Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
FRETTIR
Fjárhagsáætlun Reykj aví kurborgar fyrir árið 1998
Kostnaður vegna gatna
og ræsa 3,2 milljarðar
TIL NÝFRAMKVÆMDA, reksturs
og viðhalds gatna og holræsa er
áætlað að verja rúmlega 1.830 millj.
króna á næsta ári samkvæmt fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1998. Er það 4% hærri upphæð
en áætlun yfirstandandi árs. Heild-
arkostnaður vegna framkvæmda og
reksturs er áætlaður tæpir 3,2 millj-
arðar en var rúmir 3 milljarðar á
yfirstandandi ári.
Þetta kom fram í ræðu borgar-
stjóra við fyrri umræðu um flár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar og
sagði borgarstjóri jafnframt að á
móti útgjöldunum kæmu tekjur af
gatnagerðargjöldum, holræsagjöld,
framlag ríkisins vegna viðhalds þjóð-
vega og vegna stuðnings við frá-
veituframkvæmdir. Sagði Ingibjörg
að veruleg aukning yrði á rekstra-
kostnaði holræsa þegar hreinsi- og
dæiustöð við Mýrargötu yrði tekin í
notkun. Því væri mælt með að auka
hlutdeild rekstrar í tekjum af holræ-
sagjaldi.
Merkur áfangi
„I ársbytjun er merkum áfanga í
frárennslismálum höfuðborgarsvæð-
isins náð, þegar tekin verður í notk-
un hreinsistöð fyrir skólp, sem risin
er við Ánanaust á móts við Mýrar-
götu,“ sagði Ingibjörg. „Samhliða
opnun stöðvarinnar hefst dæling á
frárennslinu í útræsi um 4 km langt,
sem veitir því út á um 30 metra
dýpi.“
Kom fram hjá borgarstjóra að
næsta verkefni í frárennslismálum
yrði framhald af framkvæmdum við
Laugarnes. Það væri brýnt verkefni,
þar sem skólpi sé veitt út skammt
frá ströndinni við Kirkjusand en þar
ætti eftir að leggja útrásarlögn út á
10-15 metra dýpi út af Laugarnesi.
Við það yrði mengun við ströndina
norðan Sæbrautar mun minni.
Sagði borgarstjóri að fram til
þessa hafí áætlanir um uppbyggingu
aðalholræsakerfisins miðast við að
byggja hreinsistöðvar í Geldinganesi
og austan Laugarness auk Mýrar-
götustöðvarinnar. í tillögu að stefnu-
mótun í holræsamálum sé hins vegar
gert ráð fyrir að hætta við fram-
kvæmdir í Geldinganesi en stækka
mannvirkin austan Laugarness sem
því nemi. I tillögunni væri gert ráð
fyrir að Laugarnesstöðin yrði tekin
í notkun árið 2000. „Ef þetta á að
takast, þarf að byija á landfyllingum
og undirbúningi af krafti á næsta
ári og upphafsframkvæmdir við
ströndina verða því stærsta einstaka
verkefnið í holræsamálum árið
1998,“ sagði borgarstjóri.
Af öðrum holræsaframkvæmdum
nefndi borgarstjóri ræsi, sem tengj-
ast núverandi og fyrirhuguðum ný-
byggingarhverfum í Staðarhverfi,
Grafarholti og Norðlingaholti, en
samtals er varið til þeirra rúmlega
90 millj. Er gert ráð fyrir að verja
til nýframkvæmda við holræsi 571
millj. en á móti þeim útgjöldum koma
heldur lægri tekjur eða 440 millj.
af holræsagjaldi og 110 millj. í fram-
lag frá ríkinu.
Endurbætur á Reykjavíkurhöfn
530 milljónir til
nýframkvæmda
Áætlaðar lántökur 540 milljónir
á næstu fjórum árum
KOSTNAÐUR vegna nýfram-
kvæmda á vegum Reykjavíkurhafn-
ar er áætlaður 531 milljón króna á
næsta ári samkvæmt fjárhagsáætl-
un Reykjavíkurborgar fyrir árið
1998. Þar af er áætlað að veija 281
milljón til framkvæmda í olíuhöfn
við Örfirisey, 149 milljónum í fram-
kvæmdir við Sundahöfn, 37 milljón-
um í Gömlu höfnina og 36 milljónum
til _að hefja gijótnám í Geldinganesi.
í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra við fyrri umræðu
um fjárhagsáætlun borgarinnar kom
einnig fram að vegna eftirspumar
eftir aðstöðu og til að ná hag-
kvæmni í framkvæmdum væri æski-
legt að auka framkvæmdahraða á
næstu tveimur til þremur árum og
grípa til lántöku. Er áætlað að taka
200 milljónir að láni á næsta ári en
340 milljónir á næstu fjórum árum
auk hugsanlegra lána vegna kaupa
á eignum til þróunar á eldri hafnar-
svæðum. Nefndi borgarstjóri að með
makaskiptum hefði borgarsjóður
eignast rampa upp á Faxaskála og
til þess að hægt yrði að taka bíla-
stæði á þakinu í notkun þyrfti að
endurnýja yfírborðið. Aætlaður
kostnaður er um 40 milljónir.
Olíuhöfn stærsta
framkvæmdin
Borgarstjóri sagði að stærsta
framkvæmdin á næsta ári yrði gerð
olíubryggju í Örfirisey. Skjólgarður
yrði lengdur frá norðausturhluta
Órfiriseyjar út í Engeyjarsund. Þar
er bryggja sem þjónar dreifingu á
olíu á ströndina en innan við nýja
skjólgarðinn verður gerð bryggja
fyrir tankskip ailt að 40 þús. tonn
að stærð sem flytja olíu til landsins.
I gömlu höfninni er áætlað að halda
áfram landgerð en ný umferðarteng-
ing verður opnuð að Vesturhöfninni
þegar tengt verður inn á Fiskislóð
og Grandagarð frá hringtorgi við
Ánanaust og Mýrargötu. Jafnframt
er gert ráð fyrir endurbótum á
dráttarbrautinni sem Reykjavíkur-
höfn keypti af Stálsmiðjunni auk
þess sem unnin verður úttekt á fram-
tíðaraðstöðu til skipaviðgerða í
Reykjavík.
Aukin umsvif við
Vogabakka
Borgarstjóri sagði að gert væri
ráð fyrir auknum umsvifum við
Vogabakka og er búist við að ný
frystigeymsla Samskipa laði nýja
viðskiptavini að og að úthlutun til
BYKO og Húsasmiðjunnar muni
leiða til aukins innflutnings á bygg-
ingarvöru. Er áformað að lengja
Vogabakka vegna þessa til suðurs
en einnig til norðurs með tilheyrandi
landauka til að auka hagræði við
gámaflutninga og afgreiðslu gáma-
skipa á vegum Samskipa.
BÁCKLIN flytur ávarp sitt, næst honum stendur Claes Frankhammar, formaður félags sænskra
blikksmiðjueigenda og þá arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer.
verðlaun afhent
Norræn arkitekta-
NORRÆNU arkitektaverðlaunin fyrir athyglis-
verða notkun á þunnmálmum í byggingum voru
afhent í aðaldómssal Hæstaréttar á mánudag.
Sigurvegarar urðu að þessu sinni tveir danskir
arkitektar fyrir vinnnu við Kongens Bryghus í
Kaupmannahöfn og Margrét Harðardóttir og
Steve Christer í Studio Granda fyrir Hæstarétt-
arhúsið nýja.
Samtök norrænna blikksmiða hafa staðið
fyrir samkeppninni undanfarin tiu ár en
verðlaunin eru 50.000 sænskar krónur, um
460 þúsund ísl. kr. Var það Leif Bácklin,
formaður Norrænu blikksmiðjusamtakanna,
sem afhenti þau.
Einnig var kynnt nýtt fræðslurit um notkun
hvers konar málma við klæðningu húsa sem
Félag blikksmiðjueigenda og Félag blikksmiða
standa að.
93 móttökur á
vegum borgarinnar
7 milljónir í bæt
ur vegna slyss
I LOK nóvember sl. hafði Reykja-
víkurborg staðið fyrir 93 móttök-
um á árinu og á síðasta ári voru
þær yfir 80.
Þetta kom fram í ræðu borgar-
stjóra við fyrri umræðu um ijár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1998. Sagði borgarstjóri að
gestum hefði einnig fjölgað milli
áranna 1996-1997 .eða um rúm-
lega 4 þús. en að íjölgunin endur-
speglaðist ekki í auknum veislu-
kostnaði. Hann hækkaði um eina
milljón miili áranna eða úr 16,7
millj. árið 1996 í 17,7 millj. það sem
af er árinu 1997.
*
Akært vegna
hnefaleika
LÖGREGLUEMBÆTTIÐ í Reykja-
vík hefur gefið út ákæru á hendur
fjórum aðstandendum Hnefaleika-
félags Reykjavíkur. Þeim er gefið
að sök að hafa brotið gegn banni
við keppni eða sýningu á hnefaleik
og kennslu.
Héraðsdómur Reykjavíkur heim-
ilaði lögreglu 21. október síðastliðinn
að gera húsleit í húsnæði Hnefa-
leikafélags Reykjavíkur og lagði lög-
regla þar hald á gögn og muni sem
tengjast hnefaleikum.
----».4 ♦---
Stærsta
bókaklukkan
REISA á stærstu bókaklukku í heimi
í Kringlunni í Reykjavík kl. 15. í dag.
Klukkan er hlaðin úr eintökum
af bókinni Tóta og Tíminn, eftir
Bergljótu Arnalds og nær hún frá
1. hæð upp á 2. hæð Kringlunnar.
í tengslum við þetta mun Skjald-
borg, sem gefur bókina út, efna til
getraunar þar sem geta á upp á því
hve mörg eintök fóru í að byggja
hana.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
manni um 7 milljónir í bætur eftir
slys í veiðiferð 1991. Maðurinn var
farþegi í jeppa félaga síns. Sá taldi
sig aka eftir vegarslóða, en reynd-
ist aka eftir rofi í jarðveginum.
Jeppinn valt, maðurinn kastaðist
út, klemmdist undir bílnum, slas-
aðist mikið og er nú 20% öryrki.
Tryggingafélag ökumannsins
taldi farþegann hafa sýnt af sér
stórfellt gáleysi með því að taka
þátt í þeim háskaleik að aka um
vegleysur, utan vega og vegaslóða,
í ófæru um hánótt í lélegu skyggni
og allt benti til að mennirnir hefðu
verið undir áhrifum áfengis.
Áfengisneysla fyrir
slys ekki sönnuð
Hæstiréttur segir félagana ekki
hafa sýnt þá varfærni sem eðlileg
hafi verið, en þessi óaðgæsla nægði
þó ekki til að telja farþegann hafa
sýnt af sér slíkt gáleysi að skerti
bótarétt hans.
Þá vísar Hæstiréttur til þess, að
ökumaðurinn hafi staðfastlega
neitað að hafa drukkið fyrir slysið,
en fengið sér bjór eftir það. Far-
þeginn hafi viðurkennt að hafa
fengið sér bjór með matnum, en
fengið viskí eftir slysið. Slysið hafi
orðið um kl. 1 um nóttina og björg-
unarsveitarmenn, sem báru að
mennirnir hefðu verið drukknir,
komið á vettvang kl. 5. Lögreglu-
maður sem flutti þá á heilsugæslu-
stöð sagði þá hafa verið ölvaða,
en ekki voru tekin blóðsýni. Segir
Hæstiréttur með öllu ósannað að
ökumaðurinn hefði verið drukkinn
er slysið varð.
Tveir hæstaréttardómarar af
fimm komust að þeirri niðurstöðu
að ferðalag félaganna hafi verið
með kæruleysisbrag, nær ekkert
skyggni vegna þoku, bílstjórinn
ekki þekkt leiðina og hvorugur í
öryggisbelti. Því væri eðlilegt að
farþeginn bæri sjálfur þriðjung af
tjóni sínu.
Stórhöfðas vítan
flutt á Stórhöfða
STORHÖFÐASVÍTAN eftir Árna
Johnsen verður kynnt á Stórhöfða
í Vestmanneyjum á laugardaginn
kl. 12.30.
Sinfóníuhljómsveit íslands und-
ir stjórn Bernarðs Wilkinsons,
ásamt fleiri hljóðfæraleikurum, lék
Stórhöfðasvítuna I upptöku fyrir
Ríkisútvarpið fyrr á árinu en tón-
verkið verður á dagskrá útvarpsins
27. desember. Stórhöfðasvítan,
sem tekur 23 mínútur í flutningi,
verður flutt í hátalarakerfi á Stór-
höfða, en svítan er í 10 köflum,
úr lögum, sem Árni hefur samið
við ljóð Davíðs Stefánssonar, Hall-
dórs Laxness, Matthíasar Johann-
essen, Jóns Helgasonar, Jóhannes-
ar úr Kötlum og fleiri.
Öllum er fijáls aðgangur að
kynningunni meðan sæti leyfa.
Boðið verður upp á súpu, en tón-
leikagestum er bent á að klæða
sig vel.