'örður
ákjósanlegur fyrir olíu-
hreinsunarstöð". Þessi
fyrirsögn sló mig eín-
kennilega. Ég þóttist
vita að Skagfirðingar
væru upp til hópa glað-
sinna og skemmtilegt
éHk og fjörðurinn fall-
egur. Sjálf hef ég ít-
rekað notið gestrisi
þeirra og söngelsku
auk náttúrufegurðar
héraðsins. Ég gat ekki
áttað mig á því hvers
þeir ættu að gjalda - samkvæmt
mínum skilningi á landgæðum og
landnotkun er enginn staður ákjós-
anlegur fyrir olíuhreinsunarstöð.
En svo fór ég að hugsa með mér
að einhvers staðar yrðu nú vondir
að vera og það væri nú kannski
sanngjarnt að íslendingar tækju að
sér eitthvað af þeirri mengun og
leiðinda störfum sem aðrir þyrftu
kannski annars að þola. Ekki er
na víst bætandi á ástandið í Rúss-
landi og Ameríkanar
framleiða manna mest
af koltvísýringi og
ýmsum óþverra. - Já,
eiga Islendingar ekki
bara að bjóðast til að
taka við eins og einni
olíuhreinsunarstöð?
Það má líta á það sem
þróunaraðstoð við þjóð
sem er að brjótast úr
viðjum sovétsins, með
tilheyrandi umhverfís-
vandamálum - nú og
okkur munar ekkert
um að víkja smá greiða
að Ameríkönum í leið-
inni. - En þrátt fyrir
annálaða gestrisni
Skagfírðinga, er þetta rétt hugarf-
ar?
Kannski mætti frekar hugsa sem
svo: Við íslendingar meinum það
sem við (stundum) segjum! Við vilj-
um eiga „hreinasta land í heimi“ -
enda erum við vel upplýst, vel
menntuð og vel nærð. Gæti verið,
að okkar framlag til aðstoðar stór-
þjóðum heimsins væri að leggja til
örlitla visku í umræðuna um um-
hverfísmál? Ekki reyna að halda
Salvör
Jónsdóttir
því fram að við séum að bjarga
heiminum með því að virkja öll fall-
vötn sem við komum böndum á, til
að auka stóriðju. Ef við í raun vilj-
um leggja eitthvað til umhverfís-
mála í heiminum, verður það best
gert með því að auka skilning á
samskiptum manns og umhverfís -
og með áræði til að virkja - ekki
fallvötn, heldur visku. Umhverfis-
vandamál heimsins verða ekki leyst
Óæskileg landnotkun,
segir Salvör Jónsdótt-
ir, er hér kynnt sem
óskadraumur.
með fleiri stóriðjuverum á íslandi -
þau verða miklu fremur leyst með
bættum skilningi og breyttu gildis-
mati. Nauðsynlegt er að draga úr
neyslu og breyta áherslum í neyslu-
venjum. Skipuleggja byggðir og
samgöngur þannig að minni orku
sé þörf. Efla má fjarskiptatækni og
þróa hugbúnað sem enn fremur
gæti dregið úr orkunotkun.
En lítum nú aðeins nánar á grein-
ina um Skagafjörð:
Hún hefst á frásögn um að við-
skipta- og iðnaðarráðherra segist
telja að Skagafjörður sé besti stað-
urinn fyrir ólíhreinsunarstöð hér á
og Bose Acoustimass Am5
hátalarar a=
jofhtiujóði
59.900
stgr
Verð áður 69.900
Það fer ekkl mikið fyrír
llllu orkuverunum frð Bose
en ðhrifln eru stórkostleg.
Bose hðtalararnlr fðst í
fillum stærðum og gerðum
ð verðí frð 23.900 kr. stgr.
Bose Acoustlmass AmlO
Dolby Prologic heimabíó-
hðtalarar ð 94.900 kr. stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 569 1500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt.
íe-imí
m AU7 M M KANAM
Venjulegir hátalarar
Bose Acoustimass
Lifandi tónleikar
landi - hér er sem sagt vitnað til
viðskipta- og iðnaðarráðherra um
það, hvar staðsetja skuli umdeilan-
lega landnotkun - og hver skyldu
viðmiðin vera? Lítum fyrst á rökin
fýrir því hvers vegna olíuhreinsun-
arstöð skuli vera á íslandi:
„til landsins væri stutt og greið
leið frá nýjum olíulindum í Bar-
entshafí. Lega íslands skapaði
markað fyrir dísilolíu í Evrópu
og markaði fyrir bensín í Banda-
ríkunum. Á íslandi væru góð
hafnarskilyrði fyrir stór tank-
skip og möguleiki á hagstæðum
orkukaupasamningi."
Þessi óður um legu og landsins
og náttúrulegar aðstæður þess
minnti mig á að fyrr hefur verið
ljallað um kosti landsins:
Landið var fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar,
himinn heiður og blár,
hafíð var skínandi bjart.
Þá komu feðurnir frægu
og frjálsræðishetjurnar góðu
austan um hyldýpishaf,
hingað í sælunnar reit.
(Jónas Hallgrímsson, ísland.)
Síðar í greininni er greint frá
rökum þess að velja Skagafjörð
fyrir olíuhreinsunarstöð: „Þar væru
góðar iðnaðarlóðir til staðar og
Yfir 20 tegundir
af sófaborðum á lager
- Ýmsar viðartegundir
Fákafen 9, sími 568 2866
möguleiki á góðri og sérstaklega
djúpri höfn.“ Þetta eru sem sagt
viðmiðin. Ekki er fjallað um mann-
líf í þessu sambandi.
Þegar faglega er unnið er að
ákvörðunum um landnotkun, (oft-
ast kallað skipulag) eru sett upp
ákveðin viðmið til að auðvelda
ákvarðanatöku. Þessi viðmið geta
verið af ýmsum toga, allt eftir því
að hveiju er stefnt í þjóðfélaginu,
þ.e.a.s eftir því, hvaða markmið
Íýðræðislega kjömir fulltrúar hafa
sett sér. Viðmiðin geta verið af fé-
lagslegum toga, t.d.: Mun tilvonadi
landnotkun stuðla að jöfnuði; milli
stétta? milli kynja? milli kynslóða?
Þá geta viðmiðin verið af efna-
hagslegum toga, t.d.: Mun tilvon-
andi landnotkun stuðla að arðsemi;
til skammtíma? til langtíma?
Sumar þjóðir taka einnig tillit til
umhverfíslegra viðmiða, t.d.: Mun
tilvonandi landnotkun stuðla að því
að; endurnýjanlegar auðlindir við-
haldist? Að ekki sé gengið á óend-
urnýjanlegar náttúruminjar og
verðmæti?
Val á viðmiðum fer auðvitað eft-
ir því hvaða markmiðum viðkom-
andi stjórnendur hyggjast ná.
En víkjum aftur að greininni:
„Verið er að vinna að forhag-
kvæmnisathugunum —hugtakið
bendir til að verið sé að athuga
hvort þetta sé arðvænleg hugmynd.
Gott og vel, en er arður það sem
skiptir mestu (eina) máli? - Er líka
verið að athuga áhrif á mannlíf, á
umhverfi? Ef svarið er „nei“, hver
er þá skýringin? Er hagkvæmnin
meira virði en allt annað? Og enn
og miklu fremur, hvernig er hag-
kvæmnin útreiknuð? - Er verið að
reikna með hagkvæmni fyrir núlif-
andi kynslóðir eða komandi kyn-
slóðir einnig?
Það er afar eðlilegt að ríkisstjórn
vilji fara með ráð yfír landnotkun,
hins vegar skv. gömlum og nýjum
skipulagslögum eru ákvarðanir um
landnotkun í höndum heimamanna.
Einmitt þess vegna nýtir ríkisvaldið
sér alla möguleika til að móta skoð-
anir heimamanna - oftar en ekki
með því að slá fram frétt eins og
þeirri sem hér er vitnað til. Óæski-
leg landnotkun er hér kynnt sem
óskadraumur.
Við ákvarðanatöku er því nauð-
synlegt að staldra við og spyija:
Munum við ganga til góðs götuna
fram eftir veg?
Höfundur erland- og
skipulagsfræðingur.
1
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
f FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.
- kjarni málsins!