Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
1-
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykja-
víkur ósammála heilbrigðisráðherra
Engin raun-
hækkun á fjár-
veitingum
um árabil formaður finnska
Rauða krossins. Hann hefur
auk þess gegnt mikilvægiim
störfum á erlendum vettvangi í
heilbrigðismálum.
Heiðursmerkið er æðsta við-
urkenning Rauða kross íslands
og veitt af forseta Islands en
Sveinn Björnsson, fyrsti forseti
íslands, var fyrsti formaður
Rauða kross Islands.
Ávallt veitt
á stofndegi
Samkvæmt forsetabréfi má
sæma íslenska menn og erlenda
heiðursmerkinu ef þeir þykja
þess verðir af störfum sínum að
mannúðarmálum. Skal veitingin
jafnan fara fram á stofndegi
Rauða krossins, sem er 10. des-
ember. Forseti íslands skipar
þrjá menn í orðunefnd Rauða
kross íslands og eiga þar sæti
nú Anna Þrúður Þorkelsdóttir,
formaður RKÍ, Bjarni Jónsson
læknir og Ásgeir Pétursson,
formaður orðunefndar.
Morgunblaðið/Arnór
Bflar útaf í Garðinum |
FÓLKSBÍLL valt við Leiru í
fyrrakvöld á mótum afleggjarans
að golfskálanum. Var bílstjórinn
að aka framúr er hann missti
stjórn á bílnum. Fór bíllinn þvers-
um á veginum og lenti á hvolfi ut-
an vegar rétt við skurð. Bílstjórinn
hafði nýlega fest kaup á bílnum.
Tveir voru fluttir á Sjúkrahúsið í
Keflavík en fengu að fara heim að
skoðun lokinni. Hálka var þegar
slysið varð. Þá fór bíll með tengi-
vagn út af Garðvegi í gær en litlar
sem engar skemmdir urðu. Nota
varð kranabíl til að ná bflnum aft-
ur upp á veg.
Félag eldri borgara í Reykjavfk vill kaupa Glæsibæ
Borgin styrkir kaupin
með fjárframlögum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
styrkja Félag eldri borgai-a í
Reykjavík og nágrenni (FEB) um 20
milljónir króna á næstu fjórum árum
vegna kaupa félagsins á hlut í húsinu
Álfheimum 74 fyrir félagsaðstöðu og
skrifstofu. Auk þess mun borgin af-
henda félaginu sinn hlut í núverandi
húsnæði þess að Hverfisgötu 105,
Risinu, til eignar en borgin á 40%
eignarhlut í því á móti félaginu.
Greidd verða atkvæði um kaupin á
félagsfundi í FEB í Glæsibæ nk.
laugardag.
Gert er ráð fyrir að borgin afhendi
FEB hlut sinn í Hverfisgötu 105 til
eignar og skuldbindi sig til að
styrkja félagið um fimm milljónir
króna á ári frá 1998 til og með 2001
með þeim skilmálum að Fram-
kvæmdasjóður aldraðra styrld kaup-
in um a.m.k. þær 19 milijónir sem
áætlun FEB gerir ráð fyrir. Þá er
samkomulag einnig háð því að FEB
leggi borginni til endurgjaldslaust
húsrými í Glæsibæ fyrir bækistöð
heimaþjónustu í hverfinu, 40-50 fer-
metra, sé þess óskað og í allt að 10
ár. Ennfremur að þegar og ef
Reykjavíkurborg óski þess að reka
félagsmiðstöð fyrir aldraða í Voga-
og Heimahverfi, leggi félagið til hús-
næði og taM að sér rekstur hennar
samkvæmt þjónustusamningi. Þá er
gert ráð fyrir að tekjuáætlun FEB
vegna húsakaupanna verði endur-
skoðuð sameiginlega af félaginu og
borginni snemma árs 2001 og komi
þá í ljós að tekjur félagsins leyfi
kaupin án þess að til fjórðu greiðslu
borgarinnar komi eða að félagið
komist af með lægri styrk frá borg-
inni árið 2001 en 5 milljónir, skuli
styrkur borgarinnar síðasta árið
lækkaður eða felldur niður með öllu.
Kaupverð 95 milljónir króna
Kaupverð húsnæðisins og ýmissa
tækja og búnaðar sem því fylgja er
að sögn Ragnars Jörundssonar,
framkvæmdastjóra FEB, 95 millj-
ónir króna. Húsnæðið er 1.244 fer-
metrar að grunnfleti, auk 266 fer-
metra sameignar.
EkM hafa allir verið á eitt sáttir
innan Félags eldri borgara um
ágæti húsnæðisins. Eitt af þvi sem
margir eiga erfitt með að sætta sig
við er að húsnæðið er í kjallara eða
jarðhæð og þyMr ekM nógu bjart.
Ragnar Jörundsson bendir aftur á
móti á að hlerar sem verið hafa fyrir
gluggum á vesturhlið salarins hafi
þegar verið fjarlægðir og þar með sé
það vandamál úr sögunni.
Pétur H. Ólafsson, einn stjómar-
manna, segir gluggana þó ekM eina
vandamálið. Hann telur ekM skyn-
samlegt að kaupa húseign sem kom-
in er til ára sinna og gæti þarfnast
miMls viðhalds. Þá segist Pétur hafa
í höndum mun betra tilboð um nýtt
húsnæði sem á að fara að byggja við
Skúlagötu. Þar standi félaginu til
boða 840 fermetrar á fyrstu haeð,
með húsgögnum, á 115 milljónir
króna. Pétur segir það tilboð ekM
hafa verið skoðað sem skyldi í stjórn
félagsins, auk þess sem hugmyndir
um kaup á húsnæðinu í Glæsibæ
hafi ekki verið nægilega kynntar.
, Morgunblaðið/Kristinn
FORSETI Islands, Olafur Ragnar Grímsson, hengir gullmerkið um háls Guðjóns Magnússonar
og Hákan Hellberg stendur álengdar til hægri.
STJÓRNENDUR Sjúkarhúss
Reykjavíkur eru ósammála þeim
ummælum Ingibjargar Pálmadóttr
ur heilbrigðisráðherra, í Morgun-
blaðinu í gær, að fjárveitingar til
sjúkrahússins hafi auMst að raun-
gildi á síðustu tveimur árum. Magn-
ús Skúlason, framkvæmdastjóri
SHR, segir enga raunhækkun hafa
orðið.
Magnús segir að taka verði tillit
til launa- og verðlagshækkana þeg-
ar gerður sé samanburður á milli
ára og meta fjárveitingar á föstu
verðlagi. Séu fjárveitingar bomar
saman á verðlagi vísitölu samneysl-
unnar komi í ljós að ekM hafi orðið
raunækkun á framlögum til spítal-
ans. Þar að auM hafi orðið miklar
breytingar á þjónustunni, m.a. með
aukinni starfsemi á Landakoti.
Magnús bendir einnig á að í
greinargerð fjárlagafrumvarps
komi fram að hækkun frá fjárlögum
yfirstandandi árs vegna launa- og
verðlagsbóta þyrfti að vera 340
millj. kr. en hækkunin sé hins vegar
291 millj. og því minni en sem nem-
ur verðlagshækkunum.
í frétt Morgunblaðsins í gæi'
sagði heilbrigðisráðherra einnig að L
miMum fjármunum hefði verið varið
til viðhalds á sjúkrahúsunum í I
Reykjavík á þessu ári. Magnús er |
ósammála þessu og bendir á að
vandinn vegna viðhalds utanhúss á
byggingum SHR miMll og óleystur.
Að sögn Magnúsar líta stjómend-
ur SHR svo á að auknar fjárveiting-
ar til sjúkrahúsanna í Reykjavík,
sem stjómarmeirihlutinn hefur náð
samkomulagi um í tengslum við af-
greiðslu framvarps til fjáraukalaga, k
dugi hvergi nærri til vegna fyrirsjá-
anlegs rekstrarvanda spítalans á I
næsta ári. Sjúkrahúsin í Reykjavík |
glími eftir sem áður við mikla fjár-
vöntun.
OPIDI DAG TIL KL.
22:00
HOLTAGARÐAR
Reykjavíkur Apótek
Hiti í stéttina
eftir áramót
GATNAMÁLASTJÓRI hyggst
taka gangstéttina við Reykjavíkur
Apótek, Pósthússtrætis megin, í
gjörgæslu þar til veðurfar leyfir að
hún verði endurnýjuð og hitalögn
sett í hana upp úr áramótum. Þang-
að til verður þess gætt að stéttin
verði ekM hál með því að bera á
hana sand. Að sögn Sigurðar Skarp-
héðinssonar gatnamálastjóra hefur
missMlningur varðandi stéttina ver-
ið leiðréttur í sátt og samlyndi við
Jóhannes F. Skaftason lyfsala.
Sigurður segir ákveðnar leikregl-
ur gilda um hitalagnir sem þessar.
Þegar gangstéttir em endurnýjað-
ar kerfísbundið er haft samband við
húseigendur og eiga þeir þá mögu-
leika á að leggja til bakrennsli frá
húsum sínum, sem síðan er safnað
saman í einn bmnn og dreift þaðan
í götur og gangstéttir.
Þar sem borgin er ekki að endur-
nýja gangstéttir, eins og tilfellið er
í Pósthússtræti, aðhefst gatnamála-
stjóri ekkert nema viðkomandi hús-
eigandi ósM eftir að stéttin verði
tekin upp. Húseigandinn verður þá
að vera reiðubúinn að leggja til
bakvatn og eiga hitalagnimar í göt-
unni. „I tilfelli eins og þessu svör-
um við nær undantekningarlaust
játandi, en við eigum ekM fram-
kvæðið vegna þess að það er ekki á
okkar framkvæmdaáætlun að end-
urnýja viðkomandi stétt,“ segir
Sigurður en ítrekar jafnframt að
misskilningurinn hafi verið leiðrétt-
ur og hiti verði lagður í hana eftir
áramót.
Hlutu æðsta heið-
/
ursmerki RKI
FORSETI fslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, veitti í gær Guð-
jóni Magnússyni, fyrrverandi
formanni Rauða kross íslands,
og Hákan Hellberg, fyrrverandi
formanni finnska Rauða kross-
ins, gullmerki, sem er æðsta
heiðursmerki Rauða kross fs-
lands, við athöfn að Bessastöð-
um í gær.
Tólf einstaklingar hafa verið
sæmdir gullmerki Rauða kross-
ins frá árinu 1949 en það var
síðast veitt árið 1989. Þá hafa
47 einstaklingar verið sæmdir
silfurmerki Rauða krossins.
Guðjón Magnússon hefur um
árabil starfað sem sjáifboðaliði
Rauða krossins, innanlands sem
utan. Hann var varaformaður
Reykjavíkurdeildarinnar árin
1981 til 1985 og formaður
Rauða kross íslands 1986-1996.
Guðjón hefur einnig gegnt
mörgum trúnaðarstörfum í
sameiginlegu starfi Norður-
landanna, svo og innan Alþjóða-
sambands landsfélaga Rauða
krossins og Rauða hálfmánans.
Var hann einn af varaforsetum
þess árin 1989-1993.
Virkur í norrænu samstarfi
Hákan Hellberg hefur verið
virkur í norrænu samstarfi
Rauða kross-félaganna og í
málefnum hreyfingarinnar á al-
þjóðlegum vettvangi. Hann var