Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 47
ARON ORN
JÓHANNSSON
+ Aron Örn Jó-
hannsson fædd-
ist á Landspítalan-
um 17. september
1997. Hann andað-
ist á heimili sínu 4.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Jóhann Örn
Logason, f. 5. októ-
ber 1979, og María
Gréta Einarsdóttir,
f. 17. ágúst 1978.
Utför Arons Arn-
ar verður gerð frá
Fossvogskirkju í
dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
„Hann sem alltaf bíður situr við
hliðina á barninu. Þú getur líka kall-
að hann Hann sem aldrei sefur,
vegna þess að hann sefur aldrei en
vakir alltaf og bíður eftir öllum sem
koma. Þess vegna stendur hann þar
sem Dimmidalur endar og Sumar-
sléttan byijar. En í fyrsta skipti sem
lítið barn sefur í grasinu á Sumar-
sléttunni situr hann við hlið þess og
gætir þess, þótt engar hættur leyn-
ist þar. Þegar barnið vaknar, lítur
hann á það og brosir. Hann strýkur
því um vangann og höndin er hlý
og létt eins og vængur á fiðrildi."
(Ur „Sumarlandinu" eftir Eyvind
Skeie.)
í dag kveðjum við litla dótturson
minn hann Aron Örn. Hann kom inn
í líf okkar þegar haustið svarf að,
kveikti með okkur gleði og kærleika
og hvarf síðan á braut þegar jólaljós-
in hófu að lýsa upp svartasta
skammdegið.
Aron Orn var fullkomlega heil-
brigður og undurfallegur lítill dreng-
ur. Hann brosti við öllum sem litu
til hans, grét nánast aldrei.
Tárin blinda, sorgin rífur í hjartað
en minningarnar verða aldrei frá
okkur teknar.
Ég leit inn til Arons og Maríu á
morgnana áður en ég fór í vinnuna.
Hann lá stundum vakandi, í vögg-
unni sinni og um leið og hann sá
mig lýsti litla andlitið upp í brosi sem
aldrei gleymist. Ég baðaði hann í
stóra baðinu og fannst ég forrétt-
indamanneskja að fá að sjá hann
brosa og sprikla af_ vellíðan þegar
vatnið umlék hann. Ég fékk að gefa
honum pela og hann horfði á mig
án þess að blikka auga á meðan
hann drakk.
Aroni Erni fannst gott að láta
spila á gítar fyrir sig, stijúka sér á
milli augnanna, fá dudduna sína en
best þótti honum að vera í fanginu
á mömmu sinni og hún sýndi ótrú-
lega færni í að gera eitt og annað
með litla drenginn sinn
með sér.
Aron Örn á foreldra
sem elska hann tak-
markalaust. Þau ganga
nú í gegnum þá sárustu
sorg sem hægt er að
leggja á nokkra mann-
eskju. Hvers vegna í
ósköpunum leggur al-
mættið. þetta á ungar
manneskjur sem eru _að
byija lífið saman? Ég
sé ekki tilganginn en
ég trúi því og treysti
að hann sé einhver.
Aron Örn tendraði
ljós kærleikans í sálum
okkar allra og ég veit að þar mun
það loga að eilífu.
Elsku Majan mín og Jói, megi
kærleikur Guðs umlykja ykkur og
styrkja þegar þið kveðjið litla dreng-
inn ykkar.
Amma Jenny.
Þú komst í heiminn á afmælisdegi
pabba, sem er látinn. Þú lést á af-
mælisdegi móðursystur minnar og
nöfnu, sem dó 11 ára. Þú verður til
moldar borinn á afmælisdegi Settu
ömmu og munt hvíla hjá henni. Ein-
kennilegar tilviljanir.
Ég minnist stundanna þegar ég
hélt þér í fangi mínu. Þú horfðir
stöðugt og rannsakandi í augu mín
með þínum skýru, brúnu augum og
ég talaði við þig og þá kom þetta
yndislega bros þitt sem sendi geisla
inn í sál mína. Síðan sofnaðir þú
vært í fangi mínu og ég hélt áfram
að horfa á þetta fallega andlit og
finna ylinn frá líkama þínum. Þessar
sælustundir sem þú gafst mér mun
ég geyma í hjarta mínu. Ég veit að
þín bíða útréttir armar og þú verður
umvafinn kærleika.
Ó, blíði Jesús blessa þú
það barn er vér þér felum nú,
tak það í faðm og blítt það ber
með bömum Guðs á örmum þér.
(V. Briem.)
Sigríður anima.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
- hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði er fyr naut hugur minn
er orðin hljómlaus utangátta og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm,
hjá undri því að líta lítinn fót .
í litlum skóm og vita að heimsins gijót
MINNINGAR
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir menn,
já vita eitthvað anaa hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
[ stundareilifð eina sumamótt.
Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt.
(Halldór Laxness.)
í dag kveðjum við þig, ástkæri litli
frændi okkar, Aron Öm. Þú gafst
okkur svo mikið þá stuttu stund sem
við fengum að hafa þig hjá okkur og
fyrir það viljum við þakka.
Við munum alltaf muna eftir þér
eins og þú varst á mánudeginum sem
við fengum að eiga saman áður en
þú fórst. Þegar við fórum með þér
og mömmu þinni í búðir að skoða
jóladót inn í litla fína húsið ykkar
og kaupa jólagjöfina handa þér. Þú
varst svo ljúfur og góður og þegar
við komum heim eftir allt stússið
spriklaðir þú og hjalaðir á teppinu
á stofugólfinu okkar, úthvíldur og
hress eftir að hafa sofið svo vært
aila búðarferðina. Við eigum öll okk-
ar minningarbrot um þig, elsku
Aron, sem við munum geyma með
okkur um alla tíð. Þú varst yndisleg-
ur og fallegur drengur sem brostir
við öllum og undir þér allra best hjá
litlu, duglegu mömmunni þinni sem
var þér svo undurgóð. Þú munt allt-
af eiga mjög sérstakt sæti í hjarta
okkar og minning þín mun alltaf lifa
þar.
Elsku Jói og besta litla María
systir mín. Ykkar missir er mikill
og þið eigið hug okkar allan í dag
þegar þið kveðjið litla drenginn ykk-
ar. Megi góður guð styrkja ykkur
og hugga í þessari miklu sorg.
Helga Björk, Jón og
Jökull Bjarki.
Þegar ég hugleiði æviskeið Arons
Arnar Jóhannssonar finnst mér orð-
in hvergi passa betur við’ æviskeiðið
hans, en þau sem segja: „Þeir, sem
guðirnir elska, deyja ungir.“
Engum datt það í hug, að litli og
laglegi drengurinn, sem fæddist 17.
september sl., ætti ekki lengri líf-
daga en til 4. desember sl. hér á
þessari jörð.
Ég og móðir Arons vorum sam-
starfsmenn í ísbúðinni í Kringlunni
um tæplega eins árs skeið og tókst
þar með okkur vinátta. Báðar áttum
við von á barni um svipað leyti.
Báðar eignuðumst við drengi, sem
voru myndarlegir og heilbrigðir að
sjá við fæðingu.
Og þar sem heimili okkar voru
skammt hvort frá öðru lágu leiðir
okkar oft saman.
Ekki varð betur séð, en að Aron,
sem var bæði skír, brosmildur og
duglegur, væri í alla staði heilbrigt
barn.
En skjótt bregður sól sumri.
Drengurinn, sem lagður var til hvíld-
ar árla morguns, var dáinn um há-
degisbilið í vöggunni sinni.
Ég minnist Arons Arnar með
söknuði og bið honum blessunar
Guðs. Foreldrum hans votta ég inni-
lega samúð og fjölskyldu hans allri.
Megi góður Guð blessa hann og
taka hann í faðm sinn og ljós upp-
risusólarinnar skína á vegferð hans
og lýsa honum á heilagri vegferð til
æðri og fullkomnari heimkynna ei-
lífa lífsins.
Ég kveð Aron Örn með þessum
ljóðlínum úr barnasálmi Páls Jóns-
sonar:
Ó Jesú, bróðir besti
og bamavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á bamæskuna mína.
Mig styrk í stríði nauða
æ, styrk þú mig í dauða.
Þitt lífsins ljósið bjarta
þá ljómi í mínu hjarta.
Við urðum átakanlega vör við
hverfulleik lífsins þegar okkur bár-
ust þær sorgarfréttir að Aron Örn
væri dáinn, rétt tæplega þriggja
mánaða gamall. Andlát þessa litla
engils er þyngri sorg en nokkur orð
fá lýst. Það eru þung örlög sem á
ykkur, ungu foreldrana, eru lögð,
þið sem eruð rétt að hefja ykkar
fullorðinslíf.
Elsku María og Jóhann Örn, við
óskum þess að hugljúfar minningar
um lítinn yndislegan dreng og guðs-
trú ykkar megi verða stuðningur í
þessari djúpu sorg. Öðrum aðstand-
endum og þá sérstaklega Siggu
systur, ömmu Arons, sem opnaði
heimili sitt fyrir þessari ungu fjöl-
skyldu, vottum við okkar dýpstu
samúð.
Sigurður Már, Finnbogi og
fjölskyldur.
Emilía, Benedikt
og Benóný Orri.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VILHJÁLMUR B. HJÖRLEIFSSON
yfireidvarnaeftirlitsmaður,
sem lést á heimili sínu, Starmýri 2, þriðju-
daginn 2. desember, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 12. des-
ember, kl. 13.30.
Ásgerður Birna Björnsdóttir,
Björn Vilhjálmsson,
Margrét Helga Vilhjálmsdóttir, Þorvaldur H. Kolbeins,
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Egill Kristjánsson,
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, besti vinur og
félagi,
SIGURSTEINN GUNNARSSON
tannlæknir,
Suðurgötu 7 í Reykjavík,
til heimilis
á Bragagötu 24,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins 7. desember sl., verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 15. desember nk.
kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minn-
ast hans, er bent á Minningarsjóð Karls Sighvatssonar til styrktar ungum
tónlistarnemum, íslandsbanka, Lækjargötuútibú reikningsnúmer 513-
14-300534 eða Minningarsjóð Arnórs Björnssonar til styrktar sálfræði-
legra rannsókna, sími 560 1721 á Landspítala.
Fyrir hönd systkina, tengdaforeldra og annarra vandamanna,
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.
RADAUGLÝ5INGAR
Stjórn listamannalauna
Auglýsing um starfslaun
listamanna árið 1998
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun
til handa listamönnum árið 1998 í samræmi
viö ákvæöi laga nr. 35/1991 með áorðnum
breytingum.
Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir einstaklinga skulu hafa borist Stjórn
listamannalauna, menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þartil gerðum
eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn
15. desember 1997.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun list-
amanna 1998" og tilgreina þann sjóð sem sótt
er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá
menntamálaráðuneytinu.
Heimilt er að veita starfslaun til stuðnings leik-
hópum, enda verði þeim varið til greiðslu
starfslauna til einstakra leikhúslistamanna.
Umsóknir leikhópa skulu berast Stjórn lista-
mannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þartil gerðum
eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn 15.
desember 1997.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun list-
amanna 1998 — leikhópar". Umsóknareyðu-
blöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath.: Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun
verður umsókn hans því aðeins tekin til um-
fjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamanna-
launa skýrslu um störf sín í samræmi við
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr.
35/1991 með áorðnum breytingum.
Vakin er athygli á að hægt er að ná í um-
sóknareyðublöð á Internetinu á heimasíðu
Stjórnar listamannalauna.
Slóðin er: http://www.mmedia.is/listlaun
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur
rennur út mánudaginn 15. desember nk.
Reykjavík, 14. nóvember 1997.
Stjórn listamannalauna.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Landsst. 5997121119 VIII
I.O.O.F. 5 = 17812118 = MA
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Munið áramótaferðina i Þórs-
mörk 31/12—2/1. Brottför
gamlársdag kl. 8.00. Góð gisting
í Skagfjörðsskála. Gönguferðir,
kvöldvökur, flugeldar og ára-
mótabálköstur. Pantið og takið
farmiða tímanlega.
Sögusýning í Mörkinni 6
Sögusýning-. Ferðafélagsins „Á
ferð í 70 ár“ í félagsheimilinu
Mörkinni 6 er opin á virkum dög-
um kl. 16.00—18.00 og um helg-
ar kl. 14.00-18.00.
I.O.O.F. 11 [ 1781211872 .0. Jv.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Jólagospel kl. 20. 30.
Sheila Fitzgerald talar.
Aögangur ókeypis.
Allir hjartanlega velkomnir.
ss'"'í. Frá Sálar-
> ^ rannsóknar-
félagi
íslands
Spíritistasamkoma/jólafundur.
Sunnudaginn 14. desember
kl. 14 verður SRFI með spíritista-
samkomu og jólafund á Soga-
vegi 63, Reykjavík. Allir eru vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
SRF(.
- kjarni málsins!
*
/
7»