Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 75
FÓLK í FRÉTTUM
Árni Egilsson
Skúli Sverrisson
Snillingar á myndband
JÓLIN nálgast og margir velta fyr-
ir sér með hverju þeir geti glatt ná-
ungann. Geisladiskar seljast í tug-
þúsunda tali enda landinn tónelsk-
ur. En áhugamenn um íslenska tón-
list eiga þess nú líka kost að eignast
góða gjöf á myndbandi.
Kvikmyndagerð Reykjavíkur hef-
ur gefíð út á myndbandi þætti um
þrjá íslenska tónlistarmenn búsetta
í Bandaríkjunum sem hún fram-
leiddi í samvinnu við Sjónvarpið og
voru sýndir þar í mars. Þættirnir
nefnast íslenskir tónar - Þrír
meistarar í Ameríku, og eru eftir
Steingrím Dúa Másson en um kvik-
myndatöku sá Ai-nar Þór Þórisson.
Eins og margir muna er djassgít-
arleikarinn Jón Páll Bjarnason
heimsóttur til Kaliforníu, en Leon-
ard Feather, einn virtasti djass-
gagnrýnandi þar vestra, er sann-
færður um að hann sé gítarsnilling-
ur.
í Kaliforníu er einnig búsettur
Nekt gegn
heimilis-
ofbeldi
PIETRA Thornton, fyrrverandi
eiginkona leikarans, leikstjórans og
handritshöfundarins Billys Bobs
Thomtons, segist vera kristinnar
trúar og afar guðrækin. Það að hún
hafí komið nakin fram á síðum Play-
boy hafi verið hluti af baráttu henn-
ar gegn heimilisofbeldi.
„Ég les Biblíuna líklega oftar en
flestir prestar," segir hún í samtali
við USA Today. „Það eina sem ég
tala um heima hjá mér við krakkana
er Jesú. Þeir hoifa ekki á sjónvarp,
aðeins trúarmyndbönd."
Pietra situr nakin fyrir í janúar-
hefti Playboy og segir myndirnar
vera „fórn af sjálfri sér ... Ég vildi
ná til fólks og vekja það til umhugs-
unar um heimilisofbeldi."
Hún heldur því fram að eigin-
maður hennar, sem vann til ósk-
arsverðlauna fyrir myndina Sling
Blade, hafí lamið og bitið hana og
bætir við að sér finnist hann „aumk-
unarverður".
Ámi Egilsson bassaleikari sem
vinnur fyrir helstu kvikmyndatón-
skáldin í Hollywood, auk þess að
vera áhugvert tónskáld sjálfur.
Að lokum hittum við fyrir Skúla
Sverrisson bassaleikara í New
York, sem lifir og hrærist í tónlist-
arlífi þessarar miklu menningar-
borgar, og er álitinn einn af efni-
legri tónlistarmönnum þar.
Sama verð og geisladiskur
- Steingrímur Dúi, er það ekki
nýlunda að þáttagerðarmenn gefí
verk sín út á myndbandi?
„Jú, en mér fannst íslenskir tón-
ar tilvalin eign í bókaskápnum.
Myndbandið er selt á viðráðanlegu
verði og það er spennandi að láta
reyna á þennan markað. Þetta er
markaður sem hefur lítt verið kann-
aður, en á sjálfsagt eftir að stækka,
og fleira þáttagerðarfólk að notfæra
sér þennan möguleika. Við eram
stöðugt að ala upp nýjar mynd-
bandakynslóðir sem hafa sínar þarf-
ir auk þess sem það er alltaf að
verða ódýrara að framleiða þætti.
Þess vegna er þetta 120 mínútna
myndband á sama verði og geisla-
diskur.“
Japis sér um dreifingu mynd-
bandsins sem hægt er að nálgast í
hljómplötu- og bókabúðum auk
verslana Hagkaups.
- Þér hefur ekki dottið í hug að
gera þætti um djassleikara á ís-
iandi?
„Það gæti líka orðið mjög gaman.
Upphaflega ætlaði ég bara að gera
þátt um einn þeirra, en fyrst ég var
að fara til Bandaríkjanna á annað
borð þá var eins gott að fá að fjalla
um fleiri jafngóða tónlistarmenn.
Ætlunin var því aldrei að taka tón-
listarmenn í Bandaríkjunum fram
yfir þá sem starfa hér á landi, það
er ekki máhð,“ sagði Steingrímur
Dúi ánægður með framlag sitt til
jólamarkaðarins.
RFSTiUR \NT
Tískusýning
á Kaffi Reykjavík í kvöld, 11. des., kl. 21.30
Tfskuverslunln
(4Bti>s i c a
Sýndur verður fatnaður frá versl. Laugavegi 46
og frá Heimsmönnum Laugavegi 41,
pelsar frá Eggerti feldskera
og gleraugu sýnir LIN
Skólavörðustíg
Aðalstræti 9
Kynnir Heiðar Jónsson snyrtir
í jólaskapi í tilefni kvöldsins.
Módelsamtökin sýna.
I
Tilboð á mat
Prinsessuskinka m/gráöosta-
sósu og kryddhrísgrjónum kr. 950
Allir velkomnir
Hljómsveitin Hunang leikur til 01.00
Borðapantanir í símum
562 5530 - 562 5540
KEEFISLOFT
avarac
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ
PP
&CO
LEITIÐ TILBOÐA
BYGGINGAVORUR
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 / 568 6100
‘Miindii , „
HEILSUJOLAGJOFINA
Medisana
f/íerít(omfj
Hlý gjöf handa
gdöum vini
'Leiðbeinandi smásöluverð
reifing: i&d... ehf.
ELÞJN
SKIÐAPAKKAR
mmssúmt
Verö meö pakkaafslætti
frá kr. 12.990 stgr.
frá kr. 16.567 stgr.
frá kr. 20.689 stgr.
kr. 14.952
Barnapakki
Unglingapakki
Fullorðinspakki
Gönguskíðapakki
Tökum notaðan
skíðabúnað
upp í nýjan
Pokasett
m/skíðapökkum
tilboð kr. 3.500
U S Q (3 A GQ
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 5519800 og 5513072.